Dagur - 29.01.1988, Síða 16
T r - HUÐAQ - 8Ser isúnBÍ .GS
16 - DAGUR - 29. janúar 1988
Akureyrarmótið í bridds:
Úrslitaleikur um titilinn
Þegar einni umferð er ólokið í
Akureyrarmóti Bridgefélags
Akureyrar, er ljóst að sveit
Kristjáns Guðjónssonar og
sveit Hellusteypunnar munu
spila hreinan úrslitaleik um
sæmdarheitið Akureyrarmeist-
ari í sveitakeppni árið 1988, en
þessar sveitir mætast einmitt í
síðustu uml'erðinni.
Tólfta umferð var spiluð sl.
þriðjudag og urðu úrslit þessi:
Sv. Grettis Frímannssonar
- sv. Sporthússins: 23-7
Sv. Kristjáns Guðjónssonar
- sv. Zarioh Hamadi: 21- 9
Sv. Gylfa Pálssonar
- sv. Ormars Snæbjörnssonar: 20-10
Sv. Gunnars Berg
- sv. Ragnhildar Gunnarsd.: 19-11
Sv. Gunnlaugs Guðmundssonar
- sv. Sveinbjörns Jónssonar: 18-12
Sv. Hellusteypunnar
- sv. Stefáns Vilhjálmssonar: 17-13
Sv. Sigurðar Víglundssonar sat
yfir og hlaut 18 stig.
Alls taka 13 sveitir þátt í
keppninni og er spilaður einn
32ja spila leikur á kvöldi. Keppn-
isstjóri er Albert Sigurðsson.
Þegar einni umferð er ólokið
er staða efstu sveita þessi:
1. Kristján Guðjónsson: 232 stig
2. Hellusteypan: 226 stig
3. Stefán Vilhjálmsson: 214 stig
4. Grettir Frímannsson: 210 stig
5. GunnlaugurGuðm.son: 186 stig
6. Gylfi Pálsson: 182 stig
Síðasta umferð verður spiluð
þriðjudaginn 2. febrúar og hefst
spilamennskan kl. 19.30 í Félags-
borg.
Næsta mót hjá Bridgefélagi
Akureyrar hefst þriðjudaginn 9.
febrúar. Það er svokallað Haf-
spilsmót, sem er tvímenningsmót
með Barometer-fyrirkomulagi.
Öllu spilafólki á Akureyri og
nágrenni er heimil þátttaka, en
þátttökutilkynningar þurfa að
berast einhverjum stjórnar-
manna B.A. fyrir kl. 19.00
sunnudaginn 7. febrúar nk.
Spilarar í þungum þönkum.
Hvað finnst þér um
fegurðarsamkeppni karla?
(Spurt á Akureyri)
Unnur Guðmundsdóttir:
Mér finnst allt í lagi að halda
keppni fyrir þá, þó að mér finn-
ist verðlaunin bjánaleg. Ég held
þó að einhverjir muni gera grín
að þessum strákum af því að
þetta er í fyrsta sinn. Ég reikna
með að fara sjálf og sjá keppn-
ina.
Haraldur Árnason:
Ég hef nú ekkert hugsað um
þetta. Þetta er allt í lagi held ég
og því ekki þeir eins og kven-
fólkiö. Ég held að fólk muni líta
þessa keppni sömu augum og
fegurðarsamkeppni kvenna.
Finnur Finnsson:
Ég hef nú reyndar ekki velt því
fyrir mér. Ég held að ég myndi
ekki viljataka þátt í slíkri keppni
sjálfur en tel að hún eigi jafn
mikinn rétt á sér og fegurðar-
samkeppni kvenna.
Halldóra Sveinsdóttir:
Mér finnst ekkert að því að hafa
fegurðarsamkeppni fyrir þá,
ekkert öðruvísi en fyrir konur.
Ætli þeir séu ekki samt svolítið
feimnir og halda að gert verði
grín að þeim. Ég myndi auðvit-
að fara og sjá keppnina ef mér
væri boðið.
Sigríður Halldórsdóttir:
Mér finnst keppnin eiga jafn
mikinn rétt á sér og fegurðar-
samkeppni kvenna og held að
strákarnir verði ekkert feimnari
en stelpurnar. Svona keppni er
ekki síður fyrir karla en
kvenfólk, það á að ríkja jafnrétti
á þessu sviði líka.