Dagur - 07.10.1987, Blaðsíða 11
7. október 1987 - DAGUR - 11
Minning:
Sigurðardóttir
frá Merkigili
Fædd 1. júlí 1893 - Dáin 19. september 1987
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund.
(V. Briem.)
Pað kom mér ekki á óvart þegar
mér var tilkynnt andlát ömmu
minnar þann 19. september sl.
Eg vissi að hverju dró, bæði
vegna versnandi heilsufars og
aldurs hennar.
Hún þráði sjálf að fá hvíldina,
og fyrir hennar hönd má maður
gleðjast.
En það er samt erfitt að venj-
ast því, að hún er ekki lengur á
meðal okkar. Amma hafði gam-
an af að vera innan um fólk, var
ræðin og glaðlynd.
Hún hafði sitt skap eins og aðr-
ir og setti fram sínar skoðanir á
hlutunum. Þannig kom hún mér
fyrir sjónir, en ég er nú kannski
ekki rétta manneskjan að dæma
um það, við vorum of tengdar til
þess.
Ég tel að hún hafi verið trúuð,
þó að hún ræddi ekki mikið um
þau mál. Hins vegar sagði hún oft
að ef eitthvað gengi miður vel,
eða manni liði illa þá væri gott að
fara með bænirnar sínar.
Ég tel mig hafa þekkt hana vel.
Þegar ég minnist ömmu fyrst var
ég 4-5 ára og atvikin höguðu því
þannig að ég var heimilisföst hjá
henni um tíma, þá var afi minn
einnig á lífi. Síðan höfum við alla
tíð haft mikið samband og mér
finnst ég hafa henni svo mikið að
þakka í gegnum árin.
Ég minnist þess, þegar hún var
að reyna að kenna mér að lesa.
Það gekk nú svona og svona,
enda bókin ekki til þess fallin. En
ég fékkst ekki til að líta á aðra
bók, enda var hún full af
myndum.
Ég minnist bernskuáranna,
þegar ég fékk að fara í heimsókn-
ir til ömmu og afa, hvað þá var
haft fyrir litla gestinum. Ævin-
lega færði hún mér morgunkaffið
í rúmið, kakó og smurt hveiti-
brauð sem hún bakaði sjálf, og
enn í dag er þetta í miklu uppá-
haldi hjá mér. Mér finnst ég
ennþá finna ilminn og bragðið.
Ég man alla hjálpina sem hún
veitti mér eftir að ég fór sjálf að
halda heimili. Haust eftir haust
kom hún í sláturtíðinni mér til
hjálpar. Ég minnist stundanna er
við sátum tvær einar og saumuð-
um keppi, venjulega á kvöldin,
þá var nú margt spjallað. Hún
var alltaf að reyna að fræða
mann. Ég hafði mjög gaman af
að heyra hana segja frá uppvaxt-
arárum sínum, einnig töluðum
við mikið um ættfræði, sem hún
hafði alla tíð gaman af. Við gát-
um líka setið án þess að það færu
mörg orð á milli okkar, hvor með
sínar hugsanir.
Ófáir eru líka leistarnir og
vettlingarnir sem hún prjónaði1
handa mér og mínum, það var
] eins og hún vissi þegar þetta
vantaði.
Amma hafði gaman af lestri
góðra bóka ekki síst eftir að
aldurinn færðist yfir, enda ekki
haft mikinn tíma á búskaparárum
sfnum til lestrar. Oft þegar kom-
ið var í heimsókn á seinni árum
til hennar, sat hún með prjónana
sína og hafði opna bók á borð-
inu. Marga bókina hefur hún gef-
ið mér, en ein þeirra er mér
kærust. Ekki fyrir að bókin sjálf
væri merkari en aðrar bækur
bókmenntalega séð, heldur fyrir
það sem amma sagði þegar hún
rétti mér hana: „Afi þinn átti
þessa bók og ég hélt að þú hefðir
gaman af að eiga hana til
minningar um hann.“
Þetta eru einungis nokkur
myndbrot minninga um það sem
amma var mér og minni fjöl-
skyldu. Ég hef kannski ekki alltaf
metið það sem skyldi. Við vorum
ekki alltaf sama sinnis, en miðl-
uðum málunum, svo ég held að
við höfum aldrei skilið ósáttar.
Ég tel að hún hafi verið lánsöm í
lífinu enda sagði hún það oft
sjálf. Hún átti góðan eiginmann og
börn. Hún átti því láni að fagna,
að þótt aldurinn væri orðinn hár,
þá gleymdist hún ekki. Það voru
svo margir sem komu til hennar
bæði vinir og vandamenn og var
hún þakklát fyrir. Margt mætti
fleira segja um hana, en ég læt
hér staðar numið. Gamla konan
var aldrei mikið fyrir að láta
hrósa sér í lifanda lífi, né hlusta á
þakkarorð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Barnabarn.
Lionessur:
Almennur líknardagur
á fimmtudaginn
- verða með fjáröflun fyrir Fæðingardeild F.S.A.
í gærkvöld sátu konur í Lion-
essuklúbbnum Osp á Akureyri
og unnu aö pökkun vegna fjár-
öflunar sem á döflnni er. Á
flmmtudaginn kemur 8. októ-
Nýtt fyrirtæki hefur hafið starf-
semi sína á Akureyri, Ábendi sf.
Pað býður einstaklingum, fyrir-
tækjum og stofnunum aðstoð við
ráðningar. Einnig er veitt hvers
konar náms- og starfsráðgjöf fyr-
ir þá sem eru að velja nám eða
•starf fyrir framtíðina eða hyggja
á breytingar í starfi. Ennfremur
er boðið upp á námskeið og ráð-
gjöf við starfsmannahald.
Starfsemin byggir á velþróuðu
kerfi frá Minnesota, sem spáir
um áhuga og velgengni í starfi út
frá áhugasviðum og starfsþörfum
fólks. Þannig er tryggt að kröfur
starfsins og áhugi einstaklingsins
og hæfileikar falli sem best
saman.
Ábendi sf. á Akureyri er sjálf-
ber, sem er almennur líknar-
dagur hjá Lionshreyfíngunni,
ætla þær að byrja að ganga í
hús í bænum og bjóða vöru
sína til sölu.
stætt fyrirtæki. Pað er rekið í
samvinnu við Ábendi sf. í
Reykjavík og með sama sniði.
Eigendur eru Valgerður Magnús-
dóttir og Stefanía Arnórsdóttir.
Ábendi sf. er til húsa að Brekku-
götu 1, sími 96-27577.
Unnur Björnsdóttir sagði í
samtali við Dag, að nú væri
vetrarstarfsemi klúbbsins að
hefjast. Á stefnuskrá þeirra eru
líknarmál og eru tekin fyrir
ákveðin verkefni í senn. Verk-
efnið sem þær taka fyrir nú er
Fæðingardeild FSA. Úr nógu
mun vera að moða varðandi hvað
keypt verður fyrir peningana sem
safnast því eins og Unnur sagði,
„óskirnar eru nægar“.
Konurnar munu bjóða til sölu
„heimilispoka" sem eru mismun-
andi stærðir af plastpokum, allt
frá stórum ruslapokum og niður í
minnstu gerð. Þessa poka setja
þær í einn haldapoka og verða frá
fimmtudegi og fram á helgi bæði í
bænum og að ganga í hús að
selja. VG
Starfskraftur óskast
á sólstofu
Upplýsingar í síma 23776 eftir kl. 20.
Ábendi sf.
- nýtt fyrirtæki á Akureyri
Fyrirtækiseigendur, umboð, þjónustur á
Akureyri og nágrenni.
Athugið frábært
tækifæri
til að skrá sig og auglýsa í nýrri og frábærri þjón-
ustuskrá sem mun koma út á Norðurlandi
eystra og verður dreift í öll hús ÓKEYPIS á
svæðinu.
Hagstætt verð.
Kemur út rétt fyrir jólin.
Sími hjá sölumanni á Akureyri 23491 frá
kl. 18-20 og á skrifstofunni í Reykjavík í
síma 652239.
Þjónustuskrá
Móabarði 10 - 220 Hafnarfirði.
Tilkynning
frá hjólbarðaverkstæðunum
á Akureyri.
Hér með tilkynnist að eftirtalin verkstæði
verða lengst með opið til kl. 19.00 frá og
með 1. október 1987.
Hjólbarðaþjónustan Hvannavöllum,
Smurstöð Shell-Olís,
Hjólbarðaverkstæði Höldurs,
Gúmmíviðgerð KEA,
Hjólbarðaþjónusta Heiðars,
Dekkjahöllin,
Hjólbarðaþjónusta Gúmmívinnslunar hf.
tJ.'Av
Ritstjórn • Afgreiðsla • Auglýsingar
Strandgötu 31 - Sími 24222.