Dagur - 31.12.1987, Blaðsíða 7

Dagur - 31.12.1987, Blaðsíða 7
ruflt |-R - miílAf! - ð 31. desember 1987 - DAGUR - 7 BREYTTUR persónuafsláttur: Nú14.797,- kr. ívrír hvem mánuð Persónnafsláttur í staðgreiðslu opin- berra gjalda hefur verið ákveðinn 14.797 krónur fyrir hvem mánuð á tímabilinu jan.- júní 1988. Breyting á persónuafslætti hefur ekki í för með sér að ný skattkort verði gefin út til þeirra sem þegar hafa fengið sín skattkort, heldur ber launagreiðanda að hækka persónuafsláttinn við útreikning staðgreiðslu. / Til þess að þeir, sem fengu skattkort sín útgefin fyrir 28. desember 1987, fái notið rétts afsláttar ber launagreiðanda að hækka þann persónuafslátt, sem fram kemur á þessum skattkortum og aukaskattkortum (öllum grænum og gulum kortum), um 8.745% (stuðull 1.08745). Mikilvægt er að launagreiðandi breyti ekki upphæðinni á sjálfu skattkortinu. Sú upphæð á að standa óhreyfð til ársloka. Hins vegar ber að taka tillit til orðinnar hækkunar við útreikning staðgreiðslu. Skattkort sem gefin eru út 28. desember og síðar bera annan lit en þau skattkort sem gefin voru út fram að þeim tíma. Þau skattkort munu sýna réttan persónuafslátt fyrir tímabilið janúar-júní 1988 og þarf því ekki að hækka persónuafslátt þann sem þar kemur fram við útreikning staðgreiðslu. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.