Dagur - 19.03.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 19. mars 1987
Aðalfundur
ywaoiNN Umf. Arroðans
veröur haldinn í Freyvangi sunnudaginn 22. mars kl.
14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.
Lausar stöður
Við námsbraut í hjúkrunarfræði við læknadeild Háskóla
íslands eru lausar til umsóknar eftirtaldar stöður:
1. Staða dósents í hjúkrunarfræði. Aðalkennslugrein:
Hjúkrun aldraðra.
2. Staða lektors í hjúkrunarfræði. Aðalkennslugrein:
Hjúkrun sjúklinga á handlækninga- og lyflækninga-
deildum.
3. Staða lektors í hjúkrunarfræði. Aðalkennslugrein:
Fæðingar- og kvenhjúkrun.
4. Staða dósents i hjúkrunarfræði, 50% staða. Aðal-
kennslugrein: Hjúkrunarstjórnun.
5. Staða dósents í sýkla- og ónæmisfræði, 37%
staða til eins árs.
6. Staða lektors í hjúkrunarfræði, 37% staða. Aðal-
kennslugrein: Geðhjúkrun.
7. Staða lektors í hjúkrunarfræði, 37% staða. Aðal-
kennslugrein: Barnahjúkrun.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil
og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15. apríl nk.
Menntamálaráðuneytið, 16. mars 1987.
Bændur tekjulægsta
stétt þjóðarinnar
- segir í ályktun frá stjórn
Félags sauöfjárbænda við Eyjafjörð
Vinir Páls á Höllustöðum
Stjórn Félags sauðfjárbænda við
Eyjafjörð hefur á fundi sínum 2.
mars 1987 gert svofellda bókun:
1. Ekki kemur lil greina að sauð-
fjárbændur gefi neitt eftir af
þeirri hækkun verðlagsgrund-
vallar, sem full samstaða er
um í verðlagsnefnd búvara og
átti að taka gildi 1. mars sl.
nema annað komi til sem
tryggi þeim samsvarandi tekj-
ur. Stjórnin getur þó eftir
atvikum fallist á þann hálfs-
mánaðarfrest sem samkomu-
lag er nú orðið um enda verði
hann notaður til að finna hag-
kvæmustu lausn þessara mála.
Par er þó alger krafa að sá
verðlagsgrundvöllur sem gef-
inn verður út að þessum fresti
liðnum verði afturvirkur til 1.
mars.
2. Sjórnin minnir á, að síðastlið-
ið haust gáfu sauðfjárbændur
eftir 197.000 kr. af launalið
við gerð nýs verðlagsgrund-
vallar. Var það forsenda fyrir
því að hægt væri að ná viðun-
andi magnsamningum við rík-
ið. Ber því ríkisstjórnin fulla
ábyrgð á þeirri gífurlegu kjara-
skerðingu, sem þetta hafði í
för með sér fyrir sauðfjár-
bændur.
3. Ekki verður séð að ríkis-
stjórnin hafi haft uppi minnstu
tilburði til að bæta sauðfjár-
bændum þessa kjaraskerð-
ingu. Þvert á móti hafa for-
menn stjórnarflokkanna látið
frá sér fara hinar furðulegustu
yfirlýsingar varðandi fram-
reikning verðlagsgrundvallar-
ins til samræmis við launabreyt-
ingar viðmiðunarstéttanna.
Steingrímur Hermannsson fer
fram á frestun og telur að
margir bændur hafi alla burði
til að bera enn frekari kjara-
skerðingu og Þorsteinn Páls-
son kallar auknar niðurgreiðsl-
ur til lausnar þessum vanda
sýndarmennsku fyrir kosning-
ar. Stjórnin lýsir furðu sinni á
því skilningsleysi sem þessi
ummæli bera með sér á kjör-
um sauðfjárbænda og ættu
þeir að minnast þeirra 25.
apríl nk.
4. Samkvæmt opinberum hagtöl-
um eru bændur tekjulægsta
stétt þessarar þjóðar, og ætti
því öllum að vera ljóst að sú
kjaraskerðing sem varð á síð-
astliðnu hausti hvað þá enn
frekari skerðing á kjörum
sauðfjárbænda getur ekki leitt
til annars en gjaidþrots þeirra
í hundraðatali og að þeir verði
að fara frá jörðum sínum
eignalausir með þunga skulda-
bagga á baki.
5. Stjórnin krefst þess að ríkis-
stjórnin geri það upp við sig
hvort eigi að stunda sauðfjár-
búskap í þessu landi og hvort
hún ætlar að tryggja ákvæði
laga sem hún beitti sér sjálf
fyrir að sett yrðu þar sem segir
að kjör bænda skuli vera í sem
nánustu samræmi við kjör
annarra stétta.
6. Pá mótmælir stjórnin harðlega
endurtekinni íhlutun forystu-
manna ASÍ þegar rætt er um
eðlilega hækkun launaliðar
verðlagsgrundvallar og telur
það koma úr hörðustu átt.
7. Stjórnin skorar á Stéttarsam-
band bænda að það leiti allra
hugsanlegra leiða til að bæta
bág kjör sauðfjárbænda og
það sýni enga linkind í baráttu
sinni við skilningssljó
stjórnvöld.
í Tímanum 4. mars og Degi 3.
mars birtist grein eftir Valdimar
Guðmannsson, verkamann á
Blönduósi. í grein þessari heldur
Valdimar því lóðbeint fram, að
ég hafi í ræðu á Blönduósi sl. vor
skorað á Húnvetninga að kjósa
Pál á Höllustöðum í komandi
kosningum. Að öðru leyti er
grein Valdimars lymskuleg árás á
Pál Pétursson og Framsóknar-
flokkinn, og mun ég víkja að því
síðar.
í fyrravor sá ég svipaða túlkun
á ræðu minni í dagblaðinu Degi
á Akureyri, en rangtúlkunin á
ræðunni var svo auðsæ þar að ég
svaraði henni ekki og á ég þó all-
an fundinn á segulbandi.
Níðst á bændum
í framsögu sagði ég bændum
m.a.: Að þeir væru arðrændir í
aðföngum og í afurðum. Ég
skýrði fyrir bændum hve mikið
SÍS hirti í sölulaun af útflutnings-
bótum. Ég sýndi bændum árs-
reikninga Búvörudeildar SÍS,
stimplaða sem trúnaðarmál og
hvernig þar kæmi fram að margir
tugir milljóna á núvirði væru
færðar á illskiljanlega liði eða sem
tap á Kjötiðnaðarstöð SÍS og allt
klabbið tekið út af innistæðum
bænda á kjötreikningi. Ég sagði
bændum hvernig Jón Helgason
beitti valdi til að koma í veg fyrir
að Ameríkuverkað kjöt kæmist á
markað þar.
Ég sagði þeim af sjóðaflækj-
unni, sem um þá hefur verið vaf-
ið og Björn á Löngumýri álíti að
rýri tekjur bænda um 10-12%.
Hringavitleysan
Ég sagði bændum að án eigin vit-
undar hefðu þeir stofnað félag
sláturleyfishafa. Ég las fyrir þá úr
4. gr. samþykktar þessa þokka-
félags, en þar stendur orðrétt:
„Skylt er félögum að selja allar
afurðir, sem seldar eru utan eigin
viðskiptasvæðis, í gegnum Sam-
bandið“ (þ.e. Búvörudeild SÍS).
í dag hef ég undir höndum bréf
til landbúnaðarráðherra frá
Framleiðsluráði landbúnaðarins
dagsett 7. nóv. 1986, en þar segir
orðrétt: „En Búvörudeildin telur
sig hvorki hafa heimild né heldur
Neytendafélag Akureyrar og
nágrennis (NAN) gerði verð-
könnun á vistgjöldum dagvista í 8
bæjarfélögum landsins. Verð-
munur er mestur á vistgjöldum
leikskóla.
T.d. er 950,- kr. munur á hæsta
og lægsta verði á mánaðargjaldi
fyrir börn í leikskóla 5 klst. Þar
skyldu til að leggja fé og vinnu til
að leita markaða. ”
Sem sagt, bændum er óheimilt
að selja afurðir sínar annað en til
fyrirtækis, sem telur sig hvorki
hafa heimild né vera skylt að
leggja fé og vinnu til að leita
markaða fyrir þær afurðir.
Kvíagrindur SÍS
Með þessum hætti m.a. hafa
bændur verið afkróaðir í kvía-
grindum SÍS kerfisins, í kringum
þær kvíagrindur er svo raðað vel-
öldum vikadrengjum úr Fram-
sóknarflokknum sem gæta þess
að þeir sleppi ekki út.
Það er því ákaflega þýðing-
armikið fyrir bændur og neytend-
ur að Framsóknarflokkurinn
hætti að láta nota sig til að níðast
á hagsmunum þeirra, að hann
reisi sig úr flagi og endurheimti
sjálfstæði sitt gagnvart SÍS
hringnum en sé ekki rekinn eins
og ein deildin innan hans með
lagafjötra um neytendur og
bændur sem sérgrein.
Pælingapállinn sem brást
En ég sagði einnig bændum í
Húnaþingi að þeir ættu aðgang
að formanni þingflokks Fram-
sóknarflokksins þess flokks, sem
ábyrgur er fyrir ánauðinni. Þeir
yrðu að brýna hann til að snúast
gegn flokknum og berjast fyrir
hag bænda, gegn SÍS kerfinu, -
þeir gætu jafnvel hótað honum
því að kjósa kratana, - og þar
sem ár væri eftir af kjörtímabil-
inu þá væri Páll sterkasta vopnið,
- eftir kosningar gæti það orðið
Alþýðuflokkurinn.
Og ég sagði þeim enn fremur,
að ef Páll snérist gegn Framsókn-
arflokknum og færi að berjast
fyrir hagsmunum bænda þá yrðu
heimamenn að kjósa slíkan upp-
reisnarmann enda væri hann þá
farinn að framfylgja stefnu
Alþýðuflokksins. En menn yrðu
líka að hafa kjark til að refsa
honum með því að kjósa hann
ekki, ef hann gerði ekki neitt. Og
um það snúast málin í dag.
Samkvæmt skjölum 109. lög-
gjafarþings Alþingis þá hefur Páll
Pétursson, formaður þingflokks
er hæsta verð á Seltjarnarnesi eða.
kr. 2.700.- á mánuði fyrir barn í
leikskóla í 5 klst.
Á Akureyri borgar fólk kr.
3.540,- á mán. fyrir hádegisbörn á
leikskólum (6 klst. m/fæði).
3 bæjarfélög greiða niður vist-
gjöld á dagheimilum fyrir
námsfólk, en það er í Hafnar-
Framsóknarflokksins og þing-
maður hans í Norðurlandi vestra
ekkert gert í málefnum bænda.
Nákvæmlega og akkúrat, -
ekkert, og það veit Valdimar. Og
víkjum svo aftur að grein hans.
Lengi er Guð
að skapa menn
Við síðustu kosningar buðu
framsóknarmenn í Húnavatns-
sýslum fram lista á móti Páli Pét-
urssyni þeir sögðu Pál afar skað-
legan hagsmunum byggðarinnar.
í flokki andstæðinga Páls var
höfundur Tíma- og Dagsgrein-
anna, Valdimar Guðmannsson,
að vísu enginn þungavigtarmaður
en öðrum betur tenntur þegar
bíta þurfti til Páls og því var það
hans eftirlætisverkefni í kosning-
aslagnum, - enda af nógu að
taka.
Nú eru aðrir til þess færari en
ég að spá í eyðurnar í Valdimar
Guðmannssyni, en við lestur
greinar hans er augljóst að hann
er enn í gamla básnum sínum og
jórtrar þar fjögurra ára tuggu.
Yinátta, oflof og háð
Undir yfirskini vináttu og sam-
stöðu hæðir hann Pál með oflofi
og segir að enginn hafi beitt sér
jafn mikið fyrir breytingum í
málefnum landbúnaðarins þrátt
fyrir mjög erfiða stöðu sem þing-
flokksformaður Framsóknar-
flokksins.Valdimar ætlar ekki að
láta það fara fram hjá lesendum
Tímans og Dags, að það sé mjög
erfitt að berjast fyrir landbúnað-
inn sem þingmaður Framsóknar
og það er rétt hjá Valdimar og
um það snérist Blönduósræða
mín.
Góði Guð
Nú veit ég ekkert um trúartilfinn-
ingu Páls á Höllustöðum. Ég ætla
þó að í pólitískum yrringum þá
treysti hann fremur á mátt sinn
og megin en kraftaverk. En eftir
að hafa lesið grein Valdimars
Guðmannssonar þá finnst mér að
Páli væri vorkunn að leita stuðn-
ings hjá skapara allra gæða og
hrópa í himininn: Góði Guð, um
andstæðinga mína get ég sjálfur
séð, en verndaðu mig fyrir vinum
mínum. Birgir Dýrfjörð.
firði, Reykjavík og á ísafirði.
Aðeins eitt bæjarfélag greiðir
niður vistgjöld leikskóla fyrir ein-
stæða foreldra en það er í Vest-
mannaeyjum. Þar borga einstæð-
ir foreldrar kr. 1.800,- á mán. fyr-
ir börn á leikskólum í 5 klst. en
gift fólk og í sambúð borgar kr.
2.700,- á mán. fyrir börn á leik-
skólum í 5 klst.
Verðkönnun Neytendafélags Akureyrar og nágrennis á vistgjöldum dagvista
Akureyri Hafnarfjörður Húsavík Isafjörður Neskaupstaður Reykjavík Seltjarnarnes Vestmannaeyjar
Leikskólar 4 klst. 2360,- 2200,- 2300,- 2400,- 2300,- 2310,- 2850,-
Leikskólar 5 klst. 2880,- 2750,- 2800,- 3000,- 2890,- 3700,- 2750
Leikskólar 5 klst. einstæóir foreldrar 1800,-
Hádegisböm á leikskólum ( 5 klst. m/fæói ) 3790,-
Hádegisböm á leikskólum ( 6 klst. m/fæói ) 3540,-
Dagheimili einst. foreldrar 3740,- 3450,- 37Q0 , — 3800,- 3500,- 3620, - 3815,- 3450,-
Dagheimili námsfólk 3450 3800,- 3690,-
Dagheimili aórir ( gift fólk og í sambúð ) 5500,- 5225,- 5500,- 6000,- 5500,- 5490,- 6450,- 5400,-