Dagur - 27.05.1987, Qupperneq 12
12 - DAGUR - 27. maí 1987
Frá Gagnfræðaskóla
Akureyrar:
Skólanum verður slitið í sal skólans föstudaginn
29. maí kl. 5 síðdegis.
Skólastjóri.
LYFTARAR
Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns-
og diesellyftara, ennfremur snúninga- og hliðarfærslur.
Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara, flytjum lyft-
ara.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð.
Tökum lyftara í umboðssölu.
LYFTARASALAN HF. _________________||
Vatnagörðum 16. Símar 82770 og 82655.
Barnagallasettin
margeftirspurðu komin
Stærðir 116-152. Verð kr. 2075
Gallajakkar á fullorðna að koma
Stæðrir s-m-l-xl. Verð kr. 1340.
Sportskór í úrvali
Reimaðir og með frönskum lás
Gott verð
Opið laugardaga frá kl. 9-12
WEyfjörö
Hjalteyrargotu 4 ■ sími 22275
.... •
Starfsmaður óskast
til framleiðslustarfa.
Upplýsingar aðeins gefnar á staðnum.
@\/ Gúmmívinnslan hf.
Rettarhvammi 1 Akureyri Simi 96-26776
Óskum að ráða birgðavörð
til starfa nú þegar.
Nánari upplýsingar gefur veitingastjóri.
Sími 22970
Kennarar
Kennara vantar að Hafralækjarskóla næsta vetur
Aðalkennslugreinar: Stærðfræði og enska.
Upplýsingar veitir formaður skólanefndar, Héðinn
Stefánsson Laxárvirkjun í síma 96-43536 eða
43530.
Bjöm Sigurðsson, Baldursbrekku 7. Símar 41534 & 41666. Sérleyfisferðir. Hópferðir. Sxtaferdir. Vöruflutningar
Sumarstarf
Vantar hressan og kátan bílstjóra til sumarafleys-
inga. Málakunnátta nauðsynleg.
Umsóknir berist fyrir 3. júní.
Björn Sigurðsson,
Baldursbrekku 7, Húsavík.
Sími 41534.
Jákvæðar niðurstöður
nokkrar ályktanir dregnar af könnun á útiveru unglinga í miðbæ
Akureyrar í feb. til apr. 1987
1. Á Akureyri virðist ekki vera
um „unglingavandamál" að
ræða, í þeim skilningi, að í
bænum sé stöðugur ungl-
ingakjarni á tilteknum stað
eða „andrúmsloft“ meðal
unglinga á tilteknum stað,
sem almennt dragi til sín
unglinga og „spilli" þeim,
svipað því sem rætt hefur
verið um í sambandi við
Hlemmtorg í Reykjavík
nýverið og Hallærisplanið
þar forðum. Á Akureyri eru
hins vegar, eins og alls
staðar, unglingar, sem eiga
við vandamál að stríða og
skapa sér, fjölskyldum sín-
um og jafnvel öllu umhverfi
vandamál, en þar virðist
fremur um einstaklings-
bundin fyrirbæri að ræða
heldur en félagsleg. Vanda-
mál þeirra unglinga virðast
oftast eiga rætur að rekja til
aðstæðna þeirra hvers um
sig, fremur en áhrifa sem
þeir verði fyrir frá öðrum
unglingum m.ö.o. koma þeir
oftast með vandamál sín að
heiman í miðbæ Akureyrar á
kvöldin, fremur en þeir flytji
með sér heim vandamál sem
verði til í miðbænum.
2. Þessi staðhæfing segir ekki,
að sómakærum borgurum
mundi hugnast allt, sem
unglingar á Akureyri taka
sér fyrir hendur í miðbænum
eða annars staðar, en svo
lengi sem sögur greina frá,
hefur sómakærum borgurum
aldrei hugnast allt það sem
unglingar taka sér fyrir
hendur, jafnvel ekki einu
sinni það sem þeir sjálfir
tóku sér fyrir hendur meðan
þeir voru unglingar. Vissu-
Tríóið Musica Antiqua Island
mun leika á tónleikum í Akur-
eyrarkirkju fimmtudaginn 28.
maí (uppstigningardag) kl. 17.
Tríóið skipa: Camilla Söderberg,
blokkflautuleikari, Ólöf Sesselja
Óskarsdóttir cellóleikari sem
leikur á „viola da gamba“ og
Snorri Örn Snorrason sem leikur
á lútu og bassalútu.
Félagsskapurinn „Musica
Antiqua" var stofnaður árið 1981
Eins og undanfarin ár býður
Akureyrarsöfnuður öldruðum til
messu og kaffidrykkju á öldrun-
ardegi þjóðkirkjunnar, uppstign-
ingardegi. Jafnan hefur verið
fjölmenni í Akureyrarkirkju
þennan dag og fólk verið ánægt
lega eru ákveðin tækifæri,
ákveðin kvöld eða helgar
t.d. er prófum lýkur eða
verslunarmannahelgarúti-
legan, þar sem unglingar
fara úr öllum böndum og
nokkrum hamförum, en
slíkt er fremur undantekning
en regla og nokkuð sem
óraunhæft væri að ætla, að
aldrei ætti sér stað.
3. Niðurstöður könnunarinnar
draga fram fremur jákvæða
mynd af akureyrskum ungl-
ingum nú og á ýmsan veg
betri en var fyrir 10 árum, er
sams konar könnun var
gerð. Hinn dæmigerði ungl-
ingur 1987 virðist allsáttur
við sig og sína. Hann reykir
ekki og telur þá sem það
gera fremur aumkvunar-
verða. Hann prófar að
drekka áfengi, meira eða
minna um eða eftir ferm-
ingu, en foragtar þá heldur
en hitt sem gera þess háttar
óhóflega. Að drekka sig
dauðan, veikan, ósjálfbjarga
eða illan, virðist ekki vekja
aðdáun, eins og við bar
forðum, heldur samúð og í
versta falli fyrirlitningu hjá
þorra unglinga. Hins vegar
er hinn dæmigerði unglingur
nú forfallinn tískuvöruneyt-
andi í flestum efnum og virð-
ist einkar leiðitamur auglýs-
endum og seljendum vöru
og hugarfars. Hann á gjarn-
an að áhugamáli að vera dýrt
og vel til fara, snyrtilegur í
útliti og nútímalegur í flestu
efni. Börn hinnar ódælu ’68-
kynslóðar virðast vera and-
staða hennar, aðlöguð og
pen.
4. Unglingar virðast sækja
mjög almennt æskulýðsstarf-
af ofangreindum listamönnum og
Helgu Ingólfsdóttur sembal-
leikara, til þess að kynna og flytja
gamla tónlist með upprunalegum
hljóðfærum. Vafalaust muna
margir eftir heimsókn þeirra til
Akureyrar í febrúar 1982, er
haldnar voru kynningar og tón-
leikar á Sal Menntaskólans á veg-
um Tónlistarfélagsins, Tónlistar-
skólans og Menntaskólans á
Akureyri.
með stundirnar í kirkjunni og
kapellunni.
Messan byrjar kl. 2 og í kapell-
unni verður almennur söngur og
fleira milli þess sem sopið verður
á rjúkandi Bragakaffi.
Hittumst sem flest.
semi og falla hún vel. Viss
„harður“ hópur, sem áður
áleit slíkt fyrir neðan sína
virðingu, sýnist nú að mestu
horfinn.
5. Vínveitingastaðir virðast
standa allsómasamlega að
því að loka dyrum sínum
fyrir unglingum undir
lögaldri, þó misbrestir fyrir-
finnist. í þessu efni virðist á
skömmum tíma hafa orðið
mikil umskipti á.
6. Á stundum hefur heyrst
gagnrýni á afskiptaleysi lög-
reglu gagnvart unglingum í
miðbænum, en könnunin
bendir til, að lögreglan þurfi
í raun fremur fá erindi að
rækja við unglinga þar, en
ræki þau sem þarf. Lögregl-
an og unglingar sýnast hafa
heldur afskiptalitla en vin-
samlega afstöðu til hvors
annars, og á betra verður
tæpast kosið með nokkurri
sanngirni.
7. Fíkniefnaneysla hefur trú-
lega aldrei fest fót meðal
unglinga á Akureyri, svo
heitið hafi, þó algengt væri
fyrir fáeinum árum, að ungl-
ingar reyndu hassreykingar.
Úr þessu virðist hafa dregið
og heimildarmenn könnun-
arinnar segja, að fæstir ungl-
ingar hér hafi séð hass nema
á mynd.
8. Lendi unglingar í vanda
vegna drykkju eða annars að
kvöld- eða næturlagi í
miðbæ, virðast þeir hjálp-
samir hver við annan og
kjósa þá lausn mála fremur
en utanaðkomandi aðstoð.
Til þess bendir og sú reynsla
af neyðarathvarfi að nætur-
lagi fyrir unglinga, sem
kristileg samtök stofnuðu sl.
haust, að engir unglingar og
ekki lögregla nýttu það.
9. Að svo miklu leyti sem áætla
má um það út frá könnun-
inni, virðist að minna sé um
útiveru unglinga og barna á
óheimilum tímum en var fyr-
ir tíu árum, þó erfitt sé að
túlka þann mun í tölum.
10. Sömuleiðis virðast færri
unglingar neyta víns í mið-
bænum og í minna mæli en
þá var, sem útilokar þó ekki
að slík neysla gæti farið fram
annars staðar nú.
11. Akureyringar hafa yfirleitt
mjög einarða afstöðu til
„unglingavandamálsins í
miðbænum". Sumum finnst
það líkjast víti á jörð, hinum
að þar sé allt í himnalagi.
Hvorir ásaka hina, ýmist um
andvaraleysi eða svartagalls-
raus. Báðir eiga auðvelt með
að tiltaka einstök dæmi máli
sínu til stuðnings. Með ofan-
sögðu hættir undirrit. á að
vera ásakaður um andvara-
leysi, því hann hallast óneit-
anlega fremur að þeirri skoð-
un að líferni unglinga
almennt í miðbæ Akureyrar
sé merkilga saklaust og
„betra“ en við mætti búast í
bæ af þessari stærð. Á hinn
bóginn geta veður skipast
ótrúlega skjótt í lofti í þessu
efni, og nægir að nefna þann
faraldur, sem nú snögglega
hefur risið upp eftir alllangt
hlé að „sniffa“. Unglingum
er eiginlegt að vera opnir fyr-
ir nýjungum og unglingarnir
nú virðast afar ginkeyptir
fyrir auglýsingu og hlýðnir
öllu því sem þeir álíta í tísku
þá stundina. Það getur sam-
tímis verið veikleiki þeirra
og styrkur (sbr. árangur
rey kingaherferða).
Akureyrarkirkja:
Tónleikar Musica Antiqua
Orðsending til aldraðra