Dagur - 19.03.1987, Page 16
Rafmagnsverkstœði
Bílarafmagn
Önnumst viðgerðir á störturum, dínamóum
og öðrum rafmagnshlutum í bílum
Við Tryggvabraut • Akiireyri • Sími 22700
Fundur í Sjallanum
um námslánakerfiö
í kvöld verður boðað til fundar
um námslánakerfið og hefst
hann kl. 21.00 í Sjallanum.
Þar mun Finnur Ingólfsson,
einn helsti sérfræðingurinn um
námslánakerfið halda framsögu-
erindi og sitja fyrir svörum. Svo
sem kunnugt er hefur Finnur átt
sæti í nefnd sem ríkisstjórnin
skipaði til að endurskoða gild-
andi reglur um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna og úthlutun
námslána. Hann hefur í vetur
deilt harkalega á þá stefnu sem
sjálfstæðismenn hafa tekið í lána-
sjóðsmálinu.
Ekki er að efa að námsmenn
og aðrir áhugamenn um þessi mál
munu fjölmenna á fundinn, sem
er öllum opinn.
A eftir verður síðan slegið á
léttari strengi og dansinn stiginn
til klukkan eitt eftir miðnætti.
Landsbyggðarfólk:
Leikhúspakkaferðir
til Akureyrar
- Verulegur afsláttur í boði
Leikfélag Akureyrar býður nú
upp á nýstárlegar pakkaferðir í
samvinnu við 11 aðila á Akur-
eyri. Þær eru nýstárlegar að
því leyti að þetta er í fyrsta
skipti sem fólk frá Norður-
landi, Austurlandi og Vest-
fjörðum fær tækifæri til að
notfæra sér þann afslátt sem
fólginn er í þessum lcikhús-
pökkum. Tilefnið er að sjálf-
sögðu hin glæsilega sýning
L.A. - Kabarett.
Auk leikfélagsins taka Flugfé-
lag Norðurlands, Skíðastaðir,
fjögur hótel og fimm veitinga-
staðir á Akureyri þátt í þessum
leikhúspakka. Skilyrðið er að
fólk kaupi sér iniða á Kabarett og
þjónustu á einum þeirra staða
sem í boði eru að auki, t.d.
kvöldverð. Fólk getur ráðið,
stærð pakkanna sjálft en veruleg-
ur afsláttur er í boði hvað varðar
mat, gistingu, flug og skíðaiðk-
stöð Austurlands söluna og fyrir
vestan er hún í höndum Ferða-
skrifstofu Vestfjarða. Þar má fá
allar upplýsingar varðandi þessar
ferðir.
Pað er ekkert sem mælir því
mót að Akureyringar geti líka
notfært sér þessar pakkaferðir,
hversu kyndugt sem það kann að
virðast og geta þeir haft samband
við Pétur Einarsson. Auk leik-
húspakkanna sem í boði eru fyrir
Norðlendinga, Austfirðinga og
Vestfirðinga eru hefðbundnar
pakkaferðir frá Reykjavík áfram
í gangi. Lífið er Kabarett. SS
Tignarlegur er turn hinnar nýju Glerárkirkju.
Mynd: RÞB
Akureyri:
Bókamaikaður
opnaður í dag
í dag hefst bókamarkaður í
húsi Karlakórs Akureyrar að
Óseyri 6 á Akureyri. Þar verða
seldir rúmlega 1700 titlar frá 11
bókaforlögum.
Á bókamarkaðinum verða t.d.
á annað hundrað bókatitlar frá
Máli og menningu. Mikið úrval
er af barnabókum, ævisögum,
spennubókum, ljóðabókum og
fræðibókum um ýmis hagnýt
efni. Sumar bækurnar, sem þarna
eru til sölu, hafa verið ófáanlegar
um langt skeið í bókaverslunum,
einnig er boðið upp á svonefnda
bókapakka, t.d. fimm barnabæk-
ur í pakka á kr. 350,- EHB
Skafti seldi í
Þýskalandi í gær
Skafti togari Útgerðarfélags
Skagfirðinga seldi í gærmorg-
un í Bremerhaven í Þýska-
landi, 153,4 tonn fyrir tæpar 8
millj. kr. Meðalverð var 52,07
krónur á kíló, sem þykir tæp-
lega í meðallagi. Attinn var að
mestu karfí, en einnig nokkuð
af grálúðu.
Drangey landaði góðum afla í
gærmorgun á Sauðárkróki, 140
tonnum af þorski eftir 6 daga
veiðiferð. Hegranesið kom fyrir
helgi með 118 tonn af þorski eftir
viku veiðiferð. Hráefni er því
nægt og næg vinna í frystihúsun-
um eftir frekar stopula vinnu
undanfarnar vikur.
Kartöflubændur uggandi:
Margir tala um að hætta
- Aðeins þriðjungur framleiðslu Kjörlands selst og sala á matarkartöflum gengur illa
un.
Fyrir utan hefðbundinn afslátt
eru leikfélagið og Hótel Stefanía
með aukaafslátt á miðvikudögum
og fimmtudögum og er það að
sögn Péturs Einarssonar gert í
þeim tilgangi að lengja helgina,
dreifa þjónustunni á fleiri daga.
Á Norðurlandi verða pakka-
ferðirnar til sölu í miðasölu L.A.
og hjá Flugfélagi Norðurlands, á
Austurlandi annast Ferðamið-
„Við forðumst íslenskar kart-
öflur eins og dauðann, því þær
eru rusl. Við notuðum íslensk-
ar kartöflur fyrstu 6 mánuðina
eftir að við opnuðum, en þurft-
um að hætta því. Fólk kærði
sig ekki um þær,“ sagði Helgi
Helgason hjá Kórónakjúkling-
um á Akureyri. En veitinga-
staður hans, - ásamt Bautan-
um hefur alveg snúið sér að
notkun innfluttra kartaflna.
Það sem gerir er að íslensku
kartöflurnar virðast; vera svo
vatnsmiklar að þær verða linar og
ógeðfelldar til að bjóða við-
skiptavinum veitingastaðanna.
Eins og áður hefur komið fram
í blaðinu er talsverður uggur í
mörgum kartöflubændum í
Eyjafirði vegna þess ástands
sem ríkir í sölumálum vörunn-
ar. Margir telja að sú óeining,
sem fram kemur í því að á
svæðinu starfa þrjú sölufélög,
veiki samkeppnisstöðu bænd-
„Við höfum verið með innfluttar
úrvalskartöflur frá Belgíu og eru
þær mjög góðar. Þær verða eins
og fólk vill hafa franskar kartöfl-
ur, - stökkar og góðar.
Mikil umræða hefur verið um
innflutning á frönskum kartöflum
til landsins og hafa kartöflufram-
leiðendur lýst áhyggjum sínum
vegna þeirrar þróunar.
„Auðvitað vildum við heldur
kaupa íslenskar kartöflur, en þær
eru ekki samkeppnisfærar hvað
gæði og ekki síst hvað verð
snertir. Þegar við hættum að
kaupa íslenskar kartöflur var
verðið urn 92 krónur kílóið, á
móti 50 krónum fyrir erlendar.
anna enda hefur sala á eyflrsk-
um kartöflum gengið mjög illa
það sem af er.
Að sögn Þorsteins Jóhannes-
sonar formanns Búnaðarfélags
Grýtubakkahrepps hefur meira
borið á því en áður að kartöflu-
bændur minnki pantanir sínar á
áburði. Af átján bændum sem
„Við notum innfluttar kartöfl-
ur vegna þess að þær eru bæði
betri og ódýrari. Við notuðum
eingöngu íslenskar til skamms
tíma. Þá voru þær líka sam-
keppnisfærar í verði,“ sagði Hall-
grímur Arason hjá Bautanum og
Smiðjunni. Hann tók undir orð
Helga um að kartöflurnar væru
vatnsmeiri, og skemmdu steik-
ingarfitu mun fyrr en þær
erlendu. Við vildum gjarnan nota
íslenskar, en þær standast ekki
þær kröfur um verð og gæði sem
settar eru,“ sagði Hallgrímur.
„íslenskar kartöflur eru vatns-
meiri vegna styttri sprettutíma og
meiri kulda hér á landi“, sagði
panta gegnum félagið hafa þrír
minnkað pantanir og einn afpant-
að alveg. Samtals er þarna um að
ræða minnkun upp á um 20 tonn.
Einnig hefur mikið verið spurt
um það hvenær frestur til að
afpanta rennur út.
„Það er mjög algengt að menn
séu að tala um að hætta kartöflu-
Þórður Stefánsson framkvæmda-
stjóri Kjörlands hf. á Svalbarðs-
eyri. Hann sagði að í athugun
væru kaup á tækjum sem hituðu
kartöflurnar og mundu slík tæki
bæta mikið. Hann sagði að nokk-
'urt magn af kartöflum hefði verið
sent til Danmerkur sl. haust til
þurrkunar. Þetta sýndi að með
bættum tækjum gætu íslenskar
kartöflur staðið janfætis þeim
innfluttu.
„Við prófuðum þessar kartöfl-
ur sem sendar voru til Danmerk-
ur. Þær voru skárri, en alls ckki
nógu góðar samt,“ sagði Helgi
Helgason. gej-/ET
rækt vegna þess ástands sem nú
ríkir í þessum málum. Það er
mikið svartsýnishljóð í
mönnum,“ sagði Þorsteinn.
Ekki er alveg ljóst hversu mikl-
ar birgðir eru til af kartöflum hjá
bændum þar sem sumir þeirra
selja beint í verslanir.
Það er þó ljóst að miklar birgð-
ir eru fyrir liendi. Framleiðsla
ársins 1986 var um 1300 tonn af
matarkartöflum og 1700 tonn af
verksmiðjukartöflum. Hjá Kjör-
landi hf. og Öngli hf. hafa aðeins
verið seld um 150 tonn af matar-
kartöflum og salan gengur mjög
hægt. Að vísu eiga bændur hér
eftir að selja 2-300 tonn suður
sem stofnútsæði.
Af frönskum kartöflum hafa
verið framleidd unt 130 tonn úr
320 tonnum af hráefni. Af þeim
hafa verið seld um 30 tonn en
þess ber þá að geta að fram í
janúar var verið að klára birgðir
frá fyrra ári. Hjá Kjörlandi eru
nú framleidd 50-60 tonn á mán-
uði en salan er um 18 tonn.
„Það eru allar líkur á að í haust
verði hér miklar óseidar birgðir
hvort sent það verða óunnar kart-
öflur sem skemmast, eða fransk-
ar sem fá þá að standa inni í
frystiklefa," sagði Þórður Stef-
ánsson framkvæmdastjóri Kjör-
lands hf. í samtali við Dag. ET
„íslenskar kartöflur eru rusl“
- segir Helgi Helgason hjá Bita hf.