Dagur - 27.05.1987, Side 9
27. maí 1987 - DAGUR - 9
■■BaBmBBBBBnBnBBUHHBEBBBBHSBOHHEESBBmBam
rþrúður Pálsdóttir.
árið um kring. Bletturinn hérna
er í rauninni sá eini sem við höf-
um og hann er í sjálfu sér ágæt-
ur. En við þurfum að fara upp
tröppur, það er ekki gert ráð
fyrir að við séum með fólk í
hjólastólum og okkur vantar
aðstöðu til að gefa fólkinu kaffi,
bæði bekki og borð og eitthvað
til að gera blettinn skemmtilegri
og meira aðlaðandi."
- Hafa félagasamtök verið
dugleg við að færa ykkur gjafir?
„Félagasamtök hafa alltaf
verið dugleg við að gauka ýmsu
að sjúkrahúsinu og það er mjög
þakkarvert vegna þess að við
Skarphéðinn Guðmundsson,
Haraldur Jóhannesson
Og svo datt allt af kaffivagninum
erum tæp á fjárlögum og það
eru ýmsir hlutir sem alltaf verða
að sitja á hakanum og það eru
kannski þeir hlutir sem dags
daglega yrðu fólkinu til mestrar
ánægju.
I rauninni er minn draumur
sá að geta útbúið útivistarsvæði
á þakinu á sjúkrahúsinu, þar er
lítið hús sem alltaf er hægt að
finna skjól við og þar hefði ég
viljað vera með blómapotta. Þá
gæti sumt af fólkinu fundið sér
eitthvað við sitt hæfi og dundað
í moldinni og af því er ég viss
um að margir hefðu gaman.
En þetta er nú ekki á skipu-
lagsáætlun og ég efa að arkitekt-
inn leyfi það en hins vegar er
minnsta mál í heimi að gera
þetta og þetta væri alveg draum-
ur, því einmitt það fólk sem
þarf mest að fara út er uppi á
efstu hæðinni og kemst lítið.
Þetta er deild fyrir 37 sjúklinga,
fyrir fólkið sem þarf mesta
aðstoð en margt af þessu fólki
er alveg skýrt og hefur gaman af
því að koma svona út. Það er
töluverð vinna sem liggur í því
að hjálpa fólkinu niður, þess
vegna ég held að það væri mjög
gaman að geta ekið stólunum
beint út á þakið í staðinn fyrir
að fara upp tröppurnar hér.
Það er svo gaman að sjá hvað
fólkið hefur gaman af að fara út
og hvað því líður vel og hvað öll
svona smátilbreyting hefur gíf-
urlega mikið að segja. Kvenfé-
lögin hafa verið mjög dugleg að
heimsækja okkur, annað slagið
hafa einstaklingar komið og
spilað og sungið, Silli er alltaf
samur við sig, kemur einu sinni
í viku og les fyrir fólkið. Það er
sama hvað lítil tilbreytingin er,
þó hún taki aðeins hálftíma er
rætt um hana í heila viku á eftir.
Fólkið hefur svo gaman af þessu
og öll svona uppörvun er vel
þegin.
En okkur vantar gífurlega
margt og ef félagasamtök eða
aðrir aðilar hafa áhuga á að
leggja okkur lið á einhvern hátt
þá vildi ég óska að þeir hefðu
samband við mig.“
lörnin frá Húsavík fengu fyrir góða
Gítar og bassagítar: Leifur Vilhelm
Baldursson kennari og Völundur
Þorbjörnsson.
Sauðarkrokur:
Hlynur byggir ofan á og
hyggur á
Byggingafélagið Hlynur á
Sauðárkróki, eitt elsta og rót-
grónasta fyrirtækið á staðnum
ætlar í sumar að byggja ofan á
nnverandi verkstæðishús við
Sæmundargötu. Verður það
byggt upp sem skrifstofu- og
iðnaðarhúsnæði á 2 hæðum
með 388 fermetra gólffleti, sem
hægt er að skipta niður í sjálf-
stæðar einingar. Það er Arni
Ragnarsson arkitckt sem hefur
teiknað.
Hlynur ráðgerir að flytja að-
setur sitt í nýja iðnaðarhverfið.
Þar fékk fyrirtækið úthlutað lóð
fyrir nokkrum árum að Borgar-
túni 1-3 og hefur byggt þar 270
fermetra hús.
Hlynur var stofnaður 1954 og
hefur lengst af verið til húsa við
Sæmundargötuna. Það sem vakir
fyrir forráðamönnum Hlyns með
framkvæmdunum í sumar er að
gera hús og lóð við Sæmundar-
götu eftirsóttari og auðseldari,
áður en ráðist verður í byggingu
verkstæðishúss í Borgartúni.
Hluthafar í Hlyn eru 7 talsins
flestir kömnir vel yfir miðjan
starfsaldur. Þrátt fyrir það sagði
Björn Guðnason framkvæmda-
stjóri við Dag. „Það þýðir ekkert
að leggja upp laupana. Við höf-
um trú á samfélaginu hérna og
frekari uppbyggingu staðarins,
því ráðumst við í þessar fram-
kvæmdir. Við erum að fara að
auglýsa til sölu einingar í húsinu
sem byggt verður upp í sumar, en
flutninga
annars reikna ég með að við
verðum eitthvað áfram hérna á
gamla staðnum, meðan verið er
að byggja upp á þeim nýja.“
Þá má geta þess að Hlynur hef-
ur selt nærliggjandi hús, þar sem
skrifstofur fyrirtæksisins eru nú
og áður var í eigu rafveitunnar,
Páli Ragnarssyni tannlækni, sem
hyggst setja þar upp tannlækna-
stofu. -þá
Leggið bif-
reiðum löglega!
- tilmæli frá lögreglu
Lögreglan á Akureyri, vill
koma því á framfæri, að ólög-
legt er að leggja bifreiðum við
Þingvallastræti, norðvestan
sundlaugar. Um síðustu helgi
var fjöldi bifreiðaeigenda
kærður fyrir að leggja bifreið-
um sínum þarna.
í góða veðrinu sem ríkt hefur
síðustu daga, sækir fólk eðlilega í
sundlaugina, og skapast þá oft
vandræði vegna bílastæða.
Og ekki er vanþörf á að minna
enn einu sinni á þá staðreynd, að
nú eiga allar bifreiðar að vera á
sumarhjólbörðum, og mun lög-
reglan taka hart á þeim eigend-
um, sem enn aka um á negldum
hjólbörðum. VG
Sýnendur
kynbótahrossa
Kynbótahross verða dæmd á Melgerðismelum
dagana 28. og 29. maí.
Dómar hefjast kl. 9.00 þann 28. maí á dómum hryssa sex
vetra og eldri og um kl. 17.00 verður byrjað að dæma 5 vetra
hryssur og dómum þeirra lokið þá um kvöldið.
Kl. 9.00 þann 29. maí verður byrjað að dæma 4ra vetra
hryssur.
Kl. 13.00 hefjast dómar á stóðhestum.
Aö því loknu verða dæmd önnur hross vegna afkvæmasýn-
inga.
Eigendur ungfola sem ekki hafa verið skoðaöir í vor mega
mæta með þá til skoðunar kl. 13.00.
Hross í hverjum flokki mæti í röð samkvæmt sýningarskrá,
reikna má með að dæmd verði um 10 hross á klukkustund.
Sýnendum er vinsamlegast bentáað virða almennar reglur
um kynbótasýningar vorið 1987samanber fyrri auglýsingar.
Búnaðarsamband Eyjafjarðar.
Hrossaræktarsamband Eyfirðinga og Þingeyinga.