Dagur - 19.01.1987, Page 12
mmm,
Akureyri, mánudagur 19. janúar 1987
Réttingarverkstœði
Varahlutir í
flestar gerðir bifreiða
Skipulagsnefnd:
Norður-
götu verði
lokað
Á fundi skipulagsnefndar síð-
astliðinn föstudag var tekið
fyrir erindi Hagkaups þar sem
farið var fram á leyfi til að
byggja við núverandi húsnæði,
vestur á Norðurgötuna.
Nefndin bókaði tillögu um það
að aðalskipulagi bæjarins verði
breytt og Norðurgötu lokað
við Hagkaup.
Að sögn hinns Birgissonar
skipulagsstjóra hefur stækkun á
lóð Hagkaups í för með sér sams
konar stækkun á lóð íspan, vest-
an Norðurgötunnar. í báðum til-
fellum er þarna urn að ræða
leigulóðir og konta mörkin þá til
með að liggja gftir miðju núver-
andi götustæði.
Ef bæjarstjórn samþykkir
afgreiðslu skipulagsnefndar verð-
ur gerður uppdráttur af breyting-
unni og þarf hann að liggja
frantmi í a.m.k. sex vikur
almenningi til sýnis. Á þessum
sex vikum og tveimur þar á eftir
getur almenningur gert athuga-
semdir við tillögurnar. Þessi aug-
lýsing á breytingum er háð sam-
þykki skipulagsstjórnar ríkisins.
Þegar frestur til athugasemda er
liðinn er málið tekið að nýju fyrir
hjá bænum og loks til endanlegr-
ar afgreiðslu hjá skipulagsstjórn
ríkisins. Þessi langa ferð tekur að
minnsta kosti 4 mánuði að sögn
Finns.
Lokun Norðurgötunnar mun
hafa í för með sér talsverðar
breytingar á umferð svæðisins.
Að sögn Finns Birgissonar er þó
ekki gert ráð fyrir því að aðrar
breytingar á gatnakerfinu komi
til með að fylgja. Búast má við að
umferð um Grenivelli korni til
með að aukast nokkuð við breyt-
ingarnar. ET
.. Eftirleit úr Bárðardal:
Náðu átta
kindum
Tryggvi Höskuldsson, bóndi í
Mýri í Bárðardal, fór í eftirleit
ásamt Páli Kjartanssyni í Víði-
keri og Tryggva Harðarsyni í
Svartárkoti á mánudaginn.
Þeir fóru á vélsleðum suður á
Hraunárdal og lá leiðin um
Áfangatorfur og Kiðagils-
hnjúk. Veðrið var gott og náð-
ust átta kindur, 4 úr Bárðardal
og 4 úr Mývatnssveit. Ein kind
varð þó eftir í Krossárgili.
„Þessi rolla er afar stygg og
ólm. Hún sást í fyrstu göngum í
haust og þá voru lömbin tekin
undan henni. Hún náðist ekki þá
en við sáum hana þegar við fór-
um á mánudaginn. Þá skellti hún
sér niður kletta ofan í Krossárgil
og þar misstum við af henni. Eg
fer aftur í eftirleit þegar meiri
snjór kemur en nú er talsvert
harðfenni á fjöllunum og mikil
svellalög víða. Þá náum við henni
vonandi,“ sagði Tryggvi að
lokum.
EHB
Aflabrögð 86:
Siglufjörður efstur
yfir landið
Á Norðurlandi barst mun
meiri afli á land í desember í
fyrra miðað við sama mánuð
árið ’85, 53.868 tonn á móti
39.342. Munurinn er 37% og
er hann einvörðungu fólginn í
meiri afla hjá bátunum, 48.884
tonn á móti 33.953 í des. ’85.
Togararnir veiddu 4.984 tonn
(5.389).
Tegundir veiddust í eftirfar-
andi magni, tölur frá des. ’85 í
sviga: Þorskur 4.695 (3.707),
annar botnfiskur 1.019 (2.702),
loðna 47.786 (32.173), rækja 234
(508). Þannig sést að mun meiri
loðnuafli veldur þessum mismun
á umræddum desembermánuð-
um. Til Siglufjarðar bárust
22.267 tonn af loðnu (11.909),
Akureyrar 7.097 (5.250), Raufar-
hafnar 12.307 (12.612) og Þórs-
hafnar 5.180 (1.225).
Á landinu öllu barst mest af
loðnu til Siglufjarðar á síðasta
ári, 145.802 tonn (122.608).
Þangað barst líka mestur heildar-
aflinn, 161.552 tonn, en árið áður
var Siglufjörður í þriðja sæti með
Blönduós:
Pappírspokaverksmiðja
tekur
í vor tekur til starfa á Blöndu-
ósi verksmiöja sem framleiða
mun pappírspoka. Nýlega var
gengið frá kaupum á húsnæði
fyrir reksturinn og vélar til
framleiðslunnar komu til
Blönduóss fyrir nokkru. Áætl-
aður stofnkostnaður við verk-
smiðjuna er á milli 30 og 40
milljónir og hlutaféð tíu millj-
ónir.
Fyrirtækið mun framleiða 25 til
50 kílóa poka og er hægt að fram-
leiða þá einfalda og allt upp í sex-
falda eftir þörfum. Stærsti not-
andi poka af þeirri gerð sem
fyrirtækið mun framleiða er
Kísiliðjan, næst er Sementsverk-
smiðjan, þá má nefna fóður-
blöndunarverksmiðjur og
fiskimjölsverksmiðjur, Þörunga-
vinnsluna og hugsanlega þá aðila
sem framleiða laxeldisfóður.
Forsvarsmenn fyrirtækisins,
sem gefið hefur verið nafnið
Serkir hf, hafa um það góð orð
framangreindra aðila að þeir
muni kaupa af þeim poka svo
framarlega sem þeir verði sam-
keppnisfærir í verði og gæðum.
Að sögn Péturs Arnars Péturs-
sonar eins af eigendum hins nýja
fyrirtækis, telja þeir að miðað við
verð á sams konar pokum í dag
geti þeir verið fullkomlega sam-
keppnisfærir. Pétur sagði að svo
væri á það að líta að kaupendur
pokanna gætu með viðskiptum
við Serki keypt mun minna magn
í einu en þeir þurfa að gera ef
þeir kaupa þá erlendis, eða nán-
ast eftir hendinni.
Aðspurður sagði Pétur að
til starfa í vor
þeim hefði gengið nokkuð vel í
viðskiptum sínum við opinbera
aðila og sjóði sem þeir hefðu
þurft að hafa samvinnu við en þó
væri það svo að enn væru þeir
ekki farnir að fá neina peninga
frá slíkum aðilum, en lánsloforð
lægju fyrir. Vinna við húsnæði
fyrirtækisins er hafin og reiknað
er með að byrjað verði að koma
fyrir vélum um miðjan næsta
mánuð.
Starfsmenn við framleiðsluna
verða fimm til sex og mun Einar
Hjartarson verða verksmiðju-
stjóri, en hann er upphafsmaður-
inn að stofnun fyrirtækisins og sá
eini þeirra sem ekki er frá
Blönduósi, en auk hans og Péturs
Arnars Péturssonar eru hluthafar
Jóhannes Pétursson, Bjarni
Jónsson, Kristín Þorgeirsdóttir,
kona Einars, og Pípulagnir og
Verktakar hf. Framleiðslugeta
fyrirtækisins er mikil og gæti það
hæglega annað allri eftirspurn á
þessum markaði innanlands.
Búist er við að framleiðslan hefj-
ist í apríl eða maí í vor. G.Kr.
Hús pappírspokaverksmiðjunnar á Blönduósi.
Mynd: G.Kr.
Hestar á beit í Saurbæjarhreppi, Eyjafirði. Mynd: ehb
137.135 tonn. Aflinn á Siglufirði
hefur því aukist um 17,8% á milli
ára sem er mjög gott en þó aðeins
minni prósentuaukning en á ísa-
firðj og í Grindavík. Aukningin
er svipuð á Dalvík. Hins vegar
sker Þórshöfn sig úr. Þar er aukn-
ingin á milli ára 225%, 20.150
tonn á móti 6.192. SS
Sérframboð
Stefáns Valgeirssonar:
Listinn
ákveðinn
Sérframboð Stefáns Valgeirs-
sonar í Norðurlandi eystra hélt
fund í Blómaskálanum Vín á
laugardag þar sem framboðs-
listi Sérframboðsins var
kynntur. Á fundinn mættu á
þriðja hundrað manns. Listinn
var samþykktur einróma og
eru eftirtaldir frambjóðendur á
honum:
1. Stefán Valgeirsson, alþingis-
maður, Auðbrekku. 2. Pétur
Þórarinsson, prestur, Möðruvöll-
um. 3. Auður Eiríksdóttir,
oddviti, Hleiðargarði Eyjaf. 4.
Jóhann A. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri, Þórshöfn. 5. Jón
ívar Halldórsson, skipstjóri,
Akureyri. 6. Sigurður V. Olgeirs-
son, skipstjóri, Húsavík. 7. Dag-
bjartur B. Ingimundarson, bóndi
Brekku, Núpasveit. 8. Gunnhild-
ur Þórhallsdóttir, húsmóðir
Akureyri. 9. Friðjón Guðmunds-
son, bóndi, Sandi. 10. Gunnlaug-
ur Konráðsson, útgerðarmaður
og skipstjóri, Árbæ, Árskógs-
strönd. 11. Lilja Björnsdóttir,
húsmóðir, Raufarhöfn. 12.
Bjarni E. Guðleifsson, ráðunaut-
ur, Möðruvöllum, Hörgárdai. 13.
Ágúst Guðröðarson, bóndi,
Sauðanesi, Sauðaneshreþpi. 14.
Jón Samúelsson, bátasmiður,
Akureyri. EHB
Sólbergið
seldi í Hull
- Verðið að skána
Eitt norðlenskt skip seldi afla
erlendis fyrir helgina. Sólberg-
ið frá Ólafsfirði seldi 177,1
tonn í Hull og var aflanum
landað á fimmtudag og föstu-
dag.
Heildarverð aflans úr Sólberg-
inu var 8,5 milljónir eða 47,79 kr
á kíló. Aflinn var að langmestu
Ieyti þorskur, 165 tonn, en einnig
voru tæplega 6 tonn af ýsu og um
5 tonn af karfa.
Verð á fiski fer nú heldur
hækkandi í Bretlandi enda hafa
samgöngur lagast eitthvað. Enn
er þetta þó lágt verð sem fæst í
Bretlandi og að sögn viðmæl-
anda Dags hjá LÍÚ er verðið
heldur lægra í Grimsby en í Hull.
ET