Dagur - 17.12.1987, Page 3
17. desember 1987 - DAGUR
Fiskaflinn:
Þorskaflinn 28 þúsund
tonn fram úr áætlun
Fiskafli landsmanna fyrstu
ellefu mánuði ársins var rúm-
lega 1.400 þúsund lestir, sam-
kvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands. Þorskafl-
inn var þá orðinn tæplega 358
þúsund lestir eða um 28 þús-
und lestum meira en leyft var
að veiða á árinu öllu.
Loðnuaflinn á árinu er orðinn
670 þúsund lestir en var á sama
tíma í fyrra orðinn tæplega 800
þúsund lestir. Þá var heildar fisk-
aflinn þegar desember einn var
eftir 1.477 þúsund lestir.
Afli togaranna það sem af er
árinu er orðinn tæplega 364 þús-
und lestir á móti tæplega 337 þús-
undum í fyrra. Þessi afli skiptist
þannig að þessu sinni að helming-
urinn er þorskur á móti helming
af öðrum tegundum. Það er sama
skipting og í fyrra.
Hjá bátunum er heildaraflinn
orðinn 1.037 þúsund lestir á móti
1.140 þúsundum í fyrra. í þessum
Félagsmálaráðuneytið:
Nefnd í launa-
jafnréttið
Félagsmálaráðherrra hefur
skipað nefnd sem ætlað er að
stuðla að auknu launajafnrétti
karla og kvenna í störfum hjá
hinu opinbera.
Nefndinni er falið að fjalla um
endurmat á störfum kvenna hjá
hinu opinbera, þar sem m.a.
verði höfð hliðsjón af mikilvægi
umönnunar- og aðhlynningar-
starfa og starfsreynslu á heimil-
um, og gera tillögur þar um.
Einnig skal nefndin kanna hlunn-
indagreiðslur þ.e. bílastyrk og
fasta yfirvinnu hjá hinu opinbera
og í framhaldi þar af gera tillögur
um hvernig leiðrétta megi með
tilliti til launajafnréttis karla og
kvenna.
Nefndinni er ennfremur falið
að leita leiða til að tryggja jafn-
stöðu karla og kvenna við
ráðningar og stöðuveitingar á
vegum hins opinbera.
I nefndinni eiga sæti Ásdís J.
Rafnar formaður Jafnréttisráðs,
Guðmundur Björnsson skrif-
stofustjóri launadeildar fjármála-
ráðuneytisins og Lára V. Júlíus-
dóttir aðstoðarmaður félagsmála-,
,ráðherra, sem jafnframt er for-
maður nefndarinnar.
Sauðárkrókur:
Húsbænda-
skipti á
Bláfelli
Seinna í þessum mánuði verða
húsbændaskipti á Bláfelli. Þá
tekur Ólafur Helgi Jóhannsson
við versluninni og umboði
Skeljungs af Kristínu
Ögmundsdóttur.
Svo virðist sem marga fýsi í
sjoppureksturinn því talsvert
margir sóttu um. Ekki náðist í
Ársæl Harðarson sem hefur með
útibú Skeljungs að gera, en að
sögn annars starfsmanns voru
umsækjendur milli 5 og 10. Hinn
nýi húsbóndi á Bláfelli starfaði
áður á skrifstofu Útgerðarfélags
Skagfirðinga. Kristín mun á nýju
ári hefja störf í matvörudeild
Skagfirðingabúðar. -þá
tölum munar auðvitað mest um
loðnuna en þorskafli bátanna á
þessu ári er orðinn 178 þúsund
lestir á móti 163 þúsundum í
fyrra. Af öðrum botnfisktegund-
um hefur veiðst nær sama magn
hjá bátunum og í fyrra, um 80
þúsund lestir, síldaraflinn nú er
62 þúsund lestir á móti 53 þús-
undum í fyrra. Rækju-, humar-
og hörpudiskaflinn er mjög svip-
aður milli ára.
Nóvemberaflinn á landinu var
226.199 lestir og skiptist þannig
að bátar veiddu 202.342 lestir en
togarar 23.857 lestir. Þorskafli
togara var 12.314 lestir en hjá
bátunum var hann 9.497 Iestir.
Loðnuaflinn í mánuðinum var
um 145 þúsund lestir en var í síð-
asta mánuði aðeins 25.500 lestir.
ET
-3
Vélsleðagallar
3 gerðir.
Verð frá kr. 10.950.-
Tilvalin jólagjöf.
* 10% jólaafsláttur +
WEYFJÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
MUNÐ
AÐAFHENDA
LAUNAGREBANDA
SKATTKORW
Skattkort hafa verið send til allra sem
verða 16 ára og eldri á árinu 1988.
Skattkortin eru lykill að réttri stað-
greiðslu opinberra gjalda og þess vegna
mikilvægt að notkun þeirra og meðferð sé
öllum Ijós.
Lesið upplýsingamar og leiðbeiningamar
sem fylgja skattkortinu vel.
Ef þið hafið eitthvað við persónulegu upplýs-
ingamar að athuga þá hafið samband við
næstaskattstjóra.
Ef þið viljið nýta ykkur möguleika á auka-
skattkorti, þá er best að sækja strax um það
hjáskattstjóra.
AUKASKATTKORT
Þeir sem nýta ekki persónuafslátt sinn á
einum vinnustað, vinna ef til vill á fieiri stöðum
eða vilja afhenda maka sínum ónýttan per-
sónuafslátt, getafengið aukaskattkort.
Þeir fylla þá út umsóknareyðublað og
snúa sér með það til næsta skattstjóra. Á auka-
skattkortum er mánaðarlegum persónuafslætti
skipt niður á kortin í þeim hlutföllum sem launa-
maðuróskar.
MEÐFERÐ SKATTKORTS
Afhendið launagreiðanda ykkar skattkort-
ið sem fyrst til vörslu. Ef hann hefur ekki skatt-
kortið við útborgun launa fæst ekki persónu-
afsláttur og fullt skatthlutfall (35.2%) verður
dregiðaflaunum.
Launagreiðanda ber að varðveita skatt-
kortið og hann ber ábyrgð á því á meðan það er
íhansvörslu.
Þegar skipt er um vinnustað er skattkortið
sótt og afhent nýjum launagreiðanda. Þeir sem
vinna ekki utan heimilis varðveita kort sín sjálfir
ef maki nýtir ekki persónuafsláttinn.
Án skattkorts
-enginn
persónuafslóilur
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI