Dagur - 29.01.1988, Page 16

Dagur - 29.01.1988, Page 16
T r - HUÐAQ - 8Ser isúnBÍ .GS 16 - DAGUR - 29. janúar 1988 Akureyrarmótið í bridds: Úrslitaleikur um titilinn Þegar einni umferð er ólokið í Akureyrarmóti Bridgefélags Akureyrar, er ljóst að sveit Kristjáns Guðjónssonar og sveit Hellusteypunnar munu spila hreinan úrslitaleik um sæmdarheitið Akureyrarmeist- ari í sveitakeppni árið 1988, en þessar sveitir mætast einmitt í síðustu uml'erðinni. Tólfta umferð var spiluð sl. þriðjudag og urðu úrslit þessi: Sv. Grettis Frímannssonar - sv. Sporthússins: 23-7 Sv. Kristjáns Guðjónssonar - sv. Zarioh Hamadi: 21- 9 Sv. Gylfa Pálssonar - sv. Ormars Snæbjörnssonar: 20-10 Sv. Gunnars Berg - sv. Ragnhildar Gunnarsd.: 19-11 Sv. Gunnlaugs Guðmundssonar - sv. Sveinbjörns Jónssonar: 18-12 Sv. Hellusteypunnar - sv. Stefáns Vilhjálmssonar: 17-13 Sv. Sigurðar Víglundssonar sat yfir og hlaut 18 stig. Alls taka 13 sveitir þátt í keppninni og er spilaður einn 32ja spila leikur á kvöldi. Keppn- isstjóri er Albert Sigurðsson. Þegar einni umferð er ólokið er staða efstu sveita þessi: 1. Kristján Guðjónsson: 232 stig 2. Hellusteypan: 226 stig 3. Stefán Vilhjálmsson: 214 stig 4. Grettir Frímannsson: 210 stig 5. GunnlaugurGuðm.son: 186 stig 6. Gylfi Pálsson: 182 stig Síðasta umferð verður spiluð þriðjudaginn 2. febrúar og hefst spilamennskan kl. 19.30 í Félags- borg. Næsta mót hjá Bridgefélagi Akureyrar hefst þriðjudaginn 9. febrúar. Það er svokallað Haf- spilsmót, sem er tvímenningsmót með Barometer-fyrirkomulagi. Öllu spilafólki á Akureyri og nágrenni er heimil þátttaka, en þátttökutilkynningar þurfa að berast einhverjum stjórnar- manna B.A. fyrir kl. 19.00 sunnudaginn 7. febrúar nk. Spilarar í þungum þönkum. Hvað finnst þér um fegurðarsamkeppni karla? (Spurt á Akureyri) Unnur Guðmundsdóttir: Mér finnst allt í lagi að halda keppni fyrir þá, þó að mér finn- ist verðlaunin bjánaleg. Ég held þó að einhverjir muni gera grín að þessum strákum af því að þetta er í fyrsta sinn. Ég reikna með að fara sjálf og sjá keppn- ina. Haraldur Árnason: Ég hef nú ekkert hugsað um þetta. Þetta er allt í lagi held ég og því ekki þeir eins og kven- fólkiö. Ég held að fólk muni líta þessa keppni sömu augum og fegurðarsamkeppni kvenna. Finnur Finnsson: Ég hef nú reyndar ekki velt því fyrir mér. Ég held að ég myndi ekki viljataka þátt í slíkri keppni sjálfur en tel að hún eigi jafn mikinn rétt á sér og fegurðar- samkeppni kvenna. Halldóra Sveinsdóttir: Mér finnst ekkert að því að hafa fegurðarsamkeppni fyrir þá, ekkert öðruvísi en fyrir konur. Ætli þeir séu ekki samt svolítið feimnir og halda að gert verði grín að þeim. Ég myndi auðvit- að fara og sjá keppnina ef mér væri boðið. Sigríður Halldórsdóttir: Mér finnst keppnin eiga jafn mikinn rétt á sér og fegurðar- samkeppni kvenna og held að strákarnir verði ekkert feimnari en stelpurnar. Svona keppni er ekki síður fyrir karla en kvenfólk, það á að ríkja jafnrétti á þessu sviði líka.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.