Dagur - 27.05.1987, Side 5
27. maí 1987 - DAGUR - 5
„Akureyringum er óhætt að líta með
jákvæðu hugarfari til nýbygginga"
- segir Pétur Jósefsson sölumaður fasteigna
í spjalli um þróunina á fasteignamarkaðinum á Akureyri undanfama mánuði
hús á örfáum dögum. Sömu sög-
Pétur Jósefsson sölumaður a
Fasteigna- og skipasölu
Norðurlands á Akureyri er
„gamall refur í fasteignabrans-
anum“, enda búinn að hafa
milligöngu um sölu fasteigna í
Qölmörg ár. Okkur Iék forvitni
á að vita hvernig staðan á fast-
eignamarkaðinum á Akureyri
væri í dag og slógum því á
þráðinn til Péturs.
„Það er ákaflega lítið framboð
á fasteignum um þessar mundir.
Svo virðist sem kaupendur séu
miklu fleiri en seljendur og það
er ljóst að nýja húsnæðislána-
kerfið leikur ansi stórt hlutverk í
því sambandi. Fjöldinn allur af
ungu fólki hefur lánsloforð í
höndunum en hefur ekki getað
nýtt sér þau enn sem komið er.
Frá því um áramót og raunar
frá því um mitt seinasta ár hafa
orðið hækkanir á markaðinum -
lítilsháttar seinni hluta síðasta árs
en mjög miklar frá því í mars sl.
og fram til þessa dags. Ég get
nefnt sem dæmi að 3ja herbergja
íbúð sem hefði selst á 1,5 milljón-
ir króna í júlímánuði í fyrra fer á
2,3-2,4 milljónir króna núna.
Þetta er á milli 50 og 60% hækkun á
innan við einu ári sem verður að
teljast mjög mikið hér. Og það er
athyglisvert að meirihluti þessar-
ar hækkunar hefur orðið frá því í
endaðan febrúar. Sú dagsetning
stafar af því að fólk almennt fékk
ekki þessi lánsloforð í hendurnar
fyrr en um mánaðamótin janúar/
febrúar. Þarna er augljóslega
beint samband á milli, þótt ekki
sé hægt að skrifa þessar hækkanir
alfarið á nýja húsnæðislánakerf-
ið.“
- Eru það einungis vinsælustu
stærðirnar, 3ja og 4ra herbergja
íbúðirnar, sem hafa hækkað svo
mikið í verði?
Nei, svo er ekki. Ég tók þetta
dæmi einungis vegna þess að 3ja
herbergja íbúðirnar hafa löngum
verið eftirsóttastar hjá okkur.
Aðrar eignir svo sem raðhús,
bæði lítil og stór, hafa hækkað
mjög mikið á sama tíma. Upp á
síðkastið hafa einbýlishúsin einn-
ig verið að hækka í verði. 2ja her-
bergja íbúðirnar sátu svolítið eft-
ir lengi vel, en þær hafa einnig
gengið mjög vel í sölu síðustu
vikurnar, fyrst og fremst vegna
þess að fólk kaupir þær þegar það
fær ekki annað. Aukin eftirspurn
og minnkandi framboð hefur allt-
af verðhækkun í för með sér. 2ja
herbergja íbúð kostar það sama í
dag og 3ja herbergja íbúð kostaði
fyrir tæpu ári. Af því má sjá að
verðhækkunin er mikil.“
- Hversu lengi heldur þú að
þessi þróun haldi áfram? Varla
halda eignirnar endalaust áfram
að hækka í verði. Hvar eru
mörkin?
„Niðurstaðan af þessum hækk-
unum hlýtur að verða sú, að þeg-
ar verð notaðra fasteigna er kom-
ið upp í ákveðið hlutfall - svona
u.þ.b. 85-90% af því sem hlutirn-
ir kosta nýir - fara nýbyggingarn-
ar að seljast. Sú hefur enda orðið
raunin á hér. Ég hef sérstaklega
fylgst þar með tveimur fyrirtækj-
um sem eru í nýbygginga-„brans-
anum“. Haraldur og Guðlaugur
sf. eru byggingaverktakar sem
hófu í vor að byggja raðhús á
einni hæð með bílskúr. Fyrst í
stað gekk þeim ekkert að selja
þessi hús en um síðustu mánaða-
mót komst heldur betur hreyfing
á hlutina og þeir seldu heilt rað-
una er að segja af SS Byggi hf.
Það fyrirtæki var náttúrlega með
nokkuð byltingarkenndar hug-
myndir á akureyrska vísu: Að
byggja fjölbýiishús þar sem bíl-
geymslur fylgdu hverri íbúð, og
auk þessi yrði lyfta og sérstök
húsvarðaríbúð í blokkinni.
Svona fyrirbrigði er auðvitað
miklu dýrara en venjuleg blokk-
aríbúð hefur verið á okkar svæði.
Eins og menn vita, hafa fjölbýlis-
hús á Akureyri hingað til verið
byggð á afskaplega einfaldan og
raunar spartanskan máta. Þegar
SS Byggir kynnti þessar íbúðir sl.
haust var mikill áhugi meðal
almennings á að skoða þetta og
þvíumlíkt en síðan komu upp
ákveðnar efasemdir gagnvart
þessum hugmyndum. í vor fór
staðan síðan að breytast og nú er
svo komið að einungis 5 íbúðir
eru eftir í þessu fjölbýlishúsi.
Sama fyrirtæki hefur einnig verið
að bjóða raðhús og þau eru öll
sömul seld nema eitt.“
- Hefur útborgunarhlutfall í
fasteignaviðskiptum á Akureyri
eitthvað breyst á síðustu mánuð-
um?
„Nýja húsnæðislánakerfið hef-
ur auðvitað breytt miklu. Nú er
lánað allt að 70% af kaupverði
eigna sem kosta u.þ.b. 2,6 millj-
ónir króna. Af því leiðir að slíkar
eignir eru borgaðar upp að fullu á
einu ári, því seljendur eru ekki
ginkeyptir fyrir því að lána ein-
hverjar eftirstöðvar á eftir 70%
veði sem Byggingarsjóður ríkis-
ins fær með sínu láni í hinni seldu
eign. Þetta hefur smitað dálítið
upp fyrir sig, þannig að það er
orðið mjög algengt að eignir allt
upp í fjórar milljónir króna og
raunar hærra, séu borgaðar út á
einu ári. í dag eru kaupsamning-
ar með eftirstöðvum í minnihluta
og það má segja að þessi staða sé
afleiðing af nýja húsnæðislána-
kerfinu. Ég vil hins vegar ekki
leggja þetta út á neikvæðan
máta. Nýja kerfið kallar á það,
að fólk sé með nokkurt eigið fé á
bak við sig þegar það byrjar. Þeg-
ar Húsnæðisstofnun lánar 70% af
kaupverði 3ja herbergja íbúðar,
þarf sá sem kaupir helst að vera
með mismuninn nokkurn veginn
kláran og þá væntanlega af eigin
fé.
Það liggur fyrir eftir þessa
verðlagsþróun sem orðið hefur,
að fullur grundvöllur hefur skap-
ast til að byggja á Akureyri.
Bæjaryfirvöld segja að hér séu til
nægar einbýlishúsalóðir t.d. úti í
Pétur Jósefsson.
Glerárhverfi. Sannleikurinn er
hins vegar sá, að þessar lóðir eru
mjög erfiðar í vinnslu. Þær eru
margar mjög djúpar, þ.e.a.s. það
þarf að grafa djúpt til að komast
niður á fast. Þess vegna kostar
svo mikið að starta þar húsbygg-
ingu að fólk veigrar sér við því.
Að mínu áliti verða bæjaryfir-
völd að koma hér inn í með því
að skipta um jarðveg í þessum
lóðum fyrir væntanlega lóðar-
hafa. Það hlýtur að vera hægt að
nota einhvern tíma ársins, þegar
fá verkefni eru fyrir tæki bæjar-
ins, hreinlega til að vinna þetta
verk.
í nokkrum bæjarfélögum, eins
og t.d. á ísafirði, hefur einbýlis-
húsalóðum verið úthlutað þannig
að bærinn hefur fyrst gengist í að
skipta um jarðveg og jafna kostn-
aðinum niður. Sumar lóðir eru
mjög ódýrar í vinnslu en aðrar
ekki og þetta er eins og að vinna
í happdrætti. Ertu með lóð þar
sem einn metri er niður á fast eða
ertu með lóð þar sem fjórir metr-
ar eru niður á fast? Á því munar
óhemju fé. Það er aðallega vegna
þessa sem ég held að lítið hafi
verið sótt um einbýlishúsalóðir á
Akureyri."
- Er samanburður á fasteigna-
verði hér og á höfuðborgarsvæð-
inu orðinn hagstæðari Ákureyri
en verið hefur?
„Ég get e.t.v. ekki útlistað það
nægilega vel, en get þó nefnt tvö
dæmi. Ég þekki tvo aðila hér sem
hafa verið að fara suður á
Reykjavíkurmarkaðinn. Annar
þeirra á 80 fermetra íbúð hér á
Akureyri, 3ja herbergja, og
keypti aðra í Reykjavík, ívið
stærri, greiddi fyrir hana 3,1
milljón og selur þessa væntanlega
Kiikjudagur á sumri
í Glerárkirkju
Á uppstigningardag, fimmtudag-
inn 28. maí, verður kirkjudagur í
Glerárkirkju. Uppstigningardag-
ur er jafnframt dagur aldraðra og
eru þeir sérstaklega boðnir vel-
komnir. Dagskráin hefst með
guðsþjónustu klukkan 14.00. Þar
syngur kirkjukór Lögmannshlíð-
arsóknar og sóknarpresturinn sr.
Pálmi Matthíasson predikar.
Eftir guðsþjónustuna verður
kirkjukaffi Kvenfélagsins Bald-
ursbrár. Þá mun kirkjukórinn
bregða á leik í léttum sumarlög-
um og syngja jafnvel utan dyra ef
veður leyfir. Sölutorg verður sett
upp í kirkjuskipinu og verða þar
á boðstólum sumarblóm og fjöl-
ær blóm. Einnig verður almennur
söngur.
Þá verður boðið upp á akstur
til kirkju. Þeir sein þess óska eru
beðnir að hringja í síma 27575
milli klukkan 12.00 og 13.30 og
verða þeir síðan sóttir og ekið til
baka að lokinni dagskrá.
Þess er vænst að sem flestir sjái
sér fært að gleðjast með okkur á
þessum degi.
fyrir 2,6 milljónir króna. Þarna er
munurinn ekki nema rúm 20%.
Hitt dæmið er um fólk sem seldi
raðhús á Akureyri fyrir 4,3 millj-
ónir og keypti sér stóra hæð með
bílskúr í Reykjavík fyrir 4,9
milljónir króna. Þessi dæmi
benda til þess að hækkanirnar á
Akureyri hafi orðið heldur meiri
en í Reykjavík og að heldur hafi
dregið saman með þessum
mörkuðum. Á tímabili var hlut-
fallið 68-70% á Akureyri miðað
við 100% í Reykjavík. Ég gæti
trúað því að þessi munur væri
einhvers staðar á bilinu 75-80% í
dag.
Hlutfallið hefur því lagast mik-
ið og gæti jafnvel batnað enn,
þótt ég hafi ekki trú á að það
verði mikið. Einhvem tíma hlýt-
ur að sjá fyrir endann á svona
hækkunum. Kúrfan getur ekki
haldið endalaust áfram upp á við.
Hvenær hún stoppar veit ég ekki
en hitt veit ég að eftirspurnin er
gífurleg ennþá. Akureyringum er
því óhætt að líta með jákvæðu
hugarfari til nýbygginga,“ sagði
Pétur Jósefsson að lokum. BB.
um
helgina munu
hljómsveitarinnar
Vestmannaeyjum
stórdansleikjum í
Fyrstu fulltrúar „Týndu
kynslóðarinnar“ koma norður
í kvöld og
söngvarar
Loga frá
skemmta á
Sjallanum.
Þeir bræður ásamt Logum
skemmtu í Hollywood fyrir stuttu
og gerðu geysilega lukku og má
með sanni segja að „leitin að
týndu kynslóðinni" sem show
hafi hitt beint í mark því
stemmningin er stórkostleg.
í gegn um tíðina hafa þeir
bræður unnið svo til óslitið
saman í músík og komið fram
bæði í útvarpi og sjónvarpi.
Dagskrá þeirra er mjög fjöl-
breytt, allt frá þungu rokki til
mjúkra laglína Simons og Gar-
funkel en undirtónninn í lögum
þeirra eru gullaldarárin 1965 til
75.
Þeim til fulltingis í Sjallanum
verður Jónas Þór orgelspilari
með meiru, en hann hefur unnið
með þeim bræðrum undanfarin
ár.
Reykingar á
meðgöngu
ógna heil-
brigði móður
og barns.
LANOLÆKNIR
Ibúð óskast
Óska eftir að kaupa 2ja herbergja íbúð á Akureyri
sem fyrst.
Staðgreiðsla. Upplýsingar í síma 93-3879.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Skólaslit
veröa í Akureyrarkirkju laugardaginn 30. maí
kl. 13.30.
Skólameistari.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Afhending einkunna
vorið 1987
fer fram í húsi tæknisviðs sem hér segir:
Föstudaginn 29. maí kl. 16.00: Allir 1. árs nemar.
Föstudaginn 29. maí kl. 16.30: Allir 2. árs nemar.
Föstudaginn 29. maí kl. 17.30: Ubd, 3.V, 3.Hb, 3.U og
Öldungadeild.
Skólameistari.