Dagur - 15.12.1987, Blaðsíða 1
Stefnumótun í dagvistun:
Kemur til kasta
bæjarstiómar í dag
A fundi bæjarráðs 8. desember
sl. voru teknar fyrir tillögur
félagsmálaráðs um stefnumót-
un í dagvistarmálum. Jón
Björnsson félagsmálastjóri
kom á fundinn og kynnti tillög-
urnar fyrir bæjarráði. Meiri-
hluti bæjarráðs leggur til að
bæjarstjórn samþykki að
félagsmálaráð vinni að þeim
markmiðum sem fram koma í
tillögum.
Sigríður Stefánsdóttir bæjar-
ráðsmaður, sem einnig á sæti í
félagsmálaráði, gerði athuga-
semdir við tillögurnar og var hún
beðin að gera nánari grein fyrir
þeim. Hún sagðist vera sammála
stefnumótunartillögunum í aðal-
atriðum, hefði sjálf unnið að
þeim og væri mjög fegin að tillög-
urnar væru komnar á þennan
rekspöl.
„Aftur á móti lögðum við í
Alþýðubandalaginu, ég og vara-
fulitrúinn, fram nokkrar breyt-
ingartillögur og einhverjar af
þeim náðu í gegn en þær voru því
dagar til jóla
miður smávægilegar sem við náð-
um í gegn. Pó fengum við þarna
inn að námsmenn hefðu forgang
að dagvistum, sem þeir hafa ekki
áður haft hér,“ sagði Sigríður.
Af breytingartillögum sem
ekki voru samþykktar nefndi Sig-
ríður að hún vildi að í uppbygg-
ingu dagvista verði lögð aðal-
áhersla á dagvistarþörf 2-6 ára
barna, en samtímis verði byrjað á
því að leysa brýnustu þörf vegna
barna á aldrinum 6 mánaða til 2ja
ára. Einnig að unnið verði að
stofnun skóladagheimilis utan
Glerár. Meirihluti félagsmála-
ráðs vill hins vegar að áður en
byrjað verði að sinna uppbygginu
fyrir börn yngri en 2ja ára og
eldri en 6 ára verði dagvistarþörf
2-6 ára barna fullnægt til hlítar.
„Þá finnst mér fáránlegt að
hafa inni í stefnumótun að börn
eigi að hætta á dagvist um næstu
mánaðamót eftir að þau verða 6
ára. Flestir eru sammála um að
þetta sé mjög óheppilegt. Við
komum með þá tillögu að börn
sem verða 6 ára á fyrri hluta árs
hætti á dagvist í lok maí, en börn
fædd seinni hluta árs um sumar-
leyfi,“ sagði Sigríður, en stefnu-
mótunartillögurnar verða teknar
fyrir á bæjarstjórnarfundi í dag.
SS
Dansstúdíó Alice hélt árlega nemendasýningu um helgina. Þar komu fram á 3ja hundrað börn og sýndu listir sínar.
Þessi voru þar á meðal og vöktu óskipta hrifningu viðstaddra. Mynd: tlv
Siglufjörður:
Milljónum ekið í burtu
eða sturtað í höfnina
ur hjá Þormóöi ramma og
öðrum Bskvinnslufyrirtækjum
á staönum er að mestu leyti
ekiö til úrvinnslu annars staðar
en rækjuúrgangur frá Sigló hf.
fer beint í höfnina. Hvort
tveggja telur nefndin vera
mjög bagalegt og skorar hún á
bæjarstjórn að ganga til við-
ræðna við SR um vinnslu á
þessum úrgangi í Siglufírði.
Hjá Sigló hf. falla á þessu ári
til yfir 2000 tonn af rækjuskel.
Ekki er aðeins að í höfninni sé af
þessu hinn mesti sóðaskapur og
óþefur heldur hefur það komiö
fyrir að skelin stífli vatnsinntak
við vélar skipa. Að mati hafnar-
nefndar er þarna á ferðinni stórt
vandamál.
Síldarverksmiðjur ríkisins sem
meðal annars reka verksmiðju á
Siglufirði kaupa allan fiskúrgang
af fiskverkendum í bænum. A
þessu ári er um að ræða hátt í
3500 tonn og þar af hafa um 2400
verið flutt til annarra verksmiðja
sem vinna úr þessu mjöl. Mest er
flutt til Skagastrandar þar sem
SR reka sérstaka fiskimjölsverk-
smiðju til að vinna úr beinum.
Beinamjölið er selt bændum sem
skepnufóður og fá færri en vilja.
Að mati Þórhalls Jónassonar
verksmiðjustjóra SR á Siglufirði
er verðmæti mjöls úr þessu magni
á bilinu 10-15 milljónir. Verð-
mæti mjöls úr rækjuskelinni gæti
verið allt að 10 milljónir. Þessar
tölur réttlæta, að hans mati, upp-
setningu mjölverksmiðju.
„Við erum ekkert hreyknir af
því að flytja þetta hráefni frá
Siglufirði en loðnuverksmiöjan
okkar hentar mjög illa fyrir svona
vinnslu. Það er hins vegar bara
tímaspursmál hvenær keypt verð-
ur lítil verksmiðja hér og vinnsla
mjölsins hafin,“ sagði Þórhallur.
ET
Áskrifendagetraun Dags:
Draumaferð
til Thailands
Á blaðsíöu 6 cr birtur getrauna-
seðill desembermánaðar. Vinn-
ingur er draumaferð fyrir tvo til
Thailands. í dag verður dregið
um hljómtækjasamstæðuna. Við
greinum frá nafni þess heppna á
morgun.
Mcðferð fískúrgangs á Siglu- I mjög ábótavant. Beinum og
fírði er að mati hafnarnefndar I öðrum fískúrgangi sem til fell-
Hrópað á gengisfellingu:
„ Fastg e ng i sstefna n að
sliga útflutninginn '
- segir Sigurður Markússon hjá Sjávarafurðadeild SÍS
„Já, fastgengisstefnan er að
sliga útflutninginn. Það er ekki
hægt að orða það öðruvísi.
Tölurnar tala sínu máli og það
sem skiptir máli er hvernig
gengið þróast, hvernig kostn-
aðurinn innanlands þróast og
verðið á mörkuðunum,“ sagði
Sigurður Markússon fram-
kvæmdastjóri Sjávarafurða-
deildar SIS og benti á nokkur
dæmi máli sínu til stuðnings.
Hann sagði að frá 1980-85
hefði gengið hækkað um 473%
en lánskjaravísitalan um 613%.
Frá '85-'86 hækkaði gengið um
15% en lánskjaravísitalan um
24,6. Frá desember ’85 til des-
ember ’86 hækkaði gengi
erlendra gjaldmiðla um 6,3% en
lánskjaravísitalan um 15,3% og
frá september ’86 til september
’87 hækkaði gengið um 2,7% en
lánskjaravísitalan um 19,7.
„Ef maður gerir tölurnar mjög
einfaldar þá getum við sagt að á
fyrsta tímabilinu fást 1,3
skammtar af verðbólgu á móti 1
skammti af gengisbreytingu, en á
síðasta tímabilinu fást 7,3
skammtar af verðbólgu á móti 1
af gengisbreytingu. Þróunin leyn-
ir sér ekki og ástandið er óskap-
lega erfitt hjá fyrirtækjunum,“
sagði Sigurður.
Nú er talið að frystingin sé rek-
in með 7-9% tapi og Sigurður
sagði að engum dytti til hugar að
hægt væri hækka fiskverðið frek-
ar til að vega upp á móti hækkun
dollarans. „Það er búið að keyra
verðið svo mikið upp á síðustu
mánuðum og vonandi tekst okk-
ur að halda þessu verði, en verð-
hækkanir hygg ég að verði ekki
margar í okkar bókum á næstu
mánuðum," sagði Sigurður. SS