Dagur - 06.10.1987, Blaðsíða 1

Dagur - 06.10.1987, Blaðsíða 1
 c s. dún- stakkar HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Skip keypt frá Kína? „Af hverju aka ekki allir á Trabant?" - spyr Gunnar Ragnars forstjóri Siippstöðvarinnar „Þessari spurningu má svara með annarri sem er svona: Af hverju aka ekki allir íslending- ar á Trabant,“ sagði Gunnars Ragnars forstjóri Slippstöðvar- innar hf. á Akureyri þegar hann var spurður álits á frétt- Verðlækkun á rækju: „Tekjuskerðing sjómanna er meiri“ - segir Guðjón Jónsson Yfirnefnd verðlagsráðs ákvað á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að lækka verð á rækju um 10-14,5%, eftir flokkum. Sjómenn eru að von- um mjög óánægðir með lækk- unina og ræddu meðal annars mótmæli á þann hátt að sigla í land. „Það kemur ekki allt fram þeg- ar rætt er um þessa lækkun. Pað má ekki gleymast að fyrir fáum vikum tóku verksmiðjurnar þá ákvörðun að fara að greiða lægra verð fyrir smárækjuna. Hlutfall smárrar rækju í aflanum fer vax- andi og því er tekjuskerðing sjómannanna verulega meiri en sem nemur þessari lækkun verð- lagsráðs," sagði Guðjón Jónsson formaður Sjómannafélags Eyja- fjarðar í samtali við Dag. ET um af því að íslenskir útgerðar- menn væru nú að leita fyrir sér með kaup á skipum frá Kína þar sem þau væru smíðuð fyrir a.m.k. fimmfalt lægra verð en „sambærileg“ íslensk skip. Um ríkisstyrki iðnaðar almennt sagði Gunnar það væri alvarlegt að íslensk stjórnvöld hefðu ekki brugðist við þeim á einhvern hátt. Um væri að ræða samkeppni við deyjandi iðnað í mörgum Evrópulöndum sem reynt væri að bjarga með niður- greiðslum á vinnuafli og öðrum aðföngum. Gunnar sagði það mjög alvarlegt ef horfa ætti upp á þessar þjóðir þrengja sér inn á okkar auðlind með því að yfir- taka íslenskan skipasmíðaiðnað. „Ég hef trú á að stjórnvöld hljóti að gera eitthvað í þessu máli. Við biðjum ekki um styrki því ég tel þá vera af hinu illa, en hins vegar finnst mér eðlilegt að skipasmíðaiðnaðurinn komi inn í stjórnun fiskveiða, til dæmis á þann hátt að þeim útgerðar- mönnum sem kaupa innlend skip verði úthlutað rýmri kvótum en ella. Pað er líka umhugsunarefni fyrir útgerðarmenn að ef innlend- ar skipasmíðastöðvar missa þá kjölfestu sem nýsmíðarnar eru þá geta þær ekki haldið uppi því við- haldi sem alltaf verður nauðsyn- legt. Þá er staðan orðin svört ef leita þarf til erlendra aðila með allt sem uppá kemur,“ sagði Gunnar. ET ar á húsi sem verið er að byggja við Hjallalund 18. í bókun Tómasar segir að hann telji óráð- legt að byggja hærra en fjórar hæðir á meðan slökkviliðið hafi ekki tækjabúnað til björgunar- og slökkvistarfa í meira en 10 metra hæð. Slökkviliðið á engan körfubíl og þeir bílar sem það hefur aðgang að hjá rafveitu og Slipp- stöðinni eru óhentugir og ná ekki nema í 7-8 metra hæð. Stigar slökkviliðsins ná mest í 10 metra hæð og hærra er ekki talið ráðlegt að fara í slíkum búnaði. ..Það er ekki hægt að halda á fólki í svona stiga þannig að meðvitundarlaus maður verður ekki sóttur í svona mikla hæð,“ sagði Tómas. Síðastliðinn vetur athugaði Tómas möguleika á kaupum á notaðri bifreið með lyftubúnaði sem ná myndi í allt að 20 metra hæð. Verð á slíkri bifreið reynd- ist vera 2-3 milljónir nýr bíll kost- ar um 9-10 milljónir. Þegar kom- ið var að því að leggja í kostnað til að líta á gripinn dagaði málið uppi í bæjarkerfinu. Umsókn um körfubíl er því enn ósvarað. Aðeins er til beinagrind að reglugerð um tækjakost slökkvi- liða og þar segir, án þess að nokkur þurfi að taka mark á, að þau eigi að ráða yfir tækjum sem ná vel yfir þakbrúnir hæstu húsa. ET Jóscp Hallsson við eina af bifreiðum slökkviliðsins. Slökkviliðið hefur ekki tækjabúnað til slökkvistarfa í meira en 10 metra hæð. Mynd: tlv 5-6 hæða hús við Hjallalund: „Meðvitundaiiaus maður verður ekki sóttur í slíka hæð“ - segir Tómas Búi Böðvarsson slökkviliðsstjóri en umsókn slökkviliðsins um körfubíl er enn ósvarað „Þetta þýðir það að ef tU kemur getum við ekki bjargað fólki ofan af þessum efstu hæðum, því við náum ekki til þeirra. Þetta finnst mér óráðlegt,“ sagði Tómas Búi Böðvarsson slökkviliðsstjóri á Akureyri í samtali við Dag, en á fundi byggingarnefndar 23. septem- ber lét hann bóka mótmæli við hækkun fjölbýlishúss við Hjallalund. Húsið verður hæsta íbúðarhús á Akureyri. Bygginganefnd samþykkti á fundinum að heimila að byggð verði 6. hæð ofan á hluta 5. hæð- Alvarleg þróun í húsnæðiskerfinu: „Nauðsynlegt að Norðlendingar sæki um lán úr almenna kerfinu" -segirHákon Hákonarson formaður stjórnar verkamannabústaða á Akureyri Gífurleg aukning hefur að undanförnu orðið í ásókn fólks efttir húsnæði í verkamanna- bústaðakerfí Akureyrar og er skemmst að minnast þess þeg- ar 97 umsóknir bárust um 22 íbúðir. Hjá stjórn verka- mannabústaða á Akureyri hafa menn nokkrar áhyggjur af því að fólk velji þessa leið frekar en að sækja um lán frá Hús- næðisstofnun því langur bið- tími þar fæli fólk frá. „Af samtölum við umsækjend- ur okkar virðist mér alveg greini- legt að stór hluti þessa fólks sækir ekki bara um hjá okkur vegna þess að við bjóðum bestu kjör sem þekkjast, heldur líka vegna þess að sú langa bið sem mikið er talað um að sé eftir lánum í almenna kerfinu hefur fælt það frá. Ef þetta er ráðandi viðhorf þá Byggingaframkvæmdir á Akureyri. er um mjög alvarlegt mál að ræða. Afleiðingin verður einfald- lega sú að fólk á suðvesturhorn- inu situr áfram að „kjötkötlun- um“ í Húsnæðisstofnun en við einangrumst enn frekar. Auk þess getur þetta leitt til þess að eðlilegur uppgangur byggingar- iðnaðarins hér á Akureyri dragist enn í einhver ár. Ég vil því hvetja þá sem hyggja á kaup á nýju eða notuðu húsnæði að sækja nú þeg- ar um lán úr almenna kerfinu,“ sagði Hákon Hákonarson stjórn- arformaður Verkamannabústaða á Akureyri. Aðspurður sagði Hákon að ekki væri hægt að svara því játandi eða neitandi hvort verkamannabústaðakerfið þyldi þessa ásókn því það væri fyrst og fremst háð þeim fjárveit- ingum sem ríki og sveitarfélög veittu í kerfið. „Hvað Akureyri varðar þá má segja að við séum hér með sömu þjónustu og Reykjavíkursvæðið en færri skattborgara til að bera hana uppi. Þess vegna brennur mjög á sveitarstjómarmönnum sú spuming hvort veita eigi fé í þetta fremur en uppbyggingu til dæmis gatna eða dagvista,“ sagði Hákon. ET •vf

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.