Dagur - 22.05.1987, Side 7

Dagur - 22.05.1987, Side 7
22. maí 1987- DAGUR-7 Mynd: EHEi Leif Levin, framkvæmdastjóri. lega með verslunarrekstur en þið eruð með næstum því allt, sem maður getur hugsað sér, verslun, iðnað og margvíslega þjónustu. Akureyri er ekki stór bær en hér er kraftmikil og öflug samvinnu- starfsemi. Ég hef aldrei komið áður til íslands en ég er mjög hrifinn af því sem hefur borið fyr- ir augu í ferðinni. Náttúrufegurð er mikil hér norðanlands.“ - Hafið þið samvinnumenn rætt einhver viðskipti í þessari heimsókn? „Já, við höfum rætt við for- ráðamenn Iðnaðardeildar SÍS um að kanna grundvöll fyrir viðskipti við okkur í Svíþjóð því þið hafið mjög fullkominn ullariðnað hérna, og við höfum séð að hér eru framleiddar vandaðar og. góðar vörur. Ég mun koma aftur til íslands í júlí og þá reyni ég að koma aftur til Akureyrar, ef það reynist mögulegt.“ Blaðamaður þakkaði Leif Lev- in fyrir viðtalið, sem gat ekki orð- ið lengra því hann þurfti að flýta sér með næstu flugvél suður. EHB Framleiðnisjóður landbúnaðarins: Landfriðunarbændur geta fengið 15% hærri greiðslu - fyrir fullvirðisrétt Framleiðnisjóður landbúnað- arins hefur sent frá sér tilkynn- ingar þess efnis að almennt muni hann ekki kaupa eða leigja fullvirðisrétt í mjólk fyrir næsta verðlagsár, 1988/’89. Þessi ákvörðun er tekin í fram- haldi af þeim góða árangri sem náðst hefur í samdrætti fram- leiðslunnar og aukinni innan- landssölu. Vegna enn minnk- andi sölu kindakjöts verður fullvirðisrétur í því keyptur eða leigður að minnsta kosti eitt verðlagstímabil enn. Fyrirkomulagi kaupa á full- virðisrétti í kindakjöti hefur ver- ið breytt nokkuð frá því sem var. Ekki verður krafist búháttabreyt- inga á viðkomandi býli ef vissum skilyrðum er uppfyllt. Þessi skil- yrði eru m.a. svæðaskipulag, landfriðun og annars konar land- nýting en tíðkast hefur. Heimilt er að greiða allt að 15% hærra verð fyrir fullvirðisréttinn ef um er að ræða landfriðunarmarkmið. Forgangsrétt til að leigja eða selja fullvirðisrétt hafa frumbýl- ingar og þeir sem búa minna búi en svokölluðu viðmiðunarbúi, 400 ærgildi. Nokkur breyting hefur orðið á greiðslukjörum þannig að nú er hægt að fá kaupverð greitt á 2 árum, en áður var eingöngu hægt að fá greiðslur vegna sölu á full- virðisrétti á 4 árum. Leiga verður þó eftir sem áður greidd á 6 árum. ET Svarfaðardalur: Leiklistarþing um helgina - frumlegar Nú um helgina verður haldið þing Bandalags íslenskra leik- félaga á Húsabakka. Þingið verður sett í dag kl. 16.30 og stendur til kl. 14.00 á sunnu- dag. Ymsar uppákomur munu setja svip sinn á þingið, og sumar vægast sagt mjög frum- legar. Félagið er aðili að norrænu leiklistarsamtökunum N.A.R., og verður yfirskrift ráðstefn- unnar: „Hefur norrænt og al- þjóðlegt samstarf þýðingu fyrir mig?“ Einar Njálsson formaður bandalagsins mun meðal annarra halda framsöguerindi, en dag- uppákomur skráin samanstendur af þing- sköpum á daginn, og leiklist á kvöldin. í kvöld mun Leikfélag Dalvíkur sýna verk úr safni Jón- asar Árnasonar sem þau hafa verið að sýna í vetur. Verkið heitir „Til sjávar og sveita“,og mun leiksviðið í kvöld verða með óvenjulegasta móti; mjög svo forvitnilegu. Svningin hefst kl. 11.00. Á laugardaginn verður hald- inn aðalfundur bandalagsins. Dalvíkurbær og Svarfarðardals- hreppur bjóða um kvöldið til hátíðarkvöldverðar. Leikfélag Dalvíkur munu síðan sýna Norn- ina Baba-Jaga þetta kvöld. VG Mögur loðna þurrkuð sem gælu- dýrafóður hjá Stokkfiski í Reykjadal Stokktlskur í Reykjadal fram- leiðir gæludýrafóður úr hráefni sem ekki er hægt að nýta til annarrar framieiðslu. Hér er um að ræða loðnu sem er orðin of mögur til bræðslu en til að hægt sé að þurrka loðnuna hjá Stokkfiski þarf fitustig hennar að vera lágt. Þurrkaða loðnan er seld sem gæludýrafóður fyr- ir hunda og ketti til Norður- landa og annast dreifingaraðili í Danmörku söluna. Þokkalegt verð fæst fyrir vör- una én flutningskostnaður er dálítið mikill því loðnan er veidd á Faxaflóa og Breiðafirði og flutt þaðan í Reykjadal. Loðnan er veidd um og eftir hrygningu, á 6-8 vikna tímabili og bátar fara í sérstakar veiðiferðir fyrir Stokk- fisk til að ná loðnu með nógu lágt fitumagn. Um haustið 1985 hóf Stokk- fiskur tilraunaframleiðslu á nýrri vöru, gæludýrafóðri úr þorsk- hausum og dálkum sem eru hakkaðir, síðan er hakkið mótað í sérstökum vélum í fimm stærð- arflokka og þurrkað. Engum efn- um er blandað í vöruna og er hún seld sem hrein náttúruafurð til Norðurlanda, Sviss, Þýskalands og Englands en það eru danskir dreifingaraðilar sem annast söl- una. Þetta fóður er ætlað hund- um nema minnsti stærðarflokkur- inn sem farið er að selja sem kattafóður. Að sögn Lúðvíks Haraldssonar verkstjóra hjá Stokkfiski eru þurrkaðir þorskhausar stærsti lið- urinn í framleiðslu fyrirtækisins, þeir eru seldir til Nígeríu og áætl- að er að 22.500-25.000 þúsund pakkar af þessari skreið verði Áformað er að hefja í sumar byggingu húss fyrir skrifstofur bæjarfógeta- og sýslumanns- embættisins á Sauðárkróki, á lóðinni Suðurgötu 1. Hið opn- bera byggir í samvinnu við Bókaverslun Brynjars, sem verður til húsa á neðri hæð hússins, en þar verða einnig lögregluvarðstofa og fanga- geymslur embættisins. Að sögn Halldórs Jónssonar framleiddir á árinu. Varan þykir mjög jöfn að gæðum og er seld í hærra verðflokki en hausar sem þurrkaðir eru úti. Hún selst mjög vel og Stokkfiskur liggur aldrei með neinar birgðir af henni. Segja má að framleiðsla fyrir- tækisins sé fjórþætt, því í vetur var loðna söltuð á þess vegum og fyrirhugað er að þurrka hana og selja sem skreið til Afríku. IM sýslumanns verður um gjörbreyt- ingu að ræða fyrir embættið þeg- ar þar að kemur, við byggingu hins nýja húss. Skrifstofurnar eru nú við mikil þrengsli í 100 fermetra húsnæði við Víðigrund, en koma til með að fá 3-400 fermetra rými. Til framkvæmdarinnar hafa fengist af tveim síðustu fjárlögum samtals 7,5 milljónir og er reikn- að með að sú upphæð fari langt með að duga til að gera húsið fokhelt. -þá Sauðárkrókur: Sýslu- og bæjarfógeta- skrifstofur byggðar í sumar Sumarbúðir ÆSK við Vestmannsvatn Sumarbúðir ÆSK eru við Vestmannsvatn í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu. Þar fer saman einstæð náttúrufegurð og mikil veðursæld. I búðunum er alltaf mikið um að vera, hægt er að fara í göngu- og bátsferðir, renna fyrir silung, fara í bílferð til kirkju eða í sund. (búðunum er íþróttavöllur og leikvöllur. Þegar veður leyfir er safnast saman við varðeld og söng. f samkomusal eru haldnar helgistundir og fræðslukvöld. í sumarbúðunum er lögð rækt við sál og líkama. vikna. Þegar sú greiðsla hefur borist, fá væntanlegir þátttakendur bréf með öllum upplýsingum um sumarbúðirnar og dvölina þar. Flokkaskipting 1. fl. 30. maí - 6. júni 2. fl. 9. júní -16. júní 3. fl. 18. júní -25. júní 4. fl. 25. júní - 2. júlf 5. fl. 3. júlí -10. júlí 6. fl. 15. júlí —25. júlí 7. fl. 25. júlí - Lágúst 8. fl. 4. ágúst -11. ágúst 9. fl. 12. ágúst -19. ágúst 10. fl. 20. ágúst - 27. ágúst stelpur/strákar 8-11 ára stelpur/strákar 7-11 ára stelpur/strákar 8-11 ára stelpur 7-11 ára stelpur/strákar 11-13 ára opinn hópur-óráðstafað blindir og aldraðir aldraðir Selfossi (upppant.) orlofskonur orlofskonur Dvalargjald Innritun Dvalargjald í barnaflokkum er 5.900 fyrir barnið. Systkini fá afslátt, og er dvalargjaldið á 5.300 kr. 7. flokki (fyrir aldraöa) kostar 8.000 fyrir manninn eða 7.200 fyrir hvort hjóna. Rútugjöld eru ekki innifalin. r Innritun í sumarbúðir ÆSK viö Vestmanns- vatn er hafin. Hún fer fram hjá Gunnari Rafni Jónssyni og Steinunni Þórhallsdóttur, Skálabrekku 17 á Húsavík. Síminn er 96-41668. Innritað er alla virka daga frá kl.17-20, en einnig má hringja á öðrum tímum, ef það hentar betur. Einnig má inn- rita hjá Æskulýðsskrifstofu Akureyrar, sími 96-24873, og sr. Jóni Helga Þórarinssyni Dalvík, sími 96-61685. Frá og með 27. maí fer innritun fram í sumarbúöunum við Vestmannsvatn. Síminn þar er 96-43553. Við innritun þarf að greiða 1000 kr. staðfest- ingargjald, sem er óendurkræft, ef umsækj- andi hættir við dvölina þremur vikum eða skemur fyrir upphaf hennar. Ella gengur staðfestingargjaldið upp í dvalargjaldið. Sendir verða út gíróseðlar fyrir staðfesting- argjaldinu. Þá þarf að greiða innan tveggja Ungir sem aldnir Notið tækifærið, látið innrita ykkur strax í dag. Njótið þess að eiga ykkar sæluviku á Vestmannsvatni í glöðum hópi, í fagurri náttúru og endurbættum húsakynnum. Sjáumst öll hress og kát. Æskuiýðssamband kirkjunnar í Hólastifti

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.