Dagur - 20.05.1986, Page 11
20. maí 1986 - DAGUR - 11
-myndlist_________________________
Frumsýning Ragnheiðar
- Um sýningu Ragnheiðar Þórsdóttur í Gamla Lundi
1: PIOMEER
Bíltæki og
hátalarar.
Vikuna 1. til 8. maí síðastliðinn
hélt ungur listamaður, Ragnheið-
ur Þórsdóttir, sína fyrstu sjálf-
stæðu myndlistarsýningu í Gamla
Lundi á Akureyri. Pví miður
virðast fjölmiðlar enn einu sinni
hafa brugðist upplýsingaskyldu
sinni hvað listviðburði snertir og
er löngu kominn tími til þess, að
þeir taki upp ákveðnari stefnu
hvað frásagnir af listviðburðum
varðar.
Vegna fjarveru úr bænum átti
undirritaður þess ekki kost að
heimsækja sýningu Ragnheiðar,
fyrr en á síðasta sýningardegi. Sú
er meðal annars skýringin á þess-
ari síðbúnu umsögn. Margir virð-
ast hins vegar haldnir þeim mis-
skilningi, að það sé hlutverk list-
rýnis að geta um væntanlegar,
eða yfirstandandi sýningar, en
svo er ekki. Það er hlutverk
fréttamanna.
Eins og fyrr er getið, var þessi
sýning Ragnheiðar frumraun
hennar á sýningarsviðinu og von-
andi ekki sú síðasta. Ragnheiður
nam á sínum tíma við Myndlista-
og handíðaskóla íslands (textíl-
deild) og seinna við John F.
Kennedy University í San Fran-
cisco. Þar tók hún mastergráðu í
frjálsri myndlist. Síðastliðinn vet-
ur kenndi Ragnheiður mynd-
mennt við Síðuskólann hér á
Akureyri.
Yfir sýningu Ragnheiðar var
sérlega sterkur heildarsvipur og
greinilegt á vinnubrögðum henn-
ar að þau eru markviss og forðast
hún að reisa sér hurðarás um öxl.
Ragnheiður hefur að sjálfsögðu
unnið mikið að myndvefnaði, en
Vegna veikinda átti ég þess
ekki kost að sjá sýningu Sam-
úels í Bjargi. Það er skýringin
á því að umsögn kom engin frá
minni hendi hér í blaðinu.
R. Lár.
Ragnar
Lár
skrifar
aðeins eitt myndvefnaðarverk
var á þessari sýningu hennar. Það
var verkið „Vonin11^ sem er í
senn fallegt og persónulegt verk.
Langflest verkin í neðri salnum
voru unnin í svart/hvítu. Mörg
þeirra voru hreinar kolteikning-
ar, sem undirrituðum fundust
gerðar sem formyndir að textil-
verkum, en textil á greinilega
sterk ítök í Ragnheiði og undrar
engan sem til náms hennar
þekkir. Hins vegar standa þessar
kolteikningar vel fyrir sínu sem
sjálfstæð verk. Mesta athygli
undirritaðs vöktu hins, vegar
myndir sem Ragnheiður vinnur
með tækni sem er hennar eigin
uppfinning. Um er að ræða mál-
verk og teikningar sem Ragn-
heiður sker í ræmur og fléttar
síðan saman á ný og nær hún á
þann hátt fram afar skemmtileg-
um áhrifum í formum og áferð.
Þetta er vandasöm aðferð og
varla á færi annarra en þeirra sem
þekkja galdur vefsins.
I risi Gamla Lunds sýndi Ragn-
heiður nokkur olíukrítarmálverk
og í þeim réð litagleðin ríkjum.
Það var rétt ákvörðun að halda
þeim myndum aðskildum frá
svart/hvítu myndunum í aðal-
salnum.
Ragnheiður Þórsdóttir fór vel
af stað með sinni fyrstu sýningu
og verður gaman að fylgjast með
henni, ef hún þróar verk sín af
sömu marksækni. Undirritaður
hefði persónulega kosið að sjá
fleiri myndvefnaðarverk á sýn-
ingunni, en sú ósk er að sjálf-
sögðu byggð á tilætlunarsemi.
Það fer hins vegar ekki á milli
mála, að myndvefnaður á sterk
ítök í myndsköpun Ragnheiðar
og myndhugsun allri. R. Lár.
MYNDLISTASKOLINN
Á AKUREYRI
Inntökupróf
Inntökupróf í Myndlistaskólann á Akureyri fyrir skólaárið
1986-1987 verður haldið dagana 2.-4. júní n.k.
Umsækjendur láti skrá sig í skrifstofu skólans
fyrir 23. maí.
Allar nánari upplýsingar í síma 24958.
Skólastjóri
Kjörskrá
til prestskosninga í Kaupangssókn Öngulsstaða-
hreppi liggur frammi frá 15.-26. maí nk. á eftirtöld-
um stöðum: Þórustöðum 5, Kaupangi og Ytra-
Hóli II.
Kærufrestur er til 1. júní.
Sóknarnefnd.
Úrval af
veiðivörum.
Fyrir byrjendur
sem lengra komna.
SÍMI
(96)21400
II
BILAHOLLIN
Opnuðum í dag eina glæsilegustu bílasölu landsins!
Haldgóð reynsla sölumanna
og 600 m2 sýningarsalur
tryggja góða rB^asava
þjónustu
BILAHOLLIN
STRANDGÖTU 53 (gamla BSA-verkstæðinu)
S 23151 0 23484