Dagur - 27.05.1987, Síða 13
27. maí 1987 - DAGUR - 13
-íþróttic.
Umsjón: Kristján Kristjánsson
íslandsmótið í knattspyrnu 3. deild:
Tindastóll lelkur
við Þrótt N.
- Leik Austra og HSÞ-b frestað
ívar Webster lék vel með landsliðinu á Englandi.
Mynd: KK
Körfuboltamót á Englandi:
íslenska liðið tap-
aði öllum leikjunum
Keppni í B-riðli 3. deildar á
íslandsmótinu í knattspyrnu
hefst á laugardaginn með ieik
Þróttar N og Tindastóls á
Neskaupstað. Austri og HSÞ-b
áttu einnig að Ieika á laugar-
daginn á Eskifirði en þeim leik
hefur verið frestað. Auk þess-
ara fjögurra liða leika Reynir
Árskógsströnd, Magni Grenivík
og Sindri frá Hornafirði í riðl-
inum.
Tindastólsliðið náði ekki að
vinna sér sæti í 2. deild á síðasta
keppnistímabili og var það mál
manna að einhvern neista hefði
vantað í liðið. Sauðkrækingar
Jón Gunnar Traustason leikur með
Tindastóli í sumar.
„Nei því miður verður ekki
hægt að leika leik Þórs og
Völsungs á aðalvellinum,“
sagði Hreinn Óskarsson vallar-
stjóri á Akureyri er hann var
inntur eftir því atriði en Þór og
Völsungur leika á föstudags-
kvöld í SL mótinu 1. deild í
knattspyrnu. Leikurinn fer því
fram á grasvelli Þórs við Gler-
árskóla.
„Það má ekki fara of snemma á
völlinn, því liðin hér eiga að geta
leikið á besta grasvelli landsins
og því þarf hann að fá frið til þess
að verða góður,“ sagði Hreinn
ennfremur.
„Völlurinn hefur breyst dag frá
degi að undanförnu og verður
besti völlur landsins innan
skamms en það hefði munað
Hreinn Óskarsson vallarstjóri á
Akureyri.
ætla sér mun stærri hlut í ár. Ei-
ríkur Þorsteinsson þjálfaði liðið í
fyrra og lék hann einnig með lið-
inu. í hans stað hefur verið ráð-
inn Bjarni Jóhannsson frá Nes-
kaupstað en hann þjálfaði og lék
með Þrótti N fyrir tveimur árum.
Óvíst er hvort Bjarni muni leika
með Tindastóli. Hann hefur búið
í Noregi í vetur og kemur ekki til
landsins fyrr en eftir aðra helgi.
Þá verður lið Tindastóls búið að
leika tvo erfiða útileiki, gegn
Þrótti N og Sindra.
Fyrir utan Eirík Þorsteinsson
hafa þeir bræður Björn og Eirík-
ur Sverrissynir og Þorvarður
Friðbjörnsson sagt skilið við
félagið. í staðinn hefur liðið feng-
ið þá Jón Gunnar Traustason
markaskorara frá Geisla á
Hólmavík og Gunnar Valdimars-
son sem áður lék með ÍR.
Hermundur Sigmundsson
handknattleiksmaður úr Stjörn-
unni í Garðabæ hefur verið ráð-
inn þjálfari HSÞ-b en hann þurfti
í uppskurð í vetur og leikur því
sennilega ekki með liðinu. Félagi
hans úr Stjörnunni, Gylfi Birgis-
son ætlar hins vegar að leika með
liðinu. Þá hefur HSÞ-b fengið
KR-inginn Gísla Jónsson norður
og þá er einnig von á öðrum leik-
manni frá KR í Mývatnssveitina.
Félagið missti Hörð Benónýs-
son til Völsungs en Hörður
þjálfaði og lék með liðinu í fyrra.
Hann varð markahæsti maður
liðsins, skoraði 13 mörk.
miklu ef komið hefði hlýinda-
rigning einn dag. Það eru því
sterkar líkur á því að fyrsti
leikurinn á vellinum verði viður-
eign KA og Vals laugardaginn 6.
júní.
Keppni í 2. flokki á íslands-
mótinu í knattspyrnu hefst um
helgina. Þórsarar sem leika í
A-riðli, eða 1. deild leika tvo
Ieiki fyrir sunnan á laugardag
og sunnudag. KA sem leikur í
B-riðli eða 2. deild fær ÍBÍ í
heimsókn á KA-völl á sunnu-
dag.
Þórsarar leika gegn Þrótti í
Reykjavík á laugardaginn kl. 14
og gegn Stjörnunni í Garðabæ á
sunnudag á sama tíma. KA og
ÍBÍ leika á KA-velli kl. 16 á
sunnudag. Þórsarar hafa á að
skipa nokkuð sterku liði og má
þar fyrstan nefna landsliðsmann-
inn Hlyn Birgisson, oj> unglinga-
landsliðsmennina Arna Þór
Árnason og Kjartan Guðmunds-
son. Fyrirliði liðsins er Ólafur
Þorbergsson.
KA-menn hafa einnig á að
skipa sterkum hópi og má þar
nefna þá Árna Hermannsson, Jó-
hannes Valgeirsson fyrirliða liðs-
íslenska körfuknattleikslands-
liðið tapaði öllum sínum Ieikj-
um í fjögurra landa keppninni
sem lauk í Englandi á sunnu-
daginn. Liðið tapaði fyrir
heimamönnum í síðasta leik
mótsins með 81 stigi gegn 92.
Auk íslands og Englands tóku
Belgar og Tyrkir þátt í mótinu.
Leikurinn gegn Englandi var
besti leikur íslenska liðsins í mót-
inu og það var ekki fyrr en í lok
leiksins að heimamenn náðu yfir-
höndinni og sigruðu. ívar
Webster lék vel og skoraði 23
stig, Valur Ingimundarson skor-
ins og Ágúst Sigurðsson. Liðið
ætlar sér stóra hluti í sumar og
hefur sett stefnuna á að vinna sig
upp í A-riðil.
Þetta er síðasta sumarið sem
leikið er með núverandi fyrir-
Ólafur Þorbergsson fyrirliði Þórs.
aði 13 stig og Torfi Magnússon
12.
íslenska liðið tapaði fyrir Belg-
um á föstudaginn með 63 stigum
gegn 73 og gegn Tyrkjum á laug-
ardaginn 70:81. Það voru heima-
menn sem sigruðu á þessu móti.
íslenska körfuknattleikslands-
liðið hefur haft nóg að gera
undanfarnar vikur. Liðið tók þátt
í Norðurlandamótinu í Dan-
mörku og hafnaði þar í neðsta
sæti. Þá var haldið á Ólympíu-
leika smáþjóða í Mónakó, þar
sem liðið hafnaði í öðru sæti og
síðan þetta mót í Englandi um
helgina.
komulagi, í bili að minnsta kosti.
í ár falla þrjú lið úr A-riðli og í
staðinn kemur aðeins eitt lið úr
B-riðli. Næsta ár verða átta lið í
riðlunum og er leikið heima og
heiman og færast þá tvö lið á milli
riðla.
Jóhannes Valgeirsson fyrirliði KA.
Leeds
á enn
möguleika
Leeds á enn möguleika á sæti í
1. deild ensku knattspymunn-
ar að ári. Liðið sigraði Charl-
ton með einu marki gegn engu
í seinni leik liðanna um laust
sæti í 1. deild. Bob Taylor
skoraði sigurmarkið um miðj-
an seinni háifleik.
Leikurinn fór fram á heima-
velli Leeds en í fyrri leik liðanna
sem fram fór á heimavelli Charl-
ton sigruðu heimamenn 1:0. Lið-
in þurfa því að leika þriðja leik-
inn og fer hann fram í Birming-
ham á föstudagskvöld.
- Knattspyrna:
Stórleikur
í 4. deild
- Hvöt og UMFS
leika á Blönduósi
Hvöt og Ungmennafélag
Svarfdæla leika á laugardaginn
í 4. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu. Leikurinn fer
fram á Blönduósvelli og er það
mál manna að þetta verði ann-
ar af úrslitaleikjunum í E-riðli,
hinn verði seinni leikur liðanna
á Dalvík.
Bæði liðin unnu góða sigra í
fyrstu leikjum sínum um síðustu
helgi. UMFS sigraði Árroðann
5:0 og Hvöt sigraði íþróttafélagið
Neista 4:0. Hvatarmenn hafa ver-
ið ótrúlega nærri því að vinna sér
sæti í 3. deild síðustu ár en alltaf
vantað herslumuninn. Garðar
Jónsson þjálfaði liðið þessi ár en
hann hefur nú gerst þjálfari og
leikmaður með UMFS en Svarf-
dælingar ætla sér stóra hluti í
sumar. Það má búast við hörku-
leik á laugardaginn og er þegar
mikill áhugi fyrir leiknum. Hvöt
hafði betur í báðum leikjum lið-
anna á síðasta keppnistímabili.
Sjónvarpið:
Fyrsta
beina út-
sendingin
Samkomulag hefur tekist við
Ríkisútvarpið/sjónvarp um að
sjónvarpa í fyrsta sinn beint frá
leikjum í SL mótinu 1. deild í
knattspyrnu eins og fram hefur
komið í Degi. Er þetta gert til
reynslu í ár og munu samtök 1.
deildar félaganna síðan meta
árangurinn í haust.
Fyrsta beina útsendingin verð-
ur á laugardaginn kemur en þá
verður sýndur leikur ÍA og Fram
á Akranesi. Annar leikurinn sem
sýndur verður er viðureign FH og
Vals í Hafnarfirði laugardaginn
13. júní, þriðji leikurinn er svo
„Derby“ viðureign KA og Þórs
laugardaginn 4. júlí og fjórði
leikurinn er viðureign KR og
ÍBK í Reykjavík sunnudaginn
16. ágúst. Allir þessir leikir hefj-
ast kl. 16. Einnig mun Sjónvarpið
sýna kafla úr leikjum eins og
undanfarin ár.
Stöð 2 mun einnig sinna 1.
deildinni en samningur við þá
stöð er enn ekki fyllilega frá
genginn.
Þór-Völsungur á föstudagskvöld:
„Aðalvöllurinn verður
ekki tilbúinn“
- segir Hreinn Óskarsson vallarstjóri
Knattspyrna 2. flokks:
Þórsarar leika fyrir sunnan
- KA fær ÍBÍ í heimsókn á KA-völl