Dagur - 09.12.1987, Blaðsíða 1
70. árgangur Akureyri, miðvikudagur 9. desember 1987 235. tölublað
Filman þin
á skiliö þaö
besta'
Nýja Filmuhúsið
Hafnarstræti 106 ■ Sími 27422 Pósthólf 196
H-Lúx
gæðaframköllun
Hrað-
framköllun
Opið á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Slysið í Ólafsfjarðarmúla:
Vinnugalli kom lög-
reglunni á sporið
„Þegar ég kom út úr beygjunni
þá sá ég þessi hjólför sem lágu
beint út af veginum. Það er
engu líkara en ökumaðurinn
hafi álitið veginn halda áfram
og ekki áttað sig á beygjunni,“
sagði Oli Þór Ragnarsson lyf-
sali á Dalvík en hann gerði lög-
reglu viðvart um slysið í Ólafs-
fjarðarmúla í fyrrakvöld.
Bíllinn var á leið inn í bæinn
en í svokölluðu Syðra-Drangsgili
ók hann út af veginum sem fyrr
segir. Vegurinn liggur í a.m.k.
150 metra hæð og neðan hans eru
130-140 metra langar snarbrattar
skriður en .síðan þverhníptir
klettar um það bil 40 metrar á
15
dagar til jóla
hæð niður í fjöru. Þar hafnaði
bíllinn og er gjörónýtur.
Hjálparsveitarmenn komu á
slysstað um klukkan 11.30 og
hófst þá þegar leit að farþega eða
farþegum bílsins. Bátar og togar-
ar lýstu upp hlíðina og eftir
nokkra leit fannst ökumaður bíls-
ins á grasbala skammt fyrir ofan
þverhnípið.
Leit var haldið áfram því ekki
var vitað hvort fleiri hefðu verið í
bílnum. Það var svo ekki fyrr en
um klukkan þrjú um nóttina að
ljóst var hver ökumaður er og að
hann hefði verið einn á ferð, en í
hlíðinni fannst vinnugalli merkt-
ur vinnuveitanda hans.
Um er að ræða 22ja ára ganilan
mann frá Sauðárkróki. Hann
liggur nú á gjörgæsludeild FSA
og að sögn Gauta Arnþórssonar
yfirlæknis var hann smám saman
að komast til meðvitundar. Mað-
urinn hlaut mjög slæman heila-
hristing og útvortis áverka á
höfði en slapp við beinbrot. ET
Merin Mósa kastaði vænu folaldi í gær og hlýtur það að teljast happ fyrir móður og afkvæmi að tíðarfar er eins milt
og raun ber vitni. Mósa er í eigu Þóris Tryggvasonar. Mynd: tlv
Þróunarvei1(efni akureyrskra fyrirtækja:
Verður þekkingu pumpað
út úr landinu ókeypis?
Kaupstaðir
keppa í
Sjallanum
Það verða Akureyringar og
Reykvíkingar sem reyna með
sér í næstu lotu hinnar vinsælu
spurningakeppni Sjónvarpsins,
„Hvað heldurðu?“. Þátturinn
verður tekinn upp í Sjallanum
annað kvöld og sýndur n.k.
sunnudagskvöld.
Keppendur fyrir Akureyri
verða þau Erlingur Sigurðarson
menntaskólakennari, Guðlaug
Hermannsdóttir kennari og
Sigurpáll Vilhjálmsson starfs-
maður hjá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga. Ekki er fullljóst
hverjir munu annast kveðskap og
önnur skemmtiatriði fyrir hönd
Akureyringa.
Lið Reykvíkinga er skipað
þeim Ragnheiði Erlu Bjarnadótt-
ur og Guðjóni Friðrikssyni sagn-
fræðingi en þriðji sveitarmeðlim-
urinn er Illugi Jökulsson blaða-
maður. Ingólfur H. Ragnarsson
galdrakarl annast skemmtiatriði
fyrir hönd Reykvíkinga en hag-
yrðingur þeirra er hinn lands-
frægi Flosi Ólafsson.
Búast má við fjölmenni í Sjall-
anum annað kvöld. BB.
- „Ekki hrifinn af fjölþjóðaverkefnum sem við græðum ekkert á,“
segir Sigurður Ringsted verkfræðingur hjá Slippstöðinni
Á vegum þriggja fyrirtækja á
Akureyri er nýlega farið af
stað umfangsmikið þróunar-
verkefni sem hugsanlega getur
haft í för með sér miklar breyt-
ingar um borð í íslenskum
fiskiskipum. Fyrirtækin eru
Slippstöðin hf., Plasteinangrun
hf. og Vélsmiöjan Oddi hf.
Ráðgjafarfyrirtækið Ari mun
stýra þróunarvinnunni. Fyrstu
niðurstöður verkefnisins eiga
að liggja fyrir í mars.
„Þróun á búnaði og tækni við
meðhöndlun og geymslu á fiski
og fiskafurðum um borð.“ Þetta
er skilgreiningin á markmiðum
verkefnisins.
„Við munum reyna að afla
upplýsinga og hugmynda auk
þess sem öll vinna um borð í
ísfisktogurum verður greind
mjög nákvæmlega. Frystitogarar
verða eflaust eitthvað skoðaðir
líka en ætlunin er að þróa
ákveðna meðhöndlun á fiski um
borð, allt frá því að hann kemur
úr trollinu og þar til hann er kom-
inn upp á bryggju,“ sagði Þorleif-
ur Finnsson verkefnisstjóri í sam-
tali við Dag.
Ætlunin er að með þessu verði
hægt að auka gæði og verðmæti
aflans en ekki síst að auðvelda
vinnuna um borð. Auk þess að
líta á tæknilega hlið málsins
verða markaðsmöguleikar við-
komandi lausna skoðaðir í sam-
hengi.
Verkefni þetta er í óbeinum
tengslum við samevrópskt verk-
efni á vegum Evrópuráðsins,
Eureka, sem miðar að því að
þróa fiskiskip framtíðarinnar.
Hópurinn sótti um og fékk heim-
ild til að leggja niðurstöður sínar
fram sem framlag Islands til
þessa verkefnis en ekki hefur ver-
ið ákveðið hvort sú heimild verð-
ur nýtt.
„Því miður sé ég ekki hvaða
hag við getum haft af því að
leggja þetta fram til Eureka. Ég
er ekkert spenntur fyrir svona
fjölþjóðasamstarfi sem við græð-
um ekkert á. Það er verið að
pumpa þekkingu út úr landinu án
þess að fá neitt fyrir það,“ sagði
Sigurður Ringsted yfirverkfræð-
ingur Slippstöðvarinnar hf. í
samtali við Dag. ET
Verkefni fyrirtækjanna þriggja fjallar um meðferð aflans frá því að trollið
erlosað.
Árlax hf. Kelduhverfi:
Hefur áhuga á matfiskeldi
Eigendur fiskeldisfyrirtækisins
Árlax hf. í Kelduhverfi kanna
nú möguleika á að fara út í
matfískeldi og hafa sótt um lóð
í því skyni. Hingað til hefur
fyrirtækið einbeitt sér að
seiöaeldi og seiðasölu.
Hingað til hefur seiðaeldið far-
ið þannig fram að seiðin hafa ver-
ið alin upp í landi Ártungu í
Kelduhverfi. Þaðan eru þau flutt
í stöð við Kópasker þar sem seið-
in eru seltuvanin, sem kallað er,
en þá venjast þau söltu vatni eða
sjó. Síðan eru þau flutt út í
tönkum, fullum af sjó.
Beiðni um lóðarstækkun við
Kópasker liggur nú fyrir hrepps-
nefndinni og er svars að vænta
innan skamms. Ef leyfið fæst
mun landrými stöðvarinnar
stækka í þrjá hektara lands. Alls
hefur verið varið um tíu milljón-
um króna í aðstöðuna til að seltu-
venja seiðin og mun sú aðstaða
nýtast fyrirtækinu vel ef farið
verður af stað með matfiskeldi.
EHB