Dagur - 17.03.1987, Side 2
2 - DAGUR - 17. mars 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON
(Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavlk vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Hallfríður Halldórsdóttir, Kristín Bjarnadóttir og Brynhildur Baldursdóttir. Mynd: -þá
leiðari.________________________________
Tvísýnt um
kosningaúrslit
Samkvæmt skoðanakönnun um fylgi flokkanna í
Norðurlandskjördæmi eystra sem Félagsvísinda-
stofnun Háskóla íslands vann fyrir Dag fær Alþýðu-
flokkurinn 16,9% atkvæða og einn þingmann,
Framsóknarflokkurinn fær 20,6% og tvo menn
kjörna, Sjálfstæðisflokkurinn fær 25,3% og tvo
menn, Alþýðubandalag 18,2% og einn mann, auk
þess sem mestar líkur virðast á því að Alþýðu-
bandalagið nái uppbótarþingsæti í kjördæminu.
Samkvæmt þessari könnun virðist vanta nokkuð á
að Stefán Valgeirsson nái kosningu, en hann er
með 8,1% atkvæða.
Önnur framboð eiga ekki nokkurn möguleika á
að ná inn manni. Kvennalistinn fær 4,7%, en var
með 5,8% í síðustu kosningum, Bandalag jafnað-
armanna þurrkast út og fær aðeins 0,3% en var
með 5,8% í síðustu kosningum, Flokkur mannsins
fær 2,4% og hinn nýi Þjóðarflokkur ekki nema 3,4%
atkvæða. Þetta eru atkvæðatölur þeirra sem svör-
uðu, en þeir sem sögðust ekki ætla að kjósa, skila
auðu, neita að svara eða vita ekki hvað þeir ætla að
kjósa voru samtals 14,5% aðspurðra. Samtals náð-
ist í 346, sem er mjög hátt hlutfall miðað við skoð-
anakannanir sem gerðar eru yfir allt landið.
Svo virðist sem Alþýðuflokkurinn fái nánast það
fylgi sem Bandalag jafnaðarmanna hafði áður, en
bætir að öðru leyti litlu eða engu við sig. Sjálf-
stæðisflokkur tapar um 2% og Alþýðubandalag
bætir við sig 4,4% frá síðustu kosningum. Eins og
að líkum lætur er mikil niðursveifla hjá Framsókn-
arflokknum vegna sérframboðs Stefáns Valgeirs-
sonar. Bæði tekur framboð hans fylgi beint frá
flokknum, auk þess sem ætla má að deilur þær sem
hafa skapast vegna sérframboðsins fæli menn frá
því að kjósa flokkinn. Vegna þessa ástands hefur
Framsóknarflokkurinn misst forystuhlutverkið í
kjördæminu til Sjálfstæðisflokksins, og hlýtur það
að vera mikið áhyggjuefni félagshyggjufólki í kjör-
dæminu.
Litlu flokksbrotin sem kenna sig flest við ein-
hvers konar félagshyggju virðast ætla að verða
þess valdandi að íhaldsöflin nái þessu forskoti.
Atkvæði þessara smáflokka nýtast ekki og þeir
sem greiða þeim atkvæði sín eru í raun að kasta
þeim á glæ. Mjög tvísýnt er um að Valgerður Sverr-
isdóttir, sem skipar annað sæti á lista Framsóknar-
flokksins, nái kjöri. Virðist því einsýnt, vilji kon-
ur sem hyggjast kjósa Kvennalistann á annað
borð að kynsystir þeirri komist inn á þing úr kjör-
dæminu, að eina leiðin til þess sé að kjósa Valgerði
Sverrisdóttur. HS
Nóg um að vera ef fólk
ber sig eftir því
- spjallað við þrjá hressa kvenmenn á Siglufirði
Þegar blaðamaður Dags var á
ferð á Siglufirði fyrir skömmu
og sat að snæðingi inni á
Hressó eins og veitingasalan í
Lækjargötu er yfirleitt kölluð,
komu tveir huggulegir kven-
menn inn úr rigningunni til að
fá sér í svanginn og settust þeir
skammt frá honum. - „Margt
ungt fólk vill halda því fram að
lítið sé um að vera úti á landi á
veturna og ómögulegt annað
en halda sig þá í borginni, en
þessar eru trúlega ekki í þeim
hópi. Þær þurfa ekkert að
sækja suður eins og segir í
dægurlagatextanum.“ Þessari
hugsun skaut upp í kollinn um
leið og ég ákvað að ónáða þær
og afgreiðslustúlkuna Hallfríði
Hallsdóttur sem sest hafði hjá
þeim.
Eftir nærgöngular spurningar
kom í ljós að þetta myndarlega
kvenfólk var allt á lausum kili
eins og stundum er sagt. Þær
Brynhildur Baldursdóttir og
Kristín Bjarnadóttir sögðust yfir-
leitt koma þarna í hádeginu til að
fá sér að borða og spjalla um dag-
inn og veginn. Brynhildur sem
vinnur á bæjarskrifstofunni sagði
barnið sitt vera í leikskólanum og
borða þar, svo hún þyrfti ekkert
heim í hádeginu.
- Hún sagði það ágætt að
vinna á bæjarskrifstofunni, þar
hitti hún margt fólk yfir daginn
og ýmislegt gerðist og gæti gerst.
Sem sagt þó nokkuð spennandi
að vinna á bæjarskrifstofunni á
Siglufirði.
Kristín vinnur í útibúi Utvegs-
bankans. Á henni var ekki að
heyra að neinn uppgjafartónn
eða vonleysi hefði ríkt meðal
starfsfólks þar eins og virðist
samkvæmt sjónvarpsfréttum hafa
verið í útibúum bankans í
Reykjavík. Hún sagði að búið
væri að stofna trimmklúbb meðal
starfsmanna bankans, Léttfeta að
nafni. Tuttugu manna hópur
hleypur á flugvellinum á kvöldin
og fer síðan að því loknu í
íþróttamiðstöðina á Hóli í sturtu
og gufu.
Kristín sagðist vera mikið gefin
fyrir söng og vera meðlimur í
kvennakórnum sem nýbúið er að
endurvekja. Verið er að æfa fyrir
kóramót í Þýskalandi í vor, sem
kórinn fer á í boði Þjóðverja
nokkurs sem stjórnaði kórnum
fyrir nokkrum árum og er giftur
siglfirskri konu. Þá hefði hún
ásamt fimm vinkonum fyrir jólin
’85 byrjað að æfa og syngja
rokklög, sem þær síðan sungu á
skemmtunum og höfðu mikið að
gera. Síðan tóku þær upp þráð-
inn að nýju nú fyrir jólin og
sungu jólalög á nokkrum
skemmtunum.
Nei þeim fannst alveg nóg að
gerast á Siglufirði yfir veturinn.
Allavega ef fólk bæri sig eftir því.
Það væri þó nokkuð um að vera
hjá félögunum sem starfandi eru
í bænum yfir veturinn og yfirleitt
böll um helgar. Aðspurðar sögð-
ust þær Brynhildur og Hallfríður
hafa verið fyrir sunnan í eitt og
hálft ár og alveg geta hugsað sér
að vera fyrir sunnan yfir veturinn
en alls ekki á sumrin.
- Einhverjar væntingar hjá
ungu fólki hér?
„Já hér bíða allir eftir íþrótta-
húsinu og grasvellinum, sagði
Brynhildur, sem er mikill áhuga-
maður um knattspyrnu, hlæjandi
að lokum. -þá
W Stefnuleysi
Það var broslegt að fylgjast
með sjónvarpsþættinum
Geisla síðastliðið mánudags-
kvöld, og heyra svör stjórn-
málamannanna varðandi
stefnu flokkanna í málefnum
lista. Eftir þáttinn er það Ijóst
að flokkarnir eru flestir
stefnulausir í þessum mála-
flokks nema kannski Fram-
sóknarflokkurinn sem hefur
gert samþykktir til hagsbóta í
þessum málum, en hann hef-
ur bara ekki komið þeim í
framkvæmd. Manni verður nú
hugsað, til hvers er að gera
alls konar samþykktir ef þær
eru svo bara allar látnar í
pækil. Eru þeir að bíða eftir
að verða einir í stjórn til að
geta komið þessu fram? Ja,
þá má bíða lengi.
PSpurt og svarað
Jón Baldvin heldur upptekn-
um hætti og spyr eða leitar
hugmynda við hvert tækifæri.
Voðalega hlýtur að vera erfitt
að vera í forystu fyrir flokk
sem hefur ekki hugmynd um
nokkurn skapaðan hlut. Fyrst
geysist hann um landið og
spyr, hver á ísiand, og á
mánudaginn spurði hann
spyrlana hvað þeim fyndist
um þetta eða hitt. Og svona
er mest af hans brölti búið að
vera síðan hann varð formað-
ur hjá krötum. Það er að
segja þegar hann hefur ekki
verið að taka þátt í einhverj-
um uppákomum Áma. Það er
ekki að furða þótt þingmenn
annarra flokka óttist að hon-
um takist að eyðileggja alveg
það álit sem Alþingi þó hefur
notið.
W Hvernig?
í Geisla, í þetta sama skipti,
var ekki annað að heyra en
fulltrúar allra flokka vildu að
ríkið stofnaði einhvers konar
sjóð til kaupa á listaverkum.
En þeir áttu fleira sameigin-
legt. Enginn þeirra minntist
einu orði á það hvernig ætti
að fjármagna slík kaup.
Þarna er þeim ágætlega lýst,
segja já af því það eru að
koma kosningar og listafólk
kemur trúlega til með að kjósa
eins og annað fólk. En hafa
ekki hugmynd um hvernig
þeir ætla að standa við jáyrð-
ið Það þarf að taka þingmenn-
ina betur fyrir og láta þá
svara, eins og gert var í sjón-
varpinu hér fyrir nokkrum
árum.