Dagur - 22.06.1987, Blaðsíða 9

Dagur - 22.06.1987, Blaðsíða 9
Umsjón: Kristján Kristjánsson 22. júní 1987 - DAGUR - 9 Knattspyrna 2. deild: : og barátta Siglufirði og Selfoss gerðu jafntefli 3:3 aukaspyrnu Baldurs Benónýs- sonar á 51. nn'n. Eftir markið var eins og heimamenn slökuðu á og Selfyssingar færðu sig við það upp á skaftið og áttu mun meira í leiknum allt til leiksloka, en Sigl- firðingar náðu af og til skyndi- sóknum, oft hættulegum. A 54. mín. björguðu KS-ingar á línu og komust strax á eftir í sókn, þar sem Óli skallaði rétt yfir markið. Skömmu seinna gerði Axel vel, þegar hann varði vel skot upp úr hornspyrnu. Staðsetning hans var ekki eins góð á 64. mínútu þegar Heimir Bergsson skaut yfir hann í markið af 30 metra færi og jafn- aði með því leikinn. Selfoss sótti og sótti það sem eftir lifði leiks- ins, en ekki munaði miklu að Óla Agnars tækist að skora fyrir KS á 78. mínútu þegar gott skot hans frá vítateig úr þröngri stöðu sleikti stöngina. Peir Hafþór og Baldur Benón- ýsson voru bestu menn Siglfirð- inga, en Jón Gunnar Bergs, Heim- ir Bergsson og Þórarinn Ingólfs- son hjá Selfossi. Nokkur harka var í leiknum og fékk einn úr hvoru liði að líta gula spjaldið, Jón Gunnar og Tómas Kárason. -þá Knattspyrna 2. deild: Marifalaust í leik ÍR og Leifturs Jón Kristjánsson leikur í Valsbúningnum næsta vetur. Rishá var hún ekki knattspvrn- an sem nýliðar 2. deildar buðu upp á, á Laugardalsvelli í gær. Var á köflum sem leikmenn hefðu ásett sér að leika sem minnsta knattspyrnu en þess á milli brá fyrir þokkalegustu samleiksglennum, þannig að sýnt er að getan er fyrir hendi. Ef eitthvað var voru Leifturs- menn nær því að knýja fram úrslit, þeir áttu besta færi leiksins á 48. mín. er Hafsteinn Jakobs- son átti skalla eftir aukaspyrnu frá hægri á ÍR-markið en mark- vörðurinn varði vel. Það er varla að talandi sé um önnur færi í þessum tíðindalitla leik. Leifturs- menn voru ágengari og sérstak- lega í síðari hálfleik og skapaðist einstaka sinnum hættuástand í vítateig ÍR en allt kom fyrir ekki. Úrslit þessi hljóta að teljast viðunandi fyrir Leiftur. Stig á úti- velli er alltaf dýrmætt og hafa ber í huga að ÍR-ingar lögðu þarna Eyjamenn á dögunum. Leiftur er sem sé enn í nágrenni við topp 2. deildar og ekkert fararsnið á þeim að sjá niður á við. Flestir leikmanna liðsins skiluðu sínum hlutverkum, þeir voru frekar maður IR-inga Björnsson. var Bragi GÞE Handbolti: jafnir að getu en mest bar þó á þeim Hafsteini Jakobssyni og Óskari Ingimundarsyni. Þorvald- ur sýndi einnig öryggi í úthlaup- urn sínum úr markinu. Besti Jón fer í Val „Ég hef ákveðið að leika með Valsmönnum næsta vetur en hef að vísu ekki skrifað undir Sigurganga Tinda- stóls heldur áfram Árskógsstrandar Reynir var Tindastóli lítil hindrun í keppni 3. deildar þegar liðin leiddu saman hesta sína á laugardag. Reynir náði þó forystunni í leiknum, en áður en yfir lauk höfðu Tindastólsmenn skorað 5 mörk hjá þeim. Staðan í leik- hléi var 2:1. Það var markaveisla hjá verk- stjórunum í unglingavinnunni á laugardag. Guðbrandur Guð- brandsson hélt upp á afmælisdag- inn að vanda með því að skora, 2 mörk í þetta skiptið. Hann lét þetta samt ekki duga og tók þátt í látúnsbarkaleik Stuðmanna um kvöldið. Hinn verkstjórinn, ÉÉÉá llt lHl ÍHii >' -v ^ v markaskorari, Jón Gunnar Traustason að nafni gerði einnig 2, en Eyjólfur Sverrisson lét eitt duga. Það var Sverrir litli brósi sem sendi á Eyjólf sem skallaði í markið og mörk Guðbrandar voru einnig skoruð með koll- spyrnum. Jón Gunnar skoraði mörk sín af stuttu færi eftir góðan umhugsunarfrest. Tindastóll hafði umtalsverða yfirburði í leiknum. ennþá,“ sagði Jón Kristjáns- son handknattleiksmaöur úr KA í samtali við Dag í gær. Jón ætlar í nám í verkfræði í Háskólanum næsta vetur og hyggst ennfremur leika hand- knattleik með Val. - En af hverju varð Valur fyrir valinu? „Þetta lítur allt nijög vel út hjá Val, þeir eru búnir að ráða pólsk- an þjálfara og það líst mér ágæt- lega á,“ sagði Jón. Valsmenn ætla sér mun stærri hlut á íslands- mótinu næsta haust og heyrst hef- ur að Einar Þorvarðarson lands- liðsmarkvörður muni einnig leika með liðinu næsta vetur. Þó það sé slæmt fyrir KA að missa Jón, hefur félagið fengið tvo snjalla leikmenn í sínar raðir á ný, þá Jakob Jónsson og Erling Kristjánsson eins og komið hefur frarn í blaðinu áður. Landsleikur í knattspyrnu á Akureyri: Sex frá Þór og í hópnum KA rumar að marki Vals úr aukaspyrnu en markvörðurinn varði vel. Mynd. rpb Það er skammt stórra högga á milli hjá íþróttaáhugamönnum á Norðurlandi. Tveimur hand- boltalandsleikjum nýlokið hér og á miðvikudaginn verður háður knattspyrnulandsleikur á Akureyrarvelli. Þá leika lið Islands og Danmerkur skipuð Ieikmönnum 21 árs og yngri. í íslenska hópnum eru sex leik- menn frá Þór og KA, þrír úr livoru liði. Guðni Kjartansson landsliðs- þjálfari valdi fyrir helgina hópinn sem tekur þátt í leiknum fyrir íslands hönd og lítur hann þannig út: Markverðir: Haukur Bragason KA Páll Ólafsson KR Aðrir leikmenn: Þorvaldur Örlygsson KA Gauti Laxdal KA Siguróli Kristjánsson Þór Hlynur Birgisson Þór Júlíus Tryggvason Þór Þorsteinn Guðjónsson KR Andri Marteinsson KR Þorsteinn Halldórsson KR Jón Sveinsson Fram Arnljótur Davíðsson Fram Sævar Jónsson Val Guðni Bcrgsson Val Jón Grétar Jónsson Val Ólafur Þórðarson ÍA Heimilt er að leika með tvo eldri leikrnenn og valdi Guðni þá Sævar Jónsson og Guðna Bergs- son úr Val í hópinn. Knattspyrna 3. deild: Róbert brenndi af vítaspyrnu Þróttur sigraði HSÞ-b á laugardag er liðin áttust við á Norðfirði í B-riðli 3. deildar á Islandsniótinu í knattspyrnu. Heimamenn skoruðu tvö mörk á móti einu marki gest- anna sem m.a. misnotuöu vítaspyrnu í leikn- um. Jafnræði var með liðunum í leiknum en þó fengu Þróttarar liættulegri færi. Heimainenn náðu forystunni í fyrri hálfleik er Agnar Arn- þórsson skallaði boltann glæsilcga í mark Mývetninga og þannig var staðan í leihléi. Þegar um 20 mín. voru liðnar af síöari hálllcik jafnaði Sigurður Arnar fyrir Mývetninga með ágætu marki. Skömmu síð- ar fengu Þróttarar dæmda vítaspyrnu sem Ólafur Viggósson skoraði úr og kom liði sínu ytir á ný. Mývetningar fengu síðan gullið tækifæri til þess að fara með eitt stig heim er þeim var cinnig dæmd vítaspyrna en Kóbert Agnarsson skaut yfir markið úr henni og úrs- litin því 2:1 fyrir Þrótt. Knattspyrna 4. deild: Hvöt vann stór- sigur á Kormáki Hvöt hélt sigurgöngu sinni i E-riðli 4. dcildar í knattspyrnu áfram á laugardag en þá vann liðið stórsigur á Kormáki á Blönduósi. Heimamenn skoruöu alls 7 mörk á móti 2 mörkum Kormákursmamia. Hermann Arason skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Hvöt snemma í leiknum, með góðu skoti beint úr aukaspyrnu. Þór Þor- steinsson jafnaði fyrir Kormák skömmu síðar. Axel Rúnar Guðmundsson skoraði næstu tvö mörk fyrir Hvöt og breytti stöð- unni í 3:1. Páll Leó Jónsson skoraði fjórða markið en á lokamínútu hálfleiksins skoraði Bjarki Haraldsson annað inark Kormák- ursmanna. í byrjun seinni hálfleiks skoraði Axel Rún- ar sitt þriðja mark og finimta mark Hvatar. Páll Leó gerði sitt annað mark og sjötta mark liðsins og í lok lciksins skoraði Axel Rúnar sitt fjórða inark og sjöunda markið fyrir Hvöt. Leikurinn var ekkert sérlega vel leikinn. Hvatarmenn fengu mun fleiri færi í leiknum en tókst ekki að nýta þau. HSÞ-c sigr- aði Vask HSÞ-c bætti við öðrum þremur stigum í safn- ið á laugardaginn en þá sigraöi liðið Vask að Ýdölum með tveimur mörkum gegn einu í F- riðli 4. deildar í knattspyrnu. Leikurinn var illa leikinn af báðum liðum en úrslit leiksins þykja þó nokkuð sanngjörn. Heimamenn komust yflr í fyrri hálfleik með marki Þórarins lllugasonar en Donald Kelly jafnaði fyrir Vask fyrir leikhlé. Skömmu fyr- ir leikslok skoraði Þórarinn Jónsson síðan sigurmarkið fyrir heimamenn við mikinn fögnuð. Fyrsti sigur Neista Neisti frá Hofsósi vann sanngjarnan sigur á Árroðanum á Laugalandsvelli á föstudags- kvöld, 2:0. Þeir Magnús Jóhannesson og Björn Guöbrandsson skoruðu mörkin. Þetta var fyrsti sigur Neista í 4. deildinni í ár og jafnframt fyrstu mörkin sem liðið skorar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.