Dagur - 09.07.1987, Blaðsíða 7

Dagur - 09.07.1987, Blaðsíða 7
6-DAGUR-9. júlí 1987 um þetta og hitt Eins og nafnið bendir til verður víða leitað fanga á Allt-síðunni í dag. Við munum ræða um nokk- ur efni sem öll eiga skilið að hljóta einhverja umfjöllun. Gísli Aðalsteinsson Undanfarnar vikur hafa nýjar íslenskar plötur sprottið upp á markaðnum og meðal annars hafa tvær akureyrskar hljómsveit- ir sent frá sér plötu. Pessar hljómsveitir hafa að sjálfsögðu hlotið verðskuldaða athygli, en hvað með aðrar hljómsveitir? Drykkir innbyrðis urðu í öðru sæti á Músíktilraunum ’86 (þeim sem Stuðkompaníið sigraði í í ár) en síðan hefur ríkt nær algjör þögn úr þeim herbúðum, hvers vegna? Gísli, meðlimur hljóm- sveitarinnar varð fyrir svörum. „Við erum búnir að vinna mik- ið í hljómsveitinni en við erum náttúrlega í skóla og erfitt að finna tíma þannig að allir séu lausir. Svo háir það okkur að við eigum lítið af græjum og það er oft erfitt að fá lánaðar græjur frá öðrum hljómsveitum en þetta stendur til bóta því að í sumar er ráðgert að kaupa einhver tæki.“ - Gaf það ykkur þá ekki neitt að lenda í öðru sæti í Músíktil- raunum? „Jú, við fengum 20 stúdíótíma sem við eigum ennþá inni og ætl- um að reyna að nota í sumar, en enga frægð. Músíktilraunir eru svona eins konar stökkpallur, ef maður ætlar að komast eitthvað áfram þá verður maður að vinna þær, annars ertu ekki neitt.“ - Eru tónleikar á döfinni? „Já við ætlum að reyna að spila eitthvað í sumar en það er ekkert ákveðið nema hvað það var verið að ræða um að spila með Ásgeiri Sæmundssyni söngvara Pax Vobis, en hann verður hér eitt- hvað í sumar. - Finnst ykkur þið kannski hafa fallið í skuggann af Skrið- jöklum og Stuðkompaníinu? „Nei í rauninni ekki því að við erum ekki að gera það sama og þeir, þeir eru orðnir mótaðir en við gerum það sem við viljum." - Hvað er annars hljómsveitin gömul? „í núverandi mynd er hún að- eins mánaðar gömul, en upphaf- lega var hún stofnuð fyrir Músík- tilraunir, og við erum enn sami kjarninn í henni og var þá.“ - Hvernig tónlist spilar Drykkir innbyrðis? „Við spilum paparokk (Gísli brosir yfir spurningasvipnum sem breiðist yfir andlitin á okkur og heldur áfram). Paparokk er voðalega teygjanlegt hugtak sem spannar í rauninni allt tónlistar- sviðið, og vegna þess að papa- rokk er óskilgreint hugtak þá get- um við spilað það sem við viljum sjálf og erum ekki bundin við neitt sérstakt, það er frábært." Við kvöddum Gísla og vonum að við eigum eftir að heyra meira frá Drykkjunum í framtíðinni. Guðrún Ýrr Tómasdóttir Fyrir rúmri viku kom hópur 20 ungmenna heim frá Álasundi þar sem hann hafði tekið þátt í vina- bæjamóti í íþróttum. Með í för voru tveir fararstjórar, þau Tóm- as Lárus Vilbergsson og Guðrún Ýrr. En hver var ástæðan fyrir því að Guðrún fór sem farar- stjóri? „Við vorum tveir þjálfarar sem þjálfuðum sundliðið sem fór út og annað okkar varð að fara með, þar sem hinn þjálfarinn gat ekki farið, varð ég fyrir valinu.“ - Hver var tilgangur ferðar- innar? „Hann var sá að efla samstarf vinabæjanna sem eru Akureyri, Vásterás í Svíþjóð, Álasundi í Noregi, Randes í Danmörku og Lahti í Finnlandi.“ - Hvernig tókst ferðin? „Hún tókst mjög vel, þetta var góður hópur krakka á aldrinum 13-14 ára og það komu aldrei upp vandræði." - Hvernig stóðu krakkarnir sig? „í fótboltanum urðu strákarnir í 2. sæti og krakkarnir urðu í þriðja sæti í boðsundinu, síðan fengum við þrenn bronsverðlaun önnur, en það var keppt í þessum tveim greinum og mér finnst árangurinn nokkuð góður.“ - Pið hafið aldrei lent í tungu- málaerfiðleikum? „Nei í rauninni ekki, þegar krakkarnir voru að tala saman, gerðu þau sig skiljanleg með að babla dönsku og ensku í bland og reyndu að nota bara táknmál til að allt kæmist til skila.“ - Finnst þér þessi vinabæja- tengsl mikilvæg? „Já, þetta er auðvitað fyrst og fremst mikilvægt fyrir krakkana, því mikill hluti þeirra var að fara erlendis í fyrsta skipti og fannst þetta mjög spennandi og skemmtilegt." -Verður eitthvert áframhald á þessum mótum? „Því miður á að fara að breyta þessu, það á að kúpla allar íþrótt- ir út úr kerfinu þannig að þetta var síðasta mótið í bili a.m.k. í Gísli Aðalsteinsson. Mamma hennar bætti við að Heymleysingjaskólinn væri ríkis- rekinn og þar væri heimavist fyrir utanbæjarfólk. - Lærið þið það sama í Heym- leysingjaskólanum og aðrir krakkar læra annars staðar? „Nei ekki alveg, það er erfið- ara hjá okkur en við erum með svipaðar bækur og aðrir krakkar, t.d. alveg sömu reikningsbæk- urnar.“ - Geta heyrnarlausir farið í framhaldsnám? „Já, það er hægt, þá fer fólk með túlk í skólann sem þýðir mál fyrir nemandann.“ Og svo benti Árný okkur á dæmi um stelpu sem er í Þroska- þjálfaskólanum og gengur bara vel. - Hvað tekur við hjá þér eftir átján ára aldurinn þegar Heym- leysingjaskólanum lýkur? „Við Heymleysingjaskólann er hægt að fá aðstoð við framhalds- nám, við eins konar framhalds- deild, t.d. er einn núna að læra á tölvu við þessa framhaldsdeild.“ - Eiga heyrnarlausir sér félag? „Já, já, félag heyrnarlausra staðinn á að taka fyrir hluti eins og listir og bókmenntir og þess háttar, það yrði þá bara fyrir full- orðna og ekkert fyrir börnin. En fararstjórar, yfirmenn og þjálfar- ar frá hverju landi ætla að reyna að koma íþróttunum inn aftur, ekki að láta þetta detta niður því mikilvægasta starfið er að mínu mati það að tengja krakkana.“ - Áð lokum, hvernig var næt- urlífið í Álasundi? „Ja við urðum ekki vör við neitt næturlíf, það var hreint ekk- ert um að vera, en þetta er nú býsna stór borg þannig að nætur- líf er sjálfsagt eitthvað.“ Sem uppástungu um stærð borgarinnar féllst Guðrún á að hún væri stærri en Borðeyri en minni en New York. Árný J. Sigurjónsdóttir Heymarlausir eru hópur sem almenningur verður ekki mikið var við, kannski aðallega vegna þess að táknmál er ekki mál sem margir hafa tök á að læra og tala. Okkur lék forvitni á að vita meira um heyrnarlausa og ræða því við heyrnarlausan ungling og fyrir valinu varð fjórtán ára stúlka Árný Sigurjónsdóttir. Okkur til hjálpar voru systir og móðir Ár- nýjar sem túlkuðu fyrir okkur og útskýrðu spurningarnar fyrir Árnýju þegar við spurðum óskýrt en það gerðist æði oft. - í hvaða skóla ert þú? „Ég er í Heyrnleysingjaskólan- um í Reykjavík. Ég fór þangað þegar ég var fjögurra ára og verð þar þangað til ég verð átján ára, það er mjög gaman.“ Guðrún Ýrr Tómasdóttir. sem er á Klapparstígnum í Reykjavík, þar fer allt félagslíf fram, þar hittumst við og teflum, spilum og skemmtum okkur, en á sumrin dettur allt svona starf niður.“ - Er táknmálið alþjóðlegt? „Nei það er öðruvísi í útlönd- um, en við getum samt talað við fólk á Norðurlöndum.“ - Geta heyrnarlausir og heyrnarskertir farið í bíó og i leikhús? Á þeim tæpum tveimur árum sem Allt-síðan hefur verið til, hafa fjölmörg efni fengið þar umfjöllun. En ef ein- hver hefur uppástungu um efni sem hann telur hafa gleymst, er þeim hinum sama velkomið að skrifa til Unglingasíðan/Dagur Strandgötu 31 Pósthólf 58 602 Akureyri 9. júlí 1987 - DAGUR - 7 Árný J. Sigurjónsdóttir. „Já, í leikhúsinu og svo kirkj- unni er eitthvert kerfi, þráðlaust kerfi sem er um allt húsið og er þannig að ef heymarskertir stilla tækin sín á T, þá nema þeir það sem sagt er.“ Og með þessum orðum kvödd- um við Árnýju og fjölskyldu og héldum út í rigninguna. Þráinn Brjánsson Það hefur víst farið fram hjá fæst- um sem höfðu viðtækin sín rétt stillt um síðustu helgi að á Hljóð- bylgjunni fór fram heilmikil maraþondagskrá. Við komum við hjá þeim Hljóðbylgjumönnum og heyrðum í þeim hljóðið. Ómar var í útsendingu þegar við kom- um í heimsókn en Þráinn var til í að slíta sig frá símanum í 5 mínútur til að svara spurningum okkar. Hann var orðinn hálf draugalegur eftir rúmlega 53ja tíma vöku en var samt furðu hress og svaraði þannig spurning- unni, hvernig það hafi komið til að þeir Ómar tóku að sér þessa maraþondagskrá. „Upphaflega þá var liaft sam- band við okkur framan af Botni, það var starfsstúlka þar sem hafði samband við okkur og spurði hvort við gætum komið af stað einhverri svona söfnun, hvort við gætum verið þeim eitthvað innan handar. Við íhuguðum þetta í nokkra daga og ákváðum svo, við tveir að vera hérna í maraþoni eða 60 tíma törn og safna áheit- um á meðan.“ - Og þið hafið unnið þetta í sjálfboðavinnu? „Ja við erum fastráðnir hérna á stöðinni við Ómar og vinnum okkar tíma hérna á virkum dög- um en allt sem við erum hérna umfram það er sjálfboðavinna." - Hvernig hefur söfnunin gengið? „Hún hefur gengið vonum framar, það er alveg óhemju mikið hringt og gefið, ég get nefnt sem dæmi að áður en við byrjuðum, vorum við að gera okkur vonir um 300 þúsund, en núna þegar 6-7 tímar eru eftir erum við búnir að safna rúmum 600 þúsundum, þannig að það hefur aðeins farið fram úr okkar björtustu vonum. Núna stefnum við á að komast upp í 800 þúsund á lokatímunum." - Hverjir eru það sem helst sem kaupa inn lög? „Það er mest fjölskyldur og einstaklingar en fyrirtæki og stofnanir í bænum hafa gefið stórar upphæðir. Það er alls ekk- ert lágmarksgjald það má gefa hvort heldur sem er 50 kall eða 50 þúsund krónur, bara að vera með. Annars er það hæsta sem hefur verið gefið 80 þúsund frá Útgerðarfélaginu fyrir lagið Money, Money, Money með Umsjónarmenn: Helga Fanney Jóhannesdóttir & Rut Valgarðsdóttir Myndir: Kjartan Þorbjörnsson I Abba við erum að fá létt flog fyr- ir þessu lagi enda er það leikið á hverri klukkustund.“ - Hvað vantar mikið upp í kostnað við byggingu sundlaug- arinnar? „Til að laugin verði alveg full- gerð vantar um 3 milljónir. En þann áfanga sem verið var að byrja á núna verður mjög trúlega hægt að klára fyrir þá upphæð sem safnast. Og það er mjög nauðsynlegt að sundlaugin kom- ist í gagnið. T.d. vann ég þarna í tvö ár og er alveg 100% á því að þessi sundlaug er alveg bráð- nauðsynleg. Laugin er ekki stór, en það er í sjálfu sér alveg sama hvað hún er lítil því sundlaug, sama hvað hún er stór er mjög nauðsynleg við þjálfun fatlaðs fólks. Svo er eins og við vitum öll, gaman í sundi og fólkið uppi á Sólborg hefur ekki síður gaman af því en við.“ - Hafið þið haft orðaforða í að tala á milli laga allan þennan tíma? „Já, já, þetta er ekkert mál, bara að bulla nógu mikið.“ Og við samþykkjum að þeir hafa gott lag á að „bulla“ milli laga því að skömmu áður hafði Ómar talað af mikilli snilld um nefið á Barry Manilow!!! - Haldið þið að svefninn verði ekki sætur eftir alla þessa vöku? „Jú við sofum örugglega mjög vel á eftir.“ - Eitthvað að lokum? „Já ég vil gjarnan koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem lögðu fram peninga til styrktar þessu mikilvæga málefni.“ Þráinn Brjánsson. Hvað finnst þér um nýju ríkisstjórnina? Rögnvaldur Sigurðsson: Það er svo sem allt í lagi með þessa stjórn. Mér þykir þessir ráðherrar nokkuð góðir. Það verður að gefa Þorsteini tæki- færi. Torfi Matthíasson: Mér líst þokkalega vel á hana. Er ánægður með suma ráðherr- ana, hefði viljað aðra í sumum ráðuneytum t.d. finnst mér að það hefði mátt sleppa Matthíasi Á. Mathiesen. Þorsteinn Kristjánsson: Mér finnst hún hryllileg. Mér líst ekki á Þorstein Pálsson og heldur ekki á að Alþýðuflokkur- inn sé orðinn þriðja hjólið undir vagninum. Rósa Friðjónsdóttir: Mér líst mjög illa á þessa stjórn. Þetta er hægristjórn og ég er á móti slíkum stjórnum. Þorbjörg Jóhannsdóttir: Um stjórnina? Mér líst alls ekki á hana.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.