Dagur - 17.03.1987, Qupperneq 3
17. mars 1987 - DAGUR - 3
Hvað segja efstu menn á listunum?
„íhaldið
óbeint
sett í
öndvegi"
- segir Guðmundur
Bjarnason, efsti maður
B-iista
Við útreikning á niðurstöðum
skoðanakönnunarinnar var
stuðst við tilkynningu frá Hag-
stofu íslands um kjósendur á
kjörskrárstofni fyrir alþingis-
kosningarnar 1987.
Á kjörskrárstofni í Norður-
landskjördæmi eystra eru alls
18.298 manns. Pegar frá eru
dregnir þeir sem ekki verða orðn-
ir 18 ára á kjördag 25. apríl og
þeir sem áætlað er að látist fyrir
þann tíma reiknar Hagstofan
með að á raunverulegum kjör-
skrárstofni séu 17.900 manns. Sé
reiknað með 85% kosningaþátt-
töku nú og svipuðu hlutfalli
auðra og ógildra seðla og í síð-
ustu kosningum verða gild
atkvæði 14.869 talsins.
Ef eingöngu eru teknir þeir
sem afstöðu tóku í skoðanakönn-
un Dags nú er útkoman þessi:
„Skoðanakönnunin bendir til
þess að þessi sundrungaröfl
geta orðið til þess að Fram-
sóknarflokkurinn missi það
forystuhlutverk sem hann hef-
ur haft í kjördæminu yfir til
íhaldsins sem verði þar með
stærsti flokkur kjördæmisins,“
sagði Guðmundur Bjarnason,
efsti maður B-lista.
„Smáflokkarnir taka til sín
töluvert atkvæðismagn sem aug-
ljóslega fellur dautt niður en hef-
ur samt sem áður þau áhrif að
veikja stöðu Framsóknarflokks-
ins, þess flokks sem helst hefur
haldið uppi merkjum lands-
byggðar. Baráttan stendur greini-
lega á milli annars manns okkar
og Stefáns Valgeirssonar og það
er ljóst að nái Stefán kjöri, hlýtur
hann að fella Valgerði Sverris-
dóttur. Þarna er mjótt á munum
og þess vegna nauðsynlegt fyrir
allt framsóknarfólk og aðra þá
sem vilja gera veg landsbyggðar
sem mestan, að leggja sig mjög
fram við það að láta ekki þessa
niðurstöðu verða niðurstöðu
kosninganna.
Þótt ólíklegt sé að Stefán nái
kjöri, þá er fylgi hans nokkurí
samkvæmt þessu, og þess vegna
eru þeir sem veita Stefáni
atkvæði sitt óbeint að setja íhald-
ið í öndvegi í okkar kjördæmi.
Ég trúi ekki öðru en að fólk hugsi
sig um tvisvar áður en það ver
atkvæði sínu á þann hátt.“ BB.
A-listi 16,9% = 2516 atkvæði.
B-listi 20,6% = 3066 atkvæði.
D-listi 25,3% = 3766 atkvæði.
G-listi 18,2% = 2709 atkvæði.
C-listi 0,3% = 45 atkvæði.
J-listi 8,1% = 1205 atkvæði.
M-listi 2,4% = 357 atkvæði.
V-listi 4,7% = 699 atkvæði.
Pjóðarfl. 3,5% = 506 atkvæði.
Samkvæmt nýju kosninga-
lögunum er við úthlutun þingsæta
í 1. umferð fundin svokölluð
kjördæmistala. Hún er fengin
með því að deila þingsætafjöld-
anum (7) upp í fjölda gildra
atkvæða, þ.e. 14.869. Kjördæma-
talan er því 2124. Það er sá fjöldi
atkvæða sem er að baki hvers
þingsætis. Þeir flokkar sem ná
þessari tölu fá þingsæti í 1.
umferð. D-listi er með mesta
fylgið og fær því 1. þingmann
„Við erum
bjartsýn“
- segir Stefán Val-
geirsson (J)
Stefán Valgeirsson (Samtök
jafnréttis og félagshyggju):
„Við bíðum bara róleg eftir
úrslitunum og erum jafn bjartsýn
á sæmilega niðurstöðu á kjördegi
sem áður. Við vitum af fólki, sem
hefur haft samband við okkur og
fylgir okkur að málum, sem svar-
aði ekki spurningunum í þessari
könnun enda voru sumar spurn-
ingarnar þannig að þær komu í
veg fyrir að þetta fólk svaraði.“
EHB
kjördæmisins, B-listi 2. mann, G-
listi 3. mann og A-listi 4. mann. í
næstu umferð þurfa flokkarnir að
ná % hlutum fyrrnefndrar kjör-
dæmistölu til að vera inni í mynd-
inni við úthlutun næstu þingsæta.
Þeir þurfa sem sagt að hafa 1416
atkvæði á bak við sig. D-listi er sá
eini sem nær þeirri tölu og fær því
5. þingmann kjördæmisins. J-listi
og aðrir listar sem færri atkvæði
fá samkvæmt skoðanakönnun-
inni ná ekki grunntölunni og eru
þvf ekki inni í myndinni við út-
hlutun þingsæta. B-listi færþví 6.
ntann, þar sem mest atkvæðaleif
er hjá B-lista. G-listi er svo næst-
ur í röðinni og er hugsanlega inni
í myndinni varðandi 7. sætið sem
er uppbótarþingsæti. Ómögulegt
er þó að segja til um hvar það
lendir, þar sem úrslit á landinu í
heild ráða miklu þar um. BB.
Halldór Blöndal D-lista:
„Kemur mér
ekki á óvart“
„Ég er mjög ánægöur yfir því
aö Sjálfstæðisflokkurinn skuli
hafa mest fylgi allra flokka í
kjördæminu og kemur mér
raunar ekki á óvart. Á hinn
bóginn eru flokkarnir það
margir að kannski var ekki við
því að búast að við héldum
alveg því fylgi sem við höfum
haft á liðnum árum,“ sagði
Halldór Blöndal, efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokksins.
„Kosningaslagurinn er eftir og
ég álít að þessi niðurstaða gefi
góða vísbendingu um það að
staða flokksins sé góð í kjördæm-
inu og ég hef fullan hug á því að
bæta hana enn frekar fram að
kjördegi.
Hvað útkomu annarra flokka
varðar, er hún í samræmi við það
sem maður gat látið sér detta í
hug. Það vekur auðvitað athygli
að Stefán Valgeirsson er með
talsvert fylgi samkvæmt könnun-
inni en á þó töluvert í land með
að tryggja sig í sessi. Það er fyrst
og fremst einkennandi hvað
flokkarnir eru margir og búast
má við að talsverð hreyfing verði
á fylginu fram að kosningum.“
BB.
„Mjög
ánægður
með þessa
útkomu“
— segir Árni Gunnarsson
Alþýðuflokki
„Eg er mjög ánægður með
þessa útkomu, sérstaklega
með tilliti til þess að kosninga-
baráttan er rétt að fara af stað
hjá okkur,“ sagði Árni Gunn-
arsson efsti maður á lista
Alþýðuflokksins í Norður-
landskjördæmi eystra í kom-
andi alþingiskosningum.
„Þetta er strax hærra hlutfall
en flokkurinn hafði í kosningun-
um 1983. Við munum nú heyja
þessa orrustu á þann hátt sem við
kunnum best og vonum að árang-
urinn verði eftir því. Undirtektir
hafa verið mjög góðar og við
þurfum engu að kvíða,“ sagði
Árni.
Árni sagði að ef miðað væri við
skoðanakönnun á landsvísu þá
væru yfirgnæfandi líkur á því að
flokkurinn næði uppbótarþing-
sæti í kjördæminu og næði því
tveimur mönnum. Að öðru leyti
vildi Árni ekki spá um úrslit
kosninganna eða hvort þau yrðu í
samræmi við þessa könnun. ET
„Erum lang-
sterkust í
baráttunni
um sjöunda
sætiö“
— segir Steingrímur Sig-
fússon Alþýðubandalagi
„Ég er heldur hress með þetta
enda er okkur spáð meira fylgi
en við fengum í síðustu kosn-
ingum. Ekki síst er ég ánægður
ef miðað er við það að Alþýöu-
bandalagið hefur oft átt á
brattann að sækja í skoöana-
könnunum,“ sagði Steingrím-
ur Sigfússon efsti maður á lista
Alþýðubandalagsins.
„Það eru auðvitað nokkur tíð-
indi að Framsóknarflokkur fer
niður fyrir Sjálfstæðisflokk en að
öðru leyti eru þarna rninni sveifl-
ur en ég átti von á,“ sagði Stein-
gríntur Sigfússon alþingismaður
og efsti maður á lista Alþýðu-
bandalagsins.
„Ég bendi einnig á að það er
orðið stutt í Framsóknarflokkinn
og með snarpri baráttu gætum
við farið upp fyrir liann, sem
óneitanlega yrðu nokkur tíðindi.
Slæm útkoma Framsóknarflokks-
ins bendir til þess að mikilla
breytinga sé að vænta og þetta
sýnir að við erum á réttri leið og
erum langsterkust í baráttunni
um sjöunda þingsætið,“ sagði
Steingrímur. ET
Sjá bls. 8.
Niðurstöður skoðanakönnunar Dags og Félagsvísindastofnunar:
Fjöldi %allra þeir senr nefna flokk kösn. '83 þingmenn skoðanak. Þm. nú
Albýðuflokkur 50 14,5 16,9 11,0 1 0
Framsóknarflokkur 61 17,6 20,6 34,7 2 3
Sjálfstæðisflokkur 75 21,7 25,3 27,2 2 2
Alþýðubandalag 54 15,6 18,2 16,8 1 i
Kvennalisti 14 4,0 4,7 5,8 0 0
Bandalag jafn.m. 1 0,3 0,3 4,5 0 1
Flokkur mannsins 7 2,0 2,4 - 0 -
Þjóðarflokkur 10 2,9 3,4 - 0 -
Samtök jafnréttis ogfélagshvggju 24 6,9 8,1 - 0
Kjósaekki 12 3,5
Skila auðu 4 1,2
Neita að svara 17 4,9
Óákveðnir 17 4,9
Alls 346 100% 100% 100% 6 7
Inni í töflunni hér að ofan eru einungis 6 kjördæmakjörnir þingmenn, Þingmenn kjördæmisins verða hins vegar 7
í kosningunum nú, sá 7. verður uppbótarþingmaður. Það fer eftir kosningaúrslitum á landinu í hcild hvaða flokkur
hlýtur það sæti. í skoðanakönnun Dags og Félagsvísindastofnunar er Alþýðubandalagið með mesta atkvæðaleif
þegar þingsætunum sex hefur verið úthlutað. C-listi, M-listi, listi Þjóðarflokks, V-listi og J-listi ná ekki því atkvæða-
magni sem þarf til að vera inni í myndinni við úthlutun þingsætanna.
D-listi með 1. þing-
mann kjördæmisins