Dagur - 06.10.1987, Blaðsíða 9

Dagur - 06.10.1987, Blaðsíða 9
6. október 1987 - DAGUR - 9 Þingeyinga á Húsavik ára unglingar vildu fá vinnu og ég fékk frí fyrir þá sem það vildu til 2. október. Ég vil sérstaklega þakka þessum unglingum sem hafa skilað alveg framúrskarandi verki. Það má ekki bjóða ungl- ingum svona mikla vinnu því ég hef heyrt til þeirra að þau eru með bakverk af stöðunum, vöðvabólgu og fleira. Það er hægt að ofbjóða unglingunum en ég dáist að þeim fyrir dugnaðinn.“ - Er ekki hópur fólks sem starfar á sláturhúsinu á hverju hausti og finnst það orðinn ómissandi þáttur af tilverunni? „Auðvitað er alltaf einhver hópur sem maður getur gengið að sem vísum til þessara starfa. Eftir því sem menn þjálfast betur í verki verða þeir eiginlega ómissandi því ekki er hægt að hafa óvant fólk í öllum störfum. En það verður líka að þjálfa yngra fólk til að taka við þegar menn eldast og ganga úr sér, það gefur auga leið. Ég er ákaflega sáttur við hvernig þetta hefur gengið í haust. Það er framúrskarandi gaman að vinna með góðu fólki, finna að það hefur áhuga fyrir verkinu og áhuga fyrir að skila góðu verki, það er númer eitt hjá mér.“ - Nú er féð vænt í haust, hvernig kjöt finnst þér best? „Dilkakjötið er nú best, dilka- kjötið höggvið niður og steikt á pönnu á gamla vísu er það besta sem ég fæ og svo líka læri. Ég vil hafa kjötið feitt, þar er ég líklega dálítið sér á parti, en því betur er margt fólk sem borðar feitt kjöt. Ég hef oft orðið hissa á þegar menn eru að biðja um lélegri annan flokk og þriðja flokk, þetta er ekkert kjöt til að gæða sér á, það má borða þetta en það er svo miklu betra að kaupa kjöt af lömbum sem eru vel feit, þó menn skeri fituna af og hendi henni eru vöðvarnir svo miklu betri.“ IM jötskrokkarnir á leið í kælinn. í frystigeymslunni. Sigurveig Buch: „Eínhver víss sjarmí yfir því að fara þetta“ Konur kepptust við að verka vantbir í einum sainum á neðri hæðinni og þar var einnig Sig- urveig Buch sem saltaði vamb- ir niður í tunnu. - Þetta er átjánda haustið sem Sigurveig vinnur á sláturhúsinu. Hefur þú alltaf unnið við að salta vambirnar? „Nei, ég hef verið í þvottinum og saltað gærur, verkað vambir, skorið vambir, snyrt og verið í öllu mögulegu." - Hvað líkar þér best? „Mér líkar best í þvottinum en það er erfitt fyrir mig núna.“ - Finnst þér ómissandi hluti af tilverunni að fara á sláturhúsið? „Það er einhver viss sjarmi yfir því að fara þetta en svo vantar mann líka peninga. Ég er bóndi en það kemur fyrir að ég stunda aðra vinnu.“ - Er líf og fjör hérna og góður mórall? „Það er ágætis andi hérna í þessum sal, en það var miklu skemmtilegra í gamla húsinu? - Hvað var skemmtilegra? „Andinn, maður mátti miklu | meira. Hérna er allt orðið svo vélvætt, of vélrænt mundi ég segja og það má helst ekki líta upp, það var frekar hægt að líta upp í gamla húsinu og þar voru gerð mörg prakkarastrik." - Ætlarðu að vinna hér önnur 18 haust? „Það verður tíminn að leiða í Sigurveig Buch saltar vambir. ljós.“ IM Guðný Káradóttir. Friðbjörn Þórðarson, Sigurrós Þórarinsdóttir, Sigurbjörg Einarsdóttir og Guðný Káradóttir. Myndir: im

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.