Dagur - 20.05.1986, Page 12
★ Töflumælar
volt-amper-rið-KW mælar
með og án varna
-<x>-
-fi-
STRAUMRASSF
ÞJÓNUSTA MEÐ LOFT- HÁÞRÝSTI- OG RAFMAGNSVÖRUR
Furuvöllum 1 • 600 Akureyri • Sími 96-26988
„Heimilið ’86
Norðlendingum
boðin þátttaka
Dagana 28. ágúst til 7. sept-
ember á þessu ári mun fyrir-
tækið Kaupstefnan í Reykja-
vík gangast fyrir sýningunni
„Heimilið ’86.“ Sýningin verð-
ur haldin í Laugardalshöllinni.
Kaupstefnan hefur boðist til að
setja upp sérstaka Norður-
landsdeild á sýningunni.
Fjóðrungssamband Norðlend-
inga hefur ákveðið að standa að
þessari sýningu og beita sér fyrir
þátttöku norðlenskra fyrirtækja í
henni. Petta mun verða gert í
samstarfi iðnþróunarfélaganna á
Norðurlandi.
Eins og segir í bréfi Fjórðungs-
sambands Norðlendinga, sem
sent hefur verið fyrirtækjum á
Norðurlandi. „Telja verður þetta
kjörið tækifæri fyrir norðlensk
fyrirtæki að sýna framleiðslu sína
á höfuðborgarsvæðinu fyrir hæfi-
legan kostnað. Petta er jafnhliða
sölusýning framleiðenda. Sá
möguleiki er fyrir hendi að
smærri fyrirtæki frá sama byggða-
lagi geti sameinast um einn sýn-
ingarbás, svo og minni sveitarfé-
lög einnig.“
Ákveðnir eru fundir með fyrir-
tækjum á Norðurlandi til undir-
búnings þessu verkefni og verða
þeir haldnir sem hér segir: Fyrir-
tæki og aðilar austan Ljósavatns-
skarðs (Þingeyjarsýslur), mæti á
fund á Hótel Húsavík kl 13,30
þriðjudaginn 20. maí n.k. Fyrir-
tæki og aðilar á Eyjafjarðar-
svæði, mæti á fund í Álþýðuhús-
inu við Skipagötu á Akureyri kl.
21,00 þriðjudaginn 20. maí n.k.
Fyrirtæki og aðilar á Norðurlandi
vestra, mæti á fund í Félags-
heimilinu Bifröst á Sauðárkróki
kl. 14,00 miðvikudaginn 21. maí
n.k.
Á fundina mæta fulltrúar frá
Kaupstefnunni og skýra frá hug-
myndum um fyrirkomulag sýn-
ingarinnar. gej.
Hljómsveitartónleikar
í tilcfni af 40 ára starfsafmæli Tónlistarskólans á Akureyri, hélt skólinn hljómsveitartónleika í Skemmunni á hvíta-
sunnudag. Þar léku kammerblásarasveit skólans, sinfóníuhljómsveit og svo „stúdíóhljómsveit“, sem sjá má á mynd-
inni og er nýbreytni í starfsemi skólans. Áheyrendur voru um þrjú hundruð. Mynd: KGA
Fólskuleq árás
Aðfaranótt sunnudags var
maður á Húsavík sleginn í
höfuðið með flösku. Atburð-
urinn átti sér stað á heimili
mannsins og skildu árásar-
mennirnir hann einan eftir rot-
aðan og liggjandi í blóði sínu.
Maðurinn var einn heima í
íbúð sinni umrædda nótt er
mennirnir knúðu dyra. í sama
bili og maðurinn opnaði fyrir
gestunum var hann sleginn í
höfuðið með flösku af slíku afli
að flaskan brotnaði. Gestirnir.
virtust ekki eiga annað erindi því
þeir tóku til fótanna og skildu
manninn einan eftir, en hann
rotaðist við höggið og skarst á
höfði. Er maðurinn rankaði við
sér gat hann náð í aðstoð og var
fluttur í sjúkrahús þar sem sár
hans voru saumuð saman. Árásin
hefur ekki verið kærð til lög-
reglu.
Talsverð ölvun var á Húsavík
umrædda nótt. Meðal annars
hafði lögreglan afskipti af nokkr-
um ungmennum sem ekki virtu
lokunartíma sundlaugarinnar og
fengu sér sundsprett. -IM
Eldur í íbúöarhúsi
Á laugardag kviknaði í íbúðar-
húsi á Húsavík. Eldur varð
laus í mannlausri íbúð og voru
upptök eldsins út frá frysti-
kistu.
Fólk í næsta húsi varð eldsins
vart og kallaði á aðstoð. íbúi í
húsinu, nágrannar og lögregla
gátu haldið eldinum í skefjum
með handslökkvitæki þar til
slökkviliðið kom á vettvang með
reykkafara er réði niðurlögum
eldsins endanlega.
Skemmdir urðu í herberginu
þar sem eldurinn kom upp og var
mikill reykur í íbúðinni. Mikil
mildi var að ekki fór verr þarna
því húsið sem um ræðir er
tveggja hæða timburhús. Ber það
nafnið Hlíðskjálf og var byggt
1904. Ekki hefði langurtími mátt
líða uns eldurinn hefði magnast
svo að illa hefði gengið að ráða
við hann. IM
Bliki hf. Dalvík:
Byggir þúsund fer-
metra fiskvinnsluhús
„Staðan hjá okkur er góð,
nema það vantar fólk í físk-
vinnsluna. Reyndar hefur það
verið svo í allan vetur,“ sagði
Ottó Jakobsson hjá Blika h/f á
Dalvík, en það fyrirtæki er
með fískverkun og útgerð á
staðnum.
Ottó sagði að auglýst hefði ver-
ið í vetur eftir fólki, en ekkert
hefði komið út úr því. „Fólk gefst
upp á fiskvinnu og flytur suður og
þar fer það í þjónustugreinar
ýmiss konar, þar sem þar heldur
að það sé að hreppa eitthvað
betra. En því miður verður þetta
fólk oft fyrir miklum vonbrigðum
með skiptin. En þetta er allt
spurning um kaup,“ sagði Ottó.
Bliki h/f gerir út Blika EA-12, en
hann er 150 tonn. Einnig sér
fyrirtækið að hluta til um útgerð
togarans Baldurs. Eins eru
nokkrar trillur og bátar í við-
skiptum við fyrirtækið.
Ottó sagði að Bliki hefði verið
á rækjuveiðum í vetur og hefði
það verið mögulegt því nægjan-
legt hráefni hefði fengist frá öðr-
um bátum. Rækjan er síðan unn-
in hjá Söltunarfélagi Dalvíkur,
því rækjuvinnsluvélar eru ekki til
hjá Blika h/f.
Afli hefur verið góður hjá
þeim bátum sem leggja upp hjá
fyrirtækinu og fer mest af honum
í salt. „Þó er venjan hjá okkur
þegar hættir að frjósa á vorin að
hengjum upp þorsk fyrir Ítalíu-
markað og hefur það komið mjög
vel út,“ sagði Ottó.
Byrjað er að grafa grunn að
nýju húsi Blika h/f og er þar um
að ræða „framhald af því sem
unnið hefur verið hjá fyritækinu.
Það er ekki hugmyndin að breyta
rekstrinum við þessa stækkun,
heldur gefur hún möguleika á
auknu plássi fyrir vinnsluna,“
sagði Ottó. Nýja húsið er um
1000 ferm að gólffleti. Bliki h/f á
fyrir fiskverkunarhús, sem er
svipað að stærð og það nýja
verður.
Framleiðsla Blika h/f er 430
tonn af saltfiski á ár og um 70
tonn af þurrfiski. gej-
Svæðisútvarp og Rás 2:
Kynning á framboðslistum
Svæðisútvarpið á Akureyri hóf
s.i. fímmtudag kynningu á
þeim listum sem eru í framboði
á stærri stöðum á Norðurlandi.
Á fímmtudaginn var fjallað um
D og H lista á Ólafsfirði. Á
föstudaginn var svo fjallað um
D, B og G lista á Dalvík.
í kvöld verður fjallað um A og
D lista á Siglufirði og á morgun
um G, M og B lista á Siglufirði.
Framhald verður á þessari
kynningu svæðisútvarpsins fram
að kosningum. Fyrirkomulag
kynninganna er á þann hátt að
einn maður frá hverjum lista
kemur í „stúdíó“ og svarar
spurningum fréttamanns um
stefnu síns lista. Hlustendur
svæðisútvarpsins fá einnig tæki-
færi til að hringja og leggja
spurningar fyrir frambjóðendur.
Þessar kynningar hefjast kl. 17.30
og fær hver listi um 15 mínútur.
Nk. fimmtudag 22. maí verða
kynntir A og B lista frá Húsavík.
Daginn eftir, eða föstudaginn 23.
maí verða kynntir D, G og Þ list-
ar á Húsavík. Þá er eftir kynning
fyrir Akureyri, en þriðjudaginn
27. maí verða kynntir D og B
listar. Daginn eftir verða G, A og
M listar kynntir.
í svæðisútvarpinu mánudaginn
26. maí verða kosningamál í
Hrísey rædd, en þar er kosning
óhlutbundin.
Norðlendingum gefst einnig
kostur á að hlusta á kynningar
listanna á Rás 2. Kynnig listanna
verður þessi:
Miðvikudaginn 21. maí listar á
Siglufirði, sunnudaginn 25. maí
listar á Húsavík, mánudaginn 26.
maí listar á Ólafsfirði, þriðjudag-
inn 27. maí listar á Dalvík og
miðvikudaginn 28. maí listar á
Akureyri. Þessar útsendingar
hefjast allar kl. 22.00. gej-
Flugskýli á
Blönduósi
Nú er orðið ljóst að flugskýli
mun verða reist við fíugvöll-
inn á Blönduósi í sumar. Þar
eru nú til tvær flugvélar í eigu
áhugaflugmanna en alla að-
stöðu hefur skort til þessa.
Keypt hefur verið boga-
skemma frá Hollandi og er hún
væntanleg á næstunni, en búið
er að jafna land undir hana og
trúlega verður byrjað á sökkl-
um um hvítasunnuna. Það eru
eigendur flugvélana sem fyrir
byggingunni standa en auk þess
er öllum áhugamönnum um flug
á Blönduósi velkomið að taka
þátt í framkvæmdinni. Ekki er
nokkur vafi á því að tilkomu
flugskýlisins er beðið með
óþreyju á staðnum því hingað
til hefur eina ráð flugvélaeig-
enda verið að tjóðra vélarnar
niöur við hæla sem reknir hafa
verið í jörðu í þessum tilgangi,
og við flutningabíl eins flug-
mannsins, ef eittþvað hefur ver-
ið að veðri. Áætlaður kostnaður
við flugskýlið er um 700 þúsund
krónur, en það mun rúma 4 til 6
vélar. G.Kr.