Dagur - 22.06.1987, Blaðsíða 6

Dagur - 22.06.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 22. júní 1987 ISIGLUFJORÐUR! S Iþrótfahus rcist að fengmiii undanþágu Nú er verið að reisa íþróttahús á Sigiufirði, sunnan við sund- laugina. Það er Byggingafélag- ið Berg hf. sem fékk það verk- efni að reisa húsið en Börkur hf. sér um byggingafram- kvæmdirnar að öðru leyti. 260 penna- vinir „Það er helmingi betra að verða brúnn hérna úti heldur en hvítur í frystihúsinu,“ sögðu þessar kátu stelpur á Siglufirði. Af fávisku okkar spurðum við þær hvort þær væru í unglinga- vinnu en þá sögðust þær löngu vaxnar upp úr þvi. Þær vinna hjá bænum, en alls eru 4 stelp- ur í bæjarvinnu og 1 í unglinga- vinnu. Mun fleiri strákar eru í þessum störfum enda eru stelpurnar flest- ar í frystiliúsinu eða við barna- pössun. Vinkonurnar sem við tókum tali sögðust hafa fengið nóg af frystihúsi eftir 3 sumur. Þar væri hundleiðinlegt. Stelp- urnar, viö náðum ekki nöfnunum fyrir umferðarnið, hugsanlega heita þær Braghildur og Tóta, eru frænkur og hafa verið vin- konur frá fæðingu. - Er ekki gaman að búa á Siglufirði? „Nei! (hlátur, fliss). Það er svo leiðinlegur mórall hérna.“ - Hvað þá með félagslífið, er vkki blómstrandi félagslíf fyrir ungt lólk á Siglufirði? ...la. ég myndi ekki kalla það 1 'lagslíf þegar krakkarnir detta í þaö um helgar, ráfa um göturnar g svoleiðis," sagöi önnur þeirra. Vinkonurnar sögðust lítið fara á böll. Þær eiga marga pennavini og þegar þær eru ekki að vinna eru þær að skrifa þeim. Önnur er með 200 pennavini á sinni könnu og hin 60. Það gefur auga leið hvílíkt verk það er að skrifa öllu þessu fólki sem býr út um gjörv- - allan heim. Enda sögðust þær vera skrifandi í öllum frístund- um. Pennavinir stelpnanna eru á aldrinum frá 10 og upp í 67 ára og eiga þær myndir af þeim sem gætu fyllt mörg albúm. Þær segj- ast kynnast hinum ýmsu löndum í gegnum pennavinina og að sjálf- sögðu eru þær iðnar við að kynna okkar land og þjóð. Gott hjá þeim. SS Stefnt er aö því að loka húsinu í haust en það verður ekki tek- ið í notkun á næstunni. Af hverju ekki? ísak Ólafsson bæjarstjóri svar- aði því til að íþróttahúsið yrði náttúrlega reist, en það væri sam- kvæmt undanþágu frá Bruna- málastofnun því við húsið eru olíutankar. „Við fengum undan- þáguna gegn því skilyrði að tank- arnir yrðu farnir áður en húsið yrði tekið í notkun. Það verður því ekki gert meira í því í ár nema að gera það fokhelt og það er að vísu meira en fokhelt því þetta eru einangraðar veggjaein- ingar sem verða settar á,“ sagði ísak. Hann sagði að skipulagið gerði ráð fyrir því að tankarnir yrðu fjarlægðir og settir niður á fram- tíðarsvæðið sem unnið er að við brimvarnargarðinn. Þegar þetta hefur verið gert munu koma bíla- stæði fyrir íþróttahúsið á því svæði sem tankarnir eru nú enda er engin aðkeyrsla að húsinu eins og málum er háttað í dag. Af öðrum framkvæmdum í þágu íþrótta má nefna að verið er að vinna í nýjum grasvelli frammi við Hól. Meiningin var að koma honum í gagnið fyrir knatt- spyrnumenn í haust en ísak sagð- ist efast um að það tækist. KS- ingar verða því sennilega að láta mölina duga þangað til næsta sumar. SS Bj örgnnarsveitaHi úsið að verða tilbúið Hús Slysavarnafélags íslands á Siglufírði, sem Björgunar- sveitin Strákar og Kvenna- deildin Vörn festu kaup á í árs- byrjun 1981, er nú orðið hið glæsilegasta. Mikil sjálfboða- vinna hefur farið í það að gera húsið upp og er því verki að verða lokið. Að sögn Kristins Halldórssonar formanns Stráka er meiningin að reisa tækjageymslu neðan við húsið í sumar. Kristinn sagði að ekki hefði verið komist hjá því að fá smiði til starfa og auðvitað hefði þurft að kaupa efni og húsgögn þannig að kostnaðurinn við húsið væri orðinn ærinn. Húsgögnin hefðu t.a.m. kostað um 400 þúsund krónur. „Það er nóg að gera“ - segja strákamir á bryggjunni Þessir hressu strákar voru að gera að netum þegar blaða- menn áttu leið um bryggjuná á Siglufírði. Þeim þótti kærkom- ið að láta trufla sig dálítið í góða veðrinu og voru því ekk- ert á móti smá spjalli. Tveir þeirra sögðust vera Siglfirðing- ar en hinir tveir sögðust hins vegar vera Reykvíkingar og væru hérna til að kenna hinum innfæddu! „Siglfirðingiirnir hlaupa allir í burtu þegar þeir sjá ykkur," sögðu Reykvíkingarnir og þótt- ust öllu veraldarvanari. Strákarn- ir voru þó sammála um það að Siglufjörður væri ágætur staður, nóg af stelpum í Trystihúsinu, m.a. einar 10 sænskaNblómarósir fyrir utan innfæddar yngismeyj- „Það er nóg að gera hérna,“ sögðu strákarnir brattir. Aðspurðir sögðu þeir lítið vera um ferðamenn á staðnum nema þá helst þegar nærsveitamenn koma á böll. Á hótelinu eru iöu- lega haldnir dynjandi dansleikir og t.a.m. verða Stuðmenn á staðnum um næstu helgi. Strák- arnir sögðust ekki ætla á ballið en af tvíræðu glotti þeirra mátti ráða aö þeir vildu láta ganga dálítiö á eftir sér og við skulum vona aö siglfirskar sprundir taki við sér þegar þær sjá þetta á prenti. SS Strákarnir á bryggjunni voru fjallhressir í góða veðrinu og sögðu að það væri mjög gott að búa á Siglufirði. Mynd: ehb Stjórnstöðin er á neðri hæð hússins, áhaldageymsla og vinnu- aðstaða. Efri hæðin hefur verið í vinnslu að undanförnu og þar er nú kominn mjög smekídegur salur, parket í hólf og gólf. Aðspurður sagði Kristinn að lík- lega yrði salurinn leigður út ann- að slagið enda býður hann fylli- lega upp á ýmsa félagastarfsemi. „Halldóra Jónsdóttir formaður kvennadeildarinnar hefur verið aðal driffjöðurin í sambandi við fjáröflun fyrir efri hæðina. Það fara gífurlegir peningar í þetta og hún hefur unnið rosalegt starf fyrir sveitina. Þó að allir megi missa sín þá held ég að hún loði við það að vera ómissandi í þess- ari fjáröflun," sagði Kristinn að lokum. SS Texti: Stefán Sæmundsson Myndir: Egill H. Bragason IVýft elliheimili í síðustu viku var afhentur fyrri áfangi að nýju elliheimili á Siglufírði og eru fram- kvæmdir hafnar við seinni áfangann. Að sögn Hauks Jón- assonar formanns bygginga- nefndar eru sameiginlegar vist- arverur, setustofur og annað, frágcngnar en þær eru í þeim hluta hússins sem þegar hefur verið afhentur. Að auki er þar rými fyrir 10 íbúa. Elliheimilið er tengt við sjúkrahúsið og munu þessar stofnanir nota sama eldhús og þvottahús. Sjúkrahúsið var notað sem elliheimili til bráðabirgða en þar var orðið ærið þröngt um gamla fólkið. Rýmið sem losnar þar verður notað sem hjúkrunar- deild fyrir aldraða. I seinni áfanganum verður rými fyrir 28 íbúa og að sögn Hauks Jónassonar veitir ekki af, því Siglufjörður er með eitt stærsta hlutfall íbúa 65 ára og eldri á landinu og mjög brýnt að bæta aðstöðuna. Áætlað er að koma seinni áfanganum undir þak á þessu ári. Hér er um glæsilega byggingu að ræða. Húsnæðið í heild verður um 2.600 fermetrar að flatarmáli og rúmmálið 8.500 rúmmetrar. Áfanginn sem búið er að afhenda er um helmingur af stærð hússins. Bútur hf. sér um uppsteypu elli- heimilisins, Berg hf. um innrétt- ingar, Rafbær um rafmagnið, Helgi Magnússon annast pípu- lagningar og Bjarni Þorgeirsson málningu. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.