Dagur - 17.12.1987, Side 3

Dagur - 17.12.1987, Side 3
17. desember 1987 - DAGUR Fiskaflinn: Þorskaflinn 28 þúsund tonn fram úr áætlun Fiskafli landsmanna fyrstu ellefu mánuði ársins var rúm- lega 1.400 þúsund lestir, sam- kvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags íslands. Þorskafl- inn var þá orðinn tæplega 358 þúsund lestir eða um 28 þús- und lestum meira en leyft var að veiða á árinu öllu. Loðnuaflinn á árinu er orðinn 670 þúsund lestir en var á sama tíma í fyrra orðinn tæplega 800 þúsund lestir. Þá var heildar fisk- aflinn þegar desember einn var eftir 1.477 þúsund lestir. Afli togaranna það sem af er árinu er orðinn tæplega 364 þús- und lestir á móti tæplega 337 þús- undum í fyrra. Þessi afli skiptist þannig að þessu sinni að helming- urinn er þorskur á móti helming af öðrum tegundum. Það er sama skipting og í fyrra. Hjá bátunum er heildaraflinn orðinn 1.037 þúsund lestir á móti 1.140 þúsundum í fyrra. í þessum Félagsmálaráðuneytið: Nefnd í launa- jafnréttið Félagsmálaráðherrra hefur skipað nefnd sem ætlað er að stuðla að auknu launajafnrétti karla og kvenna í störfum hjá hinu opinbera. Nefndinni er falið að fjalla um endurmat á störfum kvenna hjá hinu opinbera, þar sem m.a. verði höfð hliðsjón af mikilvægi umönnunar- og aðhlynningar- starfa og starfsreynslu á heimil- um, og gera tillögur þar um. Einnig skal nefndin kanna hlunn- indagreiðslur þ.e. bílastyrk og fasta yfirvinnu hjá hinu opinbera og í framhaldi þar af gera tillögur um hvernig leiðrétta megi með tilliti til launajafnréttis karla og kvenna. Nefndinni er ennfremur falið að leita leiða til að tryggja jafn- stöðu karla og kvenna við ráðningar og stöðuveitingar á vegum hins opinbera. I nefndinni eiga sæti Ásdís J. Rafnar formaður Jafnréttisráðs, Guðmundur Björnsson skrif- stofustjóri launadeildar fjármála- ráðuneytisins og Lára V. Júlíus- dóttir aðstoðarmaður félagsmála-, ,ráðherra, sem jafnframt er for- maður nefndarinnar. Sauðárkrókur: Húsbænda- skipti á Bláfelli Seinna í þessum mánuði verða húsbændaskipti á Bláfelli. Þá tekur Ólafur Helgi Jóhannsson við versluninni og umboði Skeljungs af Kristínu Ögmundsdóttur. Svo virðist sem marga fýsi í sjoppureksturinn því talsvert margir sóttu um. Ekki náðist í Ársæl Harðarson sem hefur með útibú Skeljungs að gera, en að sögn annars starfsmanns voru umsækjendur milli 5 og 10. Hinn nýi húsbóndi á Bláfelli starfaði áður á skrifstofu Útgerðarfélags Skagfirðinga. Kristín mun á nýju ári hefja störf í matvörudeild Skagfirðingabúðar. -þá tölum munar auðvitað mest um loðnuna en þorskafli bátanna á þessu ári er orðinn 178 þúsund lestir á móti 163 þúsundum í fyrra. Af öðrum botnfisktegund- um hefur veiðst nær sama magn hjá bátunum og í fyrra, um 80 þúsund lestir, síldaraflinn nú er 62 þúsund lestir á móti 53 þús- undum í fyrra. Rækju-, humar- og hörpudiskaflinn er mjög svip- aður milli ára. Nóvemberaflinn á landinu var 226.199 lestir og skiptist þannig að bátar veiddu 202.342 lestir en togarar 23.857 lestir. Þorskafli togara var 12.314 lestir en hjá bátunum var hann 9.497 Iestir. Loðnuaflinn í mánuðinum var um 145 þúsund lestir en var í síð- asta mánuði aðeins 25.500 lestir. ET -3 Vélsleðagallar 3 gerðir. Verð frá kr. 10.950.- Tilvalin jólagjöf. * 10% jólaafsláttur + WEYFJÖRÐ Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275 MUNÐ AÐAFHENDA LAUNAGREBANDA SKATTKORW Skattkort hafa verið send til allra sem verða 16 ára og eldri á árinu 1988. Skattkortin eru lykill að réttri stað- greiðslu opinberra gjalda og þess vegna mikilvægt að notkun þeirra og meðferð sé öllum Ijós. Lesið upplýsingamar og leiðbeiningamar sem fylgja skattkortinu vel. Ef þið hafið eitthvað við persónulegu upplýs- ingamar að athuga þá hafið samband við næstaskattstjóra. Ef þið viljið nýta ykkur möguleika á auka- skattkorti, þá er best að sækja strax um það hjáskattstjóra. AUKASKATTKORT Þeir sem nýta ekki persónuafslátt sinn á einum vinnustað, vinna ef til vill á fieiri stöðum eða vilja afhenda maka sínum ónýttan per- sónuafslátt, getafengið aukaskattkort. Þeir fylla þá út umsóknareyðublað og snúa sér með það til næsta skattstjóra. Á auka- skattkortum er mánaðarlegum persónuafslætti skipt niður á kortin í þeim hlutföllum sem launa- maðuróskar. MEÐFERÐ SKATTKORTS Afhendið launagreiðanda ykkar skattkort- ið sem fyrst til vörslu. Ef hann hefur ekki skatt- kortið við útborgun launa fæst ekki persónu- afsláttur og fullt skatthlutfall (35.2%) verður dregiðaflaunum. Launagreiðanda ber að varðveita skatt- kortið og hann ber ábyrgð á því á meðan það er íhansvörslu. Þegar skipt er um vinnustað er skattkortið sótt og afhent nýjum launagreiðanda. Þeir sem vinna ekki utan heimilis varðveita kort sín sjálfir ef maki nýtir ekki persónuafsláttinn. Án skattkorts -enginn persónuafslóilur RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.