Dagur - 17.12.1987, Blaðsíða 6

Dagur - 17.12.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR -17. desember 1987 Þeir eru komnir í jólaskap strákarnir og voru að búa til hið fallegasta jólaskraut þegar Ijósmyndari Dags heimsótti þá á dögunum. Mynd: TLV Fyrir þessi jól mun Hjálparstofn- un kirkjunnar selja friðarkerti. Um er að ræða 12 klst. útikerti. Þau verða til sölu í blómabúðum og/eða kaupfélögum um allt land. Einnig verða þau til sölu í Kringlunni, á Eiðistorgi og á aðfangadag við kirkjugarðana. Nýtt hefti með 12 frímerí(jum Póst- og símamálastofnunin hef- ur nýlega gefið út hefti með 12 frímerkjum að verðgildi 13 krón- ur hvert, en það er almennt burð- argjald innanlands og til Norður- landa. Þessi útgáfa er nýjung í frí- merkjaútgáfu stofnunarinnar. Heftin hafa mælst vel fyrir, enda eru þau afar hentug og fara vel í vasa eða veski. Þau eru til sölu í öllum pósthúsum og kosta kr. 156. Myndefni frímerkjanna sem prýða heftið eru landvættir í skjaldarmerki íslands: Dreki, gammur, griðungur og bergrisi. Á næsta ári er ráðgert að gefa út nýtt frímerkjahefti. Póst- og símamálastofnunin Reykjavík, 9. dcsember 1987. Jóladaga- tal SUF Útdráttur er hafinn í Jóladagatali SUF og hafa eftirtalin númer komið upp: 1. desember nr. 2638 2. desember nr. 913 3. desember nr. 1781 4. desember nr. 1670 5. desember nr. 4676 6. desember nr. 2933 7. desember nr. 5726 '8. desember nr. 7505 9. desember nr. 4714 10. desember nr. 6297 11. desember nr. 5952 12. desembcr nr. 3213 13. desember nr. 3184 14. desember nr. 6371 15. desember nr. 2659 16. desember nr. 1658 17. desember nr. 3048 Allar frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-24480. Afslátturinn gildir til jóla — Munið að sýna félagskortin SlMI (96)21400 10% jólaafsláttur til félagsmanna á kápum og utanyfirjökkum í vefnaðarvörudeild og herrafrökkum og leðurjökkum í herradeild Hjálparstofnun kirkjunnar: Brauð handa hungruðum heimi „Brauð handa hungruðum heimi“ er yfirskrift hinnar árlegu jólasöfnunar Hjálpar- stofnunar kirkjunnar. Söfnun- in hófst formlega 6. desember og stendur fram til jóla. Yerið er að dreifa inn á öll heimili landsins gíróseðlum ásamt söfnunarbaukum. í ár verður megináhersla lögð á að verja söfnunarfénu til Eþíóp- íu. Þar er enn vá fyrir dyrum. í ágúst síðastliðnum skýrðu stjórn- völd í Eþíópíu hjálparstofnunum frá því að sumarregnið hefði brugðist og því væri útlit fyrir uppskerubrest í ár og því mætti búast við hungursneyð strax í byrjun næsta árs. Síðan hafa bor- ist frekari upplýsingar sem benda til að ástandið sé enn verra en búist hafði verið við og geti jafn- vel orðið enn alvarlegra en 1984. Hjálparstofnun kirkjunnar vonast til að íslenska þjóðin bregðist jafn vel við nú og 1984 en með framlagi íslendinga gat Hjálparstofnunin sent 3 hópa hjúkrunarfræðinga, lækni og 3 hjálparsveitarmenn til starfa í Eþíópíu. Þessir hópar unnu við matvæladreifingu, heilsugæslu, fæðingarhjálp, margvíslegar smíðar, þjálfun heimamanna og skipulagningu ýmiss konar. Einn- ig starfaði íslenskur skipstjóri við fiskveiðikennslu innfæddra. Veiðarfæraútbúnaður var sendur frá íslandi, einnig 90 tonn af mjólkurdufti, 43 tonn af fatnaði og eggjahvíturíkt kex. Framlögum í landssöfnunina er hægt að koma til skila í alla banka, sparisjóði og pósthús einnig til sóknarpresta um allt land og á skrifstofu Hjálparstofn- unar kirkjunnar, Suðurgötu 22, Reykjavík. Á Þorláksmessu verða flestar kirkjur opnar til að taka á móti söfnunarbaukum og verður opnunartími þeirra aug- lýstur sérstaklega. Friöarkerti

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.