Dagur - 06.10.1987, Blaðsíða 11

Dagur - 06.10.1987, Blaðsíða 11
6 *óktóber 1987 - DAGUR - tll góðu. Þeir höfðu þá fengið sér aðeins söngvatn áður. En ég man aldrei eftir neinum illindum hérna.“ - Segðu mér, er það ekki í verkahring réttarstjóra að sjá um ómerkingana og úrskurða ef ein- hver vafi er með mörk? „Jú, það lendir á mér og markadómi. Þegar töfludráttur hefst eru alltaf skipaðir tveir menn í markadóm með réttar- stjóra, og stundum er fjallskila- stjóri í honum líka. Síðan er bara að fletta upp í bókunum og reyna að fara eins nærri því sem hægt er og venjulega gengur allt upp. Stundum sitjum við uppi með ómerkinga í restina og þá er mönnum gefinn kostur á að tileinka sér þá, ef vitað er að þá vantar dilka. Það eru þá venju- lega lömb með merkjum í og eig- endurnir verða að geta nefnt númerið, en það fá þeir ekki að vita,“ sagði Jón réttarstjóri frá Minna-Holti. alla járnsmíði þar. Svo hef ég líka tekið vaktir í Skeiðsfoss-1 virkjuninni, þannig að maður hefur haft næga atvinnu.“ - Hvað kom til að þú fluttir úr kaupstaðnum á sínum tíma og byrjaðir búskap. Var þetta kannski búið að blunda lengi í þér? „Nei, þetta var bara hugdetta. Þannig er að ég var alinn upp við skepnur. Faðir minn vgr með beljur, kindur og hænsni og ég ólst upp við þetta fram að 16 ára aldri, en þá var þetta tekið af honum, eða réttara sagt hann mátti ekki vera með þetta þarna í Kópavoginum. Þannig að maður vissi svona nokkurn veginn hvað maður var að fara út í. Svo hefur það örugglega haft sitt að segja, að konan er úr Fljótunum og við komum alltaf hingað á hverju sumri í sumarfríinu. Mér fannst alltaf þessi sveit taka svo vel á móti mér. Maður sá ekki orðið annað en Fljótin og það endaði svona.“ - Eitthvað að lokum? „Það væri ekki nema þetta með niðurskurðinn. Mér finnst ekki nein spurning, að það hefði borgað sig að hreinsa svæðið alveg af fé. Grunur leikur á að riðan hafi komið upp á einum bæ 1 hér í viðbót og þetta eru það fáir bæir eftir og fátt fé. Ég held að það væri miklu meiri möguleikar að komast fyrir þetta með því að skera niður hjá öllum á sama tíma. Eins og staðið er að þessu núna er ég voðalega hræddur um að hún geti stungið sér aftur nið- ur á þeim bæjum sem fargað hafa fé vegna hennar." -þá *dö var n0‘ yarSeithafurliLy fé Sem Var réf , Nauðungaruppboð þriðja og síðasta, á fasteigninni Ægissíða 34, Grenivík, þingl. eigandi Þórey Aðalsteinsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 12. október kl. 10.40. . Uppboðsbeiðandi er: Árni Pálsson hdl. Sýslumaður Þingeyjarsýslu, Bæjarfogeti Húsavíkur. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta, á fasteigninni Ægissíða 30, Grenivík, þingl. eigandi Gísli Ingólfsson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 12. október kl. 10.20. Uppboðsbeiðandi er: Árni Pálsson hdl. Sýslumaður Þingeyjarsýsiu, Bæjarfógeti Húsavíkur. Nauðungaruppboð þriöja og síðasta, á fasteigninni Skógar I, Öxarfirði, þingl. eigandi Sigurður Hinriksson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 15. október kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru: Sigríður Thorlacius hdl., Veödeild Landsbanka íslands, Búnaðarbanki íslands og Byggða- stofnun. Sýslumaður Þingeyjarsýslu, Bæjarfógeti Húsavíkur. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Mælifell í Mógilslandi Svalb., þingl. eigandi Kaupf. Svalbarðseyrar, Svalbarðs- eyri, fer fram ( skrifstofu embættisins Húsavík mánud. 12. október kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru: Brunabótafélag íslands, Jón Finnsson hrl. og skiptaráðandi Húsavík. Sýslumaður Þingeyjarsýslu. Bæjarfógeti Húsavíkur. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Smáratún 5, Svalbarðs- eyri, þingl. eigandi Kaupfélag Svalbarðseyrar, fer fram í skrifstofu embættisins Húsavík mánud. 12. október kl. 10.10. Uppboðsbeiðendur eru: Brunabótafélag (slands og skipta- ráðandi Húsavík. Sýslumaður Þingeyjarsýslu, Bæjarfógeti Húsavíkur. Auglýsing i Degi BORCAR SIC Hvað er góö auglýsing? Allir auglýs- endur borga fyrir að fá auglýsingu birta í blöðum. Hvers vegna auglýsa fyrirtæki þá vöru sína? Jú, til þess að hún seljist. Þannig er hægt að láta auglýsingu borga sig. En þaðer ekki sama í hvaða blaöi auglýst er, þvf mörg hafa litla útbreiðslu og fáa lesendur. Dagur hefur aftur á móti mikla útbreiðslu og lesendur eru fjölmargir. Það borgar sigþví að aug/ýsa i Degi. þar eru allar auglýsingar góðar aug lýsingar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.