Dagur - 03.11.1986, Page 11
SMSSir i»diY»s*ydn f' - PJtlOAO -- 01
tMinning:
Aðalsteinn Jónsson
Kristnesi
Fæddur 26.05. 1904 - Dáinn 25.10. 1986
Laugardaginn 01.11. 1986 var
jarðsunginn frá Grundarkirkju
Aðalsteinn Jónsson fyrrum bóndi
að Kristnesi, Eyjafirði. Hann
andaðist 25.10. á Handlækninga-
deild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri eftir harða baráttu við
illkynja sjúkdóm. Hann gekkst
undir meiriháttar skurðaðgerð á
miðju síðastliðnu sumri, en allt
kom fyrir ekki. Lengi var þó
ástæða til að halda í vonina um
að vörn yrði snúið í sókn, og það
var ekki fyrr en undir það allra
síðasta, að ljóst varð hvert
stefndi. Að morgni fyrsta vetrar-
dags var Aðalsteinn allur.
Aðalsteinn var eldra barn
hjónanna Jóns Sigfússonar, frá
Halldórsstöðum í Reykjadal og
Sigríðar Árnadóttur frá Finns-
stöðum í Köldukinn og var af
grónum þingeyskum bændaætt-
um. Yngra barn þeirra og alsystir
Aðalsteins var Nanna Jónsdóttir
(t 1976), gift séra Þormóði Sig-
urðssyni presti á Vatnsenda
(t 1955). Jón og Sigríður skildu,
en Jón kvæntist aftur og eignaðist
3 börn, Friðrik, Sigríði og Guð-
rúnu sem öll eru á lífi. Aðal-
steinn ólst upp á heimili föður
síns í Reykjadal til fullorðinsára,
vann síðan ýmis störf á Húsavík
um hríð og las öndvegisrit heims-
bókmenntanna sem þar var að fá,
„gekk í háskóla hjá Benedikt frá
Auðnum", eins og hann orðaði
það sjálfur, uns hann fluttist til
Eyjafjarðar.
Aðalsteinn kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Aðalbjörgu
Stefánsdóttur frá Kristnesi hinn
01.07. 1928. Þau eignuðust fjóra
syni og eina dóttur. Elsta soninn
misstu þau tveggja ára gamlan.
Næstur er Jón, yfirlæknir á Húsa-
vík, kvæntur Maríu Kristjáns-
dóttur leikhúsfræðingi og eiga
þau eitt barn. Áður var Jón
kvæntur Kolbrúnu Sæmundsdótt-
ur sjúkraliða og eignuðust þau
fjögur börn. Stefán Aðalsteins-
son, kennari, er búsettur á Akur-
eyri, kvæntur Maríu Sigurbjörns-
dóttur frá Grófargili í Skagafirði
og eiga þau tvö börn. Þór Aðal-
steinsson er bóndi í Kristnesi,
kvæntur Aðalheiði Ingólfsdóttur
frá Krossgerði á Berufjarðar-
strönd og eiga þau fjögur börn.
Yngst er Rósa, meinatæknir
búsett í Reykhúsum, gift Bryn-
jólfi Ingvarssyni, lækni og eiga
þau fimm börn. Barnabarnabörn
Aðalsteins og Aðalbjargar eru
orðin fimm talsins.
Aðalsteinn og Aðalbjörg
bjuggu fyrst í Reykjadal, reistu
nýbýli að Ökrum. í Reýkjadal
fæddust öll börnin. Frá 1944 bjó
fjölskyldan í Kristnesi. Aðal-
steinn stundaði lengi kennslu
með búskap og var m.a. próf-
dómari fyrst eftir að hann fluttist
til Eyjafjarðar. Um tíma var
hann oddviti Hrafnagilshrepps og
stýrði sjúkrasamlagi hreppsins
um hríð. Annars var hann ekki
gefinn fyrir að láta á sér bera á
opinberum vettvangi og sóttist
ekki eftir metorðum. Hann var
fyrst og fremst bóndi og stoltur af
íslenskri bændastétt. Honum var
það sérstakt fagnaðarefni, að
einn sonanna tók við af honum
og hélt áfram uppbyggingu Krist-
nesjarðar.
Kristnesheimilið var óvenju-
legt og þangað var gott að koma.
Hjónin bæði glæsileg, samhent,
bókhneigð, vel lesin og léku á
hljóðfæri. Þarna þekktist ekki að
fara í manngreinarálit og jafnvel
eitt og eitt olnbogabam gat fund-
ið þarna besta griðastaðinn. Oft
var gestkvæmt, enda rausn og
regla á hlutum.
Það sem einkenndi Aðalstein á
fullorðinsárum var hógværð og
prúðmennska, látleysi og
umburðarlyndi. Hann hafði
fágæta tónlistarhæfileika og byrj-
aði sem kirkjuorganisti 12 ára
gamall. Lék vel á orgel til heima-
brúks alla ævi. Hann lauk námi
við Gagnfræðaskóla Akureyrar
1923 með ágætum vitnisburði og
vildi og gat haldið áfram námi, en
peninga vantaði. Einni kynslóð
síðar urðu þrjú af fjórum upp-
komnum börnum þeirra hjóna
stúdentar frá M.A. og luku síðan
framhaldsnámi, þó að peningar
væru af skornum skammti, en þá
voru aðrir tímar. Aðalsteinn galt
þess eins og margir aðrir íslend-
ingar af hans kynslóð, að fátækt
og minnimáttarkennd þjóðarinn-
ar héldu hæfileikafólki niðri og
skorðuðu alla þá fasta í ævilöngu
erfiði og brauðstriti sem ekki
höfðu fjármagn og sterka
aðstandendur til að lyfta undir.
Ekki heyrðist þó æðruorð af hans
vörum yfir þessu hlutskipti. Til
þess var hann of mikið karl-
menni.
Framan af ævi var hann sagður
mikill fyrir sér, hraustur, kraft-
mikill, kappsfullur, kannski
vösólfur. Sem krakki og ungling-
ur gaf hann jafnöldrunum ekkert
eftir í venjulegum stráksskap.
Síðan varð hann knattspyrnu-
maður og skotfastur vel. Á
gagnfræðaskólaárum flaugst
hann einu sinni á við einn félaga
sinn í illu. Sá var Hannibal Valdi-
marsson, seinna ráðherra. Svo
fór þó, að hann lagði meiri
áherslu á að stilla sig og tókst það
frábærlega vel. Aldrei varð hann
samt skaplaus né reikull í
skoðunum.
Aðalsteinn Jónsson fæddist að
vori til. Um það atvik var eitt
sinn kveðið:
Um sama leyti og létt á vorin
lömbin tifa fyrstu sporin
í leit að áttum þá komst þú.
Og þitt var máske ekki í orðum
ávarpið sem beyrðist forðum.
Samt það þýddi: Sælinú.
Svo tygjar hann sig til brott-
ferðar að haustlagi og Eyja-
fjörður keppist við að vanda
hinstu kveðju. Einmuna veður-
blíða dag eftir dag. Hæstu fjöllin
sveipa sig hvítum klæðum. Jörðin
býr sig undir breytingamar,
gróðurinn sölnar, farfuglar
kveðja. Aðalsteinn lokar lífsbók-
inni á sjálfan fyrsta vetrardag
eins og til að gefa bendingu:
Hingað. Ekki lengra. Eftir þetta
tekur vetur konungur við, jörðin
hvítnar, allt er háttbundið, takt-
visst og stílhreint. Og það er
engu líkara en að maður og nátt-
úra hafi náð hinum eina rétta
samhljóm, eins og þessi kveðju-
athöfn sé vandlega undirbúin af
beggja hálfu.
Að síðustu vil ég fyrir hönd
okkar nánustu þakka þessum
sjálfstæða Þingeyingi fyrir sam-
veruna. Blessuð sé minning hins
látna.
Brynjólfur Ingvarsson.
„Adressuvél“ til sölu
Hentar mjög vel fyrir landsmálablöð og félög er þurfa
að senda út dreifibréf. Nánari upplýsingar gefa Jó-
hann Karl Sigurðsson og Hafdís Freyja Rögnvalds-
dóttir.
3. nóvember 1986 - DAGUR -11
U.M.F. Skriðuhrepps
Almennur haustfundur I
verður haldinn á Melum, fimmtudagskvöldið 6.
nóv. og hefst kl. 20.30 stundvíslega.
Stjórnin.
Framleiðslufyrirtæki auglýsir
eftir sölustjóra
í framtíðarstarf.
Þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
Skriflegar umsóknir er greini um aldur, menntun
og fyrri störf leggist inn á afgr. Dags merkt
„Framleiðslufyrirtæki“ fyrir föstud. 7. nóv. ’86.
Vélstjóri
Óskum eftir að ráða 2. vélstjóra á 187 lesta
rækjubát.
Uppl. í síma 96-61707 á vinnutíma og 96-61728
á kvöldin.
Njörður hf. Hrísey.
AKUREYRARBÆR |g|
Akureyrarbær auglýsir lausar til
umsóknar stöður:
Hitaveitustjóra
Æskileg er menntun í verkfræði eða tæknifræði,
auk 5-10 ára starfsreynslu. Hér er um mjög krefj-
andi og áhugavert starf að ræða, sem gerir kröfur
til góðrar menntunar, frumkvæðis og sjálfstæðis í
starfi.
Starfsmanns
atvinnumálanefndar
til að vinna að ýmsum þróunar- og framkvæmda-
verkefnum í atvinnumálum undir yfirstjórn bæjar-
stjóra. Ráðningartími áætlaður 2 ár.
Krafist er háskólamenntunar og starfsreynslu.
Viðkomandi þarf að vera hugmyndaríkur og geta
starfað sjálfstætt.
Umsóknarfrestur um þessi störf er til 25.
nóvember nk. og sé umsóknum skilað á
Bæjarskrifstofu Akureyrarbæjar, Geislagötu
9.
Störfin veitast frá 1. janúar 1987.
Upplýsingar gefa bæjarstjóri og starfsmannastjóri
í síma 96-21000.
Bæjarstjórinn á Akureyri.
Framsóknarfélag Akureyrar
Bæjarmálafundur
verður mánudaginn 3. nóvember kl. 20.00 í Eiðs-
vallagötu 6. Fulltrúar í nefndum sérstaklega
beðnir að mæta. Ath. breyttan fundartíma.