Dagur - 19.03.1987, Page 13
19. mars 1987 - DAGUR - 13
Litið yflr liðna tíð
Einstaka menn líta yfir lífsferil
sinn með þessari ljósveru. Menn
sjá atburði lífs síns, en ekki eins
og á kvikmynd, heldur sjá menn
allt lífið „í einu“.
Mörkin
Að lokum koma menn að „landa-
mærum“. Mönnum verður ljóst,
að fari þeir yfir þau, eiga þeir
ekki afturkvæmt til líkama síns,
eða með öðrum orðum - menn
hljóta að deyja.
Pessi mörk geta verið grind-
verk eða lækur, eða þá eitthvað
alveg óhlutrænt. Sumum gefst
tækifæri til að velja um það
sjálfir, hvort þeir vilja vera þarna
og þar með að „deyja í alvöru",
eða hvort þeir vilja snúa við til
eigin líkama og halda áfram að
lifa.
Þegar hér er komið, eru flestir
svo gagnteknir af þessu stórkost-
lega ævintýri, að þeir kjósa ekk-
ert fremur en að dveljast áfram á
þessum dásamlega stað. Þeir,
sem samt sem áður snúa við, gera
það ekki sjálfs sín vegna, heldur
alltaf vegna annarra; ungra
barna, sem þurfa á þeim að
halda, grátandi maka, stöku sinn-
um vegna verkefna, sem þarf að
ljúka.
Eftirtektarvert er, að sá, sem
þetta ritar, hefur aldrei hitt,
heyrt eða lesið um nokkurn
mann, sem gafst kostur á að velja
og kaus að vera . . . Flestum
gefst ekki kostur á þessu vali.
Ljósveran eða einhver af ættingj-
um þeirra gefa þeim til kynna, að
þeirra tími sé ennþá ekki
kominn, og þeir verði að snúa
aftur til lífsins.
Þeir biðja og grátbæna árang-
urslaust um að fá að vera kyrrir.
Og einhvers staðar á þessu stigi
lýkur reynslunni með því, að
menn snúa aftur til eigin líkama.
Snúið til baka
Þegar menn snúa til baka getur
það gerst með mörgu móti. Það
algenga er, að eitthvert „gat“
verður í minnið, og síðan vakna
menn einfaldlega í eigin líkama.
Aðrir finna hvernig eitthvert
mikið afl dregur þá til baka í lík-
amann. Sextug kona hlaut mjög
áhrifamikla reynslu af endur-
komu sinni. Meðan hún sveif
uppi undir lofti sá hún eigin lík-
ama og á bök og hnakka þeirra,
sem stóðu umhverfis rúmið og
reyndu að lífga hana við. Þegar
hún snéri aftur til líkamans
horfði hún í andlitin á sama fólki.
Að segja öðrum frá
Á eftir er fólk gagntekið af þess-
ari reynslu, sem hvað flesta
áhrærir er það stórkostlegasta,
sem fyrir þá hefur komið á lífs-
leiðinni. En fólk veigrar sér við
að segja frá þessu, jafnvel þeim,
sem allra nákomnastir eru, því að
fólki er ljóst, hversu fáránlega
þetta muni hljóma í annarra eyr-
um. Aftur á móti flögrar það ekki
að neinum að efast um það
sjálfur, að hann hafi verið uppi
undir lofti, en mönnum er ljóst,
að aðrir myndu segja það draum
eða ofsjónir eða jafnvel ásaka
viðkomandi fyrir að skálda þetta
allt saman.
(Videnskab for alle 12/86. - Þýð. Þ.J.)
Óskar Sigtryggsson:
„Flokkur mannsins"
Þátturinn: Um daginn og veginn,
hefur orðið öðrum dagskrárþátt-
um Ríkisútvarpsins langlífari.
Langlífi sitt á hann án efa, að
miklu leyti því að þakka að það
voru engar meðalmenn, sem
hrundu honum á flot, og sagt er
að lengi búi að fyrstu gerð.
Því miður finnst mér að þessi
þáttur hafi í seinni tíð verið að
glata sinni fyrri reisn. Nú þykir
mér um of, sækja í það horf að
flytjendur hans, verji tíma sínum
til að koma á framfæri pólitískum
skoðunum sínum, eða sjónarmið-
um misjafnlega þröngra hags-
munahópa.
Svo ég muni, hef ég þrívegis
orðið fyrir því að heyra á flutning
þáttarins, þar sem áhangendur
„Flokks mannsins“ hafa verið
flytjendur. Enginn þeirra var
spar á að lofa ágæti „flokksins“.
Það var þó mánudagskvöldið 16.
febr. sl. sem mér þótti mælirinn
yfirfullur. Nafni flytjandans hefi
ég gleymt, en kona var það.
Hvorki var þar komið nærri degi
eða vegi, en sá tími, sem afgangs
var frá því að lofa „manninn“ og
flokk hans fór óskiptur í það að
troða skóinn niður af öðrum
stjórnmálamönnum og stjórn-
málasamtökum á einkar lágkúru-
legan hátt.
Ég hafði stundum verið að
velta fyrir mér tilefni þessarar
nafngiftar: „Flokkur mannsins“.
En undir lestri þessa þáttar,
vaknaði ég til skilnings á tilurð
hennar.
Ég harmaði það þegar öllu var
lokið að hafa ekki talið hvað oft
stúlkan nefndi nafn Péturs, en
það nefndi hún örugglega oftar
en heittrúaðasti klerkur nefnir
nafn Guðs í langri stólræðu. Og
ekki brást það heldur, að í hvert
sinn, sem hún nefndi nafn Péturs,
lofaði hún hans dýrð. Nú veltist
ég ekki lengur í vafa um tilefni
nafnsins, sem flokknum hafði
verið gefið. Þetta var vissulega
flokkur mannsins og maðurinn
sem átti flokkinn heitir Pétur
Guðjónsson.
Á þessu fékk ég staðfestingu,
þegar féttamaður Svæðisút-
varpsins á Akureyri, átti viðtal
við 1. mann á lista „Flokks
mannsins“ hér í kjördæminu, því
þegar spurt var um tillögur þeirra
til lausnar vandamála, var megin-
svarið það að Pétur vissi þetta allt
saman.
En það hefur áður skeð, að
flokkur hafi verið stofnaður utan
um mann og hafa þau fyrirtæki
ekki ætíð fengið gæfuleg enda-
lok.
Þess er skemmst að minnast
þegar Bandalag jafnaðarmanna
var stofnað utan um eldhugann
unga, sem taldi gengi sitt í
Alþýðuflokknum ekki vera í
samræmi við verðleika. í þeim
flokki var ekki, frekar en í öðrum
flokkum, rúm fyrir nema einn
flokksformann og sú vegsemd
hlotnaðist honum ekki. Því þótti
einboðið að stofna nýjan flokk,
þar sem hann væri óumdeilanlega
í fyrsta sæti.
Þá raunasögu, sem leiddi af
þessum stjórnmálaumbrotum, er
þarflaust að rekja frekar. En það
er augljóst, að þeir sem gengu til
fylgis við þessi samtök á sínum
tíma, standa nú á rústum þeirra,
tvístraðir og ráðlitlir.
Þrátt fyrir augljós víti til varn-
aðar, endurtekur sagan sig og er
nú höggvið nær okkur í Norður-
landskjördæmi eystra en áður.
Gamalgróinn þingmaður Fram-
sóknarflokksins í kjördæminu,
taldi það ekki virðingu sinni sam-
boðið að skipa sama sæti á fram-
boðslista flokksins og hann hafði
áður skipað. Þegar það kom
glöggt fram við prófkjör, þegar
raðað var á listann, að hann hlyti
ekki efsta sæti listans, neitaði
hann að taka sæti á honum.
Þegar svo var komið, gengust
einhverjir misráðhollir stuðnings-
menn Stefáns Valgeirssonar, fyr-
ir því að safna undirskriftum
undir áskorun á hann um að efna
til sérframboðs. Furðu margir
urðu til þess að ljá nöfn sín á
þetta plagg og trúlega hafa ólíkar
hvatir rekið menn til þess. Vissu-
lega eiga þar allmargir gegnir
framsóknarmenn nöfn sín. Ég
álít að þessum mönnum hafi
gengið það til að votta Stefáni
hollustu sína og þakka honum á
þennan hátt persónulega fyrir-
greiðslu. Ég efa ekki að fjöldi
þessara manna hefur skrifað nöfn
sín í því trausti, að þingmaðurinn
efndi ekki til óhæfuverka.
En það var annar hópur
manna, sem meiru mun hafa ráð-
ið um gang málanna. Þar kom við
sögu hópur manna, sem af ráðn-
um hug vann að því að grafa und-
an Framsóknarflokknum í kjör-
dæminu og fann í þessum aldna
þingmanni kjörið tæki til þess.
Það er nú orðið deginum ljósara,
að það er þessi hópur sem nú er
alls ráðandi í J flokknum
í „hirðisbréfi“, sem sent er út af
þessum flokki „mannsins" Stef-
áns Valgeirssonar, eru fram-
sóknarmenn hvattir til að segja
skilið við flokkinn. Undir þetta
bréf skrifar, meðal annarra Stef-
án Valgeirsson, starfandi þing-
maður Framsóknarflokksins, sá
hinn sami og flokkurinn hefur
lyft til þeirra mannvirðinga, sem
honum hafa hlotnast.
Ég held að þeir, sem hvöttu
S.V. til þeirra lánlausu athafna,
sem hann hefur nú leiðst út í, hafi
unnið honum tjón, sem seint
verður bætt.
Oskar Sigtryggsson
Höfundur cr bóndi aö Rcykjahóli
Freyvangsleikhúsið
auglýsir:
Láttu ekki
deigan síga
Guðmundur
Sýningar:
Fimmtudag 19. mars kl. 20.30.
Föstudag 20. mars kl. 20.30.
Laugardag 21. mars kl. 20.30.
Sunnudag 22. mars kl. 20.30
Sýningum fer að fækka.
Vegna mikillar aðsoknar
vinsamlegast pantið miða.
Miðapantanir í síma 24936.
Ath. Hópafsláttur.
Freyvangsleikhúsið.
Grattan
pöntunarlisti
Vor- og sumarlisti
1987 kominn
Glæsilegri en nokkru
sinni fyrr.
Verð kr. 250.00, + póstkrafa
ATH: Aðeins 500 listar
verða seldir fyrir Norðurland
Umboð Akureyri sími 96-23126
Fundur
um námslánin með Finni Ingólfssyni í Sjailanum fimmtudaginn 19. mars kl. 21. Námsmenn ★ Ykkur er sérstaklega boðið á þennan fund. ★ Verður menntun aftur gerð að forréttindum þeirra efnuðu? ★ Verður ungu fólki gert ókleift að stunda háskólanám? ★ Verður útilokað að stunda nám erlendis áður en langt um líður? Það skiptir ykkur miklu máli að íhaldið hafi ekki mikið leng- ur með menntamál að gera. Finnur Ingólfsson hefur barist gegn stefnu sjálfstæðis- mannsins Sverris Hermannssonar. Finnur hefur haldið hagsmunum ykkar á lofti og mun gera í framtíðinni.
Eftir fundinn verður diskótek til kl. 01.
Efstu menn B-listans í Norðurlandskjördæmi eystra verða á fundinum.
FRAMS0KNARFL0KK URINN m