Dagur - 19.03.1987, Page 10
10 - DAGUR - 19. mars 1987
Vegna mikillar
sölu vantar
nýlega bíla
í salinn -
Láttu skrá
bílinn og fáðu
góð tilboð.
■ -C Kawasaki
fjórhjól 1987
fyrirliggjandi
☆
Vélsleðar -
Nýir/notaðir.
☆
Fjórhjól notuð á
hagstæðum kjörum.
______________________________________________________íþróttir.
íslandsmót yngri flokka í handknattleik:
Þór í úrslit í 3. flokki pilta
og stúlkna - KA í 4. flokki
Þriðja og síðasta umferð í
Norðuriandsriðli yngri flokka í
handknattleik fór fram í nýju
íþróttahöllinni á Húsavík um
síðustu helgi. Keppt var í 4. og
3. flokki og 3. flokki kvenna.
Þór hefur unnið sér rétt til að
leika í úrslitakeppninni í 3.
flokki pilta og stúlkna og KA í
4. flokki. Þriðji og síðasti leik-
ur Þórs og KA í 5. flokki fer
fram í Skemmunni í kvöld kl.
17 og þá skýrist það hvort liðið
kemst í úrslitakeppnina í þeim
flokki. Leikirnir á Húsavík
voru margir hverjir mjög jafnir
og spennandi.
4. flokkur:
Þór sigraði Hött frá Egilsstöð-
um með 15 mörkum gegn 10.
Mörk Þórs skoruðu: Rúnar
Sigtryggsson 4, Aðalsteinn Páls-
son 3, Árni P. Jóhannsson 3,
Ómar Kristjánsson 2, Hákon
Örvarsson 1, Haukur Ragnars-
son 1 og Sigurður Gauti Hauks-
son 1.
Mörk Hattar skoruðu: Hörður
Guðmundsson 5, Ragnar Egils-
son 2, Sigurður Jónsson 1, Krist-
ján Magnússon 1 og Sigurþór
Arnarsson 1.
KA sigraði Þór með 12 mörk-
um gegn 10 eftir að hafa haft yfir
6:4 í hálfleik. Þessi sigur dugði
KA til að sigra í riðlinum.
Mörk KA: Karl F. Karlsson 5,
Ægir Dagsson 3, Jón Egill Gísla-
son 2, Jón Árnason 1 og Karl
Pálsson 1.
Mörk Þórs: Sigurður Gauti
Hauksson 3, Hákon Örvarsson 3,
Ómar Kristjánsson 1, Haukur
Ragnarsson 1, Rúnar Sigtryggs-
son 1 og Árni P. Jóhannsson 1.
Leikur KA og Hattar var mjög
jafn og spennandi en KA-menn
voru sterkari í lokin og sigruðu
17:16 eftir að hafa haft yfir 8:7 í
hálfleik.
Mörk KA: Jón Egill Gíslason
6, Þorvaldur Þorvaldsson 3, Karl
F. Karlsson 3, Björn Sigbjörns-
son 2, Arnar Arngrímsson 1,
Karl Pálsson 1 og Baldvin Jóns-
son 1.
Mörk Hattar: Sigurþór Arn-
arsson 5, Kristján Magnússon 4,
Ingvar Valsson 3, Ragnar Egils-
son 2 og Hörður Guðmundsson
2.
Þór sigraði Völsung með 14
mörkum gegn 10, staðan í hálf-
leik var 7:5.
Mörk Þórs: Rúnar Sigtryggs-
son 5, Hákon Örvarsson 3,
Haukur Ragnarsson 2, Ómar
Kristjánsson 1, Sigurður Gauti
Hauksson 1, Árni P. Jóhannsson
1 og Aðalsteinn Pálsson 1.
Mörk Völsungs gerðu þeir:
Ásmundur Arnarsson 7 og Ingv-
ar Dagbjartsson 3.
KA sigraði Völsung mjög
örugglega 16:9 eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 7:3.
Mörk KA: Jón Egill Gíslason
8, Karl F. Karlsson 3, Karl Páls-
son 2, Jón Árnason 1, Guðmund-
ur Guðmundsson 1 og Þorvaldur
Þorvaldsson 1.
Mörk Völsungs: Jónas Grani
Garðarsson 5, Ásmundur Arnars-
son 3 og Baldvin Viðarsson 1.
Völsungur sigraði Hött 14:12 í
jöfnum leik en í hálfleik var stað-
an 7:6 fyrir Völsung.
Mörk Völsungs: Ásmundur
Arnarsson 9, Ingvar Dagbjarts-
son 4 og Baldvin Viðarsson 1.
Mörk Hattar: Ingvar Valsson
4, Sigurþór Arnarsson 3, Ragnar
Egilsson 2, Hörður Guðmunds-
son 2 og Kristján Magnússon 1.
3. flokkur:
Þórsarar unnu stórsigur á
Völsungi í 3. flokki. Úrslitin 21:7
eftir að staðan hafði verið 10:4 í
hálfleik.
Mörk Þórs: Árni Þ. Árnason 5,
Axel Vatnsdal 4, Sverrir Ragn-
arsson 4, Sævar Árnason 3,
Kjartan Guðmundsson 2, Þórir
Áskelsson 1, Hjalti Hjaltason 1
og Guðmundur Guðmundsson 1.
Mörk Völsungs: Vilhjálmur
Sigmundsson 2, Stefán Stefáns-
son 1, Ragnar Ragnarsson 1,
Jónas Emilsson 1, Örvar Þór
Sveinsson 1 og Þórir Gunnarsson
1.
KA-menn unnu einnig örugg-
an sigur á Völsungi, 16:11, í hálf-
leik var staðan 7:3.
Mörk KA: Stefán Pálmason 5,
Arnar Dagsson 4, Jón E.
Jóhannsson 2, Ingvar Ingason 2',
Hjörtur Þorleifsson 2 og Halldór
Kristinsson 1.
Mörk Völsungs: Stefán Stef-
ánsson 4, Vilhjálmur Sigmunds-
son 3, Ragnar Ragnarsson 3 og
Þórir Gunnarsson 1.
KA sigraði Þór naumlega með
17 mörkum gegn 16 eftir að Þórs-
arar höfðu haft yfir í hálfleik 8:6.
Þórsarar fara engu að síður í
úrslit, þar sem þeir unnu tvo fyrri
leikina. Halldór Kristinsson kom
aldeilis við sögu í þessum leik en
hann skoraði 13 mörk fyrir KA,
hin mörkin skoruðu þeir Stefán
Pálmason 3 og Hjörtur Þorleifs-
son 1.
Mörk Þórs: Árni Þ. Árnason 5,
Axel Vatnsdal 4, Sævar Árnason
3, Hjalti Hjaltason 2, Þórir
Áskelsson 1 og Guðmundur
Guðmundsson 1.
3. flokkur kvenna:
Stelpurnar í Þór fara í úrslit í
3. flokki kvenna eftir stórsigur á
Völsungsstelpunum 13:2. í hálf-
leik var staðan 6:0. Sædís Guð-
mundsdóttir og Þórhildur Vals-
dóttir skoruðu mörk Völsungs en
Margrét Axelsdóttir var
atkvæðamest hjá Þór með 5
mörk.
Svanfríður Jónasdóttir.
Steingrímur J. Sigfusson.
þingsæti Norðurlandskjördæmis eystra er
samkvæmt nýjum kosningalögum jöfnunar-
sæti. Alþýðubandalagið berst fyrir þessu
sæti og þar með 2 þingmönnum.
Kannanir sýna að Alþýðubandalagið hefur mesta
möguleika allra flokka að ná þessu þingsæti.
e*mr'atít
Sigríður Stefánsdóttir.
Fundir með frambjóðendum Alþýðubandalagsins:
22. mars kl. 15.00 25. mars kl. 21.00
að Grund í Svarfaðardal að Sólgarði, Saubæjarhr., Eyjafirði
Fundarstjóri: Kristján E. Hjartarson Fundarstjóri: Rósa Eggertsdóttir
22. mars kl. 21.00 27. mars kl. 21.00
að Melum í Hörgárdal að Stóruvöllum í Bárðardal
Fundarstjóri: Hólmfríður Guðmundsdóttir Fundarstjóri: Svanhildur Hermannsdóttir
24. mars kl. 21.00 28. mars kl. 14.00
í nýja barnaskólanum á Grenivík að Ýdölum, Hafralæk, Aðaldai
Fundarstjóri: Kristleifur Meldal Fundarstjóri: Sverrir Haraldsson