Dagur - 29.01.1988, Síða 23

Dagur - 29.01.1988, Síða 23
29. janúar 1988 - DAGUR - 23 PÖNK í byrjun áttunda áratugarins ríkti háltgerö ládeyöa í popptón- listinni eftir blómlegt tímabil í lok sjöunda áratugarins. Þynnka þjáöi hippana, svart soul aö westan (í búningi innantómrar og fáránlegrar diskótónlistar) hélt innreið sína og glimmerrokkið var allsráö- andi. Mega-stjörnurnar höföu lokaö sig inni í eigin gerviheimi, flestum rokkurum var meira umhugsaö um gangverðiö á kókaíni en áheyrendur. Upp úr þessari öskustó reis pönkið. Villt, hávært, ferskt og frumlegt, stundum drasi en nær alltaf skemmtilegt. Pönkiö var að vissu leyti sjálfsprottin hreyfing krakkanna á götunni en heilinn á bak viö vinsældir pönksins var einn maður, Malcolm McLaren. Án hans hefðu Sex Pistols aldrei orðið til né pönksprengingin nokkurn tímann orðið. McLaren rak litla fataverslun í London ásamt lagskvendi sínu, Vivi- anne Westwood (sem seinna varð frægur tískuhönnuður). Þau sérhæfðu sig í alls kyns furðufatnaði auk klassískra ein- kennisbúninga teddanna og rokkaranna. Inn í þessa búðar- holu rákust meðlimir banda- rísku hijómsveitarinnar The New York Dolls. Þeir höfðu ver- ið reknir frá útgáfufyrirtæki sínu, Mercury, vegna lítillar plötusölu og voru að fara í hundana. McLaren hugðist reisa bandið við, elti The Dolls til New York og geröist umboðsmaður þeirra. Endur- reisnin misheppnaðist alger- lega en McLaren varð fyrir mikl- um áhrifum af því sem var að gerast í New York á þessum tíma en þá voru hljómsveitir á borð við Television, Blondie og Ramones að koma fram í fyrsta sinn. McLaren hélt heim á leið, staðráðinn í að koma einhverju svipuðu af stað í Englandi. Hann breytti nafninu á búðinni sinni í „Sex“ og tók hljómsveit- ina The Swanders upp á arma sína. Hún var skipuð þeim Steve Joners á gítar, Gien Matlock á bassa og Paul Cook á trommur. Drengina vantaði sárlega söngvara, McLaren reyndi að fá Midge Ure til liðs við bandið en án árangurs. Hann var alveg að gefast upp á leitinni og var jafnvel farinn að íhuga að taka sjálfur að sér sönginn. En svo var það dag einn að Umsjón: Einar Logi Vignisson. T> stráklingur, John Lydon að nafni, væbblaðist inn í „Sex“. Hann leit svo geðveikislega út að McLaren ákvað að athuga hvort drengurinn gæti sungiö. Svo reyndist nú ekki vera en til- burðimir voru ævintýralegir svo Johnny var ráöinn og eftirnafninu breytt í Rotten (sökum þess hve tennur hans voru grænar). Sex Pistols voru fæddir. .. Nafnið kom frá McLaren að sjálfsögðu og hann klæddi drengina í hin lurðulegústu dress, allt samah. ætlað ti| að vekja eftirtekt og helst hneyksl- un líka. Fyrstu hljómleikar svóitarinn- ar voru í nóvember 1975 og bandið smitaði rækilega út frá sór. Meöal fyrstu aödáenda Sex Pistols má nefna fólk eins og Siouxie Sioux, Steve Sever- in og Billy Broad (seinna Idol). Öll áttu þau eftir aö láta að sér kveða í eigin böndum. Árið 1976 spruttu pönk- hljómsveitir síðan upp eins og gorkúlur um allt England, fræg- astar að telja The Clash, Sioux- sie and the Banshees, Buzz- ocks og The Dammed (sem áttu fyrsta pönksmellinn, hið frábæra lag New Rose). Pönkið náði auðveldlega til ungs fólks, sérstaklega til krakka af verkamannastéttum sem margir hverjir voru atvinnu- lausir og fullir af vonleysi. Hug- myndafræðin var einföld, mað- ur átti að gera það sem manni sýndist og láta foreldra og yfir- völd lönd og leið. Hugtök eins og anarkismi og kaos héldu inn- reið sina, þótt vissulega hafi þau ekki verið ný af nálinni í rokk- inu, Jim Morrison notaði þesi sömu hugtök i textum sínum með Doors 10 árum áður. í fyrstu viidu pönkararnir sporna gegn veldi stóru útgáfu- fyrirtækjanna en þegar Sex Pistols gerðu sinn fyrsta plötu- samning var það við risann E.M.I. McLaren víldi græða á hlutupúm,. . Clash fylgdu í kjölfarið, ð'erðu samning við C.B.S^ i hóvember '76 og i lok þess mánaöar kom út fyrsta smáskífa Sex Pistols, Anarchy in the U.K. Lagið vakti almenna athygli og hneykslun hinna ráð- settari. Þegar 1977 gekk í garð var Ijóst að eitthvað mikið var í vændum. Meira um það I næstu viku. vísnaþáttur Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum orti næstu vísurnar tvær og bað Karl Friðriksson brúarsmið að bæta hinni þriðju við. Sæmund fróða muna má mestum lífs í vanda. Kölska gamla seggur sá sigldi milli landa. Af Oddaklerk var undir kynt ólgaði straumaflúðin. Ég hefheyrt hann hafi synt hraðara en Súðin. Og Karl jók við: Klerkar vorir máski meir mannkyninu fórna. En betur ekki allir þeir Andskotanum stjórna. Næst koma tvær vísur eftir Karl Friðriksson. Hjartað þráir Þymirós, þögn og dáinn friðinn. Öll eru frá mér æskuljós út í bláinn liðin. Sumir skjólið finna og frið, fagran stól og völdin. Hinir ólán eltast við út yfir sólartjöldin. Allir sem glettni unna kannast við skáldið K.N. Þannig auglýsti hann ljóðakver: Eldiviðinn ódýrt sel, enginn fæst hér slíkur. Ef að bókin brennur vel bráðum verð ég ríkur. Líka fólkið frétta má fjalla innst í dölum, eftirþetta er hún hjá eldiviðarsölum. ■ # K.N. skrifaði á bókina: Tungu minni ei tekst að ná tísku orða prjáli, því er best ég yrki á íslensku hrognamáli. Orðið að vera kvinnskur, sem merkir að vera þjófskur, er nú horf- ið úr ræðu og ritmáli. Fyrir löngu skaut maður þessari vísu að náunga sínum: Varastu að vera kvinn. Voðaleg er krambúðin. Axlar-Björn var afi þinn elskulegi vinurinn. Og náunginn svaraði að bragði: Varastu að vera kvinn. Voðaleg er krambúðin. Móðurbróðir það var þinn þú sem nefndir afa minn. Næstu vísu á Einar alþingismaður á Hæli að hafa ort eftir orrahríð á framboðsfundum: Nú er þreyttur munnur minn. Mjög var reynt á þrekið. Hann hefur nú í sjötta sinn sama rjómann skekið. Þá kemur gamall húsgangur úr Húnaþingum. Mikið heyrist Melstað frá. Margir þenja túla. Halli rak sig Hönnu á svo hljóp upp stærðar kúla. Næstu vísurnar þrjár voru kveðnar af Jóhanni Ólafssyni, Miðhúsum í Skagafirði. Hrönn við ósa vaggar vær, vakir rósöm blíða. Norðurljósin leifturskær loftin rósum prýða. Oft er syndin svalalind sem frá hrindir trega. Hennar skyndi mörg er mynd máluð yndislega. Jón Bjamason frá Garðsvík skrifar Er við sáttur ævikjör, úti brátt er glíma. Dvínar máttur, dofnar fjör dregur að háttatíma. Kristján Benediktsson málara- meistari kvað næstu vísurnar. Eftir kosningar: Mikið vill í meira ná, munu leiðir kunnar þeirra er hafa hagnast á heimsku alþýðunnar. Þannig met ég þingmannsdug, þenja túlann flestir og þeir sem tala þvert um hug þykja allra bestir.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.