Dagur - 09.07.1987, Blaðsíða 5

Dagur - 09.07.1987, Blaðsíða 5
9. júlí 1987- DAGUR-5 „í dag er góður dagur“ - sagði Jón Kristinsson þegar hjúkrunardeildin Sel var formlega afhent stjórn FSA til afnota „í dag er góður dagur. Hann markar þáttaskil þegar þeim áfanga er náð aö hjúkrunar- deildin Sel er afhent,“ sagði Jón Kristinsson fyrrum for- stöðumaður dvalarheimilanna á Akureyri og formaður áhugamannahóps sem vann að söfnun fjár til byggingarinnar. Hjúkrunardeildin Sel á Akur- eyri var formlega afhent stjórn Fjórðungssjúkrahússins til afnota þriðjudaginn 7. júlí. Deildin tekur til starfa innan tíðar er vistfólk B-deiIdar FSA verður flutt þangað til dvalar á meðan sumarleyfi standa yfir. Hjúkrunardeildin hefur nú yfir 30 rúmum að ráða, fyrir voru 20 en við bætast 10. Byggingin er 200 fermetrar að stærð auk milli- byggingar sem er 100 fermetrar, en hún mun þjóna sem setustofa og einnig er þar aðstaða fyrir iðjuþjálfa. Framkvæmdir við Sel hófust í september á síðasta ári og hljóð- aði kostnaðaráætlun þá upp á 11,5 milljónir króna, en heildar- kostnaður verður um 14 milljónir króna. „Ég er þess fullviss að okkur tekst að ná endum saman að lokum,“ sagði Jón í ræðu sinni. Halldór Jónsson framkvæmda- stjóri FSA sagði að fjárveitingar til sjúkrahússins hefðu verið langtum minni en þörf hefði ver- ið fyrir, en mikill áhugi hefði ver- ið fyrir að flýta framkvæmdum þar sem þörfin er brýn. Fjármagn hefði því fengist með frjálsum i framlögum og voru það einstak- lingar, fyrirtæki og sjóðir sem lögðu málefninu lið. Færði Jóri Kristinsson öllum þeim fjöl- mörgu sem hönd hafa lagt á plóg- inn þakkir fyrir gott starf. „Það má með sanni segja og undir- strika að verkið hefur unnist létt vegna alls þess fjölda sem af áhuga og örlæti hefur rétt fram hjálparhendur," sagði Jón „Megi gæfa og gengi fylgja störfum hjúkrunardeildarinnar nú og um framtíð," sagði Jón og bað síðan formann stjórnar FSA, Jón Sigurðarson að veita viðtöku lykli er gengur að öryggisdyrum Sels. „Og megi sú gifta fylgja þessum lykli, að hann þurfi aldrei að nota,“ sagði Jón að lokum. mþþ Séra Þórhallur Höskuldsson blessaði hina nýju hjúkrunardeild. Jón Kristinsson flutti öllum þeim sem hönd hafa lagt á plóginn hug- heilar þakkir. Myndir: gt Ríkisútvarpið á Akureyri: Nýir dagskrárgerðar- menn og nýr bíll „Hér er maður í allt öðrum gír,“ sagði Margrét Biöndal sem stendur hér við hlið Kristjáns Sigurjónssonar en þau eru nýir dagskrárgerðarmenn Ríkisút- varpsins á Akureyri. Ef vel er að gáð sést ögn í hina nýju Subaru bifreið sem útvarpið hefur nú fest kaup á. Mynd: gt Tveir nýir dagskrárgerðar- menn tóku til starfa við Ríkis- útvarpið á Akureyri um mán- aðamótin. Það eru þau Kristján Sigurjónsson og Margrét Blöndal. Þau eru hlustendum Rásar tvö að góðu kunn, Kristján var einn af stjórnend- um morgunþáttar og Margrét var annar umsjónarmanna Hringiðunnar. Hjá Ríkis- útvarpinu á Akureyri verður þeirra starf að mestu fólgið í að sjá um svæðisútvarpið milli klukkan 18 og 19 alla virka daga. Fyrirhugað er að hefja morgunútsendingar svæðis- útvarps að nýju og sagði Erna Indriðadóttir deildarstjóri að það yrði vonandi í síðasta lagi í byrj- un október sem það kæmi til framkvæmda. Unnið er að endurskipulagningu dægurmála- útvarps Ríkisútvarpsins og ræðst fyrirkomulag morgunútvarps nokkuð af hvernig því verður háttað. „Okkur líst mjög vel á okkur hér. Við fengum hreint geysigóð- ar móttökur. Erum nánast klökk yfir þeim,“ sögðu Kristján og Margrét er við spjölluðum við þau yfir sérbökuðum möndlu- vínarbrauðum. Margrét er Akur- eyringur og hennar fyrstu orð töl- uð í hljóðnema Ríkisútvarpsins voru einmitt hér . Uni ætt sína og uppruna kaus Kristján að hafa þessi orð: Ég er linmæltur austur- bæingur úr Bústaðahverfinu. Hinir nýju dagskrárgerðar- menn ætla sér að vera að minnsta kosti í eitt ár við störf hér á Akureyri. „Hér er maður í allt öðrum gír,“ sagði Margrét og lét vel af því að vera komin heim í hérað. „Þetta er mikil lyftistöng fyrir alla starfsemina hér að fá til starfa vant fólk,“ sagði Erna Indriðadóttir. En það eru ekki bara nýir dagskrárgerðarmenn sem Rúvak státar nú af, nýlega kom á götuna Subaru sendi- bifreið sem útvarpið hefur fest kaup á. í bifreiðinni er mjög góð aðstaða til að koma fyrir tækja- búnaði og gerir það dagskrár- gerðarfólki og fréttamönnum auðveldara með upptökur. Einnig er hægt að senda beint úr bílnum, hann verður eins konar færanlegt stúdíó. Bíllinn kostaði rúmar 400 þúsund krónur. mþþ Nautgripabændur athugið Kaupum ungnautakjöt UN1 Kjötvinnsla við Hvannavelli sími 22080. Gasgrill 3 stærðir. Vönduð og varanleg eign. Hr Greiðsluskilmálar. + nestin EMNGA- BRÉF Einingabréf 1 nú 13-14% umfram verðbólgu. Einingabréf 2 nú 9-10% umfram verðbólgu. Einingabréf 3 nú 35-39% nafn- vöxtun. Raunvöxtun háð verð- bólgu. Aukið öryggi vegna dreifingar áhættu. Óbundið fé. Einingabréfin eru alltaf laus til útborgunar. Allir geta eignast Einingabréf, því hægt er að kaupa þau fyrir hvaða upphæð sem er. Gengi bréfanna: Einingabréf 1 2.163 kr. Einingabréf 2 1.283 kr. Einingabréf 3 1.337 kr. Lífeyrisbréf 1.088 kr. Kaupþing Norðurlands hf. Ráðhústorgi 5 • Pósthólf 914 602 Akureyri • Sími 96-24700. ..l

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.