Dagur - 21.11.1986, Síða 8

Dagur - 21.11.1986, Síða 8
8 - DAGUR - 21. nóvember 1986 „Þá var stemmningin að fara í leikhús eins og núna að fara í sólarlandaferð" Haukur heitir hann Þorsteinsson og hefur verið mjög atkvæðamikill í leiklistar- og tónlistarlífi á Sauðárkróki síðustu áratugi. Síðasta vor lék hann sitt fertugasta hlutverk hjá Leikfélagi Sauðárkróks og er núverandi formaður félagsins. Hér á árum áður lék hann mikið í danshljómsveitum, en í dag lætur hann sér nægja að leika á djasskvöldum hjá Djassklúbbnum. Hann er sem sagt einn af djassgeggjurum staðarins. Það var sunnudag einn fyrir stuttu sem við Haukur settumst saman yfir kaffibolla á heimili hans og röbbuðum saman. Við komum víða við, en auðvitað barst talið fyrst að uppvaxtarárunum og sagðist honum svo frá. I leikritinu „Gripið í tómt“ sem sýnt var vorið ar Bjarnason, Vigfús Vigfússon, Björgvin Sv „Ég er fæddur hérna á Krókn- um áriö 1933 og uppvaxtarárin voru ákaflega skemmtileg. Þá var samfélagiö hér þorp, skemmti- legt sambland af sveit og sjó. Bændurnir að koma með mjólk- urbrúsana úr sveitinni í samíagið og trillukarlarnir að sýsla við bryggjuna. Það var nóg af drullu- pollum í þorpinu til að busla í og maður var á ferðinni frá morgni til kvölds. Þegar ég fer að hugsa til baka þá held ég að þetta hafi verið ákaflega samstæður hópur, alla vega man ég ekki eftir nein- um sérstökum leikfélögum öðr- um fremur. Það var alltaf nóg að gerast þá og manni leiddist aldrei. Pað var nóg af auðum svæðum í þorpinu að leika sér á. Ég var stundum að hugsa um þegar ég var að ala upp krakkana mína og þau höfðu ekkert nema sjoppuna til að hanga á eins og algengt er meðal krakka í dag, að öðruvísi var það hjá okkur í den.“ - Eitthvað sérstaklega minnis- stætt úr bernskunni? „Já, ég man sérstaklega eftir því þegar byrjað var að byggja hafnargarðinn hérna. Þarna fór af stað ný gerð af atvinnustarf- semi, miklu umfangsmeiri og stærri í sniðum en maður hafði áður kynnst. Við vorum mikið að sniglast þarna í kring strákarnir. Svo voru hernámsárin mjög minnisverður tími og forvitnileg- ur fyrir stráka. Parna sáum við byssurnar, nýjar tegundir að bílum, trukka og alls konar furðutæki. Koma herliðsins varð náttúrlega til þess að við hættum að leika okkur eins og við gerð- um áður, nú var leikinn byssu- leikur frá morgni til kvölds. Það gefur sjálfsagt vísbendingu um jjað hvaða áhrif vídeo- og sjón- varpsgláp hefur á krakka í dag. Það var eins og hermennirnir sæktust bara eftir félagsskap okk- ar krakkanna, enda hafa sjálfsagt margir þeirra átt fjölskyldur og börn heima. Þegar þeir fengu vikuskammtinn sinn gáfu þeir okkur súkkulaði sem þeir fengu sent. Þetta var mjög dökkt suðu- súkkulaði sem þeir átu ekki, hafa sjálfsagt fengið það til að bræða í heitu vatni þegar þeir fóru í leið- angra. Okkur fannst það vont, en við átum það samt, þetta var þó alltjent súkkulaði og þessu ruddu þeir í okkur.“ í lcikritinu „Er á meðan er“, sem Kári Jónsson leikstýrði 1961. F.v. Sveinn Friðfinnsson, Hrafnhildur Stefánsdóttir og Haukur. Hljómsveitin æfði í eldhúsinu hjá gömlu hjónunum - Hvenær byrjaðir þú svo í mús- íkinni? „Það má nú segja að ég hafi fæðst með músíkáhugann, ég hafði ákaflega gaman af henni strax og músíkin var mjög vinsæl á mínu heimili. Maður bar mikla virðingu fyrir tónlistarfólki og þessir nikkukarlar sem voru hérna í bænum þá, fannst manni vera menn af annarri gráðu. Það var svo rétt fyrir 1950 sem ég byrjaði í fyrstu hljómsveitinni. Hljómsveitarstjórinn var Hörður Fríðu, sem kallaður var, hann spilaði á nikku eins og ég, og Jón- as Þór Pálsson trommuleikari var með okkur. Hvar heldurðu að fyrsta æfingaplássið okkar hafi verið? Það var í eldhúsinu hjá Jónasi gamla frá Hofdölum og Önnu konu hans á Knarrarstígn- um. Þau voru afi og amma Harð- ar og fósturforeldrar Jónasar. Þarna djöfluðumst við í eldhús- inu strákarnir, en gömlu hjónin sátu bara inni í stofu og rorruðu sér í takt við glamrið í okkur. Þetta var alveg sérstakt fólk þessi gömlu hjón, en alveg er ég viss um að þetta var mest vegna Jón- asar, þau létu auðvitað allt eftir drengnum. Ég var svo með Jón- asi, Herði, Ögmundi Svavarssyni og fleirum í hljómsveit alveg fram undir 1960. Þá stofnaði ég mína eigin hljómsveit sem starf- aði með smá hléum fram undir 1970 að ég hætti að spila á böllum. Þetta var náttúrlega mjög slitróttur tími sem ég spil- aði í þessum hljómsveitum vegna þess að ég var svo mikið á sjónum. En hljómsveitir sem ég var í spiluðu nær eingöngu hérna í bænum, við vorum ekkert í sveitaballabransanum. Hljómsveit Hauks Þorsteinssonar um 1970. F.v. Geirmundur Valtýsson, Haukur Þorsteinsson, Jónas Þór Pálsson, Hafsteinn Hannesson og Sigur- geir Angantýsson. fftVf/KS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.