Dagur - 17.12.1987, Síða 2
2 - DAGUR - 17. desember 1987
Stærstu fyrirtækin 1986:
Bankar niður en
útflutningur upp
Á lista Frjáisrar verslunar yfir
stærstu fyrirtækin 1986, miðað
við veltu, hafa orðið talsverðar
breytingar frá listanum sem
tók til ársins 1985. Megin
breytingin er sú að bankar hafa
færst neðar á listann en Hag-
kaup og ýmis útflutningsfyrir-
tæki hafa bætt stöðu sína
mjög.
Sem fyrr eru það Samband
íslenskra samvinnufélaga og
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
Húsavík:
Stöð 2 hóf
útsendingar
á föstudags-
kvöld
Útsendingar frá Stöð 2 sjást nú
á Húsavík. Settur var upp
sendir á Húsavíkurfjalli og
hófst útsending sl. föstudags-
kvöld.
Til að ná sendingum frá stöð-
inni þurfa menn að hafa loftnet
fyrir UHF tíðni en mjög misjafnt
er hvernig gengið hefur að ná
sendingum stöðvarinnar. Haft er
eftir sérfræðingum í Reykjavík
að hér sé um sama vandamál að
sem skipa efstu sætin á listanum,
SÍS með veltu upp á 15.516 millj-
ónir og SH 9.848 milljónir. í
þriðja sæti og upp um eitt eru
Flugleiðir hf., Sölusamband
íslenskra fiskframleiðenda SÍF í
því fjórða og upp um tvö og í
fimmta sæti er Landsbankinn
sem á síðasta lista var í þriðja
sæti.
Kaupfélag Eyfirðinga er í
sjötta sæti en fyrirtækið velti á
síðasta ári 4.629 milljónum.
KEA var áður í sjöunda sæti á
listanum. Næsta norðlenska fyrir-
tæki á listanum er Útgerðarfélag
Akureyringa sem nú er í 35. sæti
en var í því 40. eftir árið 1985.
ÚA velti á síðasta ári 1.179 millj-
ónum króna.
Slippstööin hf. er í 92. sæti og
dettur niður úr því 78. en fyrir-
tækið velti á árinu 1986 503 millj-
ónum króna. í 99. sæti, því sama
og síðast er svo Höldur hf. -
Bílaleiga Akureyrar með veltu
uppá 475 milljónir.
Fleiri norðlensk fyrirtæki eru
ekki á lista yfir 100 stærstu fyrir-
tækin en þau sem komast á lista
yfir 170 stærstu eru Fiskiðjusam-
lag Húsavíkur, Þormóður
rammi hf., Skagstrendingur hf.,
Sigló hf., Magnús Gamalíelsson
hf. og Samherji hf. ET
Jón Páll á ostakynningu í Skagfirðingabúð
Sl. föstudag stóðu IMjólkursamlag Skagfirðinga og Skagfirðingabúð fyrir
ostakynningu í búðinni. Sérstakur gestur á kynningunni var kraftajötuninn
og ostagleypirinn mikli Jón Páll Sigmarsson. Að sögn aðstandenda kynning-
arinnar tókst hún mjög vel og mæltist ágætlega fyrir hjá fólki.
Lögsögumál Sauðárkróksbæjar:
Framundan eru viðræður um sammna
Skarðshrepps og Króksins
ræða og þar kom upp í byrjun,
eitt loftnet passi fyrir þennan stað
og annað fyrir hinn. Fólki er ráð-
lagt að fikra sig áfram sjálft í ró-
legheitunum meðan mesta
örtröðin er og gæta þess vandlega
að detta ekki á þökunum.
Óli Austfjörð eigandi Raf-
tækjavinnustofu Gríms og Árna
á Húsavík sagði að geysilega
mikil eftirspurn væri eftir loftnet-
um. Þau voru uppseld í verslun-
inni í gær en von var á 100 loft-
netum í gærkvöld.
Myndlyklar eru seldir í Bóka-
verslun Þórarins Stefánssonar.
Stefán Ingvarsson verslunarstjóri
sagði að 39 myndlyklar væru
seldir og 20 pantanir lægju fyrir.
Eftirspurn væri mjög mikil og
hann reiknaði með að selja að
minnsta kosti 150-200 myndlykla
fyrir jól. Stefán sagði að yfirleitt
hefði gengið mjög vel að ná
útsendingum stöðvarinnar og lít-
ið verið um vandamál. IM
Fyrir dyrum standa nú viöræð-
ur nefndarmanna Sauðár-
króksbæjar og Skarðshrepps
um hugsanlega sameiningu
þessara tveggja sveitarfélaga. Á
kynningarfundi sem bæjar-
stjórn Sauðárkróks hélt nýlega
með hreppsnefnd Skarðs-
hrepps reifuðu Sauðkrækingar
hugmyndir sínar í þessum mál-
um og óskuðu jafnframt eftir
viðræðum. Hafa Skarðshrepp-
ingar orðið við þeim óskum.
Fram kom að bæjarstjórn
Sauðárkróks vill skuldbinda sig
til að tryggja íbúum Skarðs-
hrepps húshitun á sama verði og
bæjarbúum. Greiða kostnað af
daglegum skólaakstri til Sauðár-
króks og nota söniu álagningar-
prósentu næstu 10 árin á fast-
eignagjöld á bújörðum og
aðstöðugjöld í landbúnaði sem
notuð er í Skarðshreppi í dag.
Úlfar Sveinsson oddviti
Skarðshrepps upplýsti að erindi
bæjarstjórnar hefði ekki verið
kynnt íbúum hreppsins og lítið
um það fjallað í hreppsnefnd.
Óskaði hann eftir rökum sem
sýndu fram á nauðsyn erindisins
og hvað ræki á eftir því nú.
Snorri Björn Sigurðsson bæjar-
stjóri gerði grein fyrir land-
þrengslum sem hann sagði standa
bænum fyrir þrifum, og benti
m.a. á að ekki væri unnt að losna
við sorp frá kaupstaðnum, né láta
hestamönnum eða öðrum búfjár-
eigendum í té beitilönd. Einnig
mætti nefna flugvallarmálið sem
nú líklega væri tapað þessum
sveitarfélögum, þar sem ekki væri
hægt að útvega land til suðurs frá
núverandi flugvelli. Kvað bæjar-
stjóri það mun betri kost fyrir
Skarðshreppinga að sameinast
Sitkalús:
Hefur ekki
borist
norður
- engin óþrif
á jólatrjám hér
Nokkuð hefur borið á sitkalús í
greni á Suður- og Austurlandi
það sem af er vetri. Lús þessi
er skaðleg trjánum, hún sýgur
safann úr greninu og veldur því
að plantan gulnar upp. Norð-
lendingar geta þó verið
óhræddir því lúsin hefur ekki
fundist hér og jólatrén að fullu
laus við óþrif.
Að sögn Hallgríms Indriðason-
ar hjá Gróðrarstöðinni í Kjarna,
hafa þeir ekki gróðursett mikið
sitkagreni í skógræktarlöndum
sínum. Hann sagði að mildir
vetur, eins og þessi væru sérstak-
lega varasamir því að þá eru
meiri líkur á að egg lúsarinnar
komist vel af. Frost veldur því
aftur á móti, að henni fjölgar
ekki eins vel.
„Það er ekki hægt að segja
hvort lúsin kemur til með að ber-
ast hingað. Hún berst á milli t.d.
með flutningi plantna á milli
landsvæða og ber því að vera á
varðbergi gagnvart því.“ Hall-
grímur sagði þó að ef hún bærist
hingað, kæmi hún ekki til með að
valda miklum skaða, vegna þess
hversu lítið er um sitkagreni hér.
VG
bæjarfélaginu, frekar en það væri
að kaupa jarðarparta og spildur
úr hreppnum.
Þorbjörn Árnason forseti
bæjarstjórnar skýrði frá því að ef
ekki næðist samkomulag, mundi
verða farið fram á það við þing-
menn kjördæmisins að lögsaga
bæjarins yrði rýmkuð og frum-
varp til jDess lagt fram á yfirstand-
andi alþingi. Vildi hann að menn
vissu að full alvara lægi hér að
baki og ekki væri frekar en áður
meiningin að koma aftan að
hreppsnefnd Skarðshrepps með
mál þetta. -þá
Röð af ráðamönnum úr Norður-Þingeyjarsýslu var í flugstöðinni á Húsavíkurflugvelli sl. þriðjudag og biðu þeir eftir
flugi til Reykjavíkur. Þetta voru: Gunnar Hilmarsson sveitarstjóri á Raufarhöfn, Eysteinn Sigurðsson kaupfélags-
stjóri á Kópaskeri, Þórarinn Þórarinsson bóndi ■ Vogum, Kclduhverfi og Björn Benediktsson oddviti í Öxarfirði.
Ekki vildu þeir greina blaðamanni Dags frá erindi sínu til höfuðborgarinnar en Björn sagði þó: „Við erum að fara
til Reykjavíkur til að skoða jólatréð á Austurvelli.“
Húsavík:
Húsnæðisáætlun
fyrir skólana
Húsnæðismál skólanna á
Ilúsavík voru nýlega til
umræðu á fundi bæjarstjórnar.
Efstu bekkir grunnskólans eru
nú til húsa í framhaldsskólan-
um en fyrirhugað er að koma
grunnskólanum öllum undir
sama þak. Til þess að svo megi
verða þarf að byggja við barna-
skólahúsið.
Á fundi bæjarstjórnar var eftir-
farandi tillaga samþykkt: „Bæjar-
stjórn Húsavíkur samþykkir að
ljúka nú þegar gerð húsnæðis-
áætlunar grunnskóla og fram-
haldsskóla á Húsavík. Jafnframt
samþykkir bæjarstjórn að hefjast
handa við hönnun og uppbygg-
ingu húsnæðis skólanna sam-
kvæmt áðurnefndri húsnæðis-
áætlun, á þann hátt að grunnskól-
inn allur rúmist í Grunnskólahús-
inu ásamt tónlistarskóla og að
gerðar verði nauðsynlegar breyt-
ingar á eldra húsnæði skólans.“
í máli Stefáns Haraldssonar
formanns skólanefndar kom fram
að áætlað er að 500 nemendur
geti stundað nám við grunnskól-
ann eftir að fyrirhuguðum fram-
kvæmdum lýkur. Rætt hefur ver-
ið um viðbyggiiígu sem er rúm-
lega 1500 fm að stærð og gert er
ráð fyrir að byggingakostnaður sé
um 82 milljónir króna, en rætt er
um 100 milljónir ef viðgerðir á
eldra húsnæði skólans eru teknar
með í dæmið. IM