Dagur - 22.06.1987, Blaðsíða 10

Dagur - 22.06.1987, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 22. júní 1987 íþróttir.l Þorgils Óttar, fyrirliði landsliðsins, skorar annað marka sinna gegn Dönum á föstudagskvöld, Handbolti - ísland - Danmörk: Einar bjargaöi liðinu frá stórtapi „Þetta var mjög lélegur leikur af okkar hálfu og þá sérstak- lega varnarleikurinn en vörnin var hriplek. Við gerðum mikið af byrjendamistökum og hefð- um tapað mun stærra ef Einar hefði ekki bjargað okkur með góðri markvörslu,“ sagði Þorgils Óttar Mathiesen fyrir- liði íslenska handboltalands- liðsins, eftir tapið gegn Dönum í íþróttahöllinni á Akureyri á föstudagskvöld. Já það eru orð að sönnu hjá Þorgils Óttari. íslenska liðið virk- aði lítt sannfærandi, leikmenn liðsins voru þungir á sér og gerðu mikið af byrjendamistökum. Það nýttu Danir sér vel og sigruðu mjög sannfærandi 21:17. Þeir voru yfir frá fyrstu mínútu og aðeins einu sinni var jafnt í leikn- um, Þorgils Óttar jafnaði 1:1 á 3. mín. en áður hafði Einar varið víti. Síðan fór að síga á ógæfu- hliðina, leikmenn fóru illa með góð færi, skot í stöng, slá og framhjá markinu í dauðafærum. Mestur var munurinn 4 mörk í fyrri hálfleik, 11:7 en í hálfleik var staðan 12:9. Markvörður Dana, Karsten Holm skoraði eitt marka liðsins en hann fór jafnan í sóknina þegar liðið lék einum færri og reyndist það mjög vel. Einar endaði fyrri hálfleikinn á sama liátt og hann hóf hann, þ.e. með því að verja víti og var það þriðja vítið sem hann varði í leiknum. Flestir áttu von á því íslensku leikmennirnir kæmu tvíefldir til seinni hálfleiks en svo var ekki. Danir skoruðu tvö fyrstu mörkin í hálfleiknum og juku muninn í 5 mörk, 14:9. Þá komu tvö mörk frá þeim Kristjáni Arasyni og Sigurði Gunnarssyni og staðan breyttist í 14:11. Síðan skoruðu liðin á víxl fram á 49. mín., að Guðmundur Guðmundsson minnkaði muninn í tvö mörk, 17:19 og reyndist þetta mark Guðmundar sem skorað var 11 mín. fyrir leikslok síðasta markið hjá íslenska liðinu. Danir bættu við tveimur mörkum á síðustu mínútu leiksins og unnu sann- gjarnan sigur, 21:17. Þetta var ekki dagur strákanna í íslenska liðinu, þeir fundu sig hvergi að undanskildum Einari Þorvarðarsyni sem kom í veg fyr- ir stórslys og þá átti Sigurður Gunnarsson ágæta spretti. Danska liðið lék ágætlega í þessum leik, með þá Morten Stig Christensen, Lars Lundbye, Bjarne Simonsen og markvörð- inn Karsten Holm sem bestu menn. Dómararnir voru þýskir, Heuchert og Norek og voru þeir sæmilegir. Mörk íslands: Sigurður Gunn- arsson 6, Kristján Arason 5(1), Guðmundur Guðmundsson 2, Þorgils Óttar 2, Páll Ólafsson 1 og Geir Sveinsson 1. Mörk Dana: Morten Stig 4, Bjarne Simonsen 4, Lars Lund- bye 4, Erik Veje Rasmusen 3(1), Michael Fenger 3(2), Hans P.M. Andersen 1 Lars Gjöls Andersen 1 og Karsten Hoim 1. Handbolti - ísland - Danmörk: 0g enn lá landinn - fyrir Dönum 26:22 Fyrsti landsleikurinn í hinni glæsilegu íþróttahöll á Húsavík fór fram á laugardaginn. Þaö var mikil stemmning meðal áhorfenda sem voru tæpleg eitt þúsund. En vonbrigðin með leikinn og þó sérstaklega íslenska liðið voru mikil. Þessi leikur er áreiðanlega einn slakasti landsleikur sem fsland hefur leikið í langan tíma, og reyndar hálfgert hneyksli eftir yfirlýsingar Bogdans þjálfara fyr- ir þessa leiki, að ísland myndi vinna þá aila. Það var aðeins á fyrstu mínútunum sem íslenska liðið virkaði sannfærandi, eftir það fóru menn niður á hælana og Danir fóru að síga fram úr jafnt og þétt. Undir lok fyrri hálfleiks fékk Guðmundur Guðmundsson að sjá rauða spjaldið fyrir gróft brot og lék því ekki meira með. Staðan í hálfleik 14:8 fyrir Dani. í síðari hálfleik héldu Danir áfram að auka forskotið og mest- ur var munurinn 21:12 um miðj- an hálfleikinn. Undir lok leiksins rétti íslenska liðið aðeins úr kútn- um og-var það aðallega fyrir framlag Sigúrðar Sveinssonar sem sköraði fimm af sex síðustu mörkum íslands. íslenska liðið var þufigt og'svifaseint, menn gerðu sig seka um mistök sem ekki eiga að sjást í landsleikjum og það virtist sem menn væru að ljúka leiðinlegu skylduverki. En Bogdan þjálfari segir að þeir séu þungir og þreyttir eftir erfiðar æfingar og þetta eigi eftir að lagast. Bestu menn Islands voru Sigurður Sveinsson og Þor- gils Óttar. Danska liðið lék léttan og skemmtilegan handknattleik, þeir voru sneggri en okkar menn og unnu vel saman bæði í vörn og sókn, þeirra bestu menn voru Michael Fenger, Morten Stig og Erik Veje. Mörk íslands: Sigurður Sv. 7, Þorgils Óttar 5, Alfreð 3, Sigurð- ur G, Kristján og Karl 2 mörk hvor og Júlíus 1. Flest mörk Dana gerðu Fenger 8 og Erik Veje 4. ASG Óhressir skólamenn að Laugum: Óánægja vegna vinnubragða ráðuneytisins - heimavist Hússtjórnarskólans leigð einstaklingi Mikill hiti er nú í forráða- mönnum Héraðsskólans að Laugum í Reykjadal. Málum er þannig háttað að Héraðs- skólinn hefur um áratugaskeið rekið sumarhótel að Laugum og vegna mikillar aðsóknar hefur heimavist Hússtjórnar- skólans verið leigð vegna starfseminnar. Skólanefnd Hússtjórnarskólans hafði áður séð um leigu húsnæðisins til Héraðsskólans en lét af störf- um á síðasta ári þegar Hús- stjórnarskólinn var lagður niður. Leituðu Laugaskóla- menn því til menntamálaráðu- neytisins í október sl. og sóttu um áframhaldandi leigu á húsnæðinu fyrir sumarið 1987 og taldi starfsmaður ráðuneyt- isins, sem við var rætt og talið var að hefði lögsögu í málinu, að ráðuneytið myndi ekki standa í vegi fyrir óbreyttri til- högun. í maíbyrjun barst síðan sú frétt að ráðuneytið hefði ieigt Hjördísi Stefánsdóttur, fyrrverandi skólastjóra Hús- stjórnarskólans, öll hús þeirrar stofnunar til einkaafnota og hyggst hún reka þar hótel á eigin reikning. Laugaskölamenn eru afar óhressir með þessa framvindu mála en hótelreksturinn hefur skilað skólanum stórum fjárupp- hæðum sem nýttar hafa verið til viðhalds húsa og endurnýjunar, auk tækjakaupa o.fl. Síðasta ár skilaði hótelreksturinn skólanum um fjórum milljónum króna. Þá lentu hótelhaldararnir í vandræð- um vegna þess að bókað hafði verið í heimavistina með löngum fyrirvara. Síðar hafði mennta- málaráherra góð orð um að gert yrði ráð fyrir þessu í samningum við Hjördísi, en Steinþór Þráins- son, skólastjóri Laugaskóla, sagði engin slík ákvæði hafa fyrir- fundist þegar upp var staðið. Að sögn Steinþórs hefur Hjördís notið góðs stuðnings Halldórs Blöndal alþingismanns í þessu máli og sagði hann Halldór m.a. hafa komið með þau rök að þetta væri réttlætanleg sárabót fyrir Hjördísi sem missti starf sitt þegar Hússtjórnarskólinn var lagður niður. Steinþór vildi hins vegar að fram kæmi að Hjördís væri enn á launum sem skóla- stjóri þó rúmt ár væri síðan skól- inn var lagður niður. Þá sagði hann Halldór hafa komið með þau rök að Hússtjórnarskólinn hefði borið of lítið úr býtum vegna leigunnar síðustu ár og þessi ráðstöfun væri tilraun til úrbóta. Sagði Steinþór í því sambandi að Laugaskóli hefði greitt 72 þúsund kr. í leigu á mánuði árið 1986 en að Hjördís greiddi 200 þúsund krónur fyrir þrjá mánuði í ár og hefði einnig stórt einbýlishús til afnota sem Hússtjórnarskólinn ætti auk þess sem hún hefði eldhús skólans, borðssal og setustofu en Lauga- skóli hefði ekki haft neitt af þessu í fyrra. Steinþór Þráinsson sagði að þarna væri verið að taka mikinn hluta af tekjum Laugaskóla og færa hann í hendur einkaaðila. „Þetta er ekki síst bagalegt vegna þess að til stendur að Laugaskóli fái öll þessi hús til afnota í haust og þá verður enn meiri þörf fyrir fé til viðhalds.“ sagði Steinþór Þráinsson. Dagur hafði samband við Hjördísi Stefánsdóttur vegna þessa máls og sagði hún mikinn hluta af orðum Steinþórs vera ósannindi. Hún kaus þó að segja ekkert um málið í bili og sagðist frekar vilja svara þessu skriflega og er svar hennar væntanlegt á næstunni. Hjördís vildi þó að fram kæmi strax að Steinþór færi með rangt mál hvað samninga hennar og ráðuneytisins varðaði. Sagði hún að það væri ákvæði í samningnum um að sumarhótel Laugaskóla fengi inni í heima- vistinni ef þörf krefði og hún væri búin að tala við hótelstjóra sumarhótelsins um það mál og hann væri nú að athuga hversu mikið pláss hann þyrfti. Þá sagð- ist Hjördís hafa kennt til áramóta og væri síðan í launuðu orlofi sem hún hefði áður verið búin að sækja um, en hún stundaði nám í Kennaraháskóla íslands til vors og er nú í launuðu sumarfríi eins og aðrir kennarar. Þess má svo geta í lokin að mikil aðsókn er nú að Lauga- skóla. Borist hafa um 120 umsóknir sem verið er að svara um þessar mundir og er það fjölgun um 30-40 umsóknir frá í fyrra, þrátt fyrir að Hafralækjar- skóli taki upp kennslu í níunda bekk í haust. JHB FÓLKÁFERÐ! Þegar fjölskyldan ferðast er mikilvægt að hver sé á sínum stað — með beltið spennt. J yujgEHw. Ritstjórn • Afgreiðsla • Auglýsingar Strandgötu 31 - Sími 24222.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.