Dagur - 06.10.1987, Blaðsíða 3

Dagur - 06.10.1987, Blaðsíða 3
6. október 1987 - DAGUR - 3 Samband fiskvinnslustöðvanna: Mótmælir launaskatti á fiskvinnsluna Á laugardaginn brautskráði Bernharð Haraldsson skólameistari Verkmenntaskólans sjö sjúkraliða af heilsugæslu- braut skólans. Stúlkurnar heita, frá vinstri talið: Brynja Sigurðardóttir, Eydís Hrönn Vilhjálmsdóttir, Eygerður Þorvaldsdóttir, Fjóla Hersteinsdóttir, Halldóra B. Skúladóttir, Harpa Jónsdóttir og Signý Hreiðarsdóttir. Mynd: tlv Blönduós: Olvun unglinga á dansleikjum vitnar til „Mér fínnst skjóta skökku við að á almennum dansleikjum í félagsheimilum þar sem á að vera vínveitingabann geti nán- ast hver sem er haft með sér áfengi inn,“ sagði Sigfríður Angantýsdóttir, varaformaður Æskulýðs- og íþróttanefndar Blönduóss, þegar Dagur hafði samband við hana vegna bókunar nefndarinnar frá 24. ágúst en þar komu félagsmál unglinga, æskulýðsmál o.fí. til umræðu. Akureyri: Þó nokkuð um stærri ráðstefnur í vetur Æskulýðs- og íþróttanefnd reynslu Húsvíkinga af aðgerðum 1 bókun nefndarinnar frá 24. ágúst segir orðrétt: „Fram kom að nefndarmenn höfðu áhyggjur af því hve auðvelt er fyrir ung- menni sem ekki hafa aldur til að komast inn á almenna dansleiki í héraðinu. Á þessum dansleikjum er víndrykkja oft úr hófi fram og þar reynist unglingum allt of auð- velt að nálgast áfengi. Nefndin veltir því þeirri spurningu upp hvort ekki sé hægt að sporna gegn þessari þróun hvað varðar Blönduós með því að fá vínveit- ingaleyfi fyrir félagsheimilið á Blönduósi. í því sambandi vill nefndin benda á reynslu Húsvík- inga og þeirra aðgerðir í hlið- stæðu máli.“ Tilgangurinn með vínveitinga- leyfi fyrir félagsheimilið væri að hækka aldurstakmarkið inn á almenna dansleiki. Jafnframt yrði, að sögn Sigfríðar, komið á fót aðstöðu fyrir yngra fólk til áfengislausra skemmtana á efri hæð félagsheimilisins þar sem verður æskulýðs- og félagsmið- stöð. Nýráðinn æskulýðsfulltrúi, Sverrir Þórisson, mun hafa umsjón með starfseminni. Að sögn Sigfríðar verður þetta mál tekið til athugunar í þeim nefnd- um sem um málefni unglinga fjalla, ennfremur verður það tek- ið fyrir í áfengisvarnanefnd. Það verður að koma í ljós hver niður- staðan af þeirri umræðu verður og hvort einhver breyting verður á fyrirkomulagi almennra dans- leikja. Það skal tekið fram að víða um land mun pottur vera brotinn varðandi aðgöngu unglinga og áfengisneyslu þeirra á almennum dansleikjum. Ástandið er síst verra í þessum efnum á Blöndu- ósi en í mörgum öðrum sveitar- félögum. EHB Valdemar Baldvinsson hf.: Ekki smásöluverslun í nýbyggingunni Nú þegar vetur er um það bil að ganga í garð, má greina hin- ar ýmsu breytingar þ.á m. á félagslífí fólks. Veturinn er tími tómstunda, félagsmála og fundarhalda. Dagur kannaði á stærstu stöðum Akureyrar hvort mikið væri um ráð- stefnu- og fundabókanir fyrir veturinn. Friðjón Árnason hjá Svartfugli sagði að nokkuð væri þegar farið að bóka vegna funda- og ráðstefnuhalds. Fram til 15. nóvember verða þar t.d. þrjú þing og ein ráðstefna svo eitthvað sé nefnt. Ólafur Laufdal sagði að enn hefðu ekki borist bókanir um ráðstefnuhald í Sjallanum enda hefði slík starfsemi ekki farið fram þar áður. „En við erum nú að fara af stað með augiýsinga- herferð sem að þessu lýtur, því við viljum endilega fá fleira fólk norður." Hjá Hótel KEA er að sögn Gunnars Karlssonar hótelstjóra þó nokkuð mikið um ráðstefnu- bókanir. Þær ná langt fram á næsta ár enda sagði Gunnar að stærri ráðstefnur væru yfirleitt bókaðir eitt til tvö ár frarn í tímann. „Það hefur verið aukinn áhugi fyrir ráðstefnuaðstöðunni hjá okkur og mikil ánægja ríkj- andi með hana.“ VG „Ég hef heyrt þetta áður en sannleikurinn er sá að húsnæð- ið nægir aðeins fyrir þá starf- semi sem við rekum nú þegar,“ sagði Hólmgeir Valde- marsson, þegar hann var spurður að því hvort rétt væri að hann hyggðist reka smá- söluverslun af einhverju tagi í nýbyggingu Heildverslunar Valdemars Baldvinssonar á Akureyri. Að sögn Hólmgeirs verður ekkert af rekstri sntásöluverslun- ar á vcgunt fyrirtækisins í bráð. Þó væri lóðin við Tryggvabraut það stór að hún byði upp á ýnisa möguleika í framtíöinni. „Lagerinn fór inn um síðustu helgi og skrifstofurnar vonandi fyrir áramót. Þetta verður því komið í fullan gang innan tíðar. Söluþreifingar standa yfir varð- andi gamla lagerplássið og núver- andi skrifstofuhúsnæði. Ég hef ekki viljaö auglýsa þetta til sölu hingað til því ég var ekki viss um hvenær hægt væri að rýma hús- næðið en það er að verða ljóst um þessar mundir," sagði Hólm- geir Valdentarsson. Nýbygging heildverslunarinnar við Tryggvabraut er 1540 fer- metrar að gólffleti. EHB Nýjum bílum fjölgar í september skráði Bifreiðaeftir- lit ríkisins 1580 nýja bíla og stór bifhjól. Hefur bifreiðaeftirlitið þá skráð á fyrstu 9 mánuðum árs- ins 17.742 nýja bíla og stór bif- hjól. Allt árið 1986 skráði bifreiða- eftirlitið 15.895 nýja bíla og stór bifhjól og er því fjöldi nýskrán- inga fyrstu 9 mánuði ársins 1847 umfram fjölda nýskráninga allt árið 1986. Stjórn Sambands fískvinnslu- stöðvanna hefur sent forsætis- ráðherra cftirfarandi ályktun: „Samband fiskvinnslustöðv- anna mótmælir harðlega áform- um ríkisstjórnarinnar um að leggja launaskatt á fiskvinnsluna að nýju. Launaskattur var afnuminn af fiskvinnslunni eftir kjarasamn- ingana í febrúar 1986 til þess að gera henni kleift að taka á sig launahækkanir og kostnað sem fylgdi fastráðningarsamningum sem þá var samið um. Með því að leggja launaskatt á fiskvinnsluna að nýju er verið að gefa í skyn að þessi kjarabót hafi verið óþörf og hana beri að afnema, eða hins vegar, verið að kalla á gengisfellingu sem skattinum nemur. Fiskvinnslan á í harðri sam- keppni við ríkisstyrkta fisk- vinnslu í nágrannalöndunum og allir sem að fiskvinnslu standa, stjórnendur og starfsfólk, þurfa á styrk og hvatningu að halda til að standa sig í þessari samkeppni, en meö skattlagningu sem þessari er verið að lama baráttuvilja þessa fólks. 1 komandi kjarasamningum mun reyna á samstöðu lands- manna allra um að halda verð- bólgunni í skefjum og fiskvinnsl- an hefur fullan hug á að svo verði gert. Með þessari skattlagningu væri ríkisstjórnin hins vegar að gefa upp boltann í nýjan verð- bólguleik. Samband fiskvinnslustöðvanna treystir því að ríkisstjórnin hafi þann skilning á málefnum fisk- vinnslunnar að hún láti af áform- um sínum um að setja launaskatt að nýju á fiskvinnsluna í land- inu." NÝJAR REGLUR UM APEX I INNANLANDSFLUGI Apex er ódýr og þægllegur feröamati lynr þa sem hafa fastráðið hvað þelr verða lengi I ferðmm . Til og frá Reyk/avik: Akureyri kr. 3.828 - Egilsstaðir kr. 5.112 - Hornafiörður kr 4.506.- Husavik kr. 4.336 - isafiorður kr. 3.574 - Noróf/örður kr 5 276 Patreksfjorður kr 3 460 Sauðarkrokur kr. 3.440. Þmgeyn kr. 3.421 Vestmannaeyiar kr. 2.486. Apex fargjöldin gilda einnig i framhaldsflugi með sam- starfsflugfélögum til og frá stöðum fyrir vestan, norðan og austan. Þú færð upplýsingar um þetta hagkvæma ferðafyrirkomulag hjá Flugleiðum, umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. FLUGLEIDIR v»»;. v* W \ ^ HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.