Dagur - 27.05.1987, Page 7
27. maí 1987 - DAGUR - 7
gæslu 40 þúsund krónur á dag án
aðgerða.
Svo er það hin hliðin. í sjó-
mannastéttinni þar sem eru ekki
nema 5-6000 ársstörf, er slysa-
tíðnin með þeim ósköpum að á
síðasta ári voru um 470 skráð
bótaskyld slys um borð í skipum.
Þetta eru nær 9%.
Samkvæmt upplýsingum sem
ég fékk í sendiráði Bandaríkj-
anna á íslandi, um fjölda her-
manna sem sendir voru til Víet-
nam og fjölda særðra, þá er það
hlutfall aðeins rúm 4%. Þar töldu
fjölskyldurnar að mennirnir væru
úr helju heimtir ef þeir komust
heim. Vegna óvinsælda þeirra
verkefna sem menn fengust þar
við, þá tel ég að þeir hafi í mörg-
um tilfellum logið upp á sig
meiðslum og þessi tala sé því of
há. Tryggingayfirlæknir hér á
landi, Björn Önundarson, hefur
hins vegar sagt að skráningu slysa
á íslenskum skipum sé mjög
ábótavant og því eru okkar upp-
lýsingar vanmat á ástandinu.
Örygismál hafa verið
feimnismál
í Víetnam hömuðust þeir við að
drepa hver annan en við erum
væntanlega að forðast það, en
þetta er árangurinn. Ástæðan er
á fínu máli kölluð mannleg
mistök og öryggismál hafa verið
feimnismál þó að það sé sem bet-
ur fer að breytast. Það var feimn-
ismál ef maður kom um borð í
skip og sagði: „Hvar er björgun-
arvestið mitt, hvernig á ég að
setja það á mig?“
Þó að þar sé um erlent skip að
ræða þá segir það sína sögu að
þegar Syneta fórst við Skrúð þá
voru nokkur af þeim líkum sem
fundust í sjónum hálsbrotin, af
því að mennirnir höfðu sett vest-
in vitlaust á sig.
Af Suðurlandinu fórust menn.
Þar var vitað til þess að einn
maður reyndi ekki að setja á sig
vesti. Þessi maður var sá eini sem
ekkert spurðist til. Það sást þó til
hinna sem fórust.
f þessu sambandi er annað
athyglisvert, varðandi rannsókn
sjóslysa. Til þess að hlífa áhöfn-
inni við að þurfa að skýra írá
þeim hörmungum sem hún lenti
í, þá var þeim sleppt við sjópróf
þangað til hálfum mánuði síðar.
En strax í Færeyjum höfðu
fréttamenn við þá nærgöngul
viðtöl.
Mér finnst það svívirða að
menn séu settir upp við vegg af
fjölmiðlum, án þess að reynt sé
fyrst að rekja orsök og afleiðingu
þess sem gerðist og kryfja hlut-
ina. Þetta verður eingöngu til
þess að koma gróusögum af stað.
Af hverju eru slys sem verða á
landi eða í lofti rannsökuð
umsvifalaust og vægðarlaust, en
það síðan látið danka vikum og
mánuðum saman þó að heil
skipshöfn hverfi.
Þeir flutu skammt
á undanþágunni
Suðurlandsslysið er ekkert eins-
dæmi. Hér hafa skip brunað nið-
ur á hafsbotn án þess að hreyfð
séu hönd eða fótur til að athuga
hvað olli því. Og ef það kemst
upp þá er það orðið feimnismál.
Þegar Helliseyjarslysið varð,
þá var það blásið upp sem þrek-
virki, sem það auðvitað var, þeg-
ar Guðlaugur synti í land. Hitt
var látið liggja í þagnargildi að
vegna mistaka þá var skipinu
hreinlega hvolft. Og hvar var bát-
urinn sem átti að skjóta upp þeg-
ar skipið fór niður? Hann var
ekki til vegna þess að þarna hafði
verið veitt undanþága. Mennirnir
flutu skammt á henni.
Það er nokkuð svört saga að á
árunum 1964-1983 þá sáum við á
eftir 365 mönnum í hafið. Að
baki hverjum einum sem er fall-
inn þá eru 20-30 meira og minna
slasaðir, sumir örkumla til ævi-
loka. Sjóslys eru ekki náttúru-
lögmál, megnið af þeim er það
sem á fínu máli er kallað mann-
leg mistök. Þetta þurfum við að
komast fyrir,“ sagði Þorvaldur að
lokum. ET
Skipstjóra voru færðir blómvendir við koniuna til Akureyrar.
Húsavík:
Bæjarstjóm
samþykkir
kirkjugarösgjöld
Kirkjugarðsgjöld á Húsavík
1987 verða 3% af útsvörum og
aðstöðugjöldum og er hér um
sömu prósentu að ræða og
samþykkt var í fyrra.
Bæjarstjórn Húsavíkur sam-
þykkti þessa prósentutölu á
fimmtudag samkvæmt beiðni frá
sóknarnefnd en beiðnin er til-
komin vegna kostnaðar við gerð
steinveggjarins sem verið er að
hlaða við kirkjugarðinn á Höfða.
IM
AKUREYRARBÆR
Kattaeigend u r
Akureyri
Næstu vikur verður unnið að útrýmingu
villikatta í bænum.
Kattaeigendur eru beðnir að halda heimilisköttum
inni til 15. júní n.k. Munið að nú eru ungar smá-
fuglanna að skríða úr eggjunum.
Umhverfismálanefnd.
Garðyrkjustöðin á Grísará KW
Því miður verðum við ekki með plöntusölu í Fróða-
sundi, en kappkostum góða þjónustu á Grísará
Opið mánudaga-föstudaga kl. 8-12 og 13-21,
laugardaga og sunnudaga 10-12 og 13-18,
uppstigningardag 10-12 og 13-18.
Pass.
Snyrtilegur
k/íeðnflður.
Opið fimmtudag
frá kl. 21-01
Helgi og íng'
úr Logum skemmta.
Siatöúut
SoögVarTviulii kynslóðorinnar
J . .j*_.• t nmim frá }
Helgi og top 'ír hESrwgTf re,öa.
S57