Dagur


Dagur - 22.12.1987, Qupperneq 1

Dagur - 22.12.1987, Qupperneq 1
70. árgangur Akureyri, þriðjudagur 22. desember 1987 245. tölublað ^ Peysur Peysur Peysur HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Hart deilt um kvótann á Alþingi - Ólíklegt að frumvarpið verði að lögum fyrir jól Fiskveiðifrumvarp ríkisstjórn- arinnar situr nú blýfast í efri deild. Þingmenn stjórnarand- stöðunnar hafa haldið uppi miklum umræðum um frum- varpið og var búist við því að umræðurnar myndu standa fram á rauða nótt. Talið er lík- legt að frumvarpið nái þó afgreiðslu, þannig að neðri deild geti byrjað að fjalla um það í dag. En það eru ekki bara stjórnar- andstæðingar sem sjá ýmislegt athugavert við frumvarpið. Karvel Pálmason þingmaður Alþýðu- flokksins hefur boðað að hann muni flytja breytingartillögur við frumvarpið. Dagur spurði Karvel hvað það væri helst sem hann sæi athugavert við frumvarpið. „Þetta frumvarp lokar öllum möguleikum fyrir nýja menn að hasla sér völl innan þessarar atvinnugreinar. Það verður að rýmka byggðarlögin þannig að þetta verði ekki bara kerfi fyrir útvalda einstaklinga.“ Karvel bætti því við að hann flytti þetta frumvarp einn, en hann ætti von á því margir myndu styðja þessar tillögur sínar „enda eru þær í samræmi við upprunalegan stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinn- ar,“ sagði Karvel Pálmason alþingismaður að lokum. Ekki er búist við að auðveldara verði að koma kvótafrumvarpinu í gegnum neðri deild. Vitað er að margir stjórnarþingmenn hafa ýmislegt við frumvarpið að athuga og má því búast við fjörugum umræðum um málið í neðri deild. Mjög ólfklegt er að málið verði afgreitt fyrir jól, þannig líklega verða þetta síð- ustu lög sem þessi ríkisstjórn afgreiðir á því herrans ári 1987. AP 2 dagar til jóla Eins og sjá má lagði mikinn reyk út úr íbúðarhúsinu að Kringlumýri 4 í gær. Um tvo tíma tók að slökkva eldinn en húsið og allt innbú eyðilagðist í eldinum. Sjö manna fjöiskylda bjó í húsinu. Mynd: ti.v Akureyri: Ibúöarhús gjöreyði- lagðist í eldsvoða Laust fyrir klukkan fjögur í gær blossaði upp mikill eldur í íbúðarhúsi að Kringlumýri 4 á Akureyri. Allt tiltækt slökkvi- lið ásamt varaliði var kallað á staðinn, svo og lögregla og sjúkrabifreið, en stór fjöl- skylda býr í húsinu. Reyk- kafarar fóru strax inn að leita að fólki á annarri hæð þar sem eldurinn kom upp en hæðin var mannlaus. Tveir 8 ára drengir voru í kjallara hússins og hlupu þeir út er rafmagn af húsinu. Að sögn sjónarvotta virtist sem sprenging hefði orðið í stofunni þar sem eldurinn kom upp, lík- lega af völdum hitans. Rúðurnar brotnuðu í hitanum og þá bloss- aði upp gífurlegur eldur og lagði mikinn reykjarmökk norðaustur yfir bæinn. Slökkviliðsmenn börðust hetjulega við eldinn og stóðu í Þessi mynd er tekin inn um forstofuglugga og sjást slökkviliðsmenn við slökkvistarf. Mynd: TLV ströngu við að rjúfa þakklæðn- inguna en mikill eldur kraumaði í einangrun í þakinu. Þegar klukk- an var um tuttugu mfnútur geng- in í fimm virtist slökkviliðið hafa náð yfirhöndinni en þá logaði enn í þakinu og slökkvistarf hélt áfram um hríð. Húsið, sem er rúmlega 100 fer- metrar að stærð, er gjörónýtt og sama er að segja um innbú. Ljóst að hér er um milljónatjón að ræða fyrir utan persónulegan harmleik og ómetanlegt tjón á eignum íbúanna. Að sögn Ólafs Ásgeirssonar aðstoðaryfirlög- regluþjóns virtist sem eldurinn hefði komið upp í stofunni en hann sagði að rannsóknarlögregl- an myndi grafast fyrir um elds- upptök strax og slökkvistarfi væri lokið. Slökkvistarfi í húsinu var lokið um kl. 18 í gærkvöldi en þá var sett vakt við rústirnar. SS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.