Dagur


Dagur - 16.06.1986, Qupperneq 12

Dagur - 16.06.1986, Qupperneq 12
12 - DAGUR - 16. júní 1986 Nauðungaruppboð sem auglýst var í 95., 99. og 102. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Óseyri 7, Akureyri, þinglesinni eign Híbýlis h.f. fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs, Gunnars Sólnes hrl. og Eggerts Ólafssonar hdl. á eigninni sjálfri föstu- daginn 20. júní 1986, kl. 14.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 28., 30. og 33. tbl.'Lögbirtingablaðsins 1986 á fasteigninni Norðurgata 47, Akureyri, þinglesinni eign Jóhanns K. Sigurðssonar o.fl. fer fram eftir kröfu Árna Páls- sonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 20. júni 1986, kl. 16.15. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 41., 47. og 52. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á fasteigninni Óseyri 4, Akureyri, þinglesinni eign Haga h.f. fer fram eftir kröfu Iðnþróunarsjóðs, Gunnars Sólnes hrl., inn- heimtumanns ríkissjóðs, Hákonar H. Kristjónssonar hdl. og Benedikts Ólafssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 20. júní 1986, kl. 17.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. högni._____________________ Tíkarleg pólitík Það er skrítin tík þessi pólitík. Stundum getur hún meira að segja verið svolítið skemmtileg. Þessa dagana eru allir fjölmiðl- ar yfirfullir af fréttum um svo- kallaða meirihluta. Eiginlega hef ég fáfróður, aldrei almenni- lega skilið til hvurs þessir meiri- hlutar eru. En mjög stjórnmála- lega sinnaður kunningi minn, sagði mér um daginn, að þessir meirihlutar væru ekki til neins annars, en að hægt væri að kenna þeim um allt illt fyrir næstu kosningar. Annað gagn væri ekki að þeim, - en þetta er nú líka all-nokkuð. En hamingj- an sanna, ég ætla ekki að hætta mér of mikið út í þessa sálma. Annað mál er það, að „kuffé- lagið okkar" er alveg að verða hundrað ára. Að sjálfsögðu verður tímamótanna minnst á viðeigandi hátt. Útvarpið sagði frá væntanlegri afmælisveislu í hádegisfréttum um daginn. Þar kom vel fram hvað ein lítil komma skiptir stundum miklu máli. Eftir að þulurinn hafði sagt frá væntanlegri veislu, sem halda á starfsmönnum KEA, sagði hann: En starfsmenn kaupfélagsins eru margir þannig, - að halda verður tvær veislur. Að sjálfsögðu skildi ég fréttina sem svo, að starfsmenn KEA væru margir þannig gerðir, að þeir væru óvenju frekir til matar og drykkjar og yrðu eng- an veginn mettir á einu kvöldi. Tvær veislur væru lágmark. En eftir nánari umhugsun, fannst mér heldur ósennilegt að farið væri að tiunda það í fjölmiðlum þótt starfsmenn KEA væru mat- lystugir menn og jafnvel þyrstir. Það hefur hingað til ekki þótt sérstaklega fréttnæmt á íslandi. Þá var mér bent á, að trúlega hefði komman ekki lent á rétt- um stað. Hér hefði átt að lesa: Starfsmenn kaupfélagsins eru margir, - þannig að halda verð- ur tvær veislur. Og sennilega var þetta meiningin. Auðvitað er ekkert nema gott eitt um það að segja, þó haldn- ar séu afmælisveislur, ein, tvær eða fleiri. En ég sakna þó eins, sem ég var að vona að yrði fastur liður á afmælum „kuffé- lagsins". Á ég þar við þær þén- legu „ráp-tuðrur“, sem félagar KEA fengu í afmælisgjöf á sjö- tíu og fimm ára afmælinu. Þetta voru hinir eigulegustu gripir og flokkuðust eiginlega undir það að vera „nytjalist". Fljótlega voru þær Iíka kenndar við kaup- félagsstjórann og kallaðar „Jakobínur". Nú er Jakob blessaður hættur, svo ekki get- um við vænst þess að fá „Jakobínur" að þessu sinni. En væri ekki hægt að gefa okkur „Vals-skjóður“ í staðinn? Ég skora hér með á meirihlutann í kaupfélagsstjórninni að taka þetta mál til athugunar sem fyrst og eigi síðar en eins og skot. Högni Nauðungaruppboð sem auglýst var í 28., 30. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986 á fasteigninni Lundargata 9, Akureyri, þinglesinni eign Ragn- heiðar G. Hreinsdóttur, fer fram eftir kröfu Árna Pálssonar hdl., á eigninni sjálfri föstudaginn 20. júní 1986, kl. 15.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 28., 30. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986 á fasteigninni Grenivellir 16, neðri hæð, Akureyri, þinglesinni eign Steindórs Kárasonar, fer fram eftir kröfu Árna Pálssonar hdl., á eigninni sjálfri föstudaginn 20. júní 1986, kl. 14.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Fjölnisgötu 6, B og C-hluta, Akureyri, þinglesinni eign Norðurfells h.f. fer fram eftir kröfu Benedikts Ólafssonar hdl. og innheimtumanns ríkissjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 20. júní 1986, kl. 17.15. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 43., 50. og 53. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Borgarhlíð 6A, Akureyri, þinglesinni eign Jakobs Jóhannessonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Lands- banka íslands, Brunabótafélags fslands, innheimtumanns ríkissjóðs og Gunnars Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 20. júní 1986, kl. 16.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 28., 30. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986 á fasteigninni Kalbaksgata 5, Akureyri, þinglesinni eign Ofna- smiðju Norðurlands, fer fram eftir kröfu Brunabótafélags fslands og Skúla Bjarnasonar hdl. á eigninni sjálfri föstudag- inn 20. júni 1986, kl. 15.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Rimasfðu 19, Akureyri, þinglesinni eign Sigurðar Ákasonar, fer fram eftir kröfu Hreins Pálssonar hdl„ Gunnars Sólnes hrl. og Veðdeildar Landsbanka íslands, á eigninni sjálfri föstudaginn 20. júní 1986, kl. 13.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. * Hefur þú athugað * nýlega hvað við höfum á boðstólum? Sjáðu til: Eitt besta úrval af prjónagarni sem völ er á: Þetta gamla góða Patons, 10 tegundir. Dorothe Bes 6 tegundir. Phildar 3 teg., Jager 4 teg., Kattens 4 teg. Uppskriftir og allt sem þarf í prjónaskapinn. Við erum alltaf með ný model til sýnis í versluninni. Ath. Nýjustu tísku. Hannyrðavörur í úrvali á mjög góðu verði. T.d. Klukkustrengi, íslandsmyndina vinsælu. Fallegar veggmyndir og dúka og dúkaefni sem hægt er að sauma út í. Blúndur í stíl. Við getum saumað eftir máli. Ateiknuð vöggusett og puntuhandklæði á aðeins 340 kr. r Ateiknaðar myndir. Svo erum við líka með vefnaðarvöru í úrvali. Það nýjasta, svart og hvítt. Allavega munstrað, einlitt, köflótt. Jogging og hvaðeina. Líttu inn og sjáðu hvað við getum gert

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.