Dagur - 29.01.1988, Side 22
22 - DAGUR - 29. janúar 1988
JÖFð ta söhi
Jörðin Björg í Arnarneshreppi, Eyjafjarðarsýslu
er til sölu, og er laus til ábúðar í vor.
Upplýsingar í sfmum 96-26803 Björn og 96-26806 Gestur.
Glæsibæjarhreppsbúar
Þorrablótið verður í Hlíðarbæ laugardaginn 6.
febrúar og hefst kl. 21.00. stundvíslega.
Miðapantanir í síma 23516 mánud. 1. og þriðjud. 2.
febrúar.
Hreppsbúar fyrr og nú - skemmtum okkur saman.
Nefndin.
Aðalfundur
Loðdýraræktarfélags Eyjafjarðar
verður haldinn sunnudaginn 7. febrúar og hefst kl.
15.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Sama dag stendur
yfir skinnasýning frá kl. 10.00.
Fundurinn verður haldinn að Hótel KEA.
Stjórnin.
í reikningsskilum og bókhaldi
er okkar sterka hlið
Höfum umboð fyrii IJjJjJl hugbúnað.
Fjárhags-, viðskipta-, sölu- og lagerbókhald,
verktilboðakerfi og fleira.
HUGI
launabókhald (námskeið um helgina).
Og einnig flestar tegundir tölvubúnaðar.
Ifeíl FRAMSÓKNARMENN Ifell
AKUREYRI
Bæjarmálafundur
verður að Hafnarstræti 90 mánud. 1. febrúar
kl. 20.30. Fjárhagsáætlun bæjarins 1988.
Fulltrúar í nefndum beðnir að mæta.
Sýningar hafnar á
Þórskabarett
Um síðustu helgi hófust sýningar
á nýjum og eldhressum Þórs-
kabarett, sem hlotið hefur nafnið
„Svart & hvítt“. Margir af okkar
þekktustu skemmtikröftum taka
þátt í sýningunni og má þar nefna
Jörund Guðmundsson, Magnús
Ólafsson, Sögu Jónsdóttur, fjöl-
marga dansara og síðast en ekki
síst stórsöngvarann og grínistann
Tommy Hunt, sem sló eftir-
minnilega í gegn í Þórskabarett í
fyrra. Tommy hefur notið mikilla
vinsælda erlendis á undanförnum
árum og komið fram með Sammy
Davis jr., Stevie Wonder, Diönu
Ross og fleirum. Auk þess koma
fram í Þórskabarett hljómsveitin
Burgeisar, sem leikur jafnframt
fyrir dansi fram eftir nóttu. Um
tónlistarflutning fyrir matargesti
sér ítalski gítaristinn Leone
Tinganelli.
Þórskabarett er sýndur mat-
argestum í Þórscafé öll föstu-
dags- og laugardagskvöld. Boðið
er upp á þríréttaða veislumáltíð
og góða skemmtun, en auk þess
er matargestum, sem koma milli
kl. 19.00-20.00, boðið upp á
fordrykk. Veitingastjórar hússins
veita allar nánari upplýsingar og
taka á móti pöntunum alla virka
daga frá kl. 10.00-17.00.
Gestum utan af landi er sér-
staklega bent á hagstæðar Þórs-
kabarettreisur Flugleiða, þar sem
boðið er upp á flug, gistingu og
miða á kabarettinn. Þá er Holi-
day Inn hótelið með sértilboð á
gistingu í tengslum við kabarett-
inn. Hópum yfir 15 manns býðst
flutningur, endurgjaldslaust, frá
hótelinu og að Þórscafé. Holiday
Inn er nýtt og glæsilegt hótel við
Sigtún í Reykjavík. Herbergin, *
sem eru 100 að tölu, eru öll mjög
vel búin með breiðum rúmum,
sturtu og baði, sjónvarpi, síma,
„minibar“ og hárþurrku.
Þórskabarett í Þórscafé hefur
verið árviss viðburður í skemmt-
analífi landsmanna um 12 ára
skeið og hefur ávallt notið mikilla
vinsælda meðal almennings. Má
búast við að þær vinsældir
haldist, þó svo kabarettinn sé nú
að komast á „fermingaraldur-
inn“.
Skemmtikraftarnir sem koma fram í Þórskabarett ’88.
■■
' . .
g _
Frá kjörbúðum KEA
Bjóðum þorramat
í bökkum, 2 stærðir
Súrmatur í úrvali, svo sem bringur,
sviöasulta, hrútspungar, lundabaggar,
blóðmör, lifrarpylsa, hvalrengi
og svo hákarlinn góði.
ISIjótiÖ þorrans
á þjóðlegan hátt.
M II