Dagur - 30.08.1988, Blaðsíða 3
30. ágúst 1988 - DAGUR - 3
Eggjadeilan:
Ekkert til í ásökununum
- segir Jónas Halldórsson
formaður Félags eggja- og kjúklingaframleiðenda
Nýlega kærðu Neytendasam-
tökín eggjaframleiðendur til
Verðlagsráðs fyrir ólöglegt
verðsamanráð. Jónas Hall-
dórsson formaður Félags eggja-
og kjúklingaframleiðenda seg-
ir ekkert til í þessum ásökun-
um.
Jónas sagði þetta ekki vera í
fyrsta skipti sem eggjafram-
leiðendur væru kærðir af Neyt-
endasamtökunum því slíkt hið
sama hefði gerst í fyrra. „Auðvit-
að hækkar allt eftir gengisfelling-
ar og verðbólgu í landinu. Þar
sem ekki er langt síðan gengis-
felling var hækka hlutirnir með
styttra millibili en ella. Það er
ekkert samráð haft með verðið
því það hækkar kannski einhver
stórframleiðandi og þá þurfa hin-
ir minni auðvitað að fylgja á eftir
þar sem hraðinn er orðinn svona
mikill," sagði hann.
„Það ruglar fólk líka í ríminu
núna að fyrir ári var geysilegt
undirboð á eggjum. Þau voru
seld á aðeins þriðjungi þess verðs
sem þurfti að fá fyrir þau. Við
fengum ekki fyrir nema helm-
ingnum af fóðrinu en ekkert fyrir
vinnuna og aðra liði. Síðan eru
þeir að reikna prósentuna út frá
þessu verði og það er afar óheið-
arlegt,“ sagði Jónas.
„Eg held þessir menn lesi sam-
keppnislögin afturábak. Því sam-
kvæmt þeim eiga þau að verja
bæði framleiðendur og neytend-
ur. Neytendasamtök eru ákaflega
nauðsynleg og þarf að vera gott
samstarf við þau. En það er alltaf
öðru hvoru gert eitthvað til að
spilla því, kærur og slíkt. Ég sé
því ekki að þeir sem stjórni sam-
tökunum núna séu færir um að
vera í þeim stöðum. Þeir gera
ekkert nema skapa tortryggni og
illsku milli framleiðenda og neyt-
enda sem er ákaflega slæmt,“
sagði Jónas.
Búið er að sækja um verðlagn-
ingu hjá sexmannanefnd fyrir
bæði egg og kjúklinga en ekkert
hefur verið gert í því máli að
sögn Jónasar. Hann sagðist þó
eiga von á að hún kæmi til
afgreiðslu annaðhvort 1. sept-
ember eða 1. desember.
Eggjaframleiðsla stendur vel í
landinu í dag að sögn Jónasar og
haldast þar framboð og eftir-
spurn í hendur og segir hann
verðlagið vera eðlilegt. „Við
erum samt lengi að komast upp
úr þessari undirboðavitleysu sem
við lentum í sl. ár. Það tekur ein
tvö ár.“ KR
Framhaldsskólinn á Laugum:
Færri en vildu
fengu skólavist
Framhaldsskólinn á Laugum í
Reykjadal tekur formlega til
starfa 1. sept. nk. og tekur þá
við af Héraðsskólanum. Fram-
haldsskólinn verður settur 15.
sept. 146 nemendur munu
stunda nám við skólann í vetur
og er hann lullsetinn. Þó nokk-
uð mörgum nemendum varð
að vísa frá og fleiri kennarar en
að komust sóttu um stöður við
skólann.
Átta sveitarfélög eru þátttöku-
aðilar að rekstri Framhaldsskól-
ans á Laugum og hann fær til
afnota húsnæði Héraðsskólans og
Hússtjórnarskólans.
Steinþór Þráinsson, skóla-
meistari sagði að þar sem um nýj-
an skóla hefði verið að ræða
hefðu allar stöður verið auglýst-
ar, allir kennarar héraðsskólans
hefðu sótt um við framhaldsskól-
ann og fjórir að auki, en aðeins
hefði fjölgað um eina stöðu.
í vetur múnu 146 nemendur
stunda nám við skólann, það eru
30 fleiri en í fyrra og 50 fleiri en
árið þar áður. Þó varð að neita
Akureyri:
Óskað eftir
vitnum að
árekstri
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri óskar eftir vitnum að
umferðaróhappi sem varð á
Akureyri 8. ágúst sl.
í umræddu óhappi, sem varð á
gatnamótum Gránufélagsgötu og
Geislagötu klukkan 17.17 mánu-
daginn 8. ágúst, lentu tvær fólks-
bifreiðar af gerðinni Subaru og
Galant. Ökumaður annarrar bif-
reiðarinnar segir að kyrrstæð
bifreið hafi beðið á gangbrautar-
ljósum norðan gatnamótanna
þegar áreksturinn varð. Öku-
maður þeirrar bifreiðar og önnur
vitni eru beðin um að gefa sig
fram hjá rannsóknarlögreglunni
á Akureyri hið fyrsta. EHB
30-40 nemendum um skólavist
þar sem skólinn var fullsetinn.
„Ég held að þessir sveitaskólar
séu aftur að ná mjög miklum vin-
sældum og mér finnst gott að
halda utan um hóp hérna,“ sagði
Steinþór. 46 nemendur verða í
níunda bekk grunnskóla en 102
nemendur í framhaldsnámi á
fyrsta og öðru ári. Steinþór sagð-
ist hafa reynt að neita ekki þeim
nemendum um skólavist sem
áður hefðu stundað nám við
skólann. Flestir nemendanna
koma af svæðinu frá Blönduósi til
Vopnafjarðar. 1M
OLYMPIAO ritvélar
Hausttilboð
Vegna hagstæðra innkaupa getum við boðið
Olympia Carrera ritvélar á kr. 17.600,- staðgreitt.
Venjulegt verð er kr. 19.900,-
Tilboð þetta gildir meðan birgðir endast.
OLYMPIAO
1 t t i \
! ! i \
I 1 ! i í !• i ! .
1 ll I I I 1
i ! M I I I I I M M
I M I I í r i I I M,
LJL-JLJ t J L
Ritvélin sem fylgir þér hvert sem er
Skólaritvél í sérflokki með lyklaborð
aðlagað að fingrunum sem auðveldar hraða og
villulausa vélritun.
Skrifstofuritvél í sérflokki með ásláttarjafnara,
síendurtekningu á öllum tökkum,
leiðréttingarminni o.m.fl. sem tryggir góðan
frágang án fyrirhafnar.
Olympia Carrera er tengjanleg við allar tölvur.
IRANKXEROX
EHepson olympiao
nHHBBBBBBnBBBBHBHm
p & E wpa ■ gg» líBhimin Frin BCHJUvlfll EUU a
Við fækkum um eina sætaröð
í öllum innanlandsvélunum og aukum bilið
til þess að betur fari um þig.*
Fljúgðu innanlands
og finndu muninn
*Breytingunum verður lokið á öllum
Fokkerflugvélunum 1. september.
FLUGLEIDIR
AUK/SlA K110d20-172