Dagur - 27.05.1987, Qupperneq 3
27. maí 1987 - DAGUR - 3
Eitt af hlutverkum Hríseyjarferjunnar hefur verið að flytja físk milli lands og eyjar. Hér er grálúða tekin um borð
á Dalvík. Mynd: RÞB
Hjörtur Tryggvason:
Jarðskjálftarnir í fyrrinótl
- gætu verið undanfari stóra skjálftans
Hjörtur Tryggvason á Húsavík
fylgist með jarðskjálftamæli
fyrir Raunvísindadeild Háskól-
ans en nokkrir slíkir mælar
voru settir upp í Þingeyjarsýslu
á sínum tíma vegna undirbún-
ings virkjana Dettifoss og
Kröflu. Dagur ræddi við Hjört
í gær vegna jarðskjálftanna í
fyrrinótt og spurði hvaða
ályktanir hann drægi af þess-
um óróa.
„Það fundust dálítið oft skjálft-
ar hérna áður en Kröflueldar
byrjuðu en þeir duttu alveg niður
þegar Krafla fór í gang og lágu
Trésmiðjan Pan hf. á Akureyri
auglýsir nú 10 íbúðir til sölu í
fjölbýlishúsi við Melasíðu 6 og
að sögn Magnúsar Ingólfs-
sonar framkvæmdastjóra
bendir allt til þess að fram-
kvæmdir fari að hefjast.
Asókn í íbúðirnar er að glæð-
ast og Pan er einnig með lóð
undir raðhús sem nú er á
teikniborðinu. íbúðirnar í fjöl-
býlishúsinu eru 2ja, 3ja og 4ra
herbergja á þremur hæðum.
Steinunn Sigur-
björnsdóttir frá
Grímsey látin
Steinunn Sigurbjörnsdóttir frá
Grímsey lést síðastliðinn föstu-
dag, 22. maí í Landakotsspítala.
Steinunn var útibússtjóri kaupfé-
lagsins í Grímsey um árabil, en
lét af því starfi á síðasta ári.
Steinunn var einnig fréttaritari
Dags í Grímsey. Jarðarför Stein-
unnar fer fram frá Miðgarðakirkju
í Grímsey næstkomandi föstu-
dag. Dagur sendir eftirlifandi
aðstandendum Steinunnar sam-
úðarkveðjur.
niðri þar til í fyrra. Þá fóru að
koma skjálftar sem áttu upptök
sín vestan við Flatey og fyrir
mynni Eyjafjarðar, 6. febrúar
varð skjálfti sem mældist nærri
tvö stig og 15. febrúar skjálfti
sem var 4,3 stig, síðan hafa verið
tveggja til þriggja stiga skjálftar
að meðaltali einu sinni í mánuði.
Upptökin færast heldur nær okk-
ur og mér finnst vera töluverð
hætta á að á næstunni verði ein-
hverjir skjálftar hér á Húsavík.
Pessir skjálftar verða yfirleitt á
Húsavíkursprungunni og ef við
lítum á hvenær hafa komið nokk-
uð stórir skjálftar á þessari
Bílskúrsréttur fylgir 3ja og 4ra
herb. íbúðunum. „Gert er ráð
fyrir því að hægt sé að byggja
frístandandi bílskúra við plönin.
í rauninni ætti næstum að vera
skilyrði að hafa bílskúr en verka-
mannabústaðakerfið kaupir ekki
slíkar íbúðir," sagði Magnús.
Hann minntist á húsnæðis-
skortinn í bænum. „Innflytj-
endum“ gengi illa að fá húsnæði
og einnig væru margir Akur-
eyringar sem vildu stækka við sig,
fara úr blokk í raðhús, enda væri
ásóknin í raðhúsaíbúðir ansi
rnikil. Hann sagði einnig að lánin
væru orðin það há að ef fólk gæti
ekki keypt núna þá gæti það
aldrei gert það. Þegar fólk væri
komið með lánsloforð í hendurn-
ar ætti að vera auðvelt fyrir það
að byggja.
Pan selur íbúðirnar tilbúnar
undir tréverk, samcign frá-
gengin. Aðrir sem standa í
tbúðabyggingum núna eru SS
Byggir, sem nú hefur selt flestar
ef ekki allar íbúðirnar í Hjalla-
lundi, Aðalgeir Finnsson og
Fjölnir sem byggja verkamanna-
bústaði og Haraldur og Guð-
laugur sem byggja raðhús. Bygg-
ingariðnaður virðist á uppleið á
Akureyri og bjartsýni ríkjandi.
SS
sprungu þá var það síðast 1910.
1872 skemmdust öll hús á Húsa-
vík, flestir torfbæir hrundu og
fólkið flúði úr þorpinu, sömuleið-
is urðu mjög miklar skemmdir
1755 og þá urðu einnig miklar
skemmdir í Flatey. Einnig varð
skjálfti hér 1623 svo skjálftarnir
virðast koma að meðaltali einu
sinni á öld og þeir eru stórir.
Það er hugsanlegt að skjálft-
arnir núna séu undanfari þess að
eitthvað meira geti gerst og eins
er með skjálftann á Suðurlandi
hann gæti verið undanfari meiri-
háttar skjálfta þar.“
- Áttu frekar von á að skjálft-
arnir séu undanfari stórs skjálfta
á Húsavíkursprungunni heldur
en goss í Kröflu?
„Já, ég held að þetta bendi
ekki sérstaklega til goss í Kröflu
þó best sé að fullyrða ekkert um
það, en það er grunsamlegt að
skjálftarnir skuli vera að færast
nær Húsavík þó að það geti dreg-
ist í ár eða áratugi að stóri skjálft-
inn komi.“
- Hverju megum við eiga von
á þegar stóri skjálftinn kemur á
Húsavík?
„Skjálfta sem verður allt að sjö
stig á Richter. Slíkur skjálfti get-
ur valdið verulegum skemmdum,
hús geta sprungið, farið úr skorð-
um eða hrunið, það geta komið
miklar sprungur í Húsavíkurfjall
og Laugardal og landið norðan
við sprungurnar hækkar um hálf-
an til einn metra. Það er hægt að
sjá þrjár til fjórar sprungur í fjall-
inu og ekki gott að segja til um
hver þeirra hreyfist. Það hefur
ekki verið byggt nálægt þeim
sprungum en það hefur aldrei
verið kannað nægilega vel hvort
ein sprunga leynist nálægt hlíðum
fjallsins.
Skjálftinn verður skemmtileg-
ur og eftirminnilegur en þó munu
ekki allir hafa gaman af honum.
Ég á við að eldgos og jarðskjálft-
ar tilheyra okkar íslensku nátt-
úru, við verðum að læra að hafa
gaman af þeim og kynna okkur
þessa hluti sem best svo við þurf-
um ekki að vera hrædd.
Ég hef heyrt að það sé gamall
siður í Japan að þakka guði fyrir
jarðskjálfta og eldgos, þau séu
talinn af hinu góða. Það er ekki
hægt að neita því að bæði jarð-
skjálftar og eldgos hafa byggt
upp ísland og við ættum ekkert
land án þeirra. Því finnst mér alls
ekki liægt að tala um að þau séu
af hinu illa og mér fannst jarð-
skjálftarnir í nótt fremur
skemmtileg fyrirbæri.“ IM
Akureyri:
Pan hf. byggir
fjölbýlishús
- einnig með raðhús á teikniborðinu
Raufarhöfn:
Fólk vantar
í vinnu
Nú mun vera næga atvinnu að
fá á Raufarhöfn. Rauðinúpur
hefur aflað vel að undanförnu
t.d. komið með um 130 tonn í
tveim síðustu túrum. Skortur
er á vinnuafli til frystihússins,
en húsnæðisskortur er veru-
legur og stendur í vegi fyrir því
að fólk fáist til vinnu.
Hafnar eru framkvæmdir við
byggingu félagslegra íbúða og er
stefnt að því að hægt verði að
flytja inn í tvær næsta vor. Þá
verður hafist handa við byggingu
tveggja í viðbót.
Bygging hins nýja og glæsilega
frystihúss Fiskiðju Raufarhafnar,
er nú á lokastigi, og er stefnt að
því að taka það í notkun seint í
sumar eða næsta haust.
Nú búa um 430 manns á
Raufarhöfn, og hefur sá fjöldi
nokkuð staðið í stað undanfarin
ár, en að sögn Gunnars Hilmars-
sonar sveitarstjóra, hefði eflaust
fjölgað hjá þeim ef ekki kæmi til
húsnæðisskorturinn. VG
Fimmtudaginn 28. maí
kl. 20.30.
Föstudaginn 29. maí
kl. 20.30.
Laugardaginn 30. maí
kl. 20.30.
Ailra, allra
sídustu sýningar
MIÐASALA
SlMI
96-24073
Leikfglag akurgyrar
Óska eftir að taka á leigu
6 herbergja íbúð á Akureyri
til tveggja ára. Fyrirframgreiðsla.
Tilboðum skilað inn á afgreiðslu Dags Akureyri,
fyrir 5. júní, merkt „S 13“.
Sumarbúðirnar
Vestmannsvatni
auglýsa:
6 pláss laus í 5. flokki ahnars
UPPPANTAÐ í ALI_A FLOKKA - BíðlÍStar:
Athugið - Vegna mikillar þátttöku barna
höfum við bætt við aukaflokki á besta tíma
14.-21. júlí, aldur 7-11 ára stelpur og strákar.
Innritun í Sumarbúðunum í síma 96-43553.
Frá Matvörudeild
KEA
Vegna yfirvinnubanns
í matvöruverslunum á Akureyri
alla laugardaga í
júní-júlí-ágúst,
þá viljum við minna á
að eftirtaldar búðir eru opnar
til kl. 19.00 á föstudögum:
Kjörmarkaðurinn Hrísalundi
Kjörbúðin Sunnuhlíð 12
Kjörbúðin Byggðavegi 98
Auk þess er Hrísalundur opinn
alla fimmtudaga til kl. 20.00
j^Matvörudeild]