Dagur - 19.03.1987, Qupperneq 7
19. mars 1987 - DAGUR - 7
Ráðstefna um launamun og
stefnu í fjölskyldumálum
Dagana 7. og 8. mars sl. efndu
ASI og BSRB til ráðstefnu í
Munaðarnesi um launamun og
fjölskyldustefnu.
Tildrög ráðstefnunnar voru
þau að á vettvangi norrænu
verkalýðssamtakanna hefur verið
mótuð stefna í fjölskyldupólitík,
sem stendur nú til að endur-
skoða. Launþegasamtökin hér á
landi hafa ekki mótað neina fjöl-
skyldustefnu og þótti því við hæfi
að hefja umræður um það nú,
ásamt því að ræða um launamun
kynja, sem hefur lítið minnkað á
undanförnum árum.
Rúmlega 50 manns sóttu ráð-
stefnuna og voru meðal þeirra
ýmsir forystumenn í báðum sam-
böndunum, s.s. Ásmundur Stef-
ánsson forseti ASÍ og Kristján
Thorlacius formaður BSRB.
Dagskrá ráðstefnunnar var
tvískipt, annars vegar var fjallað
um launamuninn og hins vegar
stefnu í fjölskyldumálum. Bolli
Þór Bollason, hagfræðingur hélt
erindi um það hver launamunur-
inn væri. Rakti hann niðurstöður
úr könnun sem Þjóðhagsstofnun
er nú að ljúka við um launamun
kynja hér á landi. Yfir fjórföld
aukning hefur orðið á atvinnu-
þátttöku giftra kvenna á sl. 25
árum. Heldur hefur dregið úr
launamun karla og kvenna í fullu
starfi á sl. 5 árum. Að meðaltali
hafa konur í fullu starfi nú þ.e.1
1985 61,1% af tekjum karla, en
1980 var þetta hlutfall 58%. Bolli
taldi að um fjórðung launamunar
væri ekki unnt að skýra.
Guðrún Hallgrímsdóttir verk-
fræðingur fjallaði um orsakir
launamunar. Taldi hún höfuð-
ástæðuna vera karlaveldið og
skiptingu verka milli karla og
kvenna, en hvorki skort á mennt-
un né hæfni kvenna sem sífellt
hefur verið klifað á.
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir
skrifstofumaður hélt erindi um
tímabundnar ráðstafanir til að
leiðrétta launamun kynja. Talaði
hún einkum um tvær leiðir, að
veita aðilum styrk til að örva þátt-
töku kvenna í óhefðbundnum
kvennastörfum og skylda aðila til
að veita konum jöfn tækifæri og
körlum.
Böðvar Guðmundsson hag-
ráðunautur fjallaði um starfsmat,
og hvernig það gæti nýst til að ná
launajöfnun.
Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ fjallaði um fjölskyldumál og
þátt verkalýðshreyfingarinnar í
launajöfnun. Lagði hann áherslu
á að opinber þjónusta yrði að
taka mið af þeirri staðreynd að
konur vilja og verða að vinna
utan heimilis. Gerði hann nok.kra
grein fyrir þeim drögum sem ráð-
stefnunni var ætlað að fjalla um
að stefnumörkun í fjölskyldumál-
um.
Starfshópar fjölluðu um málin
og skiluðu niðurstöðum. í stuttu
máli má segja að niðurstöður
þeirra hafi verið:
1. Að auka beri vægi daglauna
og þannig stytta vinnutíma.
2. Að endurmeta beri störf
kvenna.
3. Að auka tíma fólks til fjöl-
skyldulífs, m.a. með því að
lengja fæðingarorlof.
4. Að tryggja það að lægstu laun
verði lífvænleg.
5. Að verkalýðshreyfingin auki
fræðslustarf um jafnréttismál
bæði innan hreyfingarinnar og
utan t.d. með því að taka þátt
í starfsfræðslu í skólum.
6. Að tryggja aðild kvenna að
samninganefndum og taka
mið af þörfum fjölskyldunnar
við starf í hreyfingunni.
7. Að nýta sér þá fjölmiðla sem
til staðar eru í dag fyrir kynn-
ingarstarf.
Ráðstefnan gerði nokkrar
athugasemdir við þau drög sem
fyrir lágu að fjölskyldustefnu og
var samþykkt að senda stjórnum
sambandanna til leiðbeiningar
við stefnumörkun í jafnréttis- og
fjölskyldumálum þau atriði sem
til umfjöllunar voru á ráðstefn-
unni.
Nk v
Föstudags- og laugar-
dagskvöld skemmtir
Bjartmar Guðlaugsson j,
matargestum H.A. (
Hvernig væri nú að fara
út að borða fyrir aðeins
kr. 450.- og kaffið innifalið^
Matseðill
bæði kvöldin
Karrýristuö karfaflök meö rækjum
og lauk í karrýsósu. Kryddsoöinn
nautavöövi meö rauökáli og
kartöflumauki. Ofnsteiktur
grisakambur í rjómasósu.
. Indverskur kryddréttur.
Vmveititujar.
Verið veíkomin
HóteC Akureyri
:v::ý::ý:ý:ý::ý^
:::::::::::::::::
Sjónvarp Akureyri
msm.;