Dagur - 04.11.1987, Blaðsíða 12

Dagur - 04.11.1987, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - 4. nóvember 1987 „Við erum að hleypa útlendingum aftur inn í landhelgina" - ræða Þrastar Ólafssonar, framkvæmdastjóra Dagsbrúnar, á þingi VMSÍ Góðir þingfulltrúar. Pað hefur löngum verið haft á orði að ísland sé fátækt land á hefðbundinn mælikvarða - land- kostir rýrir. engir málmar í jörðu. óblíð veðrátta og langt úr alfaraleið. Eina auðlind eigum við þó sem hefur gert okkur bjargálna og breytt lúsugu fátækrabæli í bjart og reisulegt slot. Fiskimiðin kringum landið eru dýrmætasta auðlind okkar. Ég segi alltaf okkar því ég tel mér trú um að við - þjóðin öll - eigum miðin í kringum landið. Pjóðin barðist sameiginlega fyrir sjálfs- forræði sínu. Hún barðist öll í mörgunt landhelgisdeilum um yfirráð yfir ntiðunum. Hún hefur sameiginlega skapað þann auð og þá tækni sem gerir okkur kleift að hagnýta þessa auðlind. Hvað sem líður öllum umræð- unt unt verðbólgu. fjárlagahalla eða sláturhúsaleyfi. þá er varð- veisla fiskimiðanna og skynsam- leg nýting þeirra viðamesta og afdrifaríkasta mál stjórnmála nú. Málið er líka óvenju viðkvæmt eins og gefur að skilja og það sem hér er sagt er ekki til að vega að neinum. hvorki einstaklingum né stéttum. Frá árinu 1984 hafa verið í gildi lög unt stjórnun fiskveiða. Þau lög höfðu það að meginmarkmiði í fyrsta lagi að vernda fiskistofn- ana og í öðru lagi að draga úr sóknarkostnaði og stuðla að sem skynsamlegastri nýtingu fiski- stofnanna. Til þess að ná þeini takmörkunum var settur svokall- aður kvóti á skipin. Kvótinn sagði til um það hve mikið af botnfiski hvert skip mætti veiða á hverju ári. En lögin sögðu líka að þeir sem öfluðu fisksins fengju einkarétt til að ráðstafa honum. Miðin voru þannig afhent útgerðaraðilum til einkaráð- stöfunar. Þeir ráða mestu um það hvort siglt er með aflann eða hann er seldur til fiskvinnslu í landi. Þeir ráða sínum kvóta - selja hann á milli landshluta og fiskinn úr landi. ef þeim svo býður við að horfa. Eina takmörkunin á þessu er þar sem eignarhald útgerðar er á hendi fiskvinnslunnar. Með þessu vil ég alls ekki hvítþvo vinnslumenn sjálfa. þeir selja einnig hráefni til vinnslu erlendis - því miður. Allt er þetta gert vegna stundarhagsmuna og skjót- fengins gróða. Fiskurinn veitir þúsundum manna um allt land atvinnu. Lífs- björg þeirra er undir því komin hvort fiskur berst á land eða ekki. Ráðstöfun aflans er því ekki bara inál útgerðar og sjó- manna heldur líka fiskvinnslu- fólks í landi. Því höfum við hreyft við hugmyndinni um að skipta ráðstöfunarréttinum milli þeirra sem afla þ.e. útgerðar og sjómanna og hinna sem vinna hann þ.e. fiskvinnslu og verka- fólks í landi. Meginrökin fyrir því eru, að þannig finni báðir að þeir eru hvor öðrum háðir. An atorku og dugnaðar sjó- manna okkar bærist lítill fiskur á land, án iðni og verkkunnáttu landverkafólks yrði íslenskur fiskur ekki að dýrmætustu fiski- afurð í heimi. En það breytir því ekki að binding kvóta og ráð- stöfunarréttur hans við skipið hefur leitt til afskræmingar á mörgum sviðum. Við lásunt í blöðunum um söluna á Dagstjörnunni hingað til Akureyrar. Hún kostaði litlar 180 m.kr. Skipið sjálft er talið vera 40-60 m.kr. virði - vátrygg- ingarverð þess er unt 80 m.kr. Kvótinn um 2700 tonn er því seldur á 120-140 nt.kr. Hvert kvótatonn er því selt á um 50 þús. kr. eða hvert kíló í kvóta á 50 kr. Hér er því verið að breyta út- hlutuðum kvóta í mikla peninga út á veiðiréttindi á mið sem eru í sameign þjóðarinnar. En hverjir hirða þennan auð? Getum við sungið svona kerfi lof og dýrð? En sagan er ekki öll með þessu. Um leið og skipið er selt er atvinna færð til, rétturinn til að veiða og verka fisk flyst frá ein- um stað til annars. Við lifum í heimi sem er í örri tæknilegri þróun. Tækniþróun við veiðar Óeygir fram og fisk- vinnslan stendur á þröskuldi nýrra tíma. Það verður okkar kynslóð sem nú lifir sem ákveður hvort við ætlum að halda áfram að vera fiskvinnsluþjóð eða útgerðarþjóð. Hvort við viljum vinna fiskinn sjálf eða selja hann sem hráefni í evrópskar vinnslu- stöðvar. Um það snýst málið. Ég fullyrði, að það sé sjómönnum Þröstur Ólafsson. ekki minna hagsmunamál en landverkafólki að hér dafni öflug og sterk fiskvinnsla. Hvað er það annað en verð unninna fisk- afurða sent ákveður til lengri tíma séð - hráefnisverð fisks er- lendis? Hátt verð á unnum fiski í Ameríku leiddi til sama háa verðsins í Evrópu, sem svo aftur dró hráefnisverðið upp. Fiskvinnslan hefur unnið mikið starf í markaðsöflun erlendis og þeir markaðir tryggja okkur hátt verð fyrir fiskinn. Ef íslensk fisk- vinnsla drabbast niður og erlend- ir fiskverkendur ná undirtökun- um á mörkuðunum þá lækkar hráefnisverð erlendis og tekjur sjómanna lækka. Ef fiskvinnslan stendur sig og heldur háu verði á mörkuðunum framvegis þá mun hráefnisverð haldast hátt eða hækka. Undanfarna mánuði hafa söluaðilar fundið að markaðir okkar hafa látið undan síga og styrkur okkar þar fer dvínandi - einkum í Bandaríkjunum. Stórir kaupendur hafa kvatt og þakkað góð viðskipti - nýir hafa ekki komið í staðinn. Og það er ekki vegna þess að gæðin séu slæm eða verðið of hátt heldur vegna þess að það er engan fisk að selja - hann fer óunninn til Grimsby eða Bremerhaven. Þar eru menn í óða önn að endurreisa fisk- vinnslu sína eftir hrun hennar þegar norður-evrópsk ríki lok- uðu fiskimiðum sínum fyrir úthafsverksmiðjum Þjóðverja og togaraflota Englendinga. Með ótæpilegri sölu á vinnslu- hráefni erlendis erum við að hleypa útlendingum aftur inn í landhelgina - en spörum þeim útgerðarkostnað. Efnahagsbandalagið er stað- ráðið í að stjórna fiskveiðum okkar - ekki af góðsemd við okk- ur heldur til hagsbóta fyrir evrópskan fiskiðnað. Til þess þurfa þeir ekki endilega við- skiptasamning heldur þurfa þeir nægilegt hráefni til að byggja upp sterkan fiskiðnað hjá sér. Þegar svo er komið eru þeir orðnir meðstjórnendur í fiskveiðum okkar. Fiskvinnslan - sagði ég áðan - stendur á þröskuldi nýrra tíma. Hún þarf svo sannarlega að bæta sig. Stjórnunin þarf að verða markvissari og einingarnar þurfa að stækka. Til að geta keppt um hráefnið og borgað hærri vinnulaun þarf að tækni- væða frystihúsin og auka sjálf- virkni; stuðla þarf að samruna frystihúsa og sérhæfingu þar eins og í öðrum iðnaði. Auka þarf hráefnisaðstreymið í húsin og lengja vinnslutímann. Þetta kost- ar mikla peninga, en ef ekkert verður að gert dalar þessi iðnað- ur og verður þriðja flokks fyrr en varir. Það er þessi útsýn sem leitt hefur huga okkar að fiskveiði- stefnunni. Og þótt hún geti ekki leyst öll vandkvæði íslensks fiskiðnaðar þá er hún þó sá grundvöllur sem fiskvinnslan stendur á. Ég vil nú fara nokkrum orðum um það kerfi sem notað er við stjórnun fiskveiða án þess að lýsa því ítarlega. Við skulum skoða fjögur atriði til að athuga áhrif kvótakerfisins - eða núverandi útfærslu þess. 1. Eitt af meginmarkmiðum þess var að stuðla að minni sókn - draga úr heildarafla. Þetta hef- ur ekki gengið eftir sem skyldi bæði vegna sveigjanleika í kerf- inu (sóknarmark, smábátar) en einnig vegna þess að ráðuneytið hefur nteð rýmkunarákvörðun- um opnað fyrir meiri veiðar. Sl. þrjú ár hefur verið veitt u.þ.b. 200 þús. tonn untfram tillögur fiskifræðinga. Nú er svo komið að flestir fiskistofnar eru ofveidd- ir og 70% af þeim þorski sem land- að er, er ókynþroska og þetta hlutfall hefur farið vaxandi. Þið vitið hvað það þýðir! Það verður að gera þá kröfu til nýrrar fisk- veiðistefnu að hún fari í einu og öllu að tillögum fiskifræðinga unt heildarafla. 2. Annað aðalmarkmið fisk- veiðistefnunnar er að draga úr sókn, lækka sóknarkostnað, smækka flotann. Vissulega hef- ur núverandi fiskveiðistefna leitt til þess að dregið hefur úr sóknarkostnaði. Útgerðin er rek- in hagkvæmari nú en fyrir Rvóta- kerfið. Þetta breytir því þó ekki að flotinn hefur stækkað þrátt fyrir innflutningsbann. Hér eru göt í kerfinu, sem stoppa verður í. Nýtt kerfi verður að hafa inn- byggða hvata til að smækka flotann. 3. Megin ágalli núverandi kerfis er þó sá aukni útflutningur sem ójafn ráðstöfunarréttur á aflanum hefur leitt af sér. Útflutningur á þorski hefur t.d. tvöfaldast bæði árin 1985 og 1986 og á þessu ári er enn um að ræða verulega aukningu. Þar sem þessu máli hafa þegar verið gerð nokkur skil hér að framan, læt ég þetta nægja. Ný fiskveiðistefna má ekki líta dagsins Ijós án þess að á þessu máli verði tekið, á þann hátt að verulega verði dreg- ið úr útflutningi óunnins fisks. Þetta er meginmál. 4. Hér mætti einnig ræða unt þá byggðaröskun sem orðið getur vegna tilflutnings á kvóta milli héraða. Þá flyst ekki bara skip - veiðitæki - heldur veiðiréttindi. En þá er að lokum spurt: Hvað vill Verkamannasambandið? Vill það óbreytta fiskveiðistefnu eða nýja og þá hvernig? Ég hef í nefnd þeirri um mótun fiskveiðistefnu sem ég sit í fyrir hönd VMSÍ sett fram þau sjón- armið að óeðlilegt sé að binda veiðiheimildir eingöngu við báta og skip. Ég hef talið að eðlilegra sé að jafna aðstöðuna milli þeirra sem í útgerð standa og hinna sem í landi vinna. Það finnst mér sanngirnismál. Auk þess tel ég að með því sé auðveldast að ná fram þeint markmiðum sem ég setti fram hér að framan. En mörgum þykja það of róttækar tillögur og vilja fara með meiri varúð. Auðvitað er hægt að ná sumum af fyrr- greindum markmiðum með öðr- um leiðum. Förum þá yfir mögu- leikana. 1. Ný stefna. Uppskipting kvóta milli vinnslu og veiða. 2. Kvótinn fari á lögaðila þ.e. eigendur skipanna. Myndi leiða til samdráttar í flotanum án þess að raska ráðstöfunarrétti útgerð- araðila. Styrkja eilítið stöðu vinnslu þar sem vinnslan er eig- andi bátanna. 3. Kvótasjóður, kvótasala eða auðlindaskattur. Stofnaður verði e.d. sjóður sem selji veiðiheim- ildir á markaði með eða án hindr- ana. Hætt er við að veiðiheimild- ir myndu fljótlega lenda hjá fjár- sterkustu aðilum jafnvel útlend- ingum sem hefðu fyrir sig leppa hér. Ekki fýsilegur kostur. 4. Lagfæra núverandi kerfi. a. Setja kvóta á úthafsrækju. b. Setja kvóta á smábáta und- ir 10 tonn. c. Setja kvótaskerðingu á út- flutning óunnins fisks. d. Takmarka heildarafla enn frekar. e. Afnema eða takmarka sóknarmark. f. Frekari lagfæringar. Við skulunt að lokum vera þess minnug að fiskimiðin eru sant- eign okkar allra. Afkoma þjóðar- innar er undir því kontin að okk- ur takist að nýta þau sem hag- kvæmast og okkur takist að byggja upp sterka fiskistofna. Verkamannasambandið verð- ur að móta heilstæða stefnu í málefnum fiskvinnslu og fisk- veiðistofna. Afkoma fólks er ekki eingöngu háð kauptöxtum heldur ekki síður stöðu og mögu- leikum þeirrar atvinnugreinar sem fólk starfar við. 32. kjördæmisþing framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldið í Hrafnagilsskóla 13. og 14. nóvember n.k. Þingið hefst kl. 20.30 á föstudagskvöld. Sérmál þingsins eru heilbrigðismál. Erindi flytja: Guðmundur Bjarnason heilbr. og tryggingaráðherra Sigurður Halldórsson héraðslæknir Kópaskeri Margrét Tómasdóttir námsbrautarstjóri Háskólans á Akureyri Regína Sigurðardóttir fulltrúi Sjúkrahúss Húsav. Halldór Halldórsson yfirlæknir Kristnesspítala Gestir þingsins: Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins ásamt fulltrúum frá Landssambandi framsóknarkvenna og Sambandi ungra framsóknarmanna. Nánar auglýst síðar. Formenn félaga eru hvattir til að tilkynna þátttöku til skrifstofu KFNE í síma 21180.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.