Dagur - 07.10.1987, Blaðsíða 5
7. október 1987 - DAGUR - 5
Verð á rafmagni lækkar
- Smásöluverð ársins 1987
tæplega 8% lægra að raungildi en 1986
Þann 1. ágúst hækkaði Lands-
virkjun gjaldskrá sína um
9.5% en RARIK hækkaði
smásölugjaldskrá sína að með-
altali um rúm 10%. Þrátt fyrir
þessa hækkun núna, er meðal-
hækkun smásöluverðs RARIK
milii áranna 1986 og 1987 að-
eins um 8.5% meðan gert er
ráð fyrir 17.5% hækkun bygg-
ingarvísitölu á sama tíma.
Raunlækkun er því milli 7 og
8% frá meðalverði ársins 1986
til meðalverðs ársins 1987, að
meðtaldri hækkuninni 1. ágúst.
Um síðustu áramót fóru Raf-
magnsveitur ríkisins fram á
10.5% hækkun, en fengu aðeins
heimild til 7% hækkunar á með-
an Landsvirkjun hækkaði sína
gjaldskrá um 7.5%.
Þegar borin er saman gjald-
skrárhækkun hjá RARIK og
Landsvirkjun, er nauðsynlegt að
hafa í huga afar mikilvægt atriði.
Smásöluverðshækkun skilar sér
seint í tekjum RARIK, þar sem
orkureikningar eru aðeins gefnir
út á 2ja mánaða fresti í allflestum
tilvikum.
Hins vegar eykst kostnaður
RARIK vegna orkukaupa af
Landsvirkjun strax og gjaldskrár-
hækkun á sér stað. Því þyrftu þær
rafveitur sem kaupa þurfa meg-
inhluta þeirrar orku sem þær afla
sér, að hækka smásölugjaldskrár
sínar, a.m.k. einum og hálfum
mánuði áður en heildsöluverðið
hækkar, til að jöfnuður náist.
Þess má geta að víða erlendis
mun það tíðkast að heildsöluaðil-
inn tilkynnir um hækkun með
nokkurra vikna, jafnvel mánaða,
fyrirvara.
Orkuverðið enn á niðurleið
Smásöluverðið er nú svipað að
raungildi eins og það var áður en
1903 1984 1985 1986 1987
Verðþróun heimilishitunar RARIK miðað við byggingarvísitölu ágúst ’83-
’87.
81 82 83 84 85 86 87
Meðalverð í smásölu til notenda samkvæmt gjaldskrá 1981-1987. Miðað er
við byggingarvísitölu og verð 1981 sett jafnt og 100.
orkuverðið hækkaði hvað mest á
árunum 1982-1984.
Á meðfylgjandi myndum má
sjá hvernig smásöluverð raforku
hefur þróast á undanförnum
árum. Verðlækkunin hefur verið
hröð, en búast má við að eitthvað
dragi úr þeim hraða.
Landsvirkjun boðaði á síðasta
ári, að orkuverðið gæti lækkað
um nálægt 3% að raungildi á ári
næstu árin, en ljóst er að lækkun-
in hefur orðið öllu meiri í byrjun
en gert var ráð fyrir.
- Fréttabréf RARIK -
Úvegsmenn
Norðurlandi
Aðalfundur Útvegsmannafélags Norðurlands
verður haldinn fimmtudaginn 8. okt. kl. 13.30 að
Hótel KEA.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Kristján Ragnarsson formaður L.Í.Ú. kemur á
fundinn.
Stjórnin.
Bann við akstri
fjórhjóla
Með vísan til laga og reglugerðar um náttúru-
vernd (nr. 47/1971) er allur óþarfa akstur
utan vega eða merktra vegaslóða bannaður í
lögsagnarumdæmi Akureyrar.
Bæjarstjóri.
AKUREYRARBÆR
Dagvistir Akureyrar
auglýsa eftir fóstru
eða fólki með aðra uppeldismenntun
til stuðnings sérþarfabörnum á deild.
Einnig vantar fólk til starfa í afleysingar og
ræstingar á Lundarseli
Allar nánari upplýsingar veittar í síma 25880
virka daga frá kl. 10-12.
Dagvistarfulltrúi.
AKUREYRARÐÆR
Félagsmanna afsláttur
20” M @ sjónvarp með
fjarstýringu. Verð til félagsmanna sem er hreint ótrúlegt.
Kr. 28.400.-, staðgreitt. Kr. 29.900.-, afborgunarverð
Verð til annarra en félagsmanna.
Kr. 31.750.-, staðgreitt. Kr. 33.400.-, afborgunarverð
JVC Hr-D 210 E
HQ myndbandstæki með fjarstýringu.
Gæðatæki á góðu verði.
Verð til félagsmanna
Kr. 39.700.-, staðgreitt. Kr. 41.700.-, afborgunarverð.
Verð til annara en félagsmanna
Kr. 41.700.-, staðgreitt. Kr. 43.900.-, afborgunarverð.