Dagur - 27.05.1987, Blaðsíða 16
Hvaö ertu bráðlátur?
GPedi<5myndir~’
Viltu fá myndirnar þínar
eftir 3, 2 eða 1 klukkustund?
Til þjónustu reiðubúin.
Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23020.
Akureyri:
10 til 15
um hverja
leiguíbúð
Mikil eftirspurn hefur verið
eftir leiguhúsnæði á Akureyri
undanfarið, og virðist ekkert
lát verða þar á. Takmarkað
framboð á leiguíbúðum veldur
því að húsaleiga er nú hærri en
um langt skeið og meira um
fyrirframgreiðslur.
Eins og fram hefur komið í
fréttum undanfarið er skortur á
leiguhúsnæði farinn að standa í
vegi fyrir mannaráðningum hinna
stærri fyrirtækja á Akureyri, ogj
er barist um hverja íbúð sem
losnar. Að sögn Gunnars Skarp-
héðinssonar, starfsmannastjóra
Slippstöðvarinnar hf., tókst þó
að útvega Pólverjunum ellefu,
sem væntanlegir eru í vinnu hjá
Slippnum, húsnæði, en þeir munu
búa nokkrir saman í hverri íbúð.
Að sögn kunnugra er algengt
að tíu til fimmtán tilboð berist í
hverja íbúð, sem auglýst er til
leigu. Þá hefur færst í vöxt, að
hálfs til eins árs fyrirframgreiðsla
sé boðin við undirskrift
samnings. EHB
Næg
Grenivík:
atvinna
- við sjósókn og
fiskvinnslu
Næg atvinna er nú á Grenivík.
A Grenivík hefur stærra
hlutfall fólks lífsviðurværi sitt
af sjósókn og fiskvinnslu en á
Oestum öðrum stöðum. Eins
og er, ku vera nóg um hús-
næði, en að sögn Stefáns Þórð-
arsonar sveitarstjóra, er ekki
um neitt húsnæði að ræða þar,
ef einhver vildi flytja inn.
í fyrra kom til Grenivíkur
hjúkrunarfræðingur með fasta
búsetu, sem ásamt læknuni sem
koma tvisvar í viku frá Akureyri,
sinnir heilsugæslu á staðnum og
er þetta mikil aukning á þjón-
ustu.
Stefán tók það einnig fram,
hvað nýi Leiruvegurinn stytti
mikið leiðina til Grenivíkur, og
að mikil bót myndi verða af því,
að í sumar stendur til að leggja
bundið slitlag að Fagrabæ, sem er
um 24 km leið.
Félagslíf á Grenivík er ágætt,
og heldur íþróttafélagið Magni
því uppi að miklu leyti. Magni
leikur knattspyrnu í 3. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu í
sumar. VG
„Það er allt í lagi með bílinn hjá mér,“ sagði Óttar Einarsson sem lét skoða í gær.
Mynd: RÞB
Aðalskoðun bifreiða lýkur 2. júní:
Skoðað í einum grænum
- hjá Óttari Einarssyni, sem hefur gaman af því
að koma í Bifreiðaeftirlitið
Aðalskoðun bifreiða á Akur-
eyri lýkur 2. júní. Að henni
lokinni verða bifreiðar á
Dalvík, Ólafsfirði og Siglufirði
skoðaðar. Skoðun á Akureyri
gengur þokkalega, að sögn
Sigurðar Indriðasonar um-
dæmisfulltrúa. „Þeir sem á lé-
lcgustu bílunum eru draga það
mest að koma með þá til
skoðunar,“ sagði Sigurður og
bætti því við að ástand þeirra
bfla sem búið er að skoða væri
yfirleitt mjög gott.
„Ég renndi nú bara við í eftirlit-
inu til að athuga hvort komið
væri að mér,“ sagði Óttar Einars-
son sem við hittum við bæki-
stöðvar Bifreiðaeftirlitsins á
Akureyri í góða veðrinu í gær.
„Peir voru svo hrifnir af bílnum,
að þeir vildu endilega skoða hann
í einum grænum hvelli.“
Óttar ekur um á grænum Peug-
eot, árgerð 1977 og var ákaflega
hrifinn af gripnum. Sagðist hafa
keypt hann í september síðast-
liðnum af valinkunnum sóma-
manni. „Og hann er í svo góðu
lagi að elstu menn muna bara
ekki neitt!“ sagði Óttar og skæl-
brosti. Hann sagði að Peugeotinn
væri alltaf í góðu lagi hjá sér og
hann væri lítið hræddur við að
koma með hann til skoðunar.
„Jú, það eru vissulega margir
hræddir við að koma hingað, sem
vonlegt er. En ég hef gaman af
því. Þeir ljóma eins og sól í heiði
eftirlitsmenn þegar ég kem hér
við,“ sagði Óttar og veifaði
skráningarskírteini sínu glaðbeitt-
ur mjög. mþþ
Lágheiðin
opin fyrir
létta umferð
- almennt góð færð
á vegum
„Það er yfirleitt ágætis færð á
öllum aðalvegum og reyndar
útvegum líka því það er búið
að opna Lágheiðina. Síðastlið-
ið laugardagskvöld hleyptum
við á hana léttri umferð, en
ekki fyrir þyngri bfla en þriggja
tonna,“ sagði Bjarni Sigurðs-
son hjá Vegagerðinni í samtali
við Dag.
Sagði Bjarni að Lágheiðin væri
það blaut að það hefði ekki verið
hægt að hefla hana ennþá. Á
þessum árstíma eru vegir lands-
ins oft illa farnir, drullupyttir hér
og þar, en svo mun ekki vera nú.
Að sögn Bjarna er ástandið
óvenjulega gott núna, „það var
úrrennsli á stöku stað meðan
vatnavextir voru hvað mestir en
það er það eina sem við höfum
þurft að hafa afskipti af.“ -HJS
Hofsós:
Veríð að setja upp
nýja bílavog
Þessa dagana er unnið að
undirbyggingu fyrir bílavog
sem verið er að koma fyrir á
Hofsósi. Nokkur tími er síðan
gamla vogin á staðnum varð
ónýt, en sökum peningaleysis
hefur ekki reynst unnt að fara
fyrr í að koma voginni upp, en
nýja vogin hefur beðið upp-
setningar frá síðasta hausti.
Að sögn Hólmgeirs Einarsson-
ar verkstjóra í frystihúsinu hefur
vandræðaástand ríkt um vigtun
afla í vetur. Aflinn úr trillunum
hefur verið vigtaður á 100 kílóa
vigt og það tekið óratíma. „Það
hefur verið fornaldarstíll á
þessu,“ sagði hann. Það er
Trésmiðjan Borg á Sauðárkróki
sem hefur umsjón með uppsetn-
ingu bílavogarinnar. -þá
Verkamannabústaðir:
Kaupa 10 nýjar íbúðir af SS Byggi
- fáist leyfi hjá bæjarstjórn
Á fundi hjá stjórn verka-
mannabústaða á Akureyri á
mánudaginn, var ákveðið að
fara þess á leit við bæjarstjórn
„Hætt við að draqi úr sprettu“
- segir Guðmundur Steindórsson ráðunautur
til ráða, t.d. með tilliti til kal-
„Það hefur verið mjög þurrt í
lengri tíma. Þegar snjór er eins
lítill og var síðasta vetur lækk-
ar grunnvatnsstaðan í jarðveg-
inum, en þá er hætt við að
dragi úr grassprettu,“ sagði
Guðmundur Steindórsson,
ráðunautur, þegar hann var
spurður um þurrkana undan-
farið.
Að sögn Guðmundar er mjög
misjafnlega langt niður á grunn-
vatnið, og fer það eftir jarðvegi
og fleiri aðstæðum á hverjum
stað. Þegar grunnvatnið fer niður
fyrir ákveðna hæð ná plönturnar
ekki lengur í það, og er einkum
hætt við slíku ef lítill snjór er á
jörðu þegar vorar og raki fer
fljótlega úr jarðveginum vegna
lítillar úrkomu, en þessar aðstæð-
ur eru einmitt fyrir hendi nú.
Móar og landsvæði, þar sem
grunnt er niður á grjót, eru í
mestri hættu.
Þegar Guðmundur var spurður
nánar um horfurnar og hvað væri
svæða, sagði hann: „Það er engin
hætta á ferðum ennþá, en auðvit-
að dregur úr sprettu ef þetta varir
öllu lengur. Varla er hægt að
segja að þurrkurinn dragi úr því
að kalsvæði lagist, því þau eru
hvort sem er dauð. Ekki er nein
spurning um, að vökvun myndi
hraða sprettu mikið nú en það er
töluvert fyrirtæki að vökva stór
landsvæði, og slíkt er almennt
vart framkvæmanlegt, þó það fari
eftir aðstæðum." EHB
Akureyrar, að fá leyfl til kaupa
á tíu nýjum íbúðum. Verka-
mannabústaðir hafa að vísu
ráðstafað sínum „kvóta“ á
fjárlögum þetta árið, en sam-
þykkt var engu að síður að
óska eftir leyfi.
íbúðirnar sem um er að ræða,
eru þær sem SS Byggir reisir nú
við Hjallalund, og verða tilbúnar
að ári. Hákon Hákonarson for-
maður stjórnar verkamanna-
bústaða, sagði í samtali við Dag,
að liann væri bjartsýnn á að til
þessara kaupa kæmi, og yrðu þær
auglýstar til sölu um leið og leyfi
kæmi frá bæjarstjórn. Það ætti að
koma í ljós eftir miðjan júní,
hvort af þessu verður, en jákvætt
svar hefur nú þegar borist frá
Byggingarsjóði verkamanna.
Hákon sagði ennfremur, að
þeir vildu allt gera til að fjölga
íbúðum hjá skjólstæðingum
sínum, og gera um leið atvinnu-
lífinu og byggingariðnaðinum á
Akureyri gagn.
Aðspurður sagði Hákon að
alltaf bærust inn til sölu notaðar
íbúðir, en að erfitt væri fyrir þá
að segja fyrirfram hversu margar
íbúðir væru væntanlegar á sölu,
þar sem þeir vissu það ekki fyrr
en ósk bærist til þeirra um kaup á
notaðri íbúð. Þær notuðu íbúðir
sem verða til ráðstöfunar, verða
auglýstar um leið og hinar. VG
D
Dagur kemur út á morgun,
uppstigningardag, og síðan
mánudaginn 1. júní. auglýs-
ingamóttakan er opin til kl.
12.00 á hádegi í dag en skila-
frestur auglýsinga í mánu-
dagsblað er til 12.00 á hádegi á
föstudag.