Dagur


Dagur - 21.11.1986, Qupperneq 3

Dagur - 21.11.1986, Qupperneq 3
21. nóvember 1986 - DAGUR - 3 Sinfóníuhljómsveít íslands heldur tvenna tónleika á Akureyri Ráðgert er að Sinfóníuhljóm- sveit Islands muni halda tvenna tónleika á Akureyri á yfirstandandi starfsári. Fyrri tónleikarnir verða haldnir 15. janúar 1987 en þeir síðari þann 22. maí. Þeir verða haldnir í íþróttaskemmunni á Akureyri. Sigurður Björnsson, fram- kvæmdastjóri hljómsveitarinnar, sagði að fimmtudaginn 15. janúar yrði Sinfóníuhljómsveitin með Vínarkvöld á Akureyri. Þá yrði leikin tónlist eftir Johann Strauss, Léhar o.fl. Vínarkvöldin hafa verið mjög vinsæl frá því þau voru fyrst haldin. Stjórnandi verður Austurríkismaðurinn Gerhardt Beckert en söngkonan Ursula Steinsky sér um sönginn. Þau starfa bæði við ríkisóperuna í Vínarborg. Á efnisskrá tónleikanna, þ. 22. ntaí, er Concertone fyrir tvær ^iðlur og hljómsveit eftir W.A. Mozart og níunda sinfónía Beet- hovens. Bandaríkjamaðurinn Arthur Weisberg ntun stjórna hljómsveitinni á þeim tónleikum. Söngsveitin Fílharmónía, Þjóð- leikhúskórinn og karlakórinn Stefnir munu syngja og stefnt er að því að fá Passíukórinn með. Einsöngvarar verða fjórir: Elín Ósk Óskarsdóttir, Þuríður Bald- ursdóttir, Kristinn Sigmundsson og Sigurður Björnsson. EHB Hljómsveitin Skriðjöklar hefur nú tekið á leigu húsnæði á Óseyri þar sem þeir hyggjast starfrækja hljóðupptökuver. Jöklarnir standa nú í heilmikl- uin tækjakaupum frá Bretlandi og að sögn Jóhanns Ingvason- ar framkvæmdastjóra inn- kaupadeildar Skriðjökla hf. eru þeir búnir að ganga frá kaupum á tækjum fyrir um 400 þúsund. Fundur í stjórn og trúnaðar- mannaráði Iðju félags verk- smiðjufólks á Akureyri, hald- inn 18. nóvember 1986 leggur höfuðáherslu á að við kom- andi samninga verði kjör þeirra lægstlaunuðu leiörétt. Það verði gert með uppstokk- un launakerfisins, færslu kaup- auka og álaga inn í taxtakaup og grunnkaupshækkunum. Fundur í stjórn og trúnaðar- mannaráði bendir á að niður- staða launakönnunar Kjararann- sóknarnefndar sýnir svo ekki verður urn villst, að laun iðn- verkafólks eru lélegri en laun í flestum öðrum starfsgreinum. Við það verður ekki unað. Mark- mið næstu samninga eru því að Upptökuverið verður til húsa þar sem Stúdíó Bimbó var starf- rækt og að sögn Jóhanns keyptu þeir eitthvað af tækjum sem þar voru. Jóhann sagði að þetta væri fyrst og fremst hugsað fyrir upp- tökur á væntanlegri plötu þeirra Skriðjökla á næsta ári en fram að því myndu þeir sennilega vinna eitthvað að gerð auglýsinga. leiðrétta það misrétti sem verka- fólk hefur orðið fyrir í kjaralegu og launalegu tilliti. Niðurstaða komandi santninga verður að vera sú að hægt sé að lifa á dag- vinnulaunum. Fundurinn fagnar framkom- inni ályktun frá sambandsstjórn- ar- og formannafundi Alþýðu- sambands Norðurlands, sem haldinn var 15. nóvember sl., þar er lögð megináhersla á, að í komandi samningum verði að nást kjaralegt jafnvægi og leið- rétting milli starfsstétta, lands- hluta og kynja. Fundurinn hvetur félagsmenn Iðju til að búa sig undir komandi samninga og til samstöðu um ofangreind markmið. Einnig munu þeir taka upp efni fyrir aðra aðila sem þess óska. Þeir Jöklar eru sennilega hættir spilamennsku á þessu ári nema ef ske kynni að þeim byðust einhver verkefni um áramótin. „Helst vildum við spila í Sjallanum,“ sagði Jóhann að lokum. ET Hólsfjðll: Hrútur gekk úti í 17 mánuði Snjólétt hefur verið á Hóls- fjöllum það sem af er vetrinum og tíðarfar allgott. Fyrir nokkru gerði hins vegar norð- an stórhríð með mikilli veður- hæð, en snjó bætti ekki á að neinu ráði. Bændur höfðu allir sett fé á hús en notuðu tæki- færið eftir hríðina til fjárleitar til heiða þar sem snjósleðafæri var sæmiiegt. Tveir menn frá Grímsstöðum fóru á vélsleðum norður í heið- ina, vestan Bungu, og fundu þeir 4 kindur, á með lamb frá Gríms- stöðum, lamb frá Leifsstöðum í Öxarfirði og veturgamlan hrút frá Gilsbakka í Öxarfirði og hafði hann gengið úti allan síðasta vet- ur þrátt fyrir að mjög hart væri um tíma þann vetur. Hefur hann því gengið frjáls góða 17 mánuði. Voru kindurnar sæmilega á sig komnar en mikið brynjaðar. Eig- andi útigönguhrútsins er Óli Björn Einarsson, Gilsbakka. Iðja: Kjör lægstlaunuðu verði leiðrétt Hús til sölu Hér með er óskað eftir tilboðum í húseignina Sandvík, Hauganesi, Árskógshreppi ásamt lóðar- réttindum. Uppl. í síma 31247. Blómabúðin Laufás auglýsir: Jólagjafatilboð Seljum á kynningarverði * með 20% afslætti postulínsvörur, glervörur, keramikvörur og kristalsvörur. Afsláttur aðeins mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Blómabúðin Laufás Hafnarstræti 96, sími 24250 Sunnuhlíð 12, sími 26250 nk. laugardag og sunnudag Sjáið 1987 árgerðirnar af ARTIC Cat vélsleðanum og Kawasaki fjórhjólum. (Tau ódýrustu kr. 80.000,00). Komið með gamla sleðann og látið skrá hann á söluskrá.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.