Dagur - 22.06.1987, Blaðsíða 1

Dagur - 22.06.1987, Blaðsíða 1
- „Vitum ekki hvað næsti dagur ber í skauti sínu í kvótamálunum“ - segir Vilhelm Þorsteinsson „Samkvæmt skýrslu L.Í.Ú. eru okkar togarar með mikinn afla það sem af er árinu en brúttóverðmæti aflans er ólíkt annað en hjá þeim skipum sem ýmist sigla eða flytja út í gámum. Það sést vel í skýrsl- unni,“ sagði Vilhelm Þor- steinsson, framkvæmdastjóri hjá Útgerðarfélagi Akureyr- inga hf., þegar hann var spurð- ur um afkomu togara félagsins. Eins og flestir vita þá hafa togarar útgerðarfélagsins ekki landað erlendis í mörg ár, enda er stefna félagsins að landa aflan- um í heimahöfn til vinnslu í frystihúsinu. Þegar Vilhelm var spurður að því hvaða breytingar það hefði í för með sér fyrir reksturinn að togarinn Sléttbakur fer á veiðar sem frystitogari um miðjan næsta mánuð sagði hann: „Ef við miðum við árið 1986 þá rákum við fimm togara mestan hluta ársins en rekum fjóra mestan hluta þessa árs. Þetta þýðir þó ekki að minna hafi verið að gera í frystihúsinu; aflinn hef- ur t.d. verið betri en í fyrra. Varðandi kvótamál Sléttbaks þá er erfitt að segja til um það mál, því fiskveiðikvóti og úthlutunar- reglur hans ganga úr gildi um næstu áramót. Við erum með kvóta fyrir skipið fyrir þetta ár, miðað við þær veiðar sem skipið var á síðast.“ Að sögn Vilhelms hefur kvóti togaranna hjá félaginu verið mið- aður við aflamark, og hugsanlegt væri að miða við annað, t.d. sóknarmark, en ekki hefði verið tekin afstaða til þess enn hvernig þeim málum yrði háttað. Þegar Vilhelm var spurður að því hvort Sléttbakur yrði eingöngu á þorsk- veiðum það sem eftir er ársins sagði hann: „Við vitum aldrei hvað næsti dagur ber í skauti sínu í þessum málum. Það fer eftir aflabrögðum hvort skipin geta veitt það magn sem þeim er út- hlutað. Áður en veiðitakmarkan- ir voru teknar upp var heildarafli togaranna um 25 þús. tonn í góð- um árum en hefur verið þetta 18 til 20 þús. tonn síðari árin.“ Afli togaranna frá áramótum til maíloka er sem hér segir: Kaldbakur 2389 tonn, Svalbakur 2152 tonn, Harðbakur 2049 tonn og Hrímbakur 1232 tonn. EHB ^ Veitingastaður Restaurant Það stansa flestir í Staðarskála. ^ Heitt um á Mikill hiti er nú í forráða mönnum Héraðsskólans að Laugum í Reykjadal. Stafar það af því að skólinn hefur um árabil rekið sumarhótel að Laugum og vegna mikillar aðsóknar leigt heimavist Hús- stjórnarskólans. Nú var umsókn þeirra hins vegar hafn- að í menntamálaráðuneytinu og húsnæðið leigt Hjördísi Stefánsdóttur, fyrrverandi skólastjóra Hússtjórnarskól- ans, og hyggst hún reka þar hótel á eigin reikning. í kolun- Laugum Laugaskólamenn eru afar óhressir með þessa framvindu mála, en sumarhótelið hefur afl- að skólanum mikilla tekna. Segir Steinþór Þráinsson, skólastjóri Laugaskóla að verið sé að færa mikinn hluta tekna skólans í hendur einstaklingi og telur hann vinnubrögð í þessu máli hafa ver- ið öll hin undarlegustu. Hjördís er hins vegar ekki sammála Stein- þóri og segir mikinn hluta af orð- um hans vera hrein ósannindi. JHB Sjá nánar á bls. 10. Granastaðir í Eyjafirði: Merki um byggð frá því fyrir árið 1000 Fornleifarannsóknir að Grana- stöðum í Eyjafírði hafa þegar borið merkilegan árangur því allt bendir til þess að menn hafí fundið kuml, gröf frá heiðnum tímum, og þar af leið- andi merki um byggð fyrir árið 1000. Bjarni Einarsson, sem stjómar uppgreftrinum, sagðist eiga eftir að fá endanlega stað- festingu á þessum fundi en þetta væri þá í fyrsta skipti sem kuml hefði fundist við rann- sóknir á eyðibýlum hér á landi. „Það er eitt bein sem hugsan- lega er hægt að greina úr þessu og ef það er hægt að greina það þá er það staðfesting, nú og ef það er ógreinanlegt þá er þetta kuml engu að síður, þarna eru hleðslur," sagði Bjarni. Granastaðir í Saurbæjarhreppi eru taldir hafa farið í eyði í svarta dauða árið 1402. Bjarni Einars- son fékk áhuga á þessum stað í fyrra, taldi að þar gætu leynst merkar fornminjar og sú von virðist ætla að rætast. 4-5 manns hafa unnið að uppgreftrinum sem hófst í byrjun þessa mánaðar og þegar er búið að grafa upp úti- hús, líkast til fjárhús, einnig er búið að grafa upp fjórðung af mjög heillegu jarðhýsi sem Bjarni sagði að endilega þyrfti að grafa allt upp. „Við höfum verið núna í skála og fundið þar langeldinn. Síðan höfum við fundið annað eldstæði sem ekki er beint hægt að setja í hús ennþá, það finnst ekkert ofan jarðar. Við höfum fundið bein af öllum skepnum, nema fugla- og fiskabein. Af öðrum hlutum höf- um við fundið töflu úr hnefatafli, einn snældusnúð og brýni,“ sagði Bjarni. Hann sagði að rannsóknunum væri að ljúka á þessu ári enda peningarnir að verða búnir. Verkefnið er kostað af Vísinda- sjóði en einnig hafa Akureyrar- bær og Saurbæjarhreppur veitt aðstoð. SS 70. árgangur Akureyri, mánudagur 22. júní 1987 114. tölublað Séra Pálmi Matthíasson hljóp fyrsta spölinn með kyndilinn í Friðarhlaupinu frá Ráðhústorgi á föstudagsmorgun. Leiðin lá til Dalvíkur og þaðan áfram hringinn í kringum landið._______________________________Mynd: rþb Almannavarmr: Aðeins flautað í Reykjavík Það er nokkuð athyglisvert, að ekki skuli vera flautur á vegum almannavarna á fleiri stöðum en í Reykjavík. Þær eru sjálf- sögð öryggistæki almennings og fengust þær upplýsingar hjá Almannavörnum ríkisins, að samkvæmt lögum ættu öll bæj- ar- og sveitarfélög sem telja fleiri en 2000 manns í þéttbýlis- kjarna, að hafa flautur. Allt fram til 1985, þegar gerðar voru lagabreytingar þess efnis m.a., að ríkið skyldi taka yfir framkvæmdir af þessu tagi, voru þær í höndum sveitarfélaganna. Nú hefur verið gerð úttekt á því hversu umfangsmiklar fram- kvæmdir við uppsetningu flauta yrðu, á þeim stöðum sem þær eiga að vera. Leitað hefur verið eftir tilboðum í þær hjá fram- leiðendum viðvörunarkerfa, og er ljóst að töluverða fjárveitingu muni þurfa til framkvæmdarinn- ar. Nú mun verið að vinna að því að hringtengja talstöðvarkerfi um landið. Á Norðurlandi er upp- setningu kerfisins lokið og ein- göngu á eftir að tengja það Reykjavík. Kerfið er mjög full- komið og byggir á radíomerkjum í lofti og er því ekki línutengt. Þetta mun tryggja meira öryggi. Það skal einnig tekið fram, að stjórnstöð almannavarna á Akureyri mun vera ákaflega full- komin og reyndar sú eina sem getur í raun talist stjórnstöð utan Reykjavíkur. VG Útgerðarfélag Akureyringa hf.: Kaldbakur aflahæstur frá áramótum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.