Dagur - 21.11.1986, Side 13

Dagur - 21.11.1986, Side 13
21. nóvember 1986 - DAGUR - 13 Sigurpáll Aðalsteinsson verður í eldlínunni í kvöld en þá leika Þór og IR í Höllinni á Akureyri kl. 20.00. Trimm fyriralla á KA-svæðinu íþróttir helgarinnar Þór og ÍR leika í kvöld í 2. deild íslandsmótsins í handknattleik. Leikurinn sem fram fer í íþrótta- höllinni á Akureyri hefst kl. 20. Á morgun laugardag leika KA og Ármann kl. 13.30 í 1. deildinni í handknattleik og fer sá leikur einnig fram í íþróttahöllinni á Akureyri. Körfuboltalið Þórs fer suður og leikur tvo leiki í 1. deildinni um helgina. í kvöld kl. 19.30 gegn UMFG í Grindavík og á sunnudag kl. 14 gegn ÍR í íþróttahúsi Seljaskóla. Karlalið KA í blaki heldur austur til Neskaupstaðar á laug- ardag og leikur gegn liði heima- manna í 1. deildinni kl. 16. Björn Steinar Sólbergsson: Orgeltónleikar í Akureyrarkirkju Björn Steinar Sólbergsson, hinn nýi organisti Akureyrar- kirkju, heldur orgeltónleika í Akureyrarkirkju nk. sunnudag kl. 17.00 Þar verður leikin orgeltónlist frá ýmsum tímum. Verkin á tónleikunum eru mörg og fjölbreytt. Meðal höf- unda eru þekkt nöfn eins og J.S. Bach, Lizt, Cesar Frank, M. Durufle, J.P. Leguay, C.H. Widor og fleiri. Góð aðsókn hef- ur verið að tónleikum Björns Steinars á Akureyri. EHB Laugardaginn 22. nóvember verður haldin fjölskylduskemmt- un í Laugaborg og hefst dag- skráin kl. 21.00. Að skemmtun- inni standa kirkjukór og sóknar- nefnd Grundarkirkju. Ýmislegt verður til skemmtun- ar m.a. kórsöngur, upplestur, börn og unglingar leika á ýmis N.k. sunnudag 23. nóv. kl. 10.00 hefst ný starfsemi á KA- svæðinu, en það er trimm fyrir alla. Þar er boðið upp á útiæfingar og hlaup á völlum félagsins, skauta þegar svell er á svæðinu og skíðagöngu þegar færi er. Nuddstofa Bryndísar Jóhann- esdóttur í KA-heimilinu verður opin á þessum tíma fyrir þá sem hljóðfæri, bingó o.fl. Á eftir verður dansað um stund. Aðgangseyrir verður kr. 400 fyrir fullorðna og kr. 200 fyrir börn 12 ára og yngri og er kaffi og brauð af hlaðborði innifalið. Allur ágóði af samkomunni rennur í orgelsjóð Grundar- kirkju. þess óska og þar er gott að láta mýkja upp vöðva fyrir eða eftir æfingar. Heilsuræktin með sína ljósa- lampa, nuddpott, gufuböð og böð er einnig opin á þessum tíma og að lokum er tilvalið að fá sér hressingu í kaffiteríunni áður en farið er heim. Ráðgert er að „Trimm fyrir alla“ verði fyrst um sinn á sunnu- dagsmorgnum frá kl. 10.00-12.00 og leitast verður við að hafa kunnáttumenn í íþróttum þar til leiðbeiningar. Lögð er áhersla á að þetta er trimm fyrir alla, unga sem gamla hvar í flokki eða félagi sem þeir standa. Hér er tilvalið tækifæri fyrir þá sem lítið hafa stundað íþróttir að hefja reglubundna líkamsrækt. Fyrst og fremst ber að hafa í huga að fara rólega af stað og vera vel klæddur, því meiningin er að trimma í hvaða veðri sem er, búa sig bara eftir aðstæðum. Ath. að fyrsta kynning á þess- ari starfsemi verður í KA-heimil- inu n.k. sunnudag kl. 10.00. Trimm-klúbburinn. Skemmtun í Laugaborg Sunnudagskaffi Félag harmonikuunnenda verður með kaffihlaðborð í Lóni, Hrísalundi 1, 23. nóvember kl. 15.00. Allir velkomnir. Dansað á eftir. Kaffinefndin. Eyfirðingar - Aknreyringar Laugardaginn 22. nóvember verður haldin Qölskylduskemmtun í Laugar- borg og hefst dagskráin kl. 21.00. Ýmislegt verður til skemmtunar, m.a. kórsöngur, upplestur, börn og unglingar leika á ýmis hljóðfæri, bingó o.fl. Á eftir verður dansað um stund. Aðgangseyrir verður kr. 400 fyrir fullorðna og kr. 200 fyrir börn 12 ára og yngri og er kaffi af hlað- borði innifalið. Allur ágóði af samkomunni rennur í orgelsjóð Grundarkirkju. Kirkjukór og sóknarnefnd Grundarkirkju. Verkstjórnar- fræðslan Námskeið í vinnuhagræðingu verður haldið á Akureyri 27.-29. nóvember í húsnæði Flugbjörgunarsveitarinnar að Galtalæk. Farið verður yfir undirstöðuatriði hagræðingar í fyrir- tækjum. Vinnurannsóknir. Tímamælingar. Tíðniat- huganir. Afkastamat hópa og einstaklinga ásamt uppbyggingu afkastahvetjandi launakerfa. Skráið þátttöku strax hjá Árna Birni Árnasyni, vinnu- sími 96-21300, heima 96-21249 eöa á skrifstofu Verkstjórafélags Akureyrar og nágrennis milli kl. 14- 17, sími 25446. Verkstjórnarfræðslan Sími 91-687000. vísnaþáttuL Sveinbjörn Björnsson kvað þessa afmælisvísu: Fyrir land og þína þjóð, þrátt í vandasporí, hugans brand þú brást úr glóð brýndan andans þorí. Þorvaldur Þorsteinsson frá Gilhaga kvað: Flaskan villu veilum bjó, velsæld spillir manna, unnið hylli hefur þó höfuðsnillinganna. Björn S. Blöndal heyrðist raula þessa vísu við nýkeyptan hest sem ekki vildi þýðast atlot hans: Vertu ei byrstur Blesi minn, bætt skal vistar harkið. Ertu þyrstur auminginn eftir fyrsta siarkið. Einhverju sinni kvað Björn: Þegar glettin bölsins brek byrgja þétt að vonum fótaléttan fák ég tek og fæ mér sprett á honum. Hress sem krakki konum hjá kaffi drekk - og molann, ber svo frakkur bænum frá beisli og hnakk á folann. Haraldur Jónsson á Jaðri, Reykja- dal kvað: Kostir þrengjast, kólnar ból, kæríeiks genginn fengur. Vil nú engin veigasól verma drenginn lengur. Hjörleifur Jónsson á Gilsbakka kvað: Ellin bannar feigum flest, fátt við þörf er sniðið. Ég get ekki járnað hest, ég get engu ríðið. Næstu vísurnar tvær heyrði ég á barnsaldri og eru frá þeim tímum er ull var slitin af fé með átökunr og önnur vinna var eftir því. Hin er sýnilega eftir einhvern prestahatar- ann: Að róa á sjó og rýja fé reynir kappa flesta. Að sverfa jám og saga tré segi ég púlið versta. Prestar Ijúga manna mest. Misst þeir hafa ást á Kristi. Hestum ríða hróka verst. Hrísta sig með orðin byrst. Davíð Jónsson hreppstjóri að Kroppi skaut þessari vísu að vini sínum þegar eigendaskipti urðu að blaðinu Islendingi. Áður las ég ísiending og orð hans tók til greina. Nú er hann mér þarfaþing, þú veist hvað ég meina. Næsta vísa er eftir Stein Sigurðsson og bendir einnig til eldri tíma: Iðunn góða gullinn sjóð gefur þjóð í fræðum. Lesa fljóðin úrvalsóð yfir hlóðaglæðum. Steinbjörn Jónsson mun hafa kveð- ið þessa vísu á ferð um Eyjafjörð: Andans gróður er og var Eyjafirði nógur. Sigurhæðir heilla þar, Hraun og Fagrískógur. Jón Bjarnason frá Garðsvík skrifar Steindór Sigurðsson kvað þessa vísu til stúlku: Fetað hafa farinn veg flestir þínir vinir. - Ég hef aldrei elskað þig öðruvísi en hinir. Næsta vísa er einnig eftir Steindór Sigurðsson: Næturdimmuskuggar skýla skammastríkum þessa dags. Dauðamyrkurs - árar ýla eftir helreið sólarlags.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.