Dagur - 19.01.1987, Blaðsíða 11
19. janúar 1987 - DAGUR - 11
Opið bréf
- til Sigtryggs Símonarsonar
Heill og sæll Sigtryggur!
Mikið dæmalaust hafði ég nú
gaman af að lesa bréfið þitt til
mín í Degi á dögunum - þótt það
væri líklega að einhverju leyti
ávítunarbréf í minn garð.
Petta var ólíkt smekklegra en
bréfið frá Sverri til Sturlu - það
var nú líka lokað. En í þessu
bréfi fórst þú á kostum með
hvössum áminningum, blíðlegum
hrósyrðum og jafnvel nokkuð
ísmeygilegu háði. Það er ekki
hversdags sem slík bréf sjást
enda verð ég að játa að það
hvarflaði snöggvast að mér að
svara engu og bíða hins þriðja
bréfsins, sem var til vonar að
hefði orðið miklu snjallast að öll-
um stíl og búningi.
En svo varð mér hugsað til
þess að það væri tæplega kurteis-
legt að láta þögnina þrúga þig
lengur, varna þér svefns og ekki
síst vildi ég létta af þér svar-
skyldu þeirri sem hinn þögli
meirihluti hefir lagt þér á herðar.
En ég vona samt sem áður að
þú finnir þér bráðum eitthvert
tilefni til að skrifa einhverjum
opið bréf með ekki minni tilþrif-
um en í þetta skipti.
Án gamans er mér það auðvit-
að fullljóst að það var ókurteis-
legt af mér að svara ekki bréfi
þínu sem birtist í Degi þann 5.
mars sl. Ég vil gjarnan biðja þig
afsökunar en ég hefi enga afsök-
un fram að færa, aðeins þá skýr-
ingu að ég vissi svo sem ekki
hversu ég skyldi svara.
Um þessar mundir voru mál
svo vaxin að hvorki ég né neinn
annar vissi hvort SÚLUR mundu
lifa eða deyja. Allnokkrar vonir
stóðu þó til þess að takast mundi
að koma út einu hefti á haustdög-
um en ýmis atvik komu þó í veg
fyrir það. Að mörgu leyti var
þetta sök mín; aðrar orsakir hirði
ég ekki að telja hér.
Leikfanga^
útsala
Útsala
Útsala
Útsala
Útsala
10%
20%
30%
40%
50%
HAFNARSTRÆTl 96 SIMI96-24423 AKUREYRI
Þegar þessi málsatvik urðu ljós
- í sláturtíð - þótti mér svar
verða líkt því að gegna þeim gæs-
um sem í gær flugu.
Enn eru málavextir þeir að
ekki veit ég fyrir víst hvort
SÚLUR eru dauðar eða lifandi,
hitt veit ég eitt að þær sofa.
Nokkurt efni er til í svo sem eitt
hefti en sumum - þ.á m. mér -
þykir vænlegra að hefja ekki upp
merkið á nýjan leik nema til þess
að láta það ekki falla jafnharðan.
Nú er frá því að segja að ég
ætla ekki að vera ritstjóri
SÚLNA lengur og ber þá jafnan
við svonefndu annríki mínu.
Sumir kalla þetta líklega fram-
taksleysi, áhugaleysi eða jafnvel
leti. Sama er mér. En nú kemur
mér allt í einu í hug skrítin saga
af Jónasi heitnum á Guðrúnar-
stöðum.
Hann fór fyrir löngu í vörubíl
með fleiri mönnum austur í Þing-
eyjarsýslu, ég held fram í Bárð-
ardal. Þegar kom í áfangastað
steig bílstjórinn út, teygði sig og
sagði sem svo að hann væri nú
bara orðinn lúinn af þessum
akstri. Þá hnaut í Jónasi:
„Hérna, það er þá til að vera
lúinn af, bara að sitja og halda
um hjólið.“
Ég veit svo sem ekki af hverju
mér kom þessi saga í hug (ég er
alveg glaðvakandi), en ég læt
hana nú fljóta hér að gamni
mínu.
Eins og ég nefndi ætla ég ekki
að standa fyrir margnefndu tíma-
riti lengur og hefi satt að segja -
með öðrum - reynt nokkuð til að
finna þann mann eða þá rnenn
sem hefðu til þess vilja, getu og
aðstæður að taka við. Vegna þess
er það nú sem þú og fleiri fá um
þessar mundir bréf (lokað), þar
sem boðað er til umræðu um
framtíð SÚLNA og Sögufélags-
ins.
Jæja, Sigtryggur, ætli ekki
þetta sé að verða nóg?
Aðeins eitt á ég ósagt út af
bréfi þínu í Degi 13. janúar. Þú
getur þess réttilega að Þingeying-
ar hafi lagt SÚLUM gott lið og
nefnir Þórhall Bragason sem
dæmi um það. Ég er hjartanlega
sammála þessu og hefi stundum
hugsað til þess að við Eyfirðingar
mættum taka okkur Þingeyinga
til fyrirmyndar í þessum efnum
og jafnvel fleirum. Mér finnst því
ekki smekklegt að blanda inn í
mál þitt vísu sem illar vættir hafa
kveðið í eyru þér - jafnvel þótt
visan sé hringhend.
Mér finnst Þórhallur, sem þú
segir að hafi séð um tólfta og
þrettánda árgang SÚLNA, ekki
eiga það skilið að hann sé kallað-
ur hafa slátrað SÚLUM þótt
hann færi til annarra starfa. Má
hann ekki líka hljóta „...umbun
áhuga síns og athafnasemi, eftir
verðleikum"?
Að svo mæltu vona ég að þú
sofir vel, kunningjarnir hætti að
nudda í þér út af SÚLUM og
yfirhöfuð að öll skrítilegheit víki
frá þér sem fyrst.
Vertu svo ævinlega blessaður,
Valdimar Gunnarsson,
kennari.
Lancer station
Fjórhjóladrifinn Lancer station er
óskabíllinn. Fulit af nýjungum sem
gerir aðra bíla gamaldags.
Þessi bíll hefur verið aðlagaður
íslenskum aðstæðum með því
að setja í hann sítengt aldrif,
styrkja undirvagninn og auka
veghæðina til að gera hann
hæfari til að þjóna sínu hlut-
verki fullkomlega. Kostir þessa
drifbúnaðar eru þeir, að stöðug
spyrna er bæði á fram- og aftur-
hjólum og þarf því ökumaður engar áhyggjur að hafa af því
að velja milli aldrifs og eindrifs, þegar færð breytist snögg-
lega. Aflinu er dreift út á fram- og afturhjól í gegnum mis-
munadrif, sem er innbyggt i gírkassann og er hægt að læsa
því ef þörf krefur. Þessi sídrifsbúnaður er þrautreyndur í bil-
um eins og Range Rover og hefur gefist frábærlega vel við
skilyrði sem algeng eru á íslenskum vegum.
Komið og ræðið við sölumann
Möldursf.
Tryggvabraut 12. Box 51
Telex 2337.600 Akureyri.
TÓM5TUNDA
Alþýðuhúsinu
III. hæð
sími 2-71-44
NY NAMSKEIÐ A VORONN
Ljósmyndun og
framköllun
20 stundir. Páll A. Pálsson.
Videotaka og
myndbandagerð
20 stundir. Steindór G. Steindórsson.
Framsögn og upplestur
20 stundir. Þráinn Karlsson.
Leðurvinna
20 stundir. Svanhildur Sverrisdóttir.
Málun
20 stundir. Gunnar Dúi Júlíussorj.
Bandvefnaður
16 stundir. Rósa Eggertsdóttir.
Myndvefnaður
20 stundir. Ragnheiöur Þórsdóttir.
Fatasaumur fyrir
byrjendur
20 stundir. Kristín Jónasdóttir.
Bótasaumur og
„Applicering“
20 stundir. Svava Jóhannsdóttir.
Tauþrykk
24 stundir. Ragnheiður Þórsdóttir.
ítölsk skrift
16 stundir.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir.
Almenn skrifstofustörf
12 stundir. Jakob Kristinsson.
Bókhald smærri
fyrirtækja
20 stundir. Jakob Kristinsson.
Bókfærsla
24 stundir. Jakob Kristinsson.
Skapandi skrif
20 stundir. Guðlaugur Arason.
Sögurölt á sunnudegi
6 stundir. Lárus Zophoníasson.
Tekið á móti gestum
20 stundir. Haukur Tryggvason,
Gunnar P. Gunnarsson.
Að vera foreldri
unglings
15 stundir. Karolína Stefánsdóttir.
Skartgripagerð
15 stundir. Kristín Guðmundsdóttir.
Fluguhnýtingar
15 stundir. Sigurður Þórhallsson.
Ræktun limgerðis-
plantna og skrautrunna
20 stundir. Tryggvi Marinósson.
Gróðurhús og sáning
sumarplantna
20 stundir. Björgvin Steindórsson.
Smíði smáhluta
20 stundir. Gústaf Njálsson.
Bakkasmíði úr áli og
kopar.
20 stundir. Árni Ólason.
Föndrað með eigið efni
9 stundir. Svanhvít Jósepsdóttir.
Er heimilisbíllinn í lagi?
12 stundir. Sigurður E. Ragnarsson.
Innritun fer fram til 1. febrúar alla virka daga kl. 14-19 og laugardaga kl.
10-12 í síma 27144 og á skrifstofunni, Alþýðuhúsinu 3. hæð, þar sem
allar nánari upplýsingar eru veittar.
Félagar í Einingu, Félagi verslunar- og skrifstofufólks, Iðju, Trésmiða-
félagi Akureyrar fá 10% afslátt af námskeiðsgjöldum.
Námskeiðin hefjast 2. febrúar. Hvert námskeið
er einu sinni í viku, 2-3 stundir í senn.
TÖM5IUNDA Alþýðuhúsinu 3. hæð
SKOLINN sími 27144.